Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Síða 36
44
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997
(í|Jponn
pp\ JM
Heilsugæsla
þar sem
jafnvel
Norðmenn
fá aðgang
„Hér hafa allir jafnan aðgang,
jafnvel Norðmenn, aðeins spurn-
ing um hærri þjónstugjöld eða
eigum við að segja nákvæmari
reikninga, þó ég sé alfarið á móti
þjónustugjöldum."
Ólafur Ólafsson landlæknir í
Degi-Tímanum.
Hestur í
svefnher-
berginu
„FVrstu nóttina lá folaldið á
gólfinu við hliðina á rúminu og
fékk gjöf á tveggja tíma fresti."
Helgi Sveinbjörnsson, for-
stöðumaður dýragarðsins í
Slakka, sem bjargaði dauðvona
folaldi, í Morgunblaðinu.
Ummæli
Vælandi
prestar
„Þetta væl í íslenskum prest-
úm er satt að segja orðið dálítið
hvimleitt. Það hendir varla
nokkurn tíma að íslenskur prest-
ur opni á sér kjaftinn um nokk-
urt mál annað í þessu þjóðfélagi
en eigin launakjör(...).“
lllugi Jökulsson í Degi-Tíman-
um.
Ting Ming Siong, svaramaðurinn
duglegi, stendur lengst tii hægri.
Ötulasti
svara-
maðurinn
Ting Ming Siong er sá maður
sem oftast hefur verið svaramað-
ur við brúðkaup í öllum heimin-
um. Frá árinu 1976 til 1989 hafði
hann verið svaramaður 465 sinn-
um.
Lægsti
herskyldu-
aldur
Francisco Macias Nguema, for-
seti Miðbaugs-Gíneu, gaf út þá
tilskipun árið 1976 að allir dreng-
ir á aldrinum sjö til fjórtán ára
væru herskyldir. Þeir foreldrar
sem neituðu að afhenda syni
sína áttu á hættu að vera fangels-
aðir eða drepnir.
Blessuð veröldin
Bjórmottur
Leo Pisker á heimsins stærsta
safn af bjórmottum. Árið 1989
voru í safni hans meira en
126.700 mismunandi bjórmottur
frá 152 löndum.
Örn Friðriksson, prestur og prófastur:
Mun ekki leiðast þótt
ég láti af störfum
DV, Akureyri:
„Ég á ekki von á því að mér
muni leiðast mikið ef heilsan verð-
ur áfram góð. Ég á fjöldann allan af
áhugamálum til að dunda mér við,“
segir Öm Friðriksson, prestur og
prófastur á Skútustöðum í Mývatns-
sveit. Eftir áratugastarf í Mývatns-
sveit lætur sr. Örn af störfum 1.
ágúst en hann vakti athygli við upp-
haf prestastefnu á Akureyri þar sem
hann messaði yfir kollegum sínum
og ræddi m.a. stöðu kirkjunnar í
dag.
„Sumir voru ánægðir með ræð-
una, aðrir ekki. Ég ræddi um
ágreiningsmál innan kirkjunnar og
sumir sem voru óánægðir sögðu að
ræðan hefði verið svanasöngur
nýguðfræðinnar svokölluðu. Ef svo
hefur verið var ræðan um leið
svanasöngur þjóðkirkjunnar. Ef
prestarnir ætla að loka sig inn í fila-
beinsturnum og slíta sambandinu
við almenning þá leggst þjóðkirkjan
niður. Henni verður ekki haldið
uppi ef 95% landsmanna snúa við
henni baki.“
Örn fæddist í Kanada árið 1927,
sonur islensks fóður og danskrar
móður. Sex ára gamall fluttist hann
til íslands. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum
á Akureyri 1949
eftir að hafa að
mestu leyti lesið
utan skóla. Þá lá
leiðin i Kaup-
mannahafnarhá-
skóla þar sem
hann las dönsku
og bókmenntir en
árið 1954 útskrif-
aðist hann sem
guðfræðingur frá
Háskóla íslands.
Sama ár varð
hann prestur á
Skútustöðum þar
sem hann hefur
þjónað síðan.
„Ég er ánægð-
ur með lífshlaup-
ið og mér hefur
samið vel við Mý-
vetninga. Þótt
stundum hafi gu-
stað hér um
menn og málefni
hef ég lítið bland-
að mér í þær deil-
ur en hér er yndislegasti staðurinn
á jörðinni og gott að vera, ég kvarta
því ekki.
Ég hef nóg við að sýsla utan vinn-
unnar. Söfnun
myndavéla er
mitt helsta söfn-
unaráhugamál
en ég á inn 400
myndavélar af
ýmsum gerðum,
innan um mikla
kostagripi. Ég
mála mikið, spila
á píanó og get
kallað mig tón-
skáld. Svo merki-
legt sem það nú
er þá er ég ekki
hagyrðingur,"
segir Örn.
Hann segist sjá
fram á rólega
daga eftir að
hann lætur af
störfum. „Það
versta er að ég
mun lækka um
helming í launum.
Ríkið hefur þann
hátt á að borga
prestum ekki
mannsæmandi
laun en ýmsar sporslur bæta að
vísu launin aðeins upp. Þær sporsl-
ur segja hins vegar ekkert þegar
kemur að útreikningi eftirlauna."
Sr. Örn Friöriksson.
DV-mynd gk
Maður dagsins
Myndgátan
Smámunasamur maður. Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi.
DV
Bridge
Norður
4 Á4
44 K94
4 ÁKG1092
* Á5
Þú situr í norður og ert með öfl-
uga hönd. Allir eru á hættu í spil-
inu og vestur er gjafari. Hann opn-
ar á einum spaða og þú kýst að
dobla þann samning með það fyrir
augum að segja frá tígullit þinum
síðar, lýsir þannig sterkri hendi.
Þegar kemur að þér næst eru sagn-
ir komnar á fimmta sagnstig. Aust-
ur stekkur í fjóra spaða við dobli
þínu og félagi í suður segir fimm
lauf. Hvað vilt þú gera?
4 Á4
* K94
•f ÁKG1092
4 Á5
-------4 109732
«4 1053
4 D6
_______ 4 643
4 G
44 D6
4 854
4 KDG10987
Vestur Norður Austur Suður
14 dobl 4 4 5 4'
pass 6 Grönd p/h
Sagnhafi í norður taldi að suður
ætti langan og þéttan lauflit fyrir
sögn sinni og taldi góðar líkur á að
standa slemmu í spOinu. Þar sem
spilaformið var tvímenningur
(sumarbridge síðastliðinn fimmtu-
dag) var 6 granda sögnin valin um-
fram 6 lauf. Austur ákvað að spOa
út hjartaþristi, sagnhafi setti lítið í
blindum og vestur var í vandræð-
um. Eftir langa yfirlegu ákvað
hann að setja gosann, enda á sagn-
hafi 12 slagi ef hann fer upp með
ás. Það hlakkar í sagnhafa því nú
telur hann að allir slagirnir séu í
húsi. Úti liggja aðeins 12 punktar
sem hljóta aOir að vera hjá sagn-
hafa og tígulsvíning því sönnuð.
Sagnhafí drepur á hjartakóng, legg-
ur niður tígulás og byrjar að dæla
niður laufslögum. Allt stefnir í
stórslys hjá sagnhafa en þá kemur
vestur óvænt tO hjálpar og hendir
tígli í sjöunda laufið. Þau mistök
hans breyttu tölunni úr toppi í
botn.
ísak Öm Sigurðsson
4 KD865
44 ÁG872
4 73
4