Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Síða 22
42
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Afmæli
Sigrún Guðmundsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir, skrif-
stofumaður og húsmóðir, Bæjartúni
8, Kópavogi, verður fimmtug á
morgun.
Starfsferill
Sigrún fæddist á Blönduósi en
ólst upp á Syðri-Grund í Svínadal í
Austur-Húnavatnssýslu. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Reykjaskóla í
Hrútafirði 1966 og stundaði hús-
stjómamám við Hússtjómarskóla
v Borgfirðinga i Varmalandi 1966-67.
Sigrún starfaði á tannlæknastofu
og á saumastofu árin 1967-72. Hún
stundaði húsmóðurstörf og var dag-
móðir næstu árin en hóf síðan störf
í bókhaldi á bæjarskrifstofunum í
Kópavogi 1985 og hefur starfað þar
siðan.
Sigrún hefur tekið virkan þátt í
félags- og trúnaðarstörfum fyrir
Starfsmannafélag Kópavogs.
Fjölskylda
Sigrún giftist 10.7. 1993 Einari
Sigurðssyni, f. 8.7. 1944, tæknifræð-
ingi. Hann er sonur Sigurðar Þor-
kelssonar sem lést 1984, forstjóra
hjá Pósti og síma, og Else Þorkels-
y son, húsmóður í Reykjavík.
Sigrún giftist 1969 Finni E. Ei-
ríkssyni frá Stóru-Hvalsá, en þau
slitu samvistum 1985.
Böm Sigrúnar og Finns em Guð-
rún Bima Finnsdóttir, f. 27.2. 1970,
tryggingafræðingur í Bandaríkjun-
um, en maður hennar er Snorri
Sturluson tölvunarfræð-
ingur og er dóttir þeirra
Sif, f. 19.11. 1996; Þórir
Finnsson, f. 20.9. 1972,
nemi við Tækniskóla ís-
lands, búsettur í Reykja-
vík, í sambúð með Jó-
hönnu Kristínu Guð-
mundsdóttur ferðafræð-
ingi; Una Eydís Finns-
dóttir, f. 22.12. 1975, nemi
við HÍ; Ragnhildur Lára
Finnsdóttir, f. 18.8. 1981,
nemi við MK.
Stúpbörn Sigrúnar eru
Lind Einarsdóttir, f. 23.7.
1969, nemi við HÍ, í sambúð með
Steingrími Jóni Þórðarsyni dag-
skrárgerðarmanni og er dóttir
þeirra Perla, f. 29.4. 1997; Hrund
Einarsdóttir, f. 7.9. 1970, verkfræð-
ingur, í framhaldsnámi í Bandaríkj-
unum, en maður hennar er Sverrir
Öm Þorvaldsson stærðfræðingur og
er sonur þeirra Vífill, f. 19.2. 1995;
Kjartan Einarsson, f. 22.6. 1973,
verkamaður í Reykjavík, en kona
hans er Eydís Gréta Guðbrandsdótt-
ir skólaliði og er stúpsonur Kjart-
ans Amar, f. 31.3. 1987, en böm
Kjartans og Grétu em Tinna Rán, f.
11.2. 1993, og Breki, f. 10.12. 1995.
Systkini Sigrúnar em Valgerður
Guðmundsdóttir, f. 1945, verkakona
á Blönduósi; Þorsteinn Guðmunds-
son, f. 1952, bóndi að Syðri-Grund í
Austur-Húnavatnssýslu; Sveinn
Helgi Guðmundsson, f. 1956, dýra-
læknir á Höfn í Horna-
firði.
Foreldrar Sigrúnar eru
Guðmundur Þorsteins-
son, f. 11.10. 1910, fyrrv.
bóndi að Syðri-Grund í
Svínadal, og k.h., Guð-
rún Sigurjónsdóttir, f.
16.7. 1922, fyrrv. hús-
freyja að Syðri-Grund.
Þau eru nú búsett að
Hnitbjörgum á Blöndu-
ósi.
Ætt
Guðmundur er sonur
Þorsteins, b. á Grund í Svínadal,
bróður Jóhanns, prests í Stafholti,
og Guðmundar, föður Magnúsar
ráðherra. Þorsteinn var sonur Þor-
steins, b. á Gmnd, Helgasonar, b. í
Langholti, Eiríkssonar, ættfoður
Bolholtsættarinnar, Jónssonar.
Móðir Þorsteins Þorsteinssonar var
Sigurbjörg Jónsdóttir, prests á Auð-
kúlu, Jónssonar og Ingibjargar
Oddsdóttur, prests er hvarf frá
Miklabæ Gíslasonar, biskups Magn-
ússonar. Móðir Ingibjargar var Guð-
rún Jónsdóttir, prests í Goðdölum,
Sveinssonar.
Móðir Guðmundar var Ragnhild-
ur, systir Þórðar, yfirlæknis á
Kleppi, fóður Úlfars augnlæknis.
Ragnhildur var dóttir Sveins Pét-
urssonar, bróður Kristjáns, ríka í
Stóradal, afa Jónasar Kristjánsson-
ar, læknis og alþm., afa Jónasar
Kristjánssonar, ritstjóra DV. Pétur
var sonur Jóns, b. á Snæringsstöð-
um, Jónssonar, b. á Balaskarði,
Jónssonar, ættföður Harðabónda-
ættarinnar, Jónssonar. Móðir Ragn-
hildar var Steinunn Þórðardóttir, b.
á Ljótsstöðum, Þórðarsonar, af Guð-
laugsstaðaætt.
Guðrún er dóttir Sigurjóns, b. á
Rútsstöðum í Svínadal, bróður Guð-
mundar í Alþýðubrauðgerðinni,
Sigríðar, ömmu Péturs Guðmunds-
sonar, flugvallarstjóra á Keflavíkur-
flugvelli, og bróður Ástríðar, ömmu
Víglundar Þorsteinssonar. Sigurjón
var sonur Odds, formanns i Braut-
arholti á Bráðræðisholti í Reykja-
vík, Jónssonar. Móðir Sigurjóns var
Guðrún, systir Þorkels, langafa Páls
Jenssonar prófessors. Guðrún var
dóttir Áma, b. í Guðnabæ í Selvogi,
Guðnasonar. Móðir Guðrúnar var
Steinunn Þorkelsdóttir, b. i Krýsu-
vík, Valdasonar. Móðir Steinunnar
var Þómnn Álfsdóttir, b. í Tungu í
Flóa, Arasonar, b. á Eystri-Lofts-
stöðum, Bergssonar, ættföður
Bergsættarinnar Sturlaugssonar.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Jó-
hannsdóttir, b. á Rútsstöðum, Þor-
steinssonar og Sigurbjargar Ólafs-
dóttur.
Sigrún og Einar taka á móti gest-
um í Félagsheimili Kópavogs, Fann-
borg 2, á morgun kl. 20.00-23.00.
Sigrún
Guðmundsdóttir.
Stefán Jóhann Sigurðsson
Stefán Jóhann Sigurðsson, svæð-
isstjóri VÍS í Ólafsvík, Engihlíð 8,
Ólafsvík, er sextugur i dag.
Starfsferill
Stefán fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Hellissandi. Hann flutti til
Ólafsvíkur 1957, stundaði þar nám í
húsasmíði og öðlaðist meistararétt-
indi i iðngreininni 1964.
Stefán vann við húsasmíðar til
1974 og starfaði við Steypustöðina
Bjarg hf. 1974-84. Hann varð um-
boðsmaður Brunabótafélags íslands
1968 og varð síðan svæðisstjóri Vá-
tryggingafélags Islands hf. er það
var stofnað.
Stefán hefur starfað mikið að fé-
lagsmálum. Hann hefur ma. unnið
mikið að bindindismálum og í ung-
mennafélagshreyfingunni. Þá er
hann stofnfélagi Rotary-klúbbs
Ólafsvíkur.
Stefán sat í hreppsnefnd Ólafsvík-
ur um árabil, sat síðar i bæjarstjórn
Ólafsvíkur 1983-94 og var forseti
bæjarstjómar 1983-86. Hann hefur
sungið með kirkjukór Ólafsvíkur-
kirkju sl. tuttugu ár og verið for-
maður sóknamefndar frá 1992.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 11.7. 1959 Guð-
rúnu Alexandersdóttur, f. 14.8.1935,
skrifstofumanni. Hún er dóttir Alex-
anders Guðbjartssonar og Kristjönu
Bjamadóttur, bænda að Stakkhamri
í Miklaholtshreppi.
Stjúpdóttir Stefáns er
Kristjana Halldórsdóttir,
f. 11.8. 1956, starfsmaður
við leikskóla, búsett á
Hellissandi, gift Svani Að-
alsteinssyni og eiga þau
tvö böm.
Böm Stefáns og Guð-
rúnar era Magnús, f. 1.10.
1960, alþm. í Reykjavík,
kvæntur Sigrúnu Drífu
Óskarsdóttur og eiga þau
tvö börn; Vilborg Lilja, f.
2.3. 1965, íþróttakennari í
Ólafsvík, gift Eiríki Leifi
Gautssyni og eiga þau tvo syni; Sig-
riður, f. 11.12. 1968, hjúkmnarfræð-
ingur á Akureyri, í sambúð með
Halldóri Ólafssyni og eiga þau eina
dóttur.
Bróðir Stefáns er Sigurð-
ur Sigurðsson, f. 16.8.
1935, lögreglumaður, bú-
settur í Reykjavík.
Foreldrar Stefáns vom
Sigurður E. Stefánsson, f.
1914, d. 1974, stjórnandi
þungavinnuvéla í
Reykjavík og á Hell-
issandi, og Vilborg Stef-
ánsdóttir, f. 1909, d. 1942,
húsmóðir.
Stefán Jóhann og fjöl-
skylda hans taka á móti
gestum í félagsheimilinu Klifi laug-
ardaginn 20.9. kl. 17.00.
Stefán Jóhann
Sigurðsson.
Höskuldur Þorsteinsson
Höskuldur Þorsteins-
son, bóndi að Höfða í
Öxarfjarðarhreppi við
Raufarhöfn, er fimmtug-
ur í dag.
Starfsferill
Höskuldur fæddist á
■'••Húsavík en ólst upp á
Hóli á Melrakkasléttu.
Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Húsavíkur-
skóla 1963 og lauk bú-
fræðiprófi frá Bænda-
Höskuldur
Þorsteinsson.
skólanum að Hólum í
Hjaltadal.
Starfsferill
Höskuldur kvæntist 30.8.
1975 Guðrúnu M. Sigur-
jónsdóttur, f. 27.3. 1951,
húsmóður. Hún er dóttir
Sigurjóns Á. Jónssonar,
bónda á Höfða í Öxarfjarð-
arhreppi, og Ingibjargar
O. Sveinsdóttur húsfreyju.
Börn Guðrúnar og stúp-
börn Höskuldar em Dóra Hrönn
Gústafsdóttir, f. 26.8.1970, húsmóðir
í Borgamesi, en dætur hennar eru
Lovísa Oktovia Eyvindsdóttir, f.
27.5. 1991, og Karen Hrönn Eyvinds-
dóttir, f. 6.9.1993; Sævar Ingi Sverr-
isson, f. 19.12.1972, nemi og sjómað-
ur i Reykjavík, en sambýliskona
hans er Guðbjörg Harpa Þorvalds-
dóttir og er sonur þeirra Fjölnir
Freyr, f. 17.1. 1996.
Dætur Höskuldar og Guðrúnar
em Margrét Sigríður Höskuldsdótt-
ir, f. 15.9. 1980, nemi; Nanna Steina
Höskuldsdóttir, f. 6.1. 1983, nemi;
Árdís Inga Höskuldsdóttir, f. 29.4.
1986, nemi.
Bróðir Höskuldar er Steingrímur
Höskuldsson, f. 13.5. 1946, bóndi á
Hóli í Öxarfjarðarhreppi.
Foreldrar Höskuldar voru Þor-
steinn Steingrímsson, f. 8.3. 1912, d.
11.9. 1997, bóndi á Hóli, og Margrét
Eiríksdóttir, f. 6.1. 1916, d. 6.7. 1994,
húsfreyja.
Höskuldur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
SVARI
M 903 1 5670 ••
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.
DV
Til hamingju
með afmælið
17. september
95 ára
Ingimundur Pétursson,
Skólabraut 5, Seltjamamesi.
85 ára
Sigríður Fanney Isaksen,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Inga G. Þorkelsdóttir,
Freyjugötu 17, Reykjavík.
80 ára
Hólmfríður
Metúsalemsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
75 ára
Elínborg Ágústsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík.
Svavar Vilhjálmsson,
Kambahrauni 13, Hveragerði.
Hulda Pálsdóttir,
Staðarbergi 8, Hafnarfirði.
Hún er að heiman.
Sigríður Einarsdóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
70 ára
Páll Sveinsson,
Þverholti 4, Keflavik.
Salvör Stefanía
Ingólfsdóttir,
Unaðsdal, Vestm-byggö.
Kristjana Halldórsdóttir,
Bláhömmm 7, Reykjavík.
Gunnar Bjamason,
Garðabraut 7, Akranesi.
Ragnar Ólafur
Guðmundsson,
Eyri, Akureyri.
60 ára
Birgir Bjömsson,
Aðalgötu 3, Siglu-
firði. Kona hans
er Hrafnhildur
Stefánsdóttir. Þau
em á Mallorka.
Georg Jón Karlsson,
Sólbrekku 15, Húsavík.
Hrafnhildur
HaUgrímsdóttir,
Laugamesvegi 118, Reykjavík.
Erlingur Helgi Einarsson,
Mánagötu 19, Reykjavík.
Jóhannes Sverrisson,
Grenilundi 11, Garðabæ.
Svavar Þór Sigurðsson,
Selási 29, Egilsstöðum.
Ragnhildur Jóhaxmsdóttir,
Hverfisgötu 62, Reykjavík.
50 ára
Ólafur Jakobsson,
Brimhólabraut 31,
Vestmannaeyjum.
Guðríðm- Jónsdóttir,
Langholtsvegi 134, Reykjavík.
Ólafur Eiríksson,
Bæjartúni 7, Kópavogi.
Ema María Eyland,
Eyrarvegi 15, Akureyri.
Bryndís Jóhannsdóttir,
Baldursbrekku 13, Húsavík.
Þráinn Rósmundsson,
Bakkavör 38, Seltjamarnesi.
40 ára
Elín Theódóra
Jóhannesdóttir,
Jömndarholti 112,
Akranesi.
Helgi Hallgrímur
Jónsson,
Hliðarhjalla 59, Kópavogi.
Guðrún Valborg
Kristinsdóttir,
Stakkanesi 14, ísafirði.
Hallfríður Kristjánsdóttir,
Hátúni 5 A, Bessastaðahreppi.
Ragnheiður Eggertsdóttir
Ægisíðu 129, ReyKjavík.
Thu Thi Nguyen,
Skipholti 30, Reykjavík.
Karólína M. Vilhjálmsdóttir,
Víðibergi 9, Hafnarfirði.