Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1997, Side 12
26
^pyndbönd
MYNDBAItDA
B
!'\IOV\
Sannsögulegt ***
Margir muna eftir atburðunum á Norður-írlandi
árið 1981 þegar 10 félagar IRA-samtakanna sveltu sig
í hel í hungurverkfalli í fangelsi nokkru. Þeir höfðu
um langt skeið staðið í mótmælaaðgerðum þar sem
þeir vildu öðlast stöðu stríðsfanga fremur en glæpa-
manna í refsivist. Meðal þeirra ráða sem fangelsis-
yfirvöld gripu til var að meina þeim um að fara á
klósettið og fangarnir giúpu því til þess ráðs að smyrja saur sínum á
klefaveggina. Hungurverkfallið leystist upp eftir að nokkrar mæður
höfðu nýtt sér lagalegan rétt sinn til að láta gefa sonum sínum næringu
í æð eftir að þeir höfðu fallið í dá. Myndin segir sögu tveggja mæðra sem
stóðu frammi fyrir þeirri ákvörðun. Myndin er mjög athyglisverð, sér-
staklega þar sem atburðirnir standa okkur mjög nærri, bæði í tíma og
rúmi. Leikstjórinn vill greinilega ekki tapa trúverðugleika með óþarfa
dramatík og myndin verður fyrir vikið kannski svolítið þurr. Helen
Mirren er góð í aðalhlutverkinu en Fionulla Flanagan stelur eiginlega
senunni í hlutverki móðurinnar sem eindregnari afstöðu tekur með
málstað IRA.
Some Mother's Son. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Terry George. Aöal-
hlutverk: Helen Mirren og Fionulla Flanagan. Bresk, 1996. Lengd: 107
mín. Bönnuð innan 12 ára. PJ
Læknahasar **
Hugh Grant leikur lækni á bráðamóttöku sem fær
til stn sjúkling haldinn einkennum sem hann kann
ekki að gera skil á. Sjúklingurinn deyr og þegar
hann spyrst fyrir um hvað krufhing hafi leitt í ljós
virðist sem líkið hafi týnst. Eftir því sem hann sæk-
ir fastar að komast að sannleikanum um málið mæt-
ir hann meiri andstöðu og greinilegt er að valdamikl-
ir aðilar vilja ekki að sannleikurinn komi fram.
Hugh Grant leikur hér í fyrstu Hollywood- spennu-
mynd sinni og ferst það bara ágætlega úr hendi. Per-
sóna læknisins er ágætlega hönnuð, óvenju greindar-
leg hasarhetja en missir trúverðugleika þegar hann fer að lumbra á
þrautþjálfuðum alríkislögreglumanni. Aðrir leikarar eru svona lala og
skástur David Morse en Gene Hackman virðist óvenjudaufur. Myndin
fer ágætlega af stað og nær fram ansi dularfullu og ógnvænlegu and-
rúmslofti en fatast flugið þegar læknirinn fer að hitta heimilisleysingj-
ana. Það atriði er afar heimskulegt og myndin nær sér aldrei upp úr
meðalmennskunni eftir það. Hún er þó vel þolanleg afþreying.
Extreme Measures. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Michael Apted. Aðalhlut-
verk: Hugh Grant og Gene Hackman. Bandarísk, 1996. Lengd: 113 mín.
Bönnuð innan 16 ára. PJ
Sjátfstortíming snillings
Myndin segir frá listmálaranum Basquiat sem
varð frægur í byrjun níunda áratugarins og lést síð-
an af völdum eiturlyfja árið 1988. Við þekkjum sög-
una vel: Snillingur er oss fæddur, fólk fattar að hann
er snillingur, hann verður rosafrægur en tekst ekki
að meðhöndla álagið sem frægðinni fylgir. Hann
dópar sig i klessu og drepst. Ekki tekst myndinni að
koma meintum mikilfengleika Basquiat til skila,
enda óvist að hann hafi verið til staðar, en hún er
hins vegar listrænt vel unnin og uppfull af sterkum,
sjónrænum atriðum. Höfuðstyrkur myndarinnar
liggur þó í áhugaverðum persónum og stórgóðum
leikurum en leikstjóranum hefur tekist að fá ótrúlegan fjölda stórleik-
ara í myndina. Jeffrey Wright er hæfilega fjarrænn og undarlegur fyr-
ir aðalhlutverkið, Benicio Del Toro leikur sér að hlutverki vins Basqui-
ats, David Bowie er stórskrýtinn og stórskemmtilegur sem Andy War-
hol og Michael Wincott-sýnir á sér nýja hlið, leggur harðnaglahaminn
frá sér og túlkar á frábæran hátt viðkvæman umboðsmann með
stjömublik í augum. Einnig má nefna Dennis Hopper og Gary Oldman
en fleiri má sjá í pínuhlutverkum.
Basquiat. Útgefandi Skífan. Leikstjóri Julian Schnabel. Aðalhlutverk:
Jeffrey Wright. Bandarísk, 1996. Lengd 107 mín. Öllum leyfð. PJ
Svikavefur *★+*
Tveir leigumorðingjar laumast inn í hús að nætur-
lagi og fremja morð. Sá yngri skýtur siðan þann eldri
og telur hann dauðan en sá gamli er seigur og kemst
undan. Hann tekur síðan mislitan hóp fólks í gísl-
ingu á meðan sá yngri fer að hitta samsærismenn
sína. Gallinn er sá að launin fyrir verkið eru í pen-
ingakassa á morðstaðnum, þar sem allt er krökkt af
löggum. Söguþráðurinn er snotur flétta sem gengur
ágætlega upp þar sem ekki er verið að taka sig of al-
varlega. í stað þess að kafa mjög djúpt í söguþráðinn
er athyglinni beint að skemmtilegum persónum og
aðstæðum. Hugmyndarík atburðarás kitlar hláturtaugar áhorfendans og
þá er vert að fylgjast með töktunum í mörgum leikurunum. Danny Ai-
ello og James Spader skapa tvo afar ólíka leigumorðingja og eru hver
öðrum betri. Einnig má geta Peters Hortons í hlutverki rætins lista-
verkasala, Jeff Daniels í hlutverki lögreglumanns með hegðunarvanda-
mál og Pauls Mazurskys sem leikur leikstjóra í sjálfsmorðshugleiðing-
um. Allt í allt er myndin hin besta skemmtun.
Two Days in the Valley. Útgefandi Sam myndbönd. Leikstjóri John
Herzfield. Aðalhlutverk: Danny Aiello, James Spader o.m.fl. Bandarísk,
1996. Lengd: 100 mín. Bönnuð innan 16 ára.
PJ
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1997
Myndbandalisti vikunnar
29. júlí til 4. ágúst júlí
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 1 3 Ransom Sam-myndbönd ■ Spenna
2 2 3 Fled 1 Warner myndir j Spenna
3 3 3 Daylight ClC-myndbönd j Spenna
4 7 2 High School High | Skífan Gaman J
5 Ný 1 Extreme Measures Skrfan Spenna
6 Ný 1 Preacher's Wife Sam-myndbönd Gaman
7 6 3 She's the One Skífan Gaman
8 4 4 Set it off Myndform Spenna
9 13 2 Two Days in the Valley Sam-myndbönd Spenna
io ! Ný 1 Shine Háskólabíó TJ Drama
11 10 4 That Thing You Do! Skrfan Gaman
12 12 t 5 Mirror Has Two Faces Skífan , Gaman
13 11 5 Frighteners ClC-myndbönd Spenna
14 8 5 Bound Sam-myndbönd Spenna
15 9 8 : Sleepers Háskólabíó Spenna
16 5 r 6 Turbulence Sam-myndbönd Spenna
17 14 8 Glimmer Man Warnermyndir Spenna
18 15 ; 7 : Maximum Risk : Skrfan Spenna
19 ; Ný i Trigger Effect ClC-myndbönd Spenna
20 : 17 9 Secrets and Lies Háskólabíó Drama
Spennumyndin Ransom trónir á toppi myndbanda-
listans, þriðju vikuna í röö. Tvær nýjar myndir hafa
komist inn á listann, í þriðja og fjórða sæti. Þaö eru
High Scool High í fjórða sæti og Extreme Measures
í fimmta. Efstu sætin þrjú eru hins vegar eins skip-
uð og í síöustu viku, og virðast myndirnar í þeim
nokkuð fastar i sessi.
Á myndinni er Hugh Grant á fullum dampi viö björg-
un mannslífa.
Ransom Fled Daylight
Mel Gibson og
Rene Russo.
Auðkýfingurinn
Tom Mullen (Mel
Gibson) og eiginkona
hans lenda í verstu
martröð allra for-
eldra þegar ungum
syni þeirra er rænt.
Mullen fær senda
mynd í pósti af synin-
um, bundnum og
kefluðum, ásamt
kröfum um svimandi
hátt lausnargjald.
Mullen er nauðbeygð-
ur til að verða við
kröfum ræningjanna.
En þegar afhending
lausnargjaldsins fer
út um þúfur og skotb-
ardagi brýst út
ákveður Mullen að
taka mestu áhættu
lífs síns.
Laurence Fish-
burne og Stephen
Baldwin.
Gamansama
spennumyndin Fled
hefst á þvi að til
handalögmála kemur
milli þeirra Pipers
og Dodge sem eru
fangar í vegavinnu-
flokki. Þeim tekst að
flýja og lögreglan set-
ur allt í gang til að
ná þeim. Þar að auki
eru þeir með leigu-
morðingja mafíunn-
ar á hælunum.
Ástæðan fyrir áhuga
mafíunnar á þeim er
sú að Dodge býr yfir
vitneskju um disk-
ling sem hefur að
geyma ólögleg leynd-
armál mafíunnar.
Sylvester Stallone,
Amy Brenneman og
Viggo Mortensen.
Glæfraakstur bí-
ræfinna bankaræn-
ingja berst inn í göng
undir Hudson-á og
endar með árekstri
við tankbíl fullan af
eldfimum efnum.
Gríðarleg sprenging
verður í göngunum
sem veldur hruni
þeirra. Farþegar í
göngunum lokast
inni og brátt fer að
safnast í þau vatn og
eiturgufur. Farþeg-
arnir eru dauðans
matur nema út-
gönguleið finnist.
Bjargvætturinn er
Kit Latura fyrrum
björgunarsveitar-
maður.
High School
High
Jon Lovitz, Tia Car-
rere og Louise
Fletcher
Lovitz leikur
hrekklausan kenn-
ara, Richard C. Cl-
ark, sem tekur upp á
því að flytja sig um
set og hefja kennslu
við hinn alræmda
Marion Barry fram-
haldsskóla. Fljótlega
uppgötvar hann að
nemendurnir vilja
gera flest annað en
að láta troða í sig
einhverjum vísdómi.
Þarna er nefnilega
samankomið þvílíkt
lið af afspymuléleg-
um námsmönnum að
annað eins hefur
tæplega sést.
Extreme Mea-
sures
Gene Hackman og
Hugh Grant.
Þegar heimilislaus
maður, sem ber arm-
band merkt nafni
þekkts sjúkrahúss,
deyr á slysavarð-
stofu í New York
veitir enginn því at-
hygli nema ungur
læknir, Guy Luthans
að nafni. Hann
ákveður því að
grennslast fyrir um
málið og ekki liður á
löngu uns athygli
hans beinist að virtri
og víðfrægri rann-
sóknarstofnun sem
stýrt er af einum fæ-
rasta og frægasta
lækni og vísinda-
manni landsins, dr.
Lawrence Myrickck.