Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1997, Blaðsíða 9
JÉj“V FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1997 nlists HLJÓMPLjjTU Eric Serra - The Fifth Element Framtíðarblús *** Franski tónlistarmaðurinn Eric Serra hefur verið í nánu samstarfi við leik- stjórann Luc Besson, allt frá því Besson gerði sina fyrstu kvikmynd árið 1982 og hefur Serra gert tónlist við allar hans myndir síðan. Má segja að vegur Serra hafi vaxið í tónlistarheiminum að sama skapi og vegur Luc Bessons í kvik- myndaheiminum. Tónlist Serra hefur yf- irleitt haft sterk höfundareinkenni og þeir sem hafa hlustað mikið á tónlist hans eru fljótir að átta sig á upprunan- um. Sú tónlist Serra sem lífseigust hefur verið er við kvikmyndina Atlantis, en platan með tónlistinni seldist í milljónaupplagi. Þar má segja að Serra hafi fengið nokkuö að ráða ferðinni, öfugt við það sem hann gerir í The Fifth El- ement, sem er tæknivædd framtíðarkvikmynd, þar sem tónlistin er meira í bakgrunninum. Meginefni plötunnar er því frekar torræð tónlist sem erfitt er að átta sig á og fá botn í án þess að hafa myndskeiðin fyrir framan sig. Einstaka verk eru þó áheyrileg, eins og til að mynda Leeloo, þar sem að- alkvenpersóna myndarinnar er kynnt til sögunnar, þar semur Serra í klass- ísku formi fallegt stef sem hann síðan fer með á ýmsa vegu og endurtekur síðar á plötunni. Þá er vert að nefna Ruby Rap, mjög svo í anda tónlistar sem vinsæl er í dag. Það sem er mest grípandi er byrjunar- og lokalag mynd- arinnar Little Light of Love, grípandi og líflegt lag sem er einstaklega skemmtilega útsett fyrir hljóðgervla og raddir. Áhugaverðastur er þó flutn- ingur sópransöngkonunnar Inva Mulla Tchaco á aríu úr Lucia Di Lammermoor, þar sem hún tengir það dansóðnum The Diva Dance sem Serra semur. Þessi samsetningur er fluttur á sviði i myndinni og er ekki síð- ur áhugaverður að sjá en heyra. í heildina er tónlistin úr The Fifth Element nánast eingöngu fyrir þá sem hafa áhuga á Eric Serra eða kvikmyndatónlist almennt. Hún byggist mun meira á sjálfri kvikmyndatónlistinni heldur en einstaka lögum eins og mikið er ofnotað í kvikmyndum í dag, sérstaklega amerískum kvikmyndum. Serra hefur aftur á móti gert betur og má þar nefha tónlistina við Subway og Nikita, sem dæmi um góöa kvikmyndatónlist frá hans hendi. Hilmar Karlsson HENDRIX - First rays of the new rising sun Stendur fyrir sínu Lögin á þessum splunkunýja hljómdiski með Jimi Hendrix heitn- um komu upphaflega út á plötunum „Cry of Love“, „Rainbow Bridge“ og „War Heroes". Það var fyrir tuttugu og fimrn árum. Þetta er músíkin sem Hendrix var að vinna að er hann lést. Hugmynd hans hafði verið að senda frá sér tvöfalt albúm á borð við „El- ectric Ladyland" en hafa músíkina eitthvað aðgengilegri en á þeim plöt- um, þannig aö hann næði ef til vill til breiðari áheyrendahóps. Ættingjar og samstarfsmenn meistarans hafa nú raðað þessari músík á einn hljóm- disk og reynt að ímynda sér hvemig hann hefði haft þetta sjálfur. Eins og alltaf var músíkin samin fyrir rokktríó. Trommari var Mitch Mitchell úr Jimi Hendrix Experience og á bassa lék Billy Cox úr Band of Gypsies. Slag- verksleikarinn Juma Sultan kom einnig við sögu og bakraddir eru í nokkrum lögum en fyrst og fremst einkennist músikin af gítarleiknum sem gjaman er tekinn upp mörgum sinnum. Söngur Hendrix er eins og hann var alltaf; merkilega góður miðað við mann sem áleit sig alls ekki vera söngv- ara og hafði ekki mikla trú á þeim hæfileikmn sínum. Rödd hans er samt einhvem veginn órjúfanlegur þáttur tónlistarinnar. Þessi músfk er að verða þrjátiu ára gömul. Það er erfitt að ímynda sér það þegar miðað er við margt sem er að gerast í rokktónlist um þessar mundir. Tónlist Hendrix stendur enn fyrir sínu og stendur reyndar framar flestu sem maður heyrir nú til dags af svipuðu tagi. Því hefur oft verið haldið fram að Jimi Hendrix hafi verið eiturlyfjaneytandi sem lést sökum nevslu sinnar. Slíka og þvilíka músík, sem hér er að finna, gæti enginn búið til sem kom- inn væri að fótum fram vegna neyslu. Þegar Hendrix var að vinna þessa músík átti hann við þunglyndi að stríða og notaði við því lyf. Hann gerði svo þau mistök kvöld nokkurt að drekka áfengi ofan í lyfin, „dó“ eins og það er kallað, kastaði upp í svefhi og kafnaði. Snilligáfa hans er óumdeilanleg. Hvemig ætli músík hans hefði hljómað í dag hefði hann lifað? Ingvi Þór Kormáksson Soma - Föl Þétt og þungt *** Venjan er sú að sumarið sé tími léttrar tónlistar, gleðipopps og -rokks sem á aö kynda undir aðsókn að helg- arskemmtunum. Platan Föl með hljómsveitinni Soma er í allt öðrum anda. Tónlistin gerir kröfur um að hlustandinn einbeiti sér. Hann getur með öðrum orðum ekki látið sér nægja að heyra heldur verður að hlusta. Stefha Soma er rokk I þyngri kantinum en hér og þar er þó slegið á léttari strengi og það verður að segjast eins og er að þar nær hljóm- sveitin bestum árangri. Lagið Lifa þig er til að mynda best heppnaöa lag plötunnar. Þar er ekkert of eöa van. Annað lag, sem vert er að nefha, er Grandi Vogar II. Þar er textinn lika vel heppnaður, skemmtilega raunalegur og vekur eflaust upp endurminningar hjá einhverjum sem eru komnir yfir táningsaldurinn. Frammistaða liðsmanna Soma er til sóma. Gítarleikarar fara sérlega mik- inn enda er um rokktónlist í þyngri kantinum að ræöa. Gítarkeyrslan þarf alls ekki að minnka þótt útsetningar á framtíðartónlist Soma verði ögn létt- ari frá því sem er á plötunni Föli. Fyrir bragðið myndi tónlistin hitta enn betur í mark en nú. Ásgeir Tómasson Oasis: Hljómleikaferðin hefst í Ósló áttunda september. 0 a sis - seinkar nýju plötunni lítillega Útgáfufyrirtæki hljómsveitarinn- ar Oasis hefur tilkynnt að útgáfu nýju stóru plötunnar, Be here now, hafi verið seinkað um nokkra daga. I áætlun síðasta mánaðar var gert ráð fyrir að hún kæmi út átjánda ágúst. Seinkunin er óveruleg, að- eins þrír dagar, þannig að aðdáend- umir ættu að geta nálgast eintökin sín fimmtudaginn 21. ágúst ef fyrsta sendingin skilar sér samkvæmt áætlun. Á Be here now verða tólf lög sem taka samtals rúmlega sjötíu mínút- ur í flutningi. Þar af leiðandi verður vinnuútgáfa plötunnar tvöfold. Hins vegar er hægt að þrengja lögunum tólf á einn geisladisk. Forsmekkur tónlistarinnar á Be here now kom út á smáskífu fyrir nokkrum vik- um, það er að segja lagið D’You Know What I Mean. Það fór rakleið- is í fyrsta sæti breska vinsældalist- ans og allhátt víðar vegna mark- vissrar markaðssetningar útgefand- ans. Breska dagblaðið Daily Star hljóp rækilega á sig sautjánda júlí þegar það lét fylgja með blaðinu átta síðna umOöllun um Oasis þar sem meðal annars kom fram að nýja stóra plat- an kæmi út daginn eftir. Á hinni op- inberu heimasíðu hljómsveitarinn- ar er gert grín að þessum sofanda- hætti Star og aðdáendurnir hvattir til að taka sem minnst mark á skrif- um þess blaðs. Hljómleikaferð framundan Liðsmenn Oasis fylgja plötunni Be here now að sjálfsögðu eftir með hljómleikaferð. Ferðin hefst áttunda september í Ósló. Kvöldið eftir leik- ur hljómsveitin í Stokkhólmi og þaðan liggur leiðin til Kaupmanna- hafnar. Að þessum þrennum tón- leikum loknum heldur Oasis á heimaslóð. Helgina þrettánda og fjórtánda september leikur hljóm- sveitin í Exeter. Þaðan liggur leiðin til Newcastle, Aberdeen, ShefEíeld, Lundúna og loks Birmingham þar sem verður leikið síðustu tvo dag- ana 1 september. Lengra nær ferða- áætlun Oasis ekki þegar þetta er rit- að. Hljómsveitin heldur þrenna tón- leika i Earl’s Court í Lundúnum að þessu sinni. Þar hefur verið gengið frá því að hljómsveitin Verve hiti upp. Samstarf Verve og Oasis teygir sig aftur til ársins 1993 þegar Oasis sá um að hita upp fyrir Verve á hljómleikaferð um Bretland. í febrú- ar árið eftir átti Oasis að endurtaka leikinn fyrir Verve í Amsterdam í Hollandi. Ekkert varð af leiknum í það skiptið því að vissum liðsmönn- um Oasis var vísað úr ferjunni sem átti að flytja hljómsveitina yfir Erm- arsund til meginlandsins. Árið eftir hugðust Verve-menn hita upp fyrir Oasis á hljómleikaferð í Sheffield. Af því gat ekki orðið því að Nick McCabe, gítarleikari hljómsveitar- innar, braut nokkra fingur á nætur- klúbbi í París kvöldið áður en hljómsveitirnar áttu að koma fram. Þótt enn sé tæpur mánuður þar til platan Be here now kemur út virðast liðsmenn Oasis þegar vera byrjaðir að leggja frumdrögin að næstu plötu hljómsveitarinnar. Noel Gallagher hefur til að mynda skýrt frá því að meiri danslagabrag- ur eigi að verða á þarnæstu plöt- unni en á Be here now. Það eru væntanlega afleiðingarnar af sam- starfi hans við The Chemical Brothers. Samantekt: ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.