Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Side 28
> o
a
0:0
sa
■3
z LO
<
t/i O
i-
hO
>
2 LT3
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Þyrluslysið:
Rakst á
stein og valt
L- r Vettvangsrannsókn flugslysa-
nefndar á þyrluslysinu i Hamars-
flrði bendir til þess að annað lend-
ingarskíði vélarinnar hafi rekist í
stein í flugtaki. Við það hafi þyrlan
fallið á hægri hliðina og þyrluspað-
amir rekist í jörðina og brotnað síð-
an af.
Vettvangsrannsóknin benti ekki
til neinna galla eða bilana í vélinni
sjálfri en áfram verður unnið úr
þeim gögnum sem safnað var á vett-
vangi. -SÁ
Kennaradeilan:
Sáttasemjari
þrefar um málin
Ríkissáttasemjari kallaði aðila
kennaradeilunnar á sinn fund
hvorn í sínu lagi 1 gær, fulltrúa
kennara fyrir hádegi en fulltrúa
sveitarfélaganna eftir hádegið.
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands íslands, segir að sátta-
semjari hafi ætlað að meta stöðuna
en í morgun hafði hann ekki boðað
til nýs formlegs samningafundar.
Eiríkur býst þó við að viðræður
hefjist á ný öðru hvomm megin við
nelgina. -SÁ
Hesturinn bundinn við staurinn á Syðri-Rauðalæk. Eins og sjá má hefur hann verið mikiö á ferðinni, enda tæpast í eðli íslenska hestsins að vera bund-
inn á stuttan spotta langtímum saman. DV-mynd KE
Sérkennilegar tamningaraðferðir:
Við staur allan daginn
„Við eram að temja þennan hest
og eram að „lónsera" hann. Hann
fær bæði vatn og hey og svo er
hann hreyfður á kvöldin," sagði
Elsa Júníusdóttir, húsfreyja á bæn-
um Syðri-Rauðalæk í Rangárvalla-
sýslu
Margir hafa haft samband við
DV vegna hests sem hefur verið
bundinn við staur nærri bænum í
alllangan tíma. Hann virðist hafa
verið mikið á ferðinni í kringum
staurinn, eða eins og bandið hefur
leyft, ef marka má mikið traðk.
„Við eram að reyna að spekja
þennan hest. Hann var settur i
tamningu og kom brjálaður til
baka aftur. Nú er hann orðinn
þannig að við getum komist að
honum og haldið í tauminn án þess
að allt sé í hers höndum.“
Elsa kvaðst ekki muna hve lengi
hesturinn væri búinn að vera
bundinn við staurinn en þeir sem
hafa haft samband við blaðið segja
að það skipti vikum.
„Við tímum ekki að láta farga
honum strax. Þetta fer ekkert illa
með hann því hann er fóðraður og
þetta er rétt eins og hann sé á húsi.
En hann gengur ekki laus því við
erum með hann í bandi þegar við
hreyfum hann. Ég held að honum
leiðist ekki, það koma stundum
hross til hans.“
Aöspurð hvort ekki stæði til að
fara að gefa hestinum frelsi sagðist
Elsa ekkert vita hvemig það yrði,
það kæmi í ljós.
„Þessi hestur er ekki frá okkur
og við erum ekkert með hann í
tamningu, þannig séð. Hann er
bara hjá okkur.“
-JSS
Piltur enn
í lífshættu
14 ára piltur, sem varð fyrir bíl í
Kópavogi á mánudag, liggur enn
lífshættulega slasaður á gjörgæslu-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að
sögn Páls Ammendraps, læknis á
gjörgæsludeild, er piltinum haldið
sofandi.
Lögreglan í Kópavogi óskar eftir
að þau vitni sem urðu að slysinu og
hafa ekki þegar gefið sig fram geri
það sem fyrst. Sérstaklega er óskað
eftir að ökumaður bifreiðar, sem ók
' "^Tiæst á eftir bifreiðinni sem lenti í
slysinu , gefi sig fram. -RR
Kópavogur:
10 ökumenn
teknir
10 ökumenn voru teknir fyrir of
hraðan akstur í Kópavogi á Nýbýla-
vegi í gærkvöld.
Sá sem hraðast ók var nokkuð
yfir 100 kílómetra hraða og á von á
að verða sviptur ökuleyfí. Radar-
mælingar lögreglunnar í gærkvöld
vora nálægt slysstaðnum þar sem
14 ára piltur varð fyrir bíl á mánu-
' '^hag. Þaö slys er þó ekki rakiö til
hraðaksturs að sögn lögreglu. -RR
/vERÐUR HANN\ l EKKI STAOUR? J
§
• L O K 1
i
---------—--
\ i y A ,• • í*/ hHH
Pétur Jónsson, Hulda Kristinsdóttir og Sighvatur Björgvinsson bera saman bækur sínar á kratafundi sem haidinn var í
gærkvöld vegna framboðsmála R-listans. Á næstu dögum skýrist hvernig framboði listans verður háttaö. Kratar sættast
ekki á að hafa einn fulltrúa í efstu sætum eins og síðast. Þeir viija helst opið prófkjör. DV-mynd ÞÖK
Veður á morgun:
Víöast
bjartviðri
Suðvestankaldi norðanlands
en annars fremur hæg breytileg
eða vestlæg átt og víðast bjart-
viðri. Hiti á bilinu 3-10 stig.
Veðrið í dag er á bls. 45.
Lést eftir
eldsvoða
Maðurinn, sem lést eftir eldsvoða
að Grenimel 28 á mánudagskvöld,
hét Karl Jóhannsson.
Karl var 73 ára gamall. Hann var
lögreglufulltrúi við útlendingaeftir-
litið. Eftirlifandi eiginkona Karls er
Aldís Hafliðadóttir. Hún fékk reyk-
eitrun í eldsvoðanum og líðan henn-
ar er eftir atvikum. Karl lætur eftir
sig 6 uppkomin böm.
Karl Jóhannsson