Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997 29 I>V Fréttir Grundartangahöfn: Lánar Norðuráli 3 milljónir dollara DV, Akranesi: Aukafundur var haldinn í bæjar- stjórn Akraness 24. júní. Var hann sérstaklega boðaður vegna álvers Norðuráls á Grundartanga og lán- töku vegna stækkunar á höfhinni þar. „Það var nauðsynlegt að kalla bæj- arstjórn saman þar sem verið var að samþykkja að heimila stjóm hafnar- innar að skrifa undir hafnarsamning við Norðurál. í samningnum er gert ráð fyrir stækkun hafnarinnar. Þess vegna var einnig nauðsynlegt að samþykkja heimild til að standa að framkvæmdakostnaði. Akraneskaupstaður samþykkti fyrir sitt leyti að ábyrgjast sinn hlut af lántökunni sem er 300 milljónir króna. Síðan munu öll sveitarfélögin sem eiga hlut í Grundartangahöfn samþykkja sams konar ábyrgð þann- ig að þau munu öll bera ábyrgð á þessu láni. Samþykkt var að heimila stjórn Grandartangahafnar að lána Norðuráli 3 milljónir dollara enda sé á bak við það trygg ríkisábyrgð," sagði Gisli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, í samtali við DV -DVÓ Sólberg til Siglufjarðar Togarinn Sólberg fer nú á rækjuveiðar. DV-mynd Helgi DV, Ólafsfirði: Ákvörðun var tekin nú í vikunni hjá stjóm Þormóðs ramma-Sæbergs hf. að segja upp áhöfn ísfisktogar- ans Sólbergs hf., sem gerður hefur verið út frá Ólafsfirði síðan 1974, þar sem hann mun í framtíðinni verða gerður út frá Siglufirði. Sólberg fær um leið nýtt hlutverk. í stað þess að veiða bolfisk eins og undanfarin ár verður togarinn gerð- ur út á rækju. Er þetta liður í rekstr- arhagræðingu fyrirtækisins. Þeim í áhöfninni sem stystan starfsaldur höfðu var sagt upp þar sem færri þarf í rækjuna. Stefnt er að því að þeim verði boðið starf á togarann Engey sem að öllum lík- indum kemur til Ólafsfjarðar í byrj- un júlí. -HJ Grindavíkurhöfn: Dýpkunin skotgengur DV, Suðurnesjum: „Þetta rótgengur og við erum syngjandi glaðir yfir árangrinum. Það er að nálgast 70% sem er búið að framkvæma. Verkáætlun er um miðjan ágúst og það virðist ætla að standa,“ sagði Jón Gunnar Stefáns- son, bæjarstjóri í Grindavík, í sam- tali við DV. Dýpkunarframkvæmdir í innsigl- ingunni í Grindavík ganga sam- kvæmt áætlun. Það er færeyska fyr- irtækið J&K Petersen sem er með verkið. Stórar vinnuvélar og pramm- Dýpkunarframkvæmdir í innsiglingunni í Grindavík ganga vel DV-mynd Ægir Már ar eru notaðir og geta sjófarendur svo náglægt eru þeir þegar bátarnir heilsað verktökum með handabandi eru að sigla inn. -ÆMK Er spilling innan Tryggingastofnunar ríkisins? Að gefnu tilefni vilja samtökin Lífsvog auglýsa eftir fólki sem farið hefur í læknisskoðun vegna örorkumats hjá læknum innan veggja Tryggingastofnunar ríkisins og þurft að greiða fyrir matið. Upprætum spillingu Innan heilbrlgðiskerflslns. Stjóm Lífsvogar. Ásdís Frimannsdóttir, sími 566 6898. Guðrún M. Óskarsdóttir, sími 561 1587. ^Ciðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningarog fl. og fl. og fl. vaiiiyfféld. og ýmsir fylgihlutir Ekki treysta á veðrið þegar r skipuleggja á eftirminnilegan viðburð - Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. T|öld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2. Einnig: Borð, stólar, Ijaldgólf og tjaldhitarar. ag þú færi Hljú&sneel að gjöfl - '"i í sumarleik Shellstöðvanna geta allir krakkar eignast fjórar hljóðsnældur meó skemmtilegu efní eftir Gunna og Felix. Náðu þér i þátttökuseðil á nastu Shellstöð eða i Ferðabák Gunna og Felix og byrjaðu að safna skeljum. Það fsst ein skel við hverja áfyllingu á Shellstöðvunum og þegar skeljarnar eru orðnar fjórar, faröu hljáðsnældu að gjöf. Ferðabák Gunna og Felix fylgir öllum kössum af Hl-C sem keyptir eru á Shellstöðvunum. Shellstö&varnar 6 &{&&&&

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.