Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
Fréttir
Skatta- og lögregluyfirvöld rannsaka meintan ólöglegan innflutning á 500 bílum:
Tveir grunaðir um
svik með nær 300 bíla
- Mercedes Benz-bílar, jeppar og sportbílar algengir - tekjutap ríkissjóðs talið nema hundruðum milljóna
Tveir menn eru grunaðir um að
hafa, hvor í sínu lagi, meira eða
minna staðið að ólöglegum innflutn-
ingi á tæplega þrjú hundruð nýjum
og notuðum bílum á rúmum tveim-
ur síðustu árum. Þeir eru grunaðir
um skjalafals, tollalagabrot og und-
anskot á skatti. Skattrannsóknar-
stjóri rannsakar málin.
Hinn ólöglegi innflutningur er í
heild mun umfangsmeiri því skatt-
rannsóknarstjóri er að rannsaka
samtals um 500 bíla sem talið er að
hafi verið fluttir ólöglega inn á
þessu tímabili. Vel á annan tug ein-
staklinga og „lögaðila" tengist inn-
flutningi allra bílanna, þar á meðal
hinum framangreindu tveimur
mönnum. Málið er nú orðið eitt um-
fangsmesta efnahagsbrotamál sið-
ustu ára. Hluti af málunum hefur
verið sendur ríkislögreglustjóra eft-
ir að ríkistollstjóri lagði fram kær-
ur.
Jeppar og Benzar teknir
Hald hefur verið lagt á tíu bda -
mest jeppa og Mercedes Benz bUa -
og þeir kyrrsettir með dómi. Þessir
bUar voru í eigu innflytjendanna og
höfðu ekki verið seidir „þriðja að-
Ua“.
Samkvæmt upplýsingum embætt-
is skattrannsóknarstjóra er talið að
tekjutap ríkissjóðs af vantöldum
skatttekjum framangreindra aðUa
nemi aUt að 200 milljónum króna.
Þessi gjöld verða þó væntanlega
lögð á viðkomandi einstaklinga.
Að sögn talsmanns skattrann-
sóknarstjóra er ekki hægt að segja
tU um það nú hvert áætlað tap rik-
issjóðs hefur orðið á aðUutnings-
gjöldum vegna allra þessara 500
bUa.
BUarnir eru flestir keyptir i
Örn Jóhannsson, rannsóknarmaður hjá skattrannsóknarstjóra, meö hluta af þeim gögnum sem nú hafa safnast upp
vegna hinnar umfangsmiklu bílarannsóknar. DV-mynd Pjetur
Þýskalandi, Kanada og Bandaríkj-
unum. Jeppar eru algengir,
Mercedes Benz-bílar og sportbUar
en einnig japanskir bUar.
Hinn rökstuddi grunur skatta- og
lögregluyfirvalda snýr að því að
innflytjendurnir hafi keypt þá ytra
á miklu lægra verði en gefið var
upp við toUayfirvöld hér á landi
þegar þeir voru fluttir inn. Þannig
sé um skjalafals (faktúrusvik) að
ræða í því skyni að sleppa með lág
aðflutningsgjöld. Síðan hafi bUamir
verið seldir með hundruð þúsunda
eða jafnvel miUjóna króna hagnaði
hver - innUytjendurnir hafi síðan
ekki talið réttan söluhagnað fram tU
skatts.
Stofn skattaundandráttarins er
ekki talinn nema undir 300 miUjón-
um króna. Tekjutap ríkissjóðs sé
því hátt í 200 mUljónir króna með
álögum og vöxtum.
Skjalafals í 50 bíla
innflutningi
Arnar Jensson, hjá efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra, segir
að þar sé þegar farið að rannsaka
skjalafals og tohalagabrot að því er
varðar vel á annað hundrað bUa.
Búast má við að skattrannsóknar-
stjóri sendi fleiri mál þangað á
næstunni.
Ríkislögreglustjóri er nú að ljúka
skjalafalsrannsókn sem beinist að
tveimur aðUum sem fluttu inn sjálf-
ir og í nafni fyrirtækis þeirra 50
bíla. Þeir eru aUir taldir hafa verið
Uuttir inn á fölsuðum reikningum.
Kröfur frá ríkissjóði í því máli
verða um 30 mUljónir króna.
Arnar sagði að gott samstarf
hefði verið við erlend toUa- og lög-
regluyfirvöld tU að fá upplýsingar
um upprunalegt kaupverð bUanna
sem rannsóknin beinist að.
-Ótt
Tískujokkar
klassískir jokkor
frokkor - kápur
buxur - hottor
Mjúkt - hlýtt - sterkt
OVf,
*****
Ummæli vegna erfiðleika við innheimtu launa- og lífeyrisiðgjalda:
Pizza 67 ætlar að stefna og kæra
Gísli Gíslason, lögmaður Pizza 67
keðjunnar, segir að 23 rekstraraðil-
ar hennar ætii að stefha Atla Gísla-
syni hæstaréttarlögmanni tU
greiðslu skaðabóta fyrir atvinnuróg
og meiðyrði fyrir að hafa haldið því
fram í DV í vikunni að Pizza 67
„hafi svindlað á starfsfólki sínu“.
Gísli segir að Atli verði einnig
kærður til siðanefndar Lögmannafé-
lags Islands fyrir brot á 5., 6. og 31.
grein siðareglna félagsins.
Eins og ffam kom í DV i vikunni
sagði Atii að á síðustu þremur árum
hefði stofu hans gengið afar Ula að
hafa uppi á forsvarsmönnum Pizza
67 til að innheimta dæmd laun fyrir
hönd starfsfólks auk krafna ffá líf-
eyrissjóði þess.
Georg Georgiou, einn þeirra
Atli Gíslason óttast hvergi stefnu eða kæru:
Ég skora þá á
mennina að mæta
„Þessum mönnum er eins og öðr-
um frjálst að leita réttar síns ef þeir
telja sig hafa málstað tU þess. Ég fæ
þá kannski tækifæri tU að hitta
þessa menn og birta þeim tilkynn-
ingar og stefnur sem ég hef reynt
undanfarin þrjú ár án árangurs,"
sagði Atli Gíslason hæstaréttarlög-
maöur um fyrirhugaða stefnu og
kæru Pizza 67 á hendur honum.
Atli sagöi að þær launakröfur
sem væru til innheimtu á stofu
hans byggðust á dómum Héraðs-
dóms Reykjavíkur sem ekki hefur
verið áfrýjað. Lífeyrisjóðsiðgjöld
séu byggð á upplýsingum ffá við-
komandi lífeyrissjóði.
„Það hafa aldrei verið gerðar at-
hugasemdir á skrifstofu minni um
réttmæti þessara krafna eða athuga-
semdir félaganna um að kröfumar
kunni að hafa verið rétt útreiknað-
ar,“ sagði Atli.
„Þeim greiðslum, sem við höfum
móttekið, hefur verið ráðstafað með
fullkomlega eðlilegum hætti. Á síð-
asta ári fékk Georg Georgiou skil-
merkilegar kvittanir fyrir öllum
greiðslum sem höfðu veriö greiddar
og hefur engar athugasemdir gert
við það fyrr en núna.
Ég bendi á að það var fyrirtaka
vegna gjaldþrotakröfu á íslenskt
framtak á miðvikudag. Þar mættu
forsvarsmenn félagsins ekki. Næsta
fyrirtaka í því máli er eftir um það
bil hálfan mánuð. Ég skora á for-
svarsmenn íslensks framtaks að
mæta þar og standa fyrir máli
sínu,“ sagði Atii Gíslason.
-Ótt
manna sem Atii hefur leitað að í
tengslum við Pizza 67, sagði við DV
í gær að hann hefði greitt 2,2 millj-
ónir króna inn á hin dæmdu laun
og kröfumar í byrjun árs 1996 - með
peningum og tékkum stíluðum fram
í september sama ár. Þegar hann
hafi ætiað að ganga frá lokauppgjöri
í september á því sem eftir var hefði
hann orðið þess áskynja að kröfum-
ar hefðu hækkað óeðlilega miðað
við það sem hann taldi rétt vera.
Georg segir að ijóst sé að sam-
kvæmt þessu hafi greiðslumar sem
hann innti af hendi í ársbyrjun 1996
ekki runnið til sjálfra kröfuhafanna
- heldur mnnið til félagsgjalda
þeirra og í innheimtukostnað til lög-
mannsstofú Atia.
-Ótt
Stöðvaðist við hengiflug
DV, Hólmavlk:
■
• ■
Litlu munaði að
olíuflutningabifreið
á norðurleið færi
fram af brekkubrún
og niður bratta hlíð
skammt frá svo-
nefhdum Forvaða í
norðanverðum
Koilafirði um há-
degisbil 11. nóvem-
ber. Þama er malar-
vegur og var öku-
maður að vikja fyr-
ir bifreið sem kom
úr gagnstæðri átt.
Bifreiðin fór
langan veg yfir mó-
lendi uns hægra framhjól sökk í
vatnsósa jarðveginn nokkrum fet-
um frá hengifluginu. Þaö að bif-
reiðin var óhlaðin gerði það að
verkum að hún valt ekki við að
fara út af háum vegkantinum.
Skemmdir urðu óverulegar.
Bifreiöin á brekkubrúninni. DV-mynd Guðfinnur
Meðan ekki frystir er fúll
ástæða til að vara við gljúpum
vegköntum á þessum slóðum en
rignt hefur að minnsta kosti í
fjörutíu daga og fjömtíu nætur
frá 20. júlí í sumar.
GF