Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 Undanfarinn áratug hafa sérfræðingar IBM í Frakk- landi þróað fullkominn hug- búnað sem kallast Talsjá eða Speech Viewer. Nýverið kynnti Nýherji þriðju útgáfu forritsins en eldri útgáfur þess hafa verið í notkun hér á landi í tæpan áratug og gefið •' góða raun. Nýja útgáfan af Talsjánni er öll á íslensku. Margvíslegt nota- gildi í raun er Talsjá sérhæft tæki fyrir þá sem vinna við greiningu og meðferð tal- meina, máltruflana og heym- armeina. Einnig má hugsa sér að tækið nýtist þeim sem viija læra erlend tungumál, æfa framburð eða læra söng. Ein af þeim sem hefur notað Talsjána undanfarin ár er Þóra Sæunn Úlfsdóttir, yfir- ^ talmeinafræðingur Sjúkra- húss Reykjavíkur. Hún notar Talsjá II mikið í sinni vinnu en segir að sér lítist vel á nýju Talsjána. „Sérstaklega líst mér vel á hversu auðvelt er að halda utan um gögn um hvem skjólstæðing fyrir sig í nýja forritinu," segir Þóra en til stendur að hún fái nýju Talsjána til sín. Meðal skjólstæðinga henn- ar er fólk sem hefur orðið fyr- ir heilablóðfalli eða heilaá- i&verka og misst röddina, orðið þvoglumælt eða þarf að læra Þóra Sæunn Úlfsdóttir talmeinafræðingur viö Talsjána. hljómfall. Einnig notar hún forritið til að æfa framburð hljóða hjá börnum með framburðarörðug- leika. Öm Kaldalóns, kerfisfræðingur hjá Nýherja, segir að markverðasta breytingin frá fyrri útgáfum Tal- DV-mynd E.ÓI. sjárinnar sé að nú geti algengar margmiðlunartölvur keyrt forritið án vandkvæða. „Heimilistölvur sem má nota jafht í leiki og í að fletta upp í alfræðiorðabókum, geta út- varpað hljóði og sýnt hreyfimyndir eins og gert er hann. í Talsjánni," segir Fer vel með tal Hljóðnemi fylgir hugbúnaðnum og þegar talað er í hann birtir for- ritið „þrivíddarmynd“ af talinu. Þannig er hægt að „sjá“ árangur- inn á tölvuskjá um leið og talað er. Þeir sem standa sig vel fá umbun með myndum eða hljóðum þannig að forritið eykur áhuga nemenda á að standa sig enn betur. Þetta segir Þóra vera afar mikil- vægt enda auðveldi þetta starf hennar og skjólstæð- inga hennar. Auk hljóðnemans fylgir yíirgripsmikið æflngakerfi með Talsjánni. Það gerir leiðbeinendum og nemend- um kleift að fylgjast með og ná valdi á hljóðmyndun, röddun, raddtíðni, radd- styrk, framburði og tal- hraða svo að eitthvað sé nefnt. Forritið býður upp á þann möguleika að taka upp hljóðdæmi og spila þau aftur þannig að skjólstæð- ingar og leiðbeinendur geta fylgst afar náið með fram- forum. Vandræðalaust er að sérsníða æfingar með tilliti til þarfa einstakra skjól- stæðinga og nota eldri upp- lýsingar um frammistöðu þeirra til þess að ákveða framhald kennslu. Þær má prenta út sem töflur eða lfnurit og nota til þess að stilla æfingakerfi fyrir hvern og einn. Til marks um góða hönnun Talsjár má nefna að forritið fer mjög vel með tal sem er spilað hægt. Röddin dýpkar ekki eins og gerist þegar tal er spilað hægt af segulbandi. Enn- fremrn- er auðvelt að læra framburð af Talsjánni, menn geta einfaldlega stillt ákveðinn framburð inn í tölvuna og borið sitt tal sam- an við hann. Þá er hægt að æfa sig þangað til að talið er orðið nægi- lega llkt framburðinum," segir Örn að síðustu. -HI Árleg ráðstefna Teymis: Margir erlendir sérfræðingar Teymi kynnir eitt af forritum sfnum. Ráðstefna þess hefur unniö sér fastan sess á íslandi. Það er orðinn árlegur viðburður hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Teymi hf. að halda ráðstefnu á haustdögum. Ráðstefnan hefur mælst vel fyrir hjá þeim sem hana hafa sótt og hafa sumir haft á orði að þetta væri vandaðasta ráðstefna sinnar tegundar á íslandi (sbr. grein í DV I nóvember 1996). Að þessu sinni verður ráðstefnan haldin á Hótel Loftleiðum 8. og 9. ^ október. Fyrirlestrum er skipt í þrjár brautir: rekstrarbraut fyrir þá sem vinna við rekstur upplýsinga- kerfa, stjómunarbraut fyrir þá sem eru í forsvari fyrir upplýsingadeild- um og loks þróunarbraut fyrir þá sem vinna að þróun hugbúnaðar. í fyrirlestrum verða margvíslegar kynningar á nýjum stefnum og straumum sem eru að ryðja sér til rúms á upplýsingatæknimarkaðn- um, auk þess sem inn í dagskrána era fléttaðar stuttar kennslustundir, en þá mimu helstu sérfræðingar á viðkomandi sviði kenna hagnýt at- riði. Þá munu yfirmenn nokkurra upplýsingatæknideilda segja frá reynslu sinni við lausn ýmissa við- fangsefna. Á þessari tveggja daga ráðstefnu munu 22 fyrirlesarar frá 5 þjóðlöndum vera með 36 fyrirlestra, þar af verða 5 kennslustundir. Ráðstefnunni er ætlað aö opna þátttakendum nýjar víddir og gefa þeim nýjar hugmyndir að lausnum viðfangsefna, auk þess að vera fræð- andi og umfram allt skemmtileg. Áhrif nettölvunar Meðal efnis á ráðstefnunni er kynning Teymis á Oracle8 og nett- ölvun (e. Network Computing) inn á íslenska markaðinn. Ráðgjafi frá Gartner Group mun ræða um það hvaða áhrif nettölvun muni hafa á upplýsingatæknimarkaðinn. For- stjóri Oracle í Danmörku mun tala um framtiðarsýn Oracle og fast á hæla hans kemur sölustjóri Damga- ard Intemational og kynnir Concor- de/XAL 3.0, nýjustu útgáfuna af Concorde-upplýsingakerfinu, og er ísland fyrsta landið utan Bandaríkj- ana þar sem þessi útgáfa er kynnt. Margir sérfræðingar verða með kennslustundir þar sem þeir kenna hagnýt atriði sem munu nýtast vel í daglegri vinnu þátttakenda. Þá munu forstöðumenn nokkurra upp- lýsingatæknideilda stórra fyrir- tækja og stofhana koma og segja frá sinni reynslu og hvernig þeir hafa nýtt tiltekna tækni sér til framdrátt- ar. Sýningarsvæði Samhliða fyrirlestrum verður stórt sýningarsvæði opið þar sem þátttakendum gefst kostur á að skoða og kynna sér nánar þær nýj- ungar sem fjallað er um I fyrirlestr- um. Sýningarsvæðiö verður opið báða dagana. Það verða sýnd Java- forrit sem nota J/SQL og JDBC til að tala við Oracle8 gagnagrann í gegnum CORBA. Teymi hf. mun einnig kynna Oracle WebDeveloper sem er einstakt þróunarverkfæri til að hanna Java-hugbúnað. Teymi hf. sýnir hvemig nota megi nettölvur og PC-tölvur saman á sama neti. Innifalið í ráðstefnugjaldinu er aðgangur að öllum fyrirlestram, kennslustundum og sýningarsvæði, sem og öll ráðstefnugögn og léttar veitingar. Nánari upplýsingar um ráðstefn- una er að flnna á http: //www.teymi.is/radstefna eða í slma 561-8131. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á báðum stöðum. Skráning er til 30. september. -HI maxon Maxon DM70 Práölausar DATA-sendingar meö innbyggöu modemi og RS232 porti. Rafögn ehf., Ármúla 32, s. 588 5678

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.