Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Side 9
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997 HLJÓMPLjÍTU Puff Daddy & The Family - No Way out Gamlir smellir + Fyrir ekki svo löngu virtist vera skýr munur á raunveru- legu hip-hopi og tilbúnu iðn- aðar-hip-hopi. En allt síðan iðnaðarröppurunum MC Hammer og Vanilla Ice var vikið af velli hip-hopsins hafa línurnar orðið ógreinilegri. Sean „Puffy“ Combs, útgef- andi með meiru, hefur á stutt- um tíma komið sex lögum í fyrsta sæti vinsældalista með tónlistarmönnum innan sins fyrirtækis. Drengurinn hefur greinilega eyra fyrir því hvað gengur. En eftir að hafa hlustað á „debut“ plötu hans, No Way out er Ijóst að hún er gerð eftir ákveðinni formúlu, það ódýrri formúlu að maður hálfskammast sín fyrir að lag af plötunni skuli hafa náð efsta sæti vinsældalista. Endurhljóðblöndum gamla smelli og ber- um þá á borð fyrir kynslóð sem ekki hefur heyrt þá áður! Enginn skal segja mér að þetta sé ekki hugsunin á bak við plötuna. Og textarnir eru aðeins silkislaufur sem hnýttar eru utan um pakk- ann, innantómir og eingöngu gerðir til að falla að taktinum. Það er kaldhæðnislegt að Rolling Stones skuli nýveriö hafa tilnefnt Puffy sem kóng hip-hopsins. En kannski er hann bara kóngurinn sem innheimtir aurana sina með bros á vör. -ps Steve Swallow - Deconstructed: Djasssjúklingar gfeðjast Steve Swallow hefur hvað eftir annað verið kjörinn bestri rafbassaleikari djassins í alls konar kosningum. Á þessum nýja hljómdiski er að finna ný tónverk hans og bera þau sum allkyndug nöfn: Babble on, I Think My Wife is a Hat, Bug on a Rug og svo framvegis. Hér er um að ræða ekta fina djassmúsík leikna af frábærmn kvintetti sem, auk Swallows er skipaður trompetleikaraninn Ryan Kis- or, tenórsaxófónleikaranum Chris Potter, á gítar leikur frægur gítarleikari og fræðimaður um djassgítarleik, Mick Gooddrick, og á trommur er ekki ófrægari maður en Adam Nussbaum. Trommuleikurinn er dálítið óvenju- legur á köflmn en alltaf skemmtilegur og það má reyndar segja um spilamennskuna í heild. Lögin eru líka fín. Það má kannski helst lýsa músíkinni á þessum diski þannig að þetta sé hefðbundinn djass með sterkustu áhrifunum frá bípob og djasssömbu. Það er ekki spurning að djasssjúklingar ættu að geta glaðst yfir svona diski og byrjendur í djassi (djasskjúklingar) hefðu einnig gott af að heyra svona mátulega erfiða djasstónlist sem geislar af góðu skapi og spilagleði flytjendanna. Þess má svo geta að í diskbæklingnum eru nótur og hljómar yfir öll tónverkin, svo að áhugasamir úr hófi geta strax farið að spila með. Ingvi Þór Kormáksson Morrissey - Maladjusted: Engin meðalmennska ★★★ Á síðustu fimmtán árum hefur Morrissey, fyrst sem söngvari Smiths og síðan á eigin sólóferli, viðhaldið þeim frumleika sem hafði hvað mest áhrif á aðrar hljómsveit- ir og breytti ímynd popptón- listar á níunda áratugnum. Þótt Maladjusted sé kannski ekki besta verk Morrisseys til þessa er hún í heildina séð mjög góð, ekki síst vegna sam- starfs Morrisseys við „pródúsentinn" Steve Lilly- white en þeir félagar hafa starfað saman á þremur síðustu plötum Morrisseys. Eins og áður hafa Morrissey og gítarleikarinn Alain Whyte samið lögin saman. Angiuvær og engu öðru lík svífur rödd Morriseys yfir gíturum sem bera keim af Who og einhvem veginn var ég minntur á Queen þegar strengjasveitarhljómar ómuöu í bakgrunninum. Þótt Malad- justed sé ekki líkleg til að ná efstu sætum heldur virkar hún sem frábært mótvægi við þá meðalmennsku sem nú tröllríður vin- sældalistum víðs vegar. -ps Eftir að gítarleikari og laga- höfundur The Smiths, Johny Marr, ákvað að draga sig í hlé fór Morrissey, söngvari þess- arar athyglisverðustu hljóm- sveitar níunda áratugarins, að feta hættulega stigu sóló- ferilsins. En Morrissey hlaut strax góðar viðtökur gagn- rýnenda beggja vegna Atl- antshafsins með singulnum Suedehead og plötunni Viva Hate þrátt fyrir fyrri erjur við bresku tónlistarpressuna. Á tíu ára ferli sinum hefur Morrissey samt orðið fyrir miklu aðkasti fjölmiöla, ekki síst fyrir ákveðnar skoðanir sínar sem hafa farið fyrir brjóstið á mörgum mann- inum. Túlkanir á textum og viðtölum við Morrissey gengu svo langt að honum var út- húöað sem kynþáttahatara og öfugugga. Radio One í Bret- landi tók þá ákvörðun að spila ekki lög með Morrissey sem hélt sig þögull í bak- grunninum og ákvað að svara A tíu ára ferli sínum hefur Morrissey oröiö fyrir miklu aökasti fjölmiöla. engum ásökunum nema í textum sínum. Elskaður á ný Það var ekki fyrr en árið 1992 með plötunni Your Arsenal sem Morrissey hlaut víðtæk- an hljómgrunn hjá al- menningi og gagnrýnend- ur lofuðu hann í hástert. Platan hlaut hin eftir- sóttu Grammy verðlaun í Bandaríkjunum og upp- selt var á nánast alla tón- leika með kappanum. 1994 kom svo út platan Vauxhall and I sem hlaut enn betri viðtökur og Morrissey náði átjánda sæti Billboard listans. I þessum mánuði kemur síðan út platan Maladju- sted sem m. a. inniheldur lagið Alma Matters og hefur náð talsverðum vinsældum í Bretlandi. -ps Kvartett 0. Jónsson og Grjóni: Karnival í Texas Spilar á íslandi Franski dúettinn Daft Punk gefúr út nýja smáskífú, Bumin, 15. sept- ember næstkomandi. Fyrr á þessu ári fór dúettinn í tónleikaferö til að fylgja eftir lögunum Da Funk, Around the World og plötunni Homework sem fékk fjarska góðar viðtökur. í næsta mánuði fer dúett- inn í sína fyrstu tónleikaferð um allt Bretland. Mansun ,1 yjJiijjjjj2jjJ Daft Punk Smekkleysa kynnir glænýja ís- lenska stórskífu frá Kvartett Ó. Jóns- son & Grjóni, Kamival í Texas. Disk- urinn inniheldur 17 gullkom, öll úr smiðju kvartettsins, og er verkið 46 mínútur að lengd. Kvartett Ó. Jónsson og Grjóni hefúr starfaö í rúm 2 ár og á þeim tíma komið víða við sögu. Má þar helst nefna gerð tónlistar við stuttmyndir, ljóðalestur, leikhús og al- menna gleði. Áuk þess hefur kvartett- inn verið virkur í tónlistarlífl lands- ins. I fyrrasumar sendi kvartettinn frá sér fyrstu smáskífuna og samhliða henni var gefið út myndband sem fékk verðlaun Ríkissjónvarpsins sem frumlegasta myndbandið. -ME Hljómsveitin Mansun leggur í október af stað í níu daga hljóm- sveitarferðalag um Bretland. Ætl- unin er að fylgja eftir nýjum diski þeirra félaga, Closed for Business. Hljómsveitin hefur tilkynnt að allir þeir sem eiga miða á tónleikana í Wulfrim Hall, sem vora haldnir 23. apríl síðastliðinn, geta skilað hon- um og fengið miða á Birmingham Que Club tónleikana 13. október. Málið er að tónleikamir í Wulfrun Hall gengu ekki alveg sem skyldi þar sem ljósabúnaðurinn hrundi allt í einu á miðjum tónleikum. Ætli húsdrauginum hafi verið eitt- hvað illa við tónlist sveitarinnar? Damon Albarn i hljóm- sveitinni Blur er íslending- um að góöu kunnur. Blur hélt tónleika hér á landi síð- astliðiö sumar og heiUaðist kappinn mjög af landi og þjóð. Damon hefur komið hingaö nokki-um sinnum sið- an og er haft eftir honum í erlendum viðtölum að ísland hafi gefiö honum nýjan inn- blástur í tónlistinni. Nú er komið að því hljóm- sveitin stígi aftur á svið Laugardalshallar og vinni hugi og hjörtu ungmeyja (og ungsveina) landsins. Tónleikarnir eru á sunnu- daginn og er óhætt að búast við að gríöarleg stemmning eigi eftir aö ríkja I Höllinni og fullt veröi út úr dyrum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.