Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Blaðsíða 12
• 26 myndbönd
y
MYNDBAMDA
o i
ó\io'/\
Barnsrán ★★
Syni milljónerans Toms Mullens er rænt og
tveggja milljóna dollara kraíist sem lausnargjalds.
Hann og kona hans eru auðvitað í öngum sínum en
kalla þó alríkislögregluna til aðstoðar og ætla í fyrstu
að borga lausnargjaldið. Eftir að tilraun til að af-
henda féð fer út um þúfur fær auðkýfingurinn bak-
þanka og ákveður að borga ekki heldur bjóða peningana þess í stað sem
verðlaun til höfuðs mannræningjunum. Þetta er ein af þessum afar vel
gerðu myndum sem eru þó á engan hátt eftirminnilegar vegna þess að
innihaldið vantar. Hugmyndin að sögufléttunni er ágæt en handritið er
veikburða og því fer sem fer. Russo og Gibson eru bæði fremur litlaus
í hlutverkum foreldranna og sálarlegi taugatitringurinn verður óspenn-
andi fyrir vikið. Mannræningjarnir eru hins vegar af bestu sort og per-
sónusköpun almennileg á þeim bænum. Sá flokkur inniheldur nokkra
félega fugla og þar fara fremst í flokki Lili Taylor og Gary Sinise sem
ber af öðrum leikurum í myndinni. Vondu kallamir gera myndina að
þolanlegri skemmtun.
RANSOM. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Ron Howard. Aðalhlut-
verk: Mel Gibson. Bandarísk, 1996. Lengd: 116 mín. Bönnuð innan 16 ára.
PJ
Nýjasta jónan frá Spike Lee ★★★
Tuttugu manna hópur svertingja stígur upp í lang-
ferðabifreið sem er að hefja fjögurra daga ferðalag til
Washington DC, þar sem milljón manna gangan á að
fara fram, en hún var skipulögð af einum helsta for-
ystumanni svartra í Ameríku, séra Farraqhan. í
hópnum er að finna allar manngerðir úr öllum stig-
um þjóðfélagsins, ólíka einstaklinga sem eiga aðeins
litarháttinn sameiginlegan (þó þeir séu reyndar mis-
litaðir). Spike Lee hóf feril sinn með myndum sem
notuðu grín og alvöru til að draga fram fáránleika
kynþáttahaturs og tókst vel upp. Síðari verk hans
hafa verið bitlausari en hér er hann aftur kominn til upprunans. í stað
þess að predika yfir okkur færir hann okkur boðskapinn smám saman í
gegnum glettin atriði og passcir sig á að skemmta áhorfandanum um
leið. Því miður missir hann sig í endann og reynir að troða öllum boð-
skapnum í eina lokaræðu sem eyðileggur mikið fyrir annars góðri
mynd. Öflugur leikhópur lítið þekktra leikara hjálpar Spike Lee til að
skapa eftirminnilegan hóp karaktera. Kvikmyndatakan er í heimildar-
myndastíl sem virkar vel í svona hálfsannsögulegri sögu.
GET ON THE BUS. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Spike Lee. Aðalhlutverk:
Of margir til að telja þá alla upp. Bandarísk, 1996. Lengd: 121 mín. Öllum
leyfð.
PJ
★★★ í kjötfar sjátfsmorðs
Maggie og Sam eru millistéttarhjón með þrjú böm.
Fjölskyldan virðist vera sannkölluð fyrirmyndarfjöl-
skylda en sú spilaborg hrynur þegar frumburðurinn,
sonur þeirra, fremur sjálfsmorð. Hann hafði verið
fremur niðurdreginn um tíma en átti þó ekki í neinum
þess konar vandamálum að nokkrum gæti dottið í hug
að hann myndi stytta sér líf. Við tekur erfiður tími hjá
fjölskyldunni og Maggie og Sam takast á við atburðinn
og sorgina sem honum fylgir með mismunandi hætti.
Hér er verið að takast á við gríðarlega erfitt og tilfinn-
ingaþrungið efni og tekst ansi vel til. Myndin er oft
mjög átakanleg og vissara fyrir viðkvæma að hafa nóg af vasaklútum við
höndina en myndin er þó alls ekki væmin. Hér er fyrir alvöru verið að
reyna að velta upp alvöru vandamáli, sem er afar virðingarvert. Framvind-
an og persónusköpunin verður einstöku sinnum svolítið einfeldningsleg en
fyrir mestan partinn er myndin sönn og áhrifamikil. Umgjörðin er í lág-
marki og leikarar í ódýrari kantinum enda um sjónvarpsmynd að ræða.
Meredith Baxter er þaulvön svona myndum, lék nýlega heróínsjúkling í
sjónvarpsmynd, en betri er þó Bruce Davison, sem fer afar vel með tilfinn-
ingar fóðurins.
After Jimmy. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Glen Jordan. Aöalhlutverk:
Meredith Baxter og Bruce Davison. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín.
Bönnuð innan 12 ára. PJ
Uppsker eins og til er sáð ★
BJónas Þór er skrifstofúblók sem vinnur hjá fóöur
kærusfimnar sinnar og býr hjá honum einnig. Sá er
vargur hinn mesti og ráðskast með greyið Jónas
þangað til hann fær nóg og stingur af með kreditkort
gamla kallsins. Hann lifir hátt og gamnar sér með
hverri konunni á fætur annarri þangað til kortið er
tekið af honum. Þá flyfin: hann aftur heim til kalls-
ins og óléttrar kærustunnar sinnar og lofar bót og
betrun. Fljótlega kemur í ljós að honum hefur tekist
að bama allar hinar konurnar líka og hann er því á
leið með að verða fimmfaldur faðir með fimm mis-
munandi konum (sem allar verða síðan auðvitað léttari á einum og
sama deginum). Hér er um ágætishugmynd að ræða og hefði mátt búa
til ansi skondna mynd úr. Handritið er hins vegar slappt og ófyndið og
atburðarásin heldur hæggeng, myndin er viðvaningslega leikin og lítið
um að vera í kvikmyndatöku. í heildina er myndin þvi fremur heimsku-
leg en áhugaverð, fremur langdregin en skemmtileg, fremur leiðinleg en
fyndin. Jóhann fær þó prik fyrir viðleitni.
EIN STÓR FJÖLSKYLDA. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Jóhann Sig-
marsson. Aöalhlutverk: Jón Sæmundur Auðarson. íslensk, 1995. Lengd:
78 mín. Bönnuð innan 16 ára.
PJ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 Ný 1 Ransom Sam-myndbönd Spenna
2 Ný 1 Daylight ClC-myndbönd Spenna
3 Ný 1 Fled Warner myndir Spenna
4 4 2 Setitoff Myndform Spenna
5 1 4 Turbulence Sam-myndbönd Spenna
6 2 6 Sleepers Háskólabíé Spenna
7 3 3 Bound Sam-myndbönd Spenna
8 . : 3 Frighteners ClC-myndbönd Spenna
9 9 2 That Thing You Do! Skrfan Gaman
10 7 I 6 i Glimmer Man Warnermyndir Spenna
11 8 3 Mirror Has Two Faces Skrfan Gaman
12 5 . 5 Maximum Risk WISKSjli, Skrfan Spenna
13 : Ný : i ; Shes the One skítan Gaman
14 10 g i First Wives Club ClC-myndbönd Gaman
15 : ii 7 : Secrets and Lies Háskélabíó , Drama
16 13 U ■MM, i Long Kiss Goodnight l Myndform Spenna
17 12 ; 7 < Djöflaeyjan Skrfan < Gaman
i8 ; 14 6 : i Matilda Skrfan Gaman
19 Ný i ; Blow Out Háskélabíé ; Spenna
20 i7 ; i 3 Booty Call Skífan Gaman
Talsveröar breytingar hafa orðiö á myndbandalist-
anum frá því í síöustu viku. Þrjár nýjar myndir hafa
stokkiö beint í þrjú efstu sæti listans. Á toppnum
trónir spennumyndin Ransom meö Mel Gibson í aö-
alhlutverki. Þar á eftir kemur myndin Daylight meö
Sylvester Stallone og í þriöja sæti er spennumynd-
in Fled með Laurence Fishburne og Stephen Bald-
win í aðalhlutverkum. Myndbandaáhugamenn virö-
ast sækjast eftir spennu þessa vikuna því einungis
spennumyndir sitja í fimm efstu sætum mynd-
bandalistans.
Á myndinni sést Mel Gibson í hlutverki sínu í
spennumyndinni Ransom.
Set It off
Ransom
Mei Gibson og
Rene Russo.
Auðkýfingurinn
Tom Mullen (Mel
Gibson) og eiginkona
hans lenda í verstu
martröð allra for-
eldra þegar ungum
syni þeirra er rænt.
Mullen fær senda
mynd í pósti af syn-
inum bundnum og
kefluðum ásamt
kröfum um svimandi
hátt lausnargjald.
Mullen er nauð-
beygður til að verða
við kröfum ræningj-
anna. En þegar af-
hending lausnar-
gjaldsins fer út um
þúfur ákveður Mul-
len að taka mestu
áhættu lífs síns.
Daylight
Sylvester Stallone,
Amy Brenneman og
Viggo Mortensen.
Glæfraakstur bí-
ræfinna bankaræn-
ingja berst inn í göng
undir Hudson-á og
endar með árekstri
við tankbil fullan af
eldfimum efnum.
Gríðarleg sprenging
verður í göngunum
sem veldur hruni
þeirra. Farþegar í
göngunum lokast
inni og brátt byija
þau að fyllast af
vatni og eiturgufum.
Bjargvætturinn er
Kit Latura (Stallone),
fyrrum björgunar-
sveitarmaður, sem
býr yfir skelfilegri
reynslu úr fortið
sinni.
Fled
Laurence Fishbur-
ne og Stephen
Baldwin.
Gamansama
spennumyndin Fled
hefst á því að til
handalögmála kemur
milli þeirra Pipers
og Dodge sem eru
fangar í vegavinnu-
flokki. Þeim tekst að
flýja og lögreglan set-
ur allt í gang til að
ná þeim. Þar að auki
eru þeir með leigu-
morðingja mafiunn-
ar á hælunum.
Ástæðan fyrir áhuga
mafiunnar á þeim er
sá að Dodge býr yfir
vitneskjum um disk-
ling sem hefur að
geyma ólögleg leynd-
armál mafiunnar.
Jade Pinkett, Qu-
een Latifah, Vivca
A. Fox og Kimberly
Elise.
Þær Stony, Cleo,
Tisean og Frankie
hafa alist upp í einu
úthverfi Los Angel-
es-borgar. Þær hafa
þurft að þola margt
misjafnt og hafa
alltaf staðið saman
þegar einhver þeirra
hefur átt í vandræð-
um. Röð atvika hefur
leitt til þess að ein
þeirra á á hættu að
missa bam sitt. Vin-
konurnar fjórar
ákveða því að ffeista
gæfúnnar, snúa vöm
í sókn og leggja út á
hættulega braut,
enda telja þær sig
engu hafa að tapa.
Turbulence
Ray Liotta og Laur-
en Holly.
Flugþjónninn Teri
Halloran, sem leik-
inn er af Lauren
Holly, bjóst við ein-
földu flugi. En loftið
fyllist af óþægilegum
kulda þegar fjórir
lögregluþjónar koma
um borð með tvo
dæmda glæpamenn.
Annar er fjöldamorð-
inginn Ryan Weaver,
sem leikinn er af Ray
Liotta, en hinn er
miskunnarlaus ræn-
ingi sem heitir
Stubbs. Þegar vélin
er komin á loft er
áhöfnin vöruð við
miklu óveðri sem sé
fram undan. En í vél-
inni brýst út annars
konar óveður.