Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Side 8
8
Utlönd
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997
BÍL\S4IANHORNIÐ
DUGGUVOGI 12 • 104 REYKJAVÍK
SÍMI 553 2022 • FAX: 553-2012
Range Rover Turbo Disel ‘97, ek. 11
þús. km, 5 g., vínrauður,
Verö 4.590.000 ATH. sk. ód.
MMC Galant LS ‘95, svartur, einn með
öllu svo sem leður, rafmagn, ABS, air-
bag, ssk., álfelgur, lopplúga,
Verö 1.950.000 ATH. sk. ód.
Pontiac Sunbird ‘89, rauður, 5 g.,
Tilvalinn guttabíll.
Verö 850.000 ATH sk. ód. eö dýr.
Opel Tigra '96, ek. aðeins 6 þús. km,
koparbrúnn, 5 g., toppl., rafdr. I rúðum.
Verö 1.680.000. ATH. sk. ód.
Subaru Legacy Outback ‘96, 5 g.,
grænn og grár, ek. 2500 km, Gullfall.bíll.
Verö 2.400.000 ATH. sk. ód.
Chevrolet Van ‘92, innréttaöur glæsi-
vagn m/ öllu. Sjón er söguríkari.
Verö 2.400.000 ATH sk. ód.
Toyota 4 runner ‘93, 5 g., ek. 89 þús.
km, vínrauður. Eins og nýr.
Verð 2.000.000 ATH. sk. ód.
WV Transporter VSK bfll,
ek. 178 þús. km,
Verö 890.000.
Nissan Sunny 2000 GTi ‘91, ek. 130
þús. km. Flottur!
Verö 890.000 ATH sk. ód.
BMW 520 I ‘88 ek. 160 þús. km, grár,
Mjög gíöur bíll.
Verö 950.000 ATH skipti.
Bráðvantar allar
gerðir bíla á söluskrá
og á staðinn.
V_________________)
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafsláttur oWmiiiiþ/^
ogstighœkkandi „ . ...
^ ^ Smaauglysingar
birtingarafsláttur
DV
550 5000
DV
Kosningar fóru vel
fram í Albaníu
Albanar flykktust á kjörstaði í
gær þegar gengið var til almennra
kosninga og er vonast til að þær
bindi enda á þá óöld sem ríkt hef-
ur í landinu. Forseti landsins,
demókratinn Sali Berisha, og sós-
íalískir keppinautar hans, sem
fara fyrir núverandi rikisstjóm,
sögðu að kosningarnar hefðu farið
vel fram.
Forsætisráðherra Ítalíu, Roma-
no Prodi, var hæstánægður með
framkvæmd kosninganna og sagði
það herliðinu að þakka.
„Fyrir utan eitt lítið atvik var
röð og regla á hlutunum. Herlið
okkar kom í veg fyrir frekari
vandamál. Ég vil þakka því fyrir
frammistöðu sina. Því tókst að
sýna fram á að frjálsar kosningar
geta farið fram i hvaða landi sem
er.“
Niðurstöður úr kosningunum
liggja ekki enn fyrir en leiðtogar
beggja flokkanna segjast munu
sætta sig við niðurstöður þeirra.
Margir vestrænir embættismenn
em hins vegar svartsýnir á að svo
verði og segja að fátt bendi til þess
að átökin í landinu séu á enda og
lög og regla taki við.
Bæði Sali Berisha, forseti lands-
ins, og sósíalistar héldu því fram í
gær að þeir hefðu sigrað og lögðu
fram eigin gögn sem sýndu fram á
að þeir hefðu meirihluta þingsæta
sem eru 155 talsins.
Eftirlitsmenn frá Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu fylgdust
með framkvæmd kosninganna.
Flugu þeir milli staða í þyrlum en
að sögn eins eftirlitsmannanna
þurfa þeir að yfirgefa landið í dag.
Reuter
Palestinsk kona rankar við sér eftir að það leið yfir hana þegar fjöldi manns kom saman til að þrýsta á yfirvöld í
Palestínu að sleppa sonum og eiginmönnum, sem haldið er sem pólitískum föngum, úr fangelsi. Símamynd Reuter
Díana þrætir
fyrir trúlofun
Díana prinsessa neit-
aði því í gær að hún
væri trúlofuð hjarta-
skurðlækni frá Pakist-
an en fjölmiðlar í Bret-
landi hafa undanfarið
velt því mikið fyrir sér
hvort Karl Bretaprins
ætli að giftast hjákonu
sinni, Camillu Parker
Bowles.
„Prinsessan af Wales
er ekki trúlofúð Hasnat
Khan, hvorki opinberlega eða óop-
inberlega," sagði talsmaður Díönu
og bætti því við að þessi heilabrot
fjölmiðlanna hefðu skað-
leg áhrif á starfsemi
þeirra sjúkrahúsa sem
dr. Khan stundaði störf
sín við.
í fjölmiðlum kom fram
að Díana hefði flogið til
Pakistan í síðasta mán-
uði til að fá móður Khans
til að leggja blessun sína
yfír brúðkaup þeirra.
„Töfrar hennar virk-
uðu,“ sagði í Sunday Mir-
ror sem einnig greindi frá því að
gifting væri að öflum líkindum á
næsta leiti. Reuter
Díana prinssessa.
Stuttar fréttir
Vopnahlé í Kongó
Uppreisnarmenn í Kongó
lögðu niður vopn í gær en svart-
sýni ríkir þó um að friður sé á
næsta leiti.
Lést í gær
Fyrrum stjórnarformaður í
japönskum
banka, Kimiji Mi-
yazaki, lést á
sjúkrahúsi í gær
eftir að hafa
reynt að hengja
sig. Miyazaki var
flæktur í stórt
fjársvikamál og var færður til yf-
irheyrslu sl. fostudag.
Gagnrýni á Bandaríkin
Utanríkisráðherra Dana, Niels
Helveg Peterson, gagnrýndi
Bandaríkjamenn harðlega í gær
fyrir að sjá Bosniu fyrir hergögn-
um.
Mikill snjór í
Pýreneafjöllum
Ferðamenn sem lögðu upp í sól-
baðsferð til Pýreneafjalla, á landa-
mærum Frakklands og Spánar,
skildu stuttbuxurnar eftir heima og
tóku þess í stað með sér skíði.
Yfir 80 hjólreiðamenn voru fastir
i búðum í fjöllunum vegna mikifla
snjóa en þetta er i fyrsta skipti í
þrjátíu ár sem snjór fellur í þessari
hæð yfir rávarmáli seinni hluta
júnímánuf'ar.
Júnímaiuður hefur verið einn
blautaf a mánuður í manna minn-
un 1 Frakklandi. Mikið hefur rignt
í flestum landshlutum og spáir veð-
urstofan meiri snjókomu í Ölpunum
og Pýreneafjöllum í dag.
Reuter
Læknar alnæmi?
Hundruð manna flykkjast nú á
heimili Beritu Okwi í Úganda í
þeirri von að fá lækningu við
sjúkdómi sinum, alnæmi. Berita
sagði að til sín hefði verið komið
í draumi og henni sagt að undir-
búa lækningu við alnæmi.
Sameiginleg mynt
Samkvæmt skoðanakönnun
hafa yfir 60 prósent Þjóðverja
ekki trú á því að gjaldmiðiU
verði orðinn sameiginlegur í
Evrópu í janúar 1999 eins og
Kohl kanslari hélt fram fyrir
helgi. Reuter