Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Qupperneq 4
18
um helgina
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997
Hátíðarsýning Árnastofnunar:
Lýkur um helgina
Hátíðarsýningu í
Stofnnn Árna Magn-
ússonar á íslandi fer
nú senn að ljúka. Á
sýningunni í Árna-
garði við Suðurgötu
gefst fólki einstakt
tækifæri til að sjá
nokkra af mestu
dýrgripum þjóðar-
innar því að þar eru
til sýnis Konungs-
bók Eddukvæða,
Snorra-Edda, Flat-
eyjarbók, sem er
stærst íslenskra
handrita, og Möðru-
vallabók með 11 ís-
lendingasögum, þar
á meðal Egils sögu,
Njálu og Laxdælu.
Einnig eru á sýning-
unni handrit Landnámu, íslend-
ingabókar, Grágásar, Jónsbókar
og kaupbréf fyrir Reykjavík.
Vönduð sýningarskrá um öll þessi
handrit er innifalin í aðgangseyri.
Þess má geta að nú hefur verið
bætt á sýninguna handritunum
tveimur sem síðast komu til lands-
ins. Annað þeirra hefur að geyma
prédikanir og er líklega það elsta
sem varðveist hefur á íslensku
máli, en hitt handritið er annað
aðalhandrit Stjórnar, þýðingar úr
Gamla testamentinu með skýring-
um og myndum. Stjórn er eitt feg-
ursta handritið frá mesta blóma-
skeiði islenskrar bókagerðar á
miööldum.
í anddyri Árnagarðs og sérstök-
um sýningarsal er einnig hægt að
fræðast um gerð handrita, mynd-
list í handritum, útgáfur fornrita
og sögu handritanna. Þar má
einnig hlusta á rímnakveðskap og
söng úr segulbandasafni Árna-
stofnunar með þjóðfræðaefni.
&
r
'
w
VILT PU
fi
.6®
*\o
:vc
w
Áskrift að
daglegum
fréttum frá íslandi
er auðveld og
þægileg leið til þess
að vera í beinu
sambandi við ísland.
TUboð til námsmanna erlendis
er aðeins kr. 995 á mánuði
í þrjá mánuði
<* >
tfS \ - \rfVÖ'> v:'v' . ,
°s i -
&
y/M
iT^
FRETTIR UR
FJÖLMIÐLUM
Þverholt 11. Sími 550 5000. Fax 550 5999. Netfang: faxfréttir@ff.is
Faxfréttir úr fjölmiðlum
eru fréttir frá (slandi og
færa lesandanum á stuttu og
aðgengilegu formi þær fréttir
sem eru efst á baugi hverju sinni.
Faxfréttir koma út 5 daga vikunnar
á tveim síðum. mánudaga til föstudaga.
kl. 13 að íslenskum tíma. Sendingartími
fer annars eftir samkomulagi.
Dreifileiðir eru í
gegn um fax
og tölvupóst.
Sýning í Perlunni:
Landsýn
listakonu
Fjaðrir, skeljar, rósir og önn-
ur náttúruleg efni ásamt hefð-
bundinni olíumálningu eru
uppistaðan og hráefnið í verk-
um Ingu Hlöðversdóttur sem
eru til sýnis í Perlunni þessa
dagana. Verkin eru meira en 30
talsins og flest unnin á síðustu 5
ánun en Inga hefur búið og
starfað í Hollandi og Frakklandi
undanfarinn áratug.
Inga brautskráðist frá MHÍ
árið 1987 og 1989 frá listaháskól-
anum í Rotterdam. Hún hefur
tekið þátt í samsýningum í
Hollandi og haldið einkasýning-
ar í bæði London og París. Sýn-
ingin í Perlunni, sem ber heitið
„Landsýn“, er hins vegar fyrsta
sýning Ingu hérlendis. Einfóld
og óræð form eru ríkjandi í
myndum Ingu og megináhersla
lögð á litasamsetningu, blæ-
brigði og dulúðugar stemningar.
Þó má segja að í verkunum
felist íslensk landsýn listakon-
unnar. Sýningin stendur til 7.
september.
Stöðlakot:
Sýning
á grafíklist
í síðustu viku opnaði Ríkharður
Valtingojer sýningu á graíikmynd-
um í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg.
Viðfangsefhi sýningarinnar skiptast
í þrennt: Einn hlutinn er smámynd-
ir unnir i mezzotintu og er
myndefnið sjávarmál þar sem haf
og land mætast. Annar hlutinn eru
myndir unnar í mónotýpu og þurr-
nál. Loks eru stórar myndir þar sem
kemur fram ákveðin ádeila á hina
ýmsu þætti samfélagsins.
Ríkharður Valtingojer fæddist í
Bozen í S-Týról 1935 og ólst upp í
Austurríki. Að loknu myndlistarná-
mi í Graz hélt Ríkharður til íslands
þar sem hann réði sig á togara og
var tvö ár til sjós. Hann settist síð-
an að á íslandi og hefur haft mynd-
list að aðalstarfi síðan. Síðastliðin
20 ár hefur Ríkharður nær ein-
göngu unnið í grafík og einnig starf-
að sem kennari við grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Ríkharður unnið til fjölda verð-
launa og viðurkenninga, þar á með-
al menningarverðlauna DV 1980.
—
I
^ftö
Ríkharður Valtingojer sýnir í Stöðlakoti þessa dagana.