Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Page 9
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997
HLJÓMPLjÍTU
Puff Daddy & The Family - No Way out
Gamlir smellir +
Fyrir ekki svo löngu virtist
vera skýr munur á raunveru-
legu hip-hopi og tilbúnu iðn-
aðar-hip-hopi. En allt síðan
iðnaðarröppurunum MC
Hammer og Vanilla Ice var
vikið af velli hip-hopsins hafa
línurnar orðið ógreinilegri.
Sean „Puffy“ Combs, útgef-
andi með meiru, hefur á stutt-
um tíma komið sex lögum í
fyrsta sæti vinsældalista með
tónlistarmönnum innan sins
fyrirtækis. Drengurinn hefur
greinilega eyra fyrir því hvað
gengur. En eftir að hafa hlustað á „debut“ plötu hans, No Way out
er Ijóst að hún er gerð eftir ákveðinni formúlu, það ódýrri formúlu
að maður hálfskammast sín fyrir að lag af plötunni skuli hafa náð
efsta sæti vinsældalista. Endurhljóðblöndum gamla smelli og ber-
um þá á borð fyrir kynslóð sem ekki hefur heyrt þá áður! Enginn
skal segja mér að þetta sé ekki hugsunin á bak við plötuna. Og
textarnir eru aðeins silkislaufur sem hnýttar eru utan um pakk-
ann, innantómir og eingöngu gerðir til að falla að taktinum. Það
er kaldhæðnislegt að Rolling Stones skuli nýveriö hafa tilnefnt
Puffy sem kóng hip-hopsins. En kannski er hann bara kóngurinn
sem innheimtir aurana sina með bros á vör.
-ps
Steve Swallow - Deconstructed:
Djasssjúklingar gfeðjast
Steve Swallow hefur hvað
eftir annað verið kjörinn
bestri rafbassaleikari djassins
í alls konar kosningum. Á
þessum nýja hljómdiski er að
finna ný tónverk hans og bera
þau sum allkyndug nöfn:
Babble on, I Think My Wife is
a Hat, Bug on a Rug og svo
framvegis. Hér er um að ræða
ekta fina djassmúsík leikna af
frábærmn kvintetti sem, auk
Swallows er skipaður
trompetleikaraninn Ryan Kis-
or, tenórsaxófónleikaranum
Chris Potter, á gítar leikur frægur gítarleikari og fræðimaður um
djassgítarleik, Mick Gooddrick, og á trommur er ekki ófrægari
maður en Adam Nussbaum. Trommuleikurinn er dálítið óvenju-
legur á köflmn en alltaf skemmtilegur og það má reyndar segja um
spilamennskuna í heild. Lögin eru líka fín.
Það má kannski helst lýsa músíkinni á þessum diski þannig að
þetta sé hefðbundinn djass með sterkustu áhrifunum frá bípob og
djasssömbu. Það er ekki spurning að djasssjúklingar ættu að geta
glaðst yfir svona diski og byrjendur í djassi (djasskjúklingar)
hefðu einnig gott af að heyra svona mátulega erfiða djasstónlist
sem geislar af góðu skapi og spilagleði flytjendanna. Þess má svo
geta að í diskbæklingnum eru nótur og hljómar yfir öll tónverkin,
svo að áhugasamir úr hófi geta strax farið að spila með.
Ingvi Þór Kormáksson
Morrissey - Maladjusted:
Engin meðalmennska ★★★
Á síðustu fimmtán árum
hefur Morrissey, fyrst sem
söngvari Smiths og síðan á
eigin sólóferli, viðhaldið þeim
frumleika sem hafði hvað
mest áhrif á aðrar hljómsveit-
ir og breytti ímynd popptón-
listar á níunda áratugnum.
Þótt Maladjusted sé kannski
ekki besta verk Morrisseys til
þessa er hún í heildina séð
mjög góð, ekki síst vegna sam-
starfs Morrisseys við
„pródúsentinn" Steve Lilly-
white en þeir félagar hafa
starfað saman á þremur síðustu plötum Morrisseys. Eins og áður
hafa Morrissey og gítarleikarinn Alain Whyte samið lögin saman.
Angiuvær og engu öðru lík svífur rödd Morriseys yfir gíturum
sem bera keim af Who og einhvem veginn var ég minntur á Queen
þegar strengjasveitarhljómar ómuöu í bakgrunninum. Þótt Malad-
justed sé ekki líkleg til að ná efstu sætum heldur virkar hún sem
frábært mótvægi við þá meðalmennsku sem nú tröllríður vin-
sældalistum víðs vegar.
-ps
Eftir að gítarleikari og laga-
höfundur The Smiths, Johny
Marr, ákvað að draga sig í hlé
fór Morrissey, söngvari þess-
arar athyglisverðustu hljóm-
sveitar níunda áratugarins,
að feta hættulega stigu sóló-
ferilsins. En Morrissey hlaut
strax góðar viðtökur gagn-
rýnenda beggja vegna Atl-
antshafsins með singulnum
Suedehead og plötunni Viva
Hate þrátt fyrir fyrri erjur við
bresku tónlistarpressuna. Á
tíu ára ferli sinum hefur
Morrissey samt orðið fyrir
miklu aðkasti fjölmiöla, ekki
síst fyrir ákveðnar skoðanir
sínar sem hafa farið fyrir
brjóstið á mörgum mann-
inum. Túlkanir á textum og
viðtölum við Morrissey gengu
svo langt að honum var út-
húöað sem kynþáttahatara og
öfugugga. Radio One í Bret-
landi tók þá ákvörðun að
spila ekki lög með Morrissey
sem hélt sig þögull í bak-
grunninum og ákvað að svara
A tíu ára ferli sínum hefur Morrissey oröiö fyrir miklu
aökasti fjölmiöla.
engum ásökunum nema í
textum sínum.
Elskaður á ný
Það var ekki fyrr en
árið 1992 með plötunni
Your Arsenal sem
Morrissey hlaut víðtæk-
an hljómgrunn hjá al-
menningi og gagnrýnend-
ur lofuðu hann í hástert.
Platan hlaut hin eftir-
sóttu Grammy verðlaun í
Bandaríkjunum og upp-
selt var á nánast alla tón-
leika með kappanum.
1994 kom svo út platan
Vauxhall and I sem hlaut
enn betri viðtökur og
Morrissey náði átjánda
sæti Billboard listans. I
þessum mánuði kemur
síðan út platan Maladju-
sted sem m. a. inniheldur
lagið Alma Matters og
hefur náð talsverðum
vinsældum í Bretlandi.
-ps
Kvartett 0. Jónsson og Grjóni:
Karnival í Texas
Spilar á
íslandi
Franski dúettinn Daft Punk gefúr
út nýja smáskífú, Bumin, 15. sept-
ember næstkomandi. Fyrr á þessu
ári fór dúettinn í tónleikaferö til að
fylgja eftir lögunum Da Funk,
Around the World og plötunni
Homework sem fékk fjarska góðar
viðtökur. í næsta mánuði fer dúett-
inn í sína fyrstu tónleikaferð um
allt Bretland.
Mansun
,1
yjJiijjjjj2jjJ
Daft Punk
Smekkleysa kynnir glænýja ís-
lenska stórskífu frá Kvartett Ó. Jóns-
son & Grjóni, Kamival í Texas. Disk-
urinn inniheldur 17 gullkom, öll úr
smiðju kvartettsins, og er verkið 46
mínútur að lengd. Kvartett Ó. Jónsson
og Grjóni hefúr starfaö í rúm 2 ár og
á þeim tíma komið víða við sögu. Má
þar helst nefna gerð tónlistar við
stuttmyndir, ljóðalestur, leikhús og al-
menna gleði. Áuk þess hefur kvartett-
inn verið virkur í tónlistarlífl lands-
ins. I fyrrasumar sendi kvartettinn
frá sér fyrstu smáskífuna og samhliða
henni var gefið út myndband sem
fékk verðlaun Ríkissjónvarpsins sem
frumlegasta myndbandið.
-ME
Hljómsveitin Mansun leggur í
október af stað í níu daga hljóm-
sveitarferðalag um Bretland. Ætl-
unin er að fylgja eftir nýjum diski
þeirra félaga, Closed for Business.
Hljómsveitin hefur tilkynnt að allir
þeir sem eiga miða á tónleikana í
Wulfrim Hall, sem vora haldnir 23.
apríl síðastliðinn, geta skilað hon-
um og fengið miða á Birmingham
Que Club tónleikana 13. október.
Málið er að tónleikamir í Wulfrun
Hall gengu ekki alveg sem skyldi
þar sem ljósabúnaðurinn hrundi
allt í einu á miðjum tónleikum.
Ætli húsdrauginum hafi verið eitt-
hvað illa við tónlist sveitarinnar?
Damon Albarn i hljóm-
sveitinni Blur er íslending-
um að góöu kunnur. Blur
hélt tónleika hér á landi síð-
astliðiö sumar og heiUaðist
kappinn mjög af landi og
þjóð. Damon hefur komið
hingaö nokki-um sinnum sið-
an og er haft eftir honum í
erlendum viðtölum að ísland
hafi gefiö honum nýjan inn-
blástur í tónlistinni.
Nú er komið að því hljóm-
sveitin stígi aftur á svið
Laugardalshallar og vinni
hugi og hjörtu ungmeyja (og
ungsveina) landsins.
Tónleikarnir eru á sunnu-
daginn og er óhætt að búast
við að gríöarleg stemmning
eigi eftir aö ríkja I Höllinni
og fullt veröi út úr dyrum.