Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Qupperneq 2
i6 kvikmyndir
Laugarasbíó -187:
Kennari á gráu svæði ***
í Dangerous Minds fékk Michelle Pfeiffer það verk að kenna vand-
ræðaunglingum i fátækrahverfi í Los Angeles og hélt maður satt besta
að segja að allt hefði verið hægt að segja um þessi mál í þeirri kvikmynd
og nokkrum öðrum sem hjakkað hafa í sama fari. Því er það að byrjun-
in á 187 er ekki neitt til að vekja upp spennu eða áhuga, enda liggur við
að myndin gerist í sama hyerfi og í sama skóla og Dangerous Minds.
Samt verða snögg kaflaskipti i 187 sem aðgreinir hana frá öðrum slíkum
myndum, kaflaskipti þar sem kennarinn sjálfur er kominn í sömu
hættulegu sporin og nemendur hans. Þessi óvænta stefnubreyting frá
hinu hefðbundna gerir 187 mjög svo áhugaverða enda er tekist fyrst og
fremst á um siðferði, hvað má, hvað ekki má og hvað er rétt og hvað er
rangt.
Samuel L. Jackson leikur kennarann Trevor Garfield sem kennir
vandræðaunglingum í New York. Hann verður fyrir því að einn nem-
enda hans, sem féll á prófi, gengur næstum af honum dauðum. Þetta er
ekki bara mikið likamlegt áfall fyrir Trevor heldur einnig sálrænt þar
sem Trevor var kennari með hugsjón. Ári síðar er Trevor kominn til
Los Angeles og fær starf sem forfallakennari. Vonbrigði hans eru mikil
þegar hann sér að hann er að fá upp í hendurnar sams konar nemanda
og hann hafði kennt í New York. Hvað gerir kennari sem hefur misst
trúna á hugsjónina, hefur samt trú á því góða í manninum, vill hjálpa
einstaka nemendum en telur sér trú um það sé ekki hægt nema illkynja
æxli séu skorin burt?
187 (sérstaklega óspennandi nafn á kvikmynd, nafn sem merkir visst
útkall hjá amerísku lögreglunni) er nokkuð brokkgeng og fer stundum
yfir strikiö. Má þar nefna Deer Hunter-atriðið í lokin. Á móti koma vel
gerð atriði þar sem samband nemanda og kennara eru í brennidepli og
það er stíll yfir vinnubrögðum Kevins Reynolds. Það er samt Samuel L.
Jackson sem heldur myndinni saman og er leikur hans sterkur og
áhrifamikill.
Leikstjóri: Kevin Reynolds. Handrit: Scott Yagemann. Aðalleikarar: Samu-
el L. Jackson, John Heard og Kelly Rowan. Hilmar Karlsson
Háskólabíó/Bíóhöllin — Volcano:
Eldfjöll allra landa sameinist **
Þetta var allt í
lagi meðan ísinn
entist en svo fór
að halla undan
fæti. Fyrst steikj-
ast nokkrir
verkamenn. Þá
reynir almanna-
vamamaður
Mike Roark
(Tommy Lee Jo-
nes) að sannfæra
ýmsa yfirmenn
um að hætta sé á
ferðum. En tekst
ekki. Þá reynir jarðeðlisfræðingur, dr. Amy Barnes (Anne Heche), að
sannfæra Roark um að hætta sé á ferðum. En tekst ekki. (Og nei ég rugl-
aði ekki röðinni.) Svo kemur eldgos. Og svo heldur það áfram. Einhvem
veginn svona hafa handritshöfundar, Jerome Armstrong (sem er arki-
tekt) og Billy Ray, skrifað niður handritið sitt, en þeir í félagi við leik-
stjórann virtust hafa enn minni hugmynd um hvað var á seyöi í þessari
mynd en Roark og Bames, og áberandi minni stjóm á því.
Það er synd að þessi stórskemmtilega stórslysamyndabylgja virðist
ætla að ganga sér svona fljótt til húðar, vonandi er Volcano bara svart-
ur blettur en ekki endalokin. Heimsendastemningin er þó ríkjandi - líkt
og í svo mörgum bandarískum myndum undanfarin ár (ID4 kannski
besta dæmið), sjálfseyðingarhvöt Bandaríkjamanna virðist sterkari en
nokkru sinni áður - en klikkar ekki á að gefa nýja von; seinna eldgosið
er eins konar guðlegur eldstólpi leikinn af tölvu. Tæknibrellumar virt-
ust ekki endast út myndina fremur en handritið. Náttúruhamfarir eru
oft gerðar táknrænar fyrir tiiflnningar og í þessu tilfelli er spilað mikið
á kynþáttaátökin í Los Angeles. Eldgosið og hamfarimar virka þá sem
friðarboði þar sem allir hjálpast að og allir verða eins undir öskulaginu.
Við þetta bætist svo yfirþyrmandi hetjuskapur manna og kvenna og allt
er þetta ákaflega þunnt og holt að innan og lítt sannfærandi. Tommy Lee
Jones sýndi litla takta og Anne Heche virtist líka hálftýnd í handritshel-
víti þessu, og enn er ástæða til að kvarta yfir tónlist Alans Silvestri. Það
hefði verið best að sprauta bara vatni yfir þetta allt saman, það var þaö
sem þeir gerðu á íslandi.
Leikstjóri: Mick Jackson. Handrit: Jerome Armstrong og Billy Ray. Tón-
list: Alan Silvestri. Aðalhlutverk: Tommy Lee Jones, Anne Heche, Don Chea-
dle, Gaby Hoffmann, Keith David, Jacqueline Kim.Úlfhildur Dagsdóttir
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 XjV
að sannfæra hann um að hann
þurfi að taka sér frí. Finnbogi veit
hins vegar það sem allir athafna-
menn vita: Ef þú ætlar þér munað
þarftu fyrst að byggja upp veltu.
Hann kaupir því lítið, gamalt bak-
arí sem lengi hefur verið til sölu.
Þar hyggst hann ná upp veltunni til
að koma sér og konu sinni í langt
og verðskuldað frí til heitari landa.
Á sama tíma og hjónin reyna að
fóta sig í bakarissrekstrinum fetar
sonur þeirra, Bjartmar, sig áfram i
ábatasömum viðskiptum með úr
sér gengnar Lödur sem rússneskir
sjómenn undir forystu hins herskáa
Viktors vilja ólmir kaupa.
Auk þeirra Ólafiu Hrannar og Jó-
hanns leika í myndinni Ólafur
Darri Ólafsson, sem leikur son
þeirra hjóna, Edda Björgvinsdóttir,
sem leikur eiganda bakarís sem
ekki þolir samkeppnina, og Ingvar
Sigurðsson sem leikur foringja
rússnesku sjómannanna.
Óskar Jónasson er, auk þess að
leikstýra myndinni, handritshöf-
undur, en óhætt er að segja að hann
hafi leitað nýrra leiða við handrits-
skrifin. Óskar setti þróun persón-
anna í hendur leikara sem spunnu
texta sem Óskar vann síðan einn
úr. Kvikmyndatökumaður var Sig-
urður Sverrir Pálsson, Leikmynd
gerði Ámi Páll Jóhannsson. Kjart-
an Kjartansson sá um hljóð og tón-
list samdi Ólafur Gaukur. Myndin
er sýnd í þremur kvikmyndahús-
um, Háskólabíói, Stjömubíói og
Sam-bíóum.
Spielberg fer í stríð
Steven Spielberg er þessa dag-
ana að leikstýra þriðju kvikmynd
sinni á tveimur áram. Þegar er
búið að sýna Jurassic Park: The
Lost World. Amistad verður ein af
jólamyndunum vestanhafs og nú
vinnur Spielberg hörðum höndum
við gerð stríðsmyndarinnar Saving
Private Ryan. Hafa tökur að mestu
farið fram á írlandi. Þessar þrjár
kvikmyndir em mjög ólíkar efnis-
lega, Lost World var vísindaskáld-
skapur, 1 Amistad kafar Spielberg i
sögu Bandaríkjanna og í Saving
Private Ryen er það sjáifur D-dag-
urinn, innrásardagurinn í Norm-
andi í seinni heimsstyrjöldinni
sem er umgjörðin.
í Saving Private Ryan leikur
Tom Hanks liðsforingjann Miller
sem fær það verkefni ásamt félög-
um sínum að gera tilraun til að
bjarga hermanninnum Ryan sem
er í haldi Þjóðverja. Það er mikið
í húfi þar sem Ryan er nokkurs
konar þjóðhetja í Bandaríkjunum.
í gær var frumsýnd ný íslensk
kvikmynd eftir Óskar Jónasson.
Um er að ræða gamanmynd um
hjón sem leitast við að upplifa ís-
lenska drauminn; að auðgast hratt
og komast í langt frí til heitari
landa. Þau kaupa niðurnítt bakari
og byrja að baka, meira af vilja en
getu, og komast að því að sumum er
sýnd veiði en ekki gefin.
Hjónin eru þau Lísa og Finnbogi,
sem leikin era af Ólafíu Hrönn
Jónsdóttur og Jóhanni Sigurðar-
syni. Þau hjón eru nýlega flutt á
mölina frá Seyðisfirði þar sem þau
«3
höfðu um árbil rekiö litla útgerð og
pylsuvagn. Finnbogi er kappsamur
og duglegur maður sem hefur lengi
alið með sér þann draum að auðg-
ast á athafnamennsku. Hann á það
til að fá góöar hugmyndir, eins og
til dæmis að ganga í hús og selja
kíkjugöt á þeim forsendum að
þannig geti fólk losnað við að opna
fyrir farandsölumönnum.
Lísa hefur þungar áhyggjur af
manni sínum sem henni finnst
vinna of mikið. Hana dreymir um
að komast í frí á sólarströnd með
Finnboga sínum og reynir í sífellu
Rússneskir sjómenn sem vilja eignast Lödu.