Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Opin kerfi fyrst til að bjóða Pentium II tölvur:
Fyrirtækið Opin kerfi, sem er
umboð fyrir Hewlett-Packard á ís-
landi, er með ýmsar nýjungar í boði
á tölvumarkaðnum. Þar ber hæst
Pentium II vélarnar sem eru með
nýjan örgjörva frá Intel sem er öfl-
ugri en fyrri örgjörvar á markaðn-
um. Einnig má nefna ýmsar nýjung-
ar í þjónustunetum.
Fyrirtækið Opin kerfi fékk þetta
nafn árið 1995 þegar Hewlett-
Packard umboðið á íslandi varð al-
íslenskt fyrirtæki. Þetta heimsku-
nna fyrirtæki hafði þá verið með
útibú hér á landi síðan 1985. Opin
kerfi reka skrifstofu og verkstæði í
Reykjavík og koma síðan vörunum
til umboðsmanna á höfuðborgar-
svæðinu og landsbyggðinni. Þeir
reka hins vegar ekki verslun sjálfir.
Mikil söluaukning
Sala á HP-Vectra tölvum hér á
landi var 91% meiri fyrstu sex mán-
uði þessa árs en á sama tíma í fyrra.
Þetta er mun meiri aukning en
þekkist í Evrópu og Bandaríkjunum
og talsmenn Opinna kerfa segja að
íslendingar taki þessum vélum opn-
um örmum.
Nú er komin á markaðinn ný
gerð að þessum vélum, HP Vectra
VL með Pentium II örgjörva. Þessi
örgjörvi er til bæði 233 og 266 MHz
MMX sem er það öflugasta sem
þekkist. Opin kerfi eru þeir fyrstu
til að vera með Pentium II vélar á
íslandi.
Greiður aðgangur að
móðurborði
Meðal annarra nýjunga vélarinn-
ar má nefna að notandinn hefur
greiðan aðgang að móð-
urborði hennar þannig
að ekki þarf að opna
vélina til að komast að
móðurborðinu. Raunar
er hægt að komast að
öllum innri hlutum vél-
arinnar án þess að nota
skrúfjám. Blaðamanni
DV varð ekki um sel
þegar Pétur Bauer,
sölustjóri hjá Opnum
kerfúm, fór að taka vél-
ina í sundur til að sýna
honum innviði tölvunn-
ar. En í raun var einfalt
mál bæði að taka vélina
í sundur og setja hana
saman aftur. Þetta gerir.
það að verkum að að-
eins tekur örfáar mín-
útur að stækka minnið
eða harða diskinn eða
stilla móðurborðið upp
á nýtt.
Skjárinn sem tengdur
var við tölvuna vekur
einnig nokkra athygli.
Hann er alveg flatur og
segja þeir Pétur og Sig-
urður Örn Gunnarsson
markaðsstjóri að þetta
auki gæði skjásins miðað við stærð
hans. Þetta þýðir með öðrum orðum
að 15 tommu skjár nálgist það sem
hægt er að sjá í 17 tommu skjá. Því
er spáð að 60% tölvuskjáa verði
orönir þannig árið 2000. Verð á
þessum skjám er hins vegar enn þá
hátt og er talið að nokkur ár líði
áður en slíkir skjáir fáist á viðráð-
anlegu verði.
Þjónustunet
Opin keríi bjóða einnig nýjungar
í þjónustunetum. Þar getur netstjór-
inn t.d. kveikt og slökkt sjálfur á öll-
um tölvunum í einu og ef setja þarf
nýtt forrit inn á netkerflð þarf hann
ekki að ganga á milli hverrar ein-
ustu tölvu og setja forritið inn.
Að lokum má geta þess að á næst-
unni munu Opin kerfi bjóða upp á
A3 litaprentara, þrívíddarskanna og
tæki sem er sambyggður skanni,
prentari og litaljósritunarvél. Þetta
á allt að bjóða á góðu verði. -HI
imínn
Laser Attraction
Cyrix 6x86 P+166 örgjörvi
2.1GB haröur diskur
16MB vinnsluminni, 512KB
16x geisladrif
16 bita hljóökort
80W hátalarar
2MB S3 Trio64V2 skjákort
Microsoft mús, Windows 95 lyklaborö
Windows 95 stýrikerfi
14" Laser SVGA litasjcjár
.
staðgreitt (m.VSK.)
| ■
•rVrfilÍIIIIÍÍ,
.
< ... *
f t
'/'
;
ki/laser Heimilistæki hf
computer
TÆKIMI- OG TÚLVUDEILD
BÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
www. ht.is
Pétur Bauer og Sigurftur Örn Gunnarsson við Pentium II vélina. DV-mynd E.ÓI.
WordPerfect 8
komið á markaðinn
í febrúar 1996 keypti kanadíska
hugbúnaðarfyrirtækið Corel
Corp. WordPerfect frá Novell. í
maí 1996 setti Corel svo WordPer-
fect Suite 7 á markaðinn. Suite 7
innihélt einnig QuattroPro töflu-
reikninn, Presentation framsetn-
ingarforrit, Envoy viewer (skoð-
ara) og Sidekick skipulagningar-
kerfl frá Starflsh. Viðtökurnar
voru frábærar og í júní sama ár
var markaðshlutdeild WordPer-
fect Suite 7 49% af skrifstofu-
markaðnum í Bandaríkjunum.
Nýlega setti svo Corel
WordPerfect Suite 8 á markaðinn
og hefin- þessi útgáfa nú þegar
sópað að sér verðlaunum og við-
urkenningum. Meðal nýjunga má
nefna að WordPerfect Suite 8
styöur MMX tæknina frá Intel,
nokkuð sem ekki fmnst í öðrum
skrifstofukerfum. Með MMX fæst
aukinn hraði við graflk og betri
hljóðgæði og video. Þótt ekki sé
MMX örgjafi til staðar er Suite 8
um 30% hraðvirkari í opnun
skjala en WordPerfect Suite 7.
í WordPerfect Suite 8 er Word-
Perfect 8 ritvinnsla, QuattroPro 8
töflureiknir, Presentation 8, Cor-
elCENTRAL, Corel Barista Java
verkfæri, Corel Photo House 1.1,
DAD (Desktop Application Direct-
or), Envoy 7 skoðari, Netscape
Navigator 3.0, 1.000 hágæða font-
ar, 200 ljósmyndir og 10.000
Clipart myndir. Væntanlegt er á
næstu dögum Corel Office Pro-
fessional sem er af sama grunni
að viðbættum Paradox 8 gag-
nagrunninum, Corel Time Line
og Corel WEB.SiteBuilder.
Þrátt fyrir að WordPerfect
Suite 8 sé mikið endurbætt og
fullt af nýjungum hefur ekki ver-
ið breytt um skráarform þannig
að WordPerfect Suite 7 gengur
fullkomlega saman við WordPer-
fect Suite 8. Enn fremur getur
Suite 8 unnið með flest skráar-
form annarra skrifstofukerfa.
Fyrir utan stuðning við MMX
örgjafann frá Intel eru fjölmargar
nýjungar í forritunum í Suite 8
pakkanum. í WordPerfect hefúr
skuggakross verið endurbættur
og fylgir hann hreyfingu músar-
innar um blaðsíðuna. WordPer-
fect gerir nú sjálfkrafa tengingar
frá texta byrjun við netfong og
slóðir á heimasíður.
CorelCENTRAL 8 er nýjasta af-
urðinn í Suite pakkanum. Þetta
forrit hefur fullkomna dagbók og
áætlanagerö, sem og símaskrá,
nettengingu, tölvupóst og um-
ræðuhópa. Veflnöguleikinn gerir
notendum kleift að tengjast vef-
síðum frá símaskránni.
TÆKNIBUNAÐUR
Suðurlandsbraut 6 - Reykjavík
Sími 553 0600 • Fax 581 3035
Eigum Thunder og Tatung Pentium vélar
á verði frá t, 94,
ÖTATUIMG