Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Page 24
36
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
mótmæli
„Einu sinni tóku menn sig upp
og mótmæltu her á íslandi og
stríöi í Víetnam og gáfu fé til
sveltandi bama i Biafra. Nú mót-
mæla menn hækkuðum símreikn-
ingum og skertum tekjum."
Ármann Jakobsson íslensku-
fræðingur, í DV.
Ummæli
Alltof gamall til að vera
tekinn úr umferð
„Mér flnnst hálfgerður skandall
að maður á mínum aldri skuli
vera tekinn úr umferð allan tím-
ann.“
Sigurður Sveinsson handbolta-
kappi, í DV.
Leiddur til slátrunar
„Ég er að fara þarna til slátrun-
ar og mun vera viðstaddur hana.“
Vilhjálmur Ingi Árnason um för
sína á stjórnarfund Neytenda-
samtakanna í Reykjavík, í DV.
Halli og Laddi munu skemmta á föstu-
dögum á Sir Oliver í nóvember.
Halli og Laddi á Sir Oliver
Hinir síungu og vinsælu Halli og
Laddi munu skemmta gestum á Sir
Oliver í kvöld. Ekki þarf að kynna
þá bræður nánar þvi þeir hafa
skemmt íslendingum með miklum
ágætum í alls konar gervum á liðn-
um árum.
Hörður Torfa á Flúðum
Söngvaskáldið vinsæla, Hörður
Torfa, mun skemmta gestum á Hótel
Eddu, Flúðum, í kvöld, kl. 21. Á
sunnudagskvöld verður hann á Hót-
el Björk, Hveragerði.
Gullöldin
Stuðhattarnir Svensen & Hall-
funkel skemmta á Gullöldinni, Graf-
arvogi, í kvöld og annað kvöld.
Feiti dvergurinn
Gleðigjafinn André Bachmann
leikur ásamt hljómsveit á Feita
dvergnum í kvöld og annað kvöld.
Gestasöngvari helgarinnar er Hrafn-
hildur Ýr.
Kaffi Akureyri
Ástralski söngvarinn og hljóm-
borðsleikarinn Glen Valentine
skemmtir gestum í kvöld. Annað kvöld
leikur hljómsveitin Tvöfóld áhrif.
KK á Skagaströnd
KK er á ferð um landið ásamt
Guðmundi Péturssyni gítarleikara. í
kvöld leikur hann á Skagaströnd og
hefjast tónleikar hans kl. 22.
Café Menning, Dalvík
Það verður mikið um að vera á
. Café Menningu um helgina. í kvöld
leika fyrir gesti á neðri hæðinni
Gulli og Maggi og seinna um kvöld-
ið mun ástralski söngvarinn Glen
Valentine skemmta. Á laugardag
eru svo tónleikar KK kl. 22. Með KK
á sviðinu verður gítarsnillingurinn
Guðmundur Pétursson.
Skemmtanir
Naustkjallarinn
1 kvöld mun Gammeldansk frá
Borgarnesi sjá um fjörið og annað
kvöld er það Kiddi Rós sem skemmtir.
Tvífari Tinu Túrner
á Hótel íslandi
Tvífari Tinu Turner, Suzette
Dorsey, skemmtir i kvöld á Hótel ís-
landi. Annað kvöld er svo dagskrá
Björgvins Halldórssonar, í útvarp-
inu heyröi ég lag.
Steinar Adolfsson, knattspyrnumaður Akraness:
Aðdáendur ÍA og KR eru þeir bestu
DV, Akranesi:
„Ég átti alveg eins von á því að
verða kosinn knattspymumaður
Akraness," sagði Steinar Adolfsson,
nýkjörinn knattspymumaður Akra-
ness. Steinar var að spila alveg gríð-
arlega vel í sumar og það varð til
þess að hann var valinn í landslið
íslands. Bróðir Steinars, Ólafur Ad-
olfsson, hefur einnig leikið með
honum í vöminni undanfarin ár en
kveður nú félagana og heldur til
Sauðárkróks þar sem hann mun
starfa sem lyfjafræðingur við apó-
tekið þar og þjálfa lið Tindastóls.
Áður en Steinar kom til liðs við
Skagamenn lék hann með KR. Hann
segir að það sé ekki mikill munur á
áhangendum beggja liða, bæði þessi
félög eigi mjög góða aðdáendur og
að það sé ekki hallað á neinn þegar
hann segi að aðdáendur ÍA og KR
séu þeir bestu á landinu.
Aðspurður um hvort Steinari
fyndist hann hafa verið í betri æf-
ingu í sumar en í fyrra sagði hann
að hann hefði verið að stíga upp úr
meiðslum í fyrra og vissi það að
hann myndi ekki eiga neitt sérstakt
ár en svo æfði hann vel í vetur og
var staðráðinn í að eiga gott tímabil
í sumar og sleppa við meiðsl. „Það
var mjög ánægjulegt að vera valinn i
landsliðið, ég lék síðast með landslið-
inu árið 1991 þannig að þetta var orð-
inn löng fjarvera og ég var ánægður
yfir því að komast þangað aftur."
Steinar endur-
nýjaði samning
sinn við Skaga-
menn til ársins
1999 og ástæðum-
ar fyrir þvl em
þær að fjölskyld-
unni líður vel á
Akranesi. „Hér
er mjög vel búið
að knattspyrnu-
mönnum, besta
aðstaða á landinu
og auk þess er
hér allt til alls til
að ná góðum ár-
angri í fótbolta og
þetta varð til þess
að ég framlengdi
samning minn
við Akumesinga.
Ég er á fjórða
ári í lögfræði og
það gengur nokk-
uð vel að sameina
námið og knatt-
spyrnuna en ég
viðurkenni að vorin em svolítið erf-
ið því að þá er próftömin fram á
sumar og þá eram við einnig famir
að spila. Það voru mikil vonbrigði
að ná því ekki að vinna íslands-
meistaratitilinn því við ætluðum
svo sannarlega að vinna hann en
það þýðir það bara að við eram
staðráðnir í að vinna hann að ári.
Ég held að það sé erfitt að segja til
um það, svona til að byrja með,
hver áhrif útrás
íslenskra knatt-
spyrnumanna á
erlenda grund
hefur á íslensku
knattspymuna.
Ég vona að þetta
verði til þess að
aðstaðan á Is-
landi verði bætt,
vegna þess að
það er það skref
sem við verðum
að taka til að ein-
hverjar framfarir
verði héma á ís-
landi.
Það verður mikil
eftirsjá að Óla
bróður í báðum
hollum en við
verðum bara að
mæta því með
nýjum mönnum
sem fylla skarð-
ið, hvort sem það
verða heima-
menn eða aðrir. Við eram með góða
heimamenn sem geta fyllt þetta
skarð,“ sagði Steinar. Aðaláhug-
amál hans fyrir utan knattspymuna
og lögfræðinámið er tíminn með
fjölskyldunni.
Eiginkona Steinars er Hafran Jó-
hannesdóttir og eiga þau tvö börn.
Alexöndra Berg, 6 ára, og Stefaníu
Berg sem fæddist 6. júní í sumar.
-DVÓ
Steinar Adolfsson.
Maður dagsins
Myndgátan
Návígi
wVS
Myndgátan hér aö ofan iýsir oröasambandi.
DV
Baltasar Kormákur í hlutverki sínu í
Veðmálinu.
Veðmálið
Veðmáliö hefur notiö mikilla
vinsælda frá því það var frumsýnt
í Loftkastalanum um mitt sumar.
Næsta sýning á verkinu verður í
kvöld kl. 20. Veðmálið er bæði
fyndið og spennandi, gerist 1997 og
fjallar um allan skala mannlegra
tilfinninga. Við kynnumst vinun-
um Nick, Leeds, Júlíu og Ron. í
vinahópnum leikm allt í lyndi þar
til tveir þeirra setja upp veðmál
sem hefur ófyrirséðar afleiðingar
fyrir þau öll.
Leikhús
Höfundm Veðmálsins er verð-
launahöfundurinn Mark Medoff
sem meðal annars samdi Hvenær
kemmðu aftm rauðhærði riddari?
og Guð gaf mér eyra. Leikarar eru
fjórir, Baltasar Kormákm, Bene-
dikt Erlingsson, Margrét Vilhjálms-
dóttir og Kjartan Guðjónsson. Leik-
stjóri er Magnús Geir Þórðarson.
Tónlistarstjóri er Emilíana Torrini
og nýverið kom út geislaplata með
lögum úr leikritinu.
Bridge
Bandaríkin I (Zia Mahmood og fé-
lagar) unnu 18-12 sigm á Pólverjum
í riðlakeppninni á heimsmeistara-
mótinu í Túnis í síðasta mánuði.
Litlu munaði í þessu spili að Banda-
ríkjamenn hefðu grætt 12 impa 1
leik þjóðanna. Michael Rosenberg
og Zia Mahmood gerðu sérstaklega
vel i þessu spili þegar þeir náðu þvi
að spila þrjú grönd á hendm NS.
Sagnir gengu þannig, austm gjafari
og NS á hættu:
* 876
44 ÁK8763
* KG
* K4
* K10932
44 9
♦ 9764
4 D97
4 DG5
44 D1054
4 82
4 Á1032
Austur Suðm Vestur Norður
Kowal. Zia Romans. Rosenb.
Pass pass 1 ♦ 2 44
24 p/h 34 pass 3 grönd
Útspilið í þessum samningi var
tígull og sagnhafi tók strax sína up-
plögðu 9 slagi. Pólverjanum Cezary
Balicki var hins vegar gert erfitt
fyrir á hinu borðinu.
Austur Suöm Vestm Norður
Martel Zmudz. Stansby Balicki
2 4 pass 3 4 4 »
p/h
Þessi samningur er vonlaus með
spaðaútspili og Chip Martel hóf
reyndar vörnina á því að spila út
spaðatíunni. Balicki sá sína sæng
uppreidda, vissi að hann myndi
missa tvo slagi á spaða, einn á
trompun í litnum og einn á tígul. En
ekki þýddi að gefast upp. Án nokk-
ms hiks ákvað hann að setja litinn
spaða úr blindum á spaðatíu aust-
ms. Stansby drap á ásinn og eftir
nokkra umhugsun var hann sann-
færðm um að norður ætti kónginn
annan í spaða úr því hann setti lít-
ið spil í blindum. Hann lagði því
niður tígulás og spilaði meira tígli.
Pólverjar græddu því 1 impa á spil-
inu í stað þess að tapa 12 impum.
ísak Örn Sigurðsson
4 A4
44 G2
♦ ÁD1053
4 G865