Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Side 8
Mmmm
22
iIvur
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Window 98
seinkar enn
Microsoft hefur tilkynnt í ann-
aö sinn að stýrikerfi þeirra,
Windows 98, muni seinka. Lík-
legra er nú að það komi út á öðr-
um fjórðungi næsta árs en þeim
fyrsta eins og hafði verið áætlað.
Phil Holden, framleiðslustjóri
Windows-stýrikerfisins, sagði að
þetta hafi verið ákveðið eftir við-
brögð frá viðskiptavinum um
hvemig stýrikerfi þeir vildu.
Þeirra vilji var stýrikerfi sem
j uppfærði bæði Windows 3.1 og
j Windows 95. Microsoft haföi áður
ákveðið að nýja stýrikerfið myndi
aðeins uppfæra Windows 95. Síö-
j ar myndi hins vegar koma upp-
færð útgáfa af Windows 3.1. Þessu
var sem sagt hafnað af viðskipta-
í, vinum og söluaðilum.
| Windows 95 hefur verið mjög
vinsælt stýrikerfi og hefur þegar
verið sett í meira en 100 milljón
einkatölvur. Samt sem áður hefur
Iþetta kerfl aöeins nýlega náð því
að seljast í fleiri eintökum en for-
veri þess, Windows 3.1. Upphaf-
lega var búist við að stýrikerfið
kæmi út á þessu ári. Þær raddir
hafa heyrst, jafnvel frá mönnun
innan Microsoft, að þetta stýri-
kerfl verði alls ekki nálægt því að
verða sú bylting sem Windows 95
var. Windows 98 bæti tiltölulega
litlu við. -HI/Reuter
Fyrstir með Dual
móðurborð
j Frontur er fyrirtæki sem hefur
j það aðallega að markmiði að vera
I fyrst með allt sem tengist tölvu-
I iðnaðinum. Meöal þess sem þeir
eru nú með er það sem kallað er
á ensku „rewritable CD“ sem eru
nýir diskar sem skrifa bæði á
geisladisk og venjulega diska.
Einnig eru þeir fyrstir til að vera
p með svokallað Dual-móðurborð,
j en ástæðan fyrir þessari nafngift
er sú að þetta móðurborð tekur
j tvo örgjörva. Loks selja þeir einn-
j ing 56K mótöld og eru fyrstir á ís-
landi tO þess að gera það.
Hugvit hefur getið sér gott orð
fyrir hugbúnaðargerð. Fyrirtækið
hefur m.a. fengið nýsköpunarverð-
laun Rannsóknarráðs íslands og
Útflutningsráðs á síðasta ári. Nú
er fyrirtækið mætt með nýjan hug-
búnað sem er hugsaður sem lausn
i útgáfu efnis á Veraldarvefnum.
Hugbúnaðurinn heitir InterPro og
er byggt á hinu öfluga hópvinnu-
kerfi, Lotus Notes.
Lotus Notes er mikið í notkun
bæði á íslandi og annars staðar í
heiminum. Miðlarinn sem kerfið
keyrir á heitir Lotus Domino og
getur hann sett fram efni hvort
sem er í gegnum Lotus Notes biðl-
ara eða vefráparana Netscape og
Explorer. Hann var nú á dögunum
valinn besti vefmiðlarinn af tíma-
ritinu PC Magazine.
InterPro er samstarfsverkefni
Hugvits og íslensku Internetþjón-
ustunnar. Það er kerfl sem er sér-
staklega hannað til uppbyggingar
og viðhalds á vefsíðum. Það bygg-
ir á Domino-miðlaranum sem er
afsprengi hönnunarvinnu Lotus
oglBM.
í þessu Domino-miðlara er sú
tækni til staðar sem þarf til texta-
leitar, aðgangsstjórnunar og gagn-
virkrar gagnavinnslu - allt í einu
kerfi.
Hönnun InterPro markast af
þörfum stærri viðskiptavina sem
hyggjast birta efni á veraldarvefn-
um en kreflast á sama tíma há-
markshagkvæmni í viðhaldi og
áframhaldandi vinnu við vefinn.
Það þarf því ekki að kalla út
tæknimann í hvert sinn sem senda
á gögn á vefinn.
Notandinn getur auðveldlega
valið um hvernig síðu á að búa til
og síðan er textinn sleginn inn.
Forsvarsmenn Hugvits.
Þannig geta allir sem hafa til þess Þar er t.d. hægt að gefa upp ingar verða aldrei of lengi inni á
heimild búið til vefsíður. Hins veg- hvenær síðan á að renna út síðunni.
ar er innbyggð ritstjórn í Interpro. þannig að tímabundnar tilkynn- -HI
Kerfisþróun:
Tilbúnir fyrir árið 2000
Fyrirtækið Kerfisþróun sérhæf-
ir sig í gerð viðskiptahugbúnaðar
sem heitir Stólpi og er nú notað í
yfir 1.200 fyrirtækjum. Að þeirra
sögn hafa yfir 50 mannár farið í að
vinna þau kerfi sem mynda Stólpa.
Þessa dagana er vinna í fullum
gangi hjá fyrirtækinu við að gera
þær breytingar á Stólpa sem nauð-
synlegar eru fyrir aldamótin. Þar
sem slíkt kallar á umfangsmiklar
breytingar verður útlitið tekið I
gegn í leiðinni. Verið er að flytja
öll kerfin í Windows-umhverfi til
hagræðis fyrir notendur.
Tvær útgáfur af Stólpa fyrir
Windows verða í boði. Önnur
þeirra, Stólpi 2000, er samhæfð
Office 97 og skrifuð í Access. Þetta
kerfi hentar meðal annars vel í
deildarskiptum fyrirtækjum þar
sem þarf t.d. að skrá minnisatriði
um viðskiptavini, tengiliði, reikn-
inga o.þ.h. Eins og í Office er inn-
byggð tenging við fax, tölvupóst og
veraldarvefinn. í kerfinu er einnig
m.a. flárhagsbókhald og birgðakerfi.
í hinni útgáfunni skapast mögu-
leiki á að flytja eldri kerfi yfir í
Windows. Notaður var til þess Lou-
is-hugbúnaðurinn frá Softis. Reikn-
að er með að öll kerfin verði kláruð
á fyrri hluta næsta árs. Búið er að
endurhanna launakerfið í Windows
og næst verður klukkukerfið tekið
fyrir. Bæði þessi kerfi verða gerð til
að „þola“ ártalið 2000.
Kerfisþróun býður einnig upp á
tengingu við tollinn en nú verða öll
tollaviðskipti að vera pappírslaus
fyrir aldamót. Stólpa-tollkerfið er
nú notað í um 300 fyrirtækjum. -HI
Björn Viggósson og Gunnar Sigurösson hjá Kerfisþróun.