Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1997, Blaðsíða 2
22 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1997 Iþróttir IX*■ 3. DEILD KARlfl A-riöill: KFR-Haukar . 1-3 Smástund Hamar . 3-1 Framherjar-Hamar 8-2 ÍH-Ármann 2-2 Haukar 11 9 2 0 39-13 29 Framherjar 10 6 2 2 33-25 20 Ármann 11 6 1 4 28-23 19 Léttir 10 5 2 3 22-13 17 Smástund 11 5 1 5 24-25 16 ÍH 11 2 3 6 18-29 9 KFR 11 1 3 7 17-32 6 Hamar 11 2 0 9 19-40 6 B-riöili: Bruni-Njarðvlk................1-2 Snæfell-Grótta................0-2 KSÁÁ-Afturelding..............2-4 GG-Víkingur, Ó................0-0 Víkingur, Ó.ll 8 2 1 28-14 26 Aftureld. 11 8 1 2 27-9 25 Njarðvík 11 7 3 1 39-16 24 Bruni 11 5 0 6 17-21 15 KSÁÁ 11 4 2 5 25-23 14 GG 11 4 2 5 19-24 14 Grótta 11 2 1 8 13-29 7 Snæfell 11 0 1 10 11-43 1 C-riöill: Emir, ís. 9 8 0 1 66-11 24 Bolungarvík 9 7 0 2 67-14 21 Reynir, Hn. 8 2 0 6 22-31 6 HVÍ 8 0 0 8 4-103 0 D-riöill: Tindastóll-Magni..............5-2 Neisti H.-Hvöt................0-4 TindastóU 12 11 1 0 42-10 34 KS 12 10 0 2 37-12 30 Hvöt 12 6 0 6 27-25 18 Neisti, H. 12 3 1 8 12-23 10 Nökkvi 12 3 0 9 1541 9 Magni 12 1 2 9 13-36 5 E-riöíll: Höttur 6 3 2 1 15-10 11 Neisti, D. 6 2 2 2 20-20 8 Leiknir, F. 6 0 4 2 11-16 4 Konráð til Níedh erwúrzbach Konráð Olavsson, landsliðs- maöur í handknattleik úr Stjöm- unni, hefur samið við þýska 1. deildar liðið Niederwiirzbach fyrir næsta tímabil. Konráð dvaldi um tíma hjá félaginu í vor eins og komiö hefur fram í DV. Niederwtirzbach er í hópi bestu liöa Þýskalands, hafnaði í þriðja sæti á síöasta tímabili og leikur því í Evrópukeppni í vetur. -VS Óskar þjálfar Blikastúlkur Óskar Baldursson hefur verið ráöinn þjálfari kvennaliðs Breiöabliks í körfuknattleik. Óskar er ekki ókunnugur i her- búöum Blikanna því hann lék meö karlaliði félagsins hér á árum áður. Blikastúlkur urðu í neðsta sæti 1. deildarinnar í fyrra en í vetur er stefnan sett hærra. -BL Tveir sigrar Kefl- víkinga vestra Keflavík, toppliö úrvalsdeild- arinnar í knattspymu, lék tvo leiki í Bolungarvík um helgina. Fyrst unnu Keflvikingar sigur á 3. deildar liði heimamanna, 6-1, og síðan lögðu þeir Vestfjarðaúr- val, 5-2. -VS Siglfirðingur til Skagamanna? Ragnar Hauksson, helsti markaskorari 3. deildar liðs Sigl- firðinga, æfir með Íslandsmeíst- urum ÍA þessa dagana. Svo kann að fara aö hann gangi til liðs viö þá í vikunni. -VS I>V Ólafur í markið ■ ■ ^ ■ ■■■ ■ hja Hiberman - skrifar undir þriggja ára samning í dag Ólafur Gottskálksson, markvörð- ur Keflvíkinga i knattspymunni, fer til Skotlands í dag og skrifar undir þriggja ára samning við Hi- bemian, félagið kunna frá Edin- borg. Ólafur fer til félagsins sem aðal- markvörður og stendur væntan- lega í markinu þegar Hibemian mætir Celtic í fyrstu umferð úr- valsdeildarinnar næsta sunnudag. „Það hefúr verið draumur minn í mörg ár að gerast atvinnumaður. Ég hef séð það í hillingum og nú er ég í sjöunda himni,“ sagöi Ólafúr við DV eftir landsleikinn við Fær- eyinga á Homa- firði í gær. „Ég er mjög ánægður meö samninginn sem er mjög aðgengi- legur að mínu mati. Nú er það mitt aö standa mig og það ætla ég svo sannar- lega að gera,“ sagði Ólafur. Hibernian hafhaði í níunda og næstneðsta Ólafur Gottskálksson. sæti úrvalsdeild- arinnar í fyrra og þurfti auka- leiki til að tryggja áfram- haldandi vem sína þar. „Félag- iö hefur keypt fimm nýja leik- menn og ætlar sér stóra hluti. Stefhan er sett á aö komast í hóp íjögurra efstu liða í vetur,“ sagði Ólafur. Brotthvarf Ólafs er áfall fyrir Keflvíkinga sem em efstir í úrvals- deildinni. Hann hefur átt stóran þátt í velgengni þeirra í sumar og ekki síður í fyrra þegar þeir björg- uöu sér naumlega frá falli. Bjarki Guömundsson, varamark- vörður Keflvíkinga, leysir Ólaf af hólmi. Sigurður Björgvinsson, ann- ar þjálfara Keflvíkinga, sagði við DV í gærkvöld að það væri vissu- lega slæmt að missa Ólaf en Bjarki væri tilbúinn í slaginn. „Hann treystir sér og við treystum honum fyllilega," sagði Sigurður. -JKS/VS Vala Flosadóttir sýndi mikla keppnishörku I Ljubljana í gær. Þorsteinn til Kristiansand Þorsteinn Húnfjörð, leikmaður ís- landsmeistara Keflvikinga í körfu- knattleik, mun ekki leika með Keflavíkurliöinu í vetur. Þorsteinn hefur gert samning við norska lið- ið Kristiansand sem leikur í úrvals- deildinni þar í landi. „Mér líst mjög vel á þetta lið, það er verið að byggja upp sterkt liö sem ætlar sér stóra hluti í vetur. Tveir Svíar og hávaxinn norskur landsliðsmaður em komnir til liðs- ins og þeir ætla líka að ná í sterkan Kana,“ sagði Þorsteinn Húnfjörð. Þjálfari Kristiansand er Terry Bromwell sem á sínum tíma var val- inn í nýliðavali NBA en hann leik- ur einnig meö liðinu. Forráðamenn Kristiansand sáu Þorstein leika með 22 ára landslið- inu á Polar Cup í Ósló fyrr í sumar og leist vel á hann. Þorsteinn, sem er 202 sm hár miðherji, lék ekki mikið með Keflavíkurliðinu í fýrra. Hann var einn burðarása unglinga- liðs félagsins sem tryggði sér ís- landsmeistaratitil og átti góða leiki með 22 ára landsliðinu. „Samningurinn er fólginn í fríð- indum. Ég má ekki taka við pening- um því ég ætla að reyna að komast í háskóla i Bandaríkjunum eftir eitt ár. Ég fer til Noregs um miðjan ágúst og er bjartsýnn á komandi tímabil. -BL Bergendi kemur ekki Nú er ljóst aö Ungverjinn Zoltan Bergendi leikur ekki með íslands- meisturum KA næsta vetur. Hann gaf þeim endanlegt svar þar að lútandi um helgina. Samkvæmt heimildum DV eru KA-menn komnir með annan útlending inn í myndina, örvhenta skyttu og landsliðsmann, og það skýrist fljótlega hvort þeir fá hann í sínar raðir. KA hefur þegar samið við Hvít-Rússann Vladimir Goldin sem kemur á næstu dögum. -BL Evrópumeistaramót unglinga í frjálsum íþróttum: Vala krækti í silf- ur sárþjáð í baki - gat ekkert hitað upp og lá fyrir á milli stökka en komst samt yfir 4 metra Vala Flosadóttir, frjálsíþrótta- kona úr ÍR, vann til silfúrverðlauna í stangarstökki á Evrópumeistara- móti unglinga í Ljubljana í Slóveníu í gær. Vala fór yfir 4 metra í 3. tilraun en sigurvegarinn, Annika Becker frá Þýskalandi, hreppti gullið með þvi að fara yfir sömu hæð í fyrstu tilraun. í þriðja sæti varð Monika Erlach frá Austurríki en hún stökk 3,95 m. Þess má geta að íslandsmet Völu er 4,17 metrar. Mjög slæmt andlega að keppa meidd „Ég var mjög slæm í bakinu og gat ekkert hitað upp fyrir keppnina. Ég varð að liggja fyrir á milli stökka og gat aðeins gengið um áður en ég fór af stað í stökkin," sagði Vala í samtali við DV i gærkvöld. „Það var mjög slæmt andlega að keppa meidd og ég varð að bíta á jaxlinn þegar ég lagði af stað í stökkin." Vala fór yfir 3,70 m og 3,90 m í fyrstu tilraun, en yfir 4 metra í 3. tilraun eins og fyrr segir. „Nú er bara að fara heim til Sví- þjóðar, fara í röntgenmyndatöku og fá sig góða af þessum meiðslum," sagði Vala. Vala hefur notið liðsinnis læknis sænska landsliðsins. Án aðstoðar hans hefði hún ekki getað tekið þátt í mótinu. Sveinn komst ekki í úrslit Einn annar íslendingur, Sveinn Margeirsson, keppti á mótinu í Lju- bljana. Hann keppti í 3000 m hindr- unarhlaupi, en komst ekki í úrslit. Sveinn hljóp á 9,30 mín. en á best 9,09 mín. -BL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.