Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 7 DV Sandkorn Opnað fyrir karl- mönnum Landssamband framsóknarkvenna hefur sem kunnugt er ákveöiö aö hætta að hafa sambandið einungis fyrir konur og opnað sig fyrir karl- mönnum einnig. Það hefur vakið nokkra athygli hversu mjög þessi ákvörðun gladdi Guðna Agústsson al- þingismann og lýsti hann gleöi sinni meðal annars í frétt í útvarpi. Frétta- maður spurði Guðna að því hvort hann ætl- aði ekki að að ganga í framsóknarkvenfélagið í sinni heimabyggð og kvað Guðni ekki aðeins já við heldur já, já, já. Eitt af skáldum Sandkoms norður á Sauðárkróki sem hlustaði á íréttina kvað þegar í stað eftirfarandi limr- ur: Konumar vora að vona, að veröldin væri ekki svona. En glöggt má nú sjá, að Guðni Á., er fullburða framsóknarkona. Fullnægjan skín af hans fasi, Framsóknar vaxinn úr grasi. Getnað og má, Guðna í fá, græddan úr tilraunaglasi. Vesalings við Díana Litil stúlka fékk á dögunum um- gangspest og lagðist veik á sunnu- degimun eftir jarðarfor Díönu prinsessu. Pest- in lagðist tals- vert þungt á litlu dömuna, en heldur fór hún að skána þegar leið á daginn og und- ir kvöld var hún orðin nokkuð góð. Þegar fiölskyld- an innti hana eftir því hvem- ig heilsan væri á sunnudagskvöld- inu sagöi litla stúlkan: „Bara góð núna, en þetta er búinn að vera ljóti sunnudagurinn, ég svona fár- veik og Díana prinsessa dáin.“ Tröllríður þessu þjóðfélagi Og af öðru barni: Níu ára gutti fór í sund sama daginn og útfór Díönu prinsessu fór fram og þegar hann kom til baka spurði mamma hans hvort ekki hefði verið gaman í sundi. „Ne-hei, rosa- leiðinlegt," sagði guttinn. - Af hverju? spurði móðirin. „Nú, renni- brautin var lokuð. Það er aldrei hvað þessi Díana prinsessa fær að að tröllríöa þessu þjóðfélagi,“ sagði okkar maður. r Ihaldsþokan Þingmenn Sjálfstæðis- flokks á Norð- urlandi vestra, Hjálmar Jóns- son og Vil- hjálmur Egils- son, héldu fund á Hofsósi á dögunum um samgöngumál. Með þeim í for var samgönguráðherrann, Halldór Blöndal. Þegar þingmaðurinn og hagyrðingurinn Jón Kristjánsson, upprunninn frá Óslandshlfð í ná- grenni Hofsóss, frétti af þessum fundaáformum sendi hann Hjálmari þessa vísu: Kólnar um haust í brún mér brá, er ber mér Hjálmar fréttir sínar. íhaldsþokan æðir grá, um æskuslóöir fagrar mínar. Ekki stóð á svari frá Hjálmari sem sendi Jóni til baka þessa limra: í Óslandshlíð bregð mér í blóra, við B-listann, skottur og móra. Þokunni léttir er fólkið þitt fréttir um ferðalag mitt og Dóra. Umsjón: Stefán Ásgrimsson _____________________________________________________Fréttir 11 ára piltur bjargaöi vini sínum úr sjó: Feginn þegar hann var kominn í land - segir Atli Ingi Atlason „Ég var svolítið hræddur þegar ég sá ölduna grípa vin minn. Ég var frekar feginn þegar hann var kom- inn í land,“ sagði Atli Ingi Atlason, 11 ára reykvískur piltur, sem sýndi sérstakt snarræði þegar hann bjarg- aöi félaga sínum frá drukknun fyrir rúmri viku. Strákarnir höfðu verið að leika sér, ásamt fleiri félögum, í fjörunni í Ánanaustum. Atburðurinn átti sér stað um hálfáttaleytið að kvöldi. Þeir höfðu verið að vaða í leðju í fjörunni en voru farnir að hugsa til heimferðar. Félagi Atla, Björgvin, sem einnig er 11 ára, hugðist vaða út í sjó til að þvo skóna sína. Skyndilega kom stór alda og hreif hann með sér. Hann gat brölt á fæt- ur en þá kom önnur alda, skall á honum og bar hann lengra frá landi. Föt drengsins voru orðin blaut og hann gat því ekki komist upp úr sjónum og til lands af eigin ramm- leik. Atli Ingi í fjörunni í Ánanaustum þar sem félagi hans fór í sjóinn. DV-mynd Landssamband íslenskra útvegsmanna: Stjórnin brá undir sig betri fætinum DV Eskifirði: Sl. fimmtudag brá stjóm Lands- sambands ísl. útvegsmanna undir sig betri fætinum og hélt austur á firði. Þar hélt hún stjórnarfund á skrifstofu Hraðfrystihúss Eskifjarð- ar hf. Auk stjómarmanna LÍÚ vom með í förinni lögfræðingur, hag- fræðingiu- og stofnvistffæðingur samtakanna. Á Eskifirði tók Aðalsteinn Jóns- son útgerðarmaður á móti hópnum og sýndi honum hina nýju og glæsi- legu nótastöð sem Hraðfrystihús Eskifjarðar hefur nýlega tekið í notkun. Að loknum vel heppnuðum stjómarfúndi hélt hópurinn til Nes- kaupstaðar þar sem skoðað var hið nýja og athyglisverða frystihús Síld- arvinnslunnar sem tekið var í notk- un sl. haust. Síðan var fariö til Fá- '•'rr in.'• ■ íí n~ Vi7 ' 'vn Jl í* R í # ' f n » |r A t. JS \ K J '!•wK afe*-, . r . ■ . Á myndinni getur aö iíta stjórn LÍÚ, lög-, hag- og stofnvistfræðinga samtak- anna ásamt forsvarsmönnum Hraöfrystihúss Eskifjaröar hf. DV-mynd Emil skrúðsfjarðar og verksmiðjuhús- næði Loðnuvinnslunnar skoðað. Mjög gott veður var austanlands meðan á heimsókn útvegsmanna stóð og fóru veðurguöimir einkar mjúkum höndum um þennan ágæta hóp íslenskra útgerðarmanna. -Regína „Ég hljóp út í sjóinn og ætlaði að hjálpa honum en harin fór alltaf aðeins lengra út í,“ sagði Atli Ingi. „Ég sá að ég gat það ekki svo ég hljóp aftur upp í fjöruna. Þar fann ég appelsínugult rör og ég hljóp með það niður að sjónum. Björg- vin gat gripið í prikið og ég dró hann í land. Ég þurfti að vaða eig- inlega alveg upp í háls svo hann gæti náð í það.“ Meðan þetta átti sér stað hlupu hinir félagamir í bensinstöð Olís sem er þarna skammt frá. Þeir sögðu að félagi þeirra hefði dottið í sjóinn og báðu um hjálp. Var þeg- ar hringt á sjúkrabíl. Björgvin var orðinn nokkuð kaldur þegar hann kom upp úr en gat þó gengið í land. Hann var fluttur á slysadeild þar sem hann var skoðaður og hlúð var að honum. Að því búnu fékk hann að fara heim. Að sögn Guðrúnar Valdísar Guðmundsdóttur, móður Atla Inga, er þetta í annað skiptið á skömmum tima sem hann dregur skólabróður sinn úr sjó. Fyrra at- vikið átti sér stað fyrir um það bil tveimur árum og á svipuðum slóð- um. -JSS BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI GRAM Á GjAFVERÐI KÆLISKÁPUR GERÐ KF-265 H: 146,5 cm. B: 55,0 cm. D: 60,1 cm. Kælir: 1971. Frystir: 55 I. TILBOÐ Aðeins kr. 54.990,- stgr. IIIÓÐUM 2» GERÐIR GRAM KÆLISKÁI’A /FOnix HÁTÚNI6A REYKJAVlK SÍMI 552 4420 Minni hagnaður hjá Krossanesi DV, Akureyri: „Við gerðum auðvitað aldrei ráð fyrir því að afkoman í ár yrði jafhgóð og í fyrra, enda um algjört metár að ræða þá. Þessi niðurstaða veldur mér engu að síður nokkrum vonbrigðum en ræðst þó mest af þáttum sem við réðum ekki við,“ segir Jóhann P. Andersen, ffamkvæmdastjóri Krossa- ness hf. á Akureyri. Rekstur Krossanesverksmiðjunnar skilaði 5,5 milljóna króna hagnaði fyrstu 6 mánuði ársins sem er tals- vert lakari útkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir og talsvert lakari afkoma en á sama tíma í fyrra, en árið 1996 var besta rekstrarár í sögu félagsins. Verksmiðjur félagsins í Krossanesi og á Ólafsfirði tóku samtals um 32 þúsund tonn til vinnslu fyrstu 6 mán- uði ársins sem er um 5 þúsund tonn- um minna en á sama tíma í fyrra en þá rak félagið einungis verksmiðju á Akureyri. -gk Stærð 30x70 Fæst bæði í hör og bómullarefni. Verð kr. 3.850 Póstsendum pjannprbaberölunin (£rla Snorrabraut 44, slmi 551-4290

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.