Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 37 w Frá sýningunni í Norræna húsinu sem er farandsýning um Norður- löndin. Á norrænni slóð og líkamsskreytingar í anddyri Noræna hússins hafa verið opnaðar tvær sýningar sem tengjast Norrænu bókasafnsvi- kunni. Önnur nefhist Á norrænni slóð og fjallar hún um Norður- löndin og íbúa þeirra. Um er að ræða samstarfsverkefni sem unn- ið er undir merkjum Nordliv- verkefnisins. Tilgangurinn er að efla almenna þekkingu á nor- rænni sögu og samfélagsgerð. Á norrænni slóð er farandssýning og er ísland síðasti viðkomustað- urinn. Hin sýningin er lítil sýning ffá Annegárdens Konsteentrum í Helsingfors þar sem haldin eru myndlistamámskeið fyrir börn og unglinga og unnið eftir ákveðnu þema á hverju ári. Þemað á þess- ari sýningu er líkaminn og hafa krakkarnir skreytt og litað lík- amann með ýmsum hætti og má sjá árangurinn á spjöldum. Sýningar Olíumálverk í Safnahúsinu Um þessar mundir sýnir Bjami Þór Bjamason, bæjarlistamaður á Akranesi, átján oliumálverk í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgar- nesi. Bjarni hefur haldið sjö einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum. Nýverið var afhjúpað verk hans, Brákin, við Búðarklett í Borgarnesi. Sérkennsla í leikskólum Málþing um sérkennslu í leik- skólum verður haldið á morgun kl. 8.30-14.35. Málþingið er ætlað félög- um í Félagi íslenskra leikskóla- kennara og verður í Rúgbrauðsgerð- inni, Borgartúni 6. Hið íslenska kennarafélag Aðalfundur verður haldinn í dag og á morgun að Grand Hóteli í Reykjavík. Aðalfundinn sitja niutíu fulltrúar víðs vegar af landinu. Með- al gesta er Björn Bjamason mennta- málaráðherra. Ferðamálasamband Suðurlands Framhaldsaðalfundur verður í dag á Hótel Geysi. Kl. 14 verður far- ið í óvissuferð í tilefni fimmtán ára afmælis ferðamálasamtakanna. Um kvöldið verður síðan Uppskeruhátíð. Fyrirlestur Sigmundur Guðbjarnason pró- fessor flytur fyrirlestur í málstofu Líffræðistofnunar kl. 12.20 i dag í stofu G-5 að Grensásvegi 12 sem hann nefnir Leit að liffræðilega virkum efnum í lækningajurtum. Félag eldri borgara í Reykjavík Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag, Ei- ríkur Sigfússon stjómar. Göngu- Hrólfar fara i létta göngu um borg- ina kl. 10 í fyrramálið. Danskennsla kl. 10 í fyrramálið. Samkomur Félag eldri borgara í Kópavogi Félagsvist verður spiluð i Gjá- bakka, Fannborg 8, í kvöld kl. 20.30. Ný lög um háskóla Stúdentaráð Háskóla íslands verður með fund í stofu 101 í Odda í hádeginu í dag. Yfirskrift fundarins er Ný lög um háskóla: Kúvending á islenskri menntastefhu? Tríó Ólafs Stephensens á Jómfrúnni: Djass úr ýmsum áttum í kvöld verður Tríó Ólafs Steph- ensens með tónleika á vegiun Jazz- klúbbsins Múlans. Tríóið er orðin ein af gamalgrónari djasshljóm- sveitum landsins og hefur starfað í ein sex ár. Tríóið hefur gert víðreist á þessu ári og haldið þrisvar til Am- eríku. Þeir félagar spiluðu í Græn- landi, Bandaríkjunum, Argentínu og Chile. Á tónleikunum í kvöld munu þeir félagar Ólafur Stephen- sen, píanó, Tómas R. Einarsson, kontrabassi, og Guðmundur R. Ein- arsson, trommur, leika lög úr ýms- um áttum í útsetningu hljómsveitar- stjórans. Tónleikamir hefjast kl. 21. Styrktartónleikar á Flateyri Forsvarsmenn Vagnsins á Flat- eyri hafa efnt til tónleikaraðar til styrktar Hallbimi Hjartarsyni. Fyrstu tónleikamir voru í gær. í kvöld mun trúbadorinn Halli Melló frá Akranesi leika og annað kvöld Skemmtanir mun hljómsveitin Fjórir á fati leika. Hallbjöm Hjartarson verður á Flat- eyri þessa dagana og er að sjálf- sögðu heiðursgestur á tónleikunum. Tríó Ólafs Stephensens leikur í Jazzklúbbi Múlans í kvöld. -í^ ý' f / 0 V '2+~^ j W Veðríð kl. 6 í morgun Hlýnandi veður Skammt fyrir norðaustan land er hægfara 986 mb. lægð og suðaustur af Hvarfi er nærri kyrrstæð 970 mb. lægð. Vaxandi 983 mb. lægð langt suð- vestur í hafi hreyfist allhratt norðnorð- austur. í dag verður norðaustangola eða kaldi og dálítil él norðvestan til en annars fremur hæg breytileg átt og úr- komulítið. Hiti verður um eða rétt undir frostmarki. Vaxandi austanátt og hlýnandi veður verður sunnanlands síðdegis, allhvasst og dálítil slydda eða rigning í kvöld og nótt. Veðrið í dag Á höfuðborgarsvæðinu verður au- stangola en kaldi siðdegis. Austanst- inningskaldi eða allhvasst og slydda eða rigning í kvöld og nótt. Vægt frost verður fram eftir degi en síðan hægt hlýnandi veður. Sólarlag í Reykjavík: 16.31 Sólarupprás á morgun: 9.59 Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.08 Árdegisflóð á morgun:6.29, stórstreymi Veðriö kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjaö -2 Akurnes alskýjaö 1 Bergsstaóir skýjaó -4 Bolungarvik snjóél 1 Egilsstaðir skýjaö -3 Keflavíkurflugv. skýjaö 0 Kirkjubkl. skýjaó -3 Raufarhöfn snjóél -1 Reykjavík skýjaö -2 Stórhöföi skýjaö 0 Helsinki súld á síö. kls. 7 Kaupmannah. þokumóöa 6 Osló þokumóöa 2 Stokkhólmur skýjað 4 Þórshöfn skúr 5 Faro/Algarve léttskýjaö 15 Amsterdam þokumóöa 5 Barcelona léttskýjaö 7 Chicago sjókoma 2 Dublin rigning á síó. kls. 9 Frankfurt þoka 5 Glasgow rigning 4 Halifax heiðskírt -3 Hamborg þokumóöa 6 Jan Mayen Las Palmas skafrenningur 0 London þoka 0 Lúxemborg þoka 3 Malaga þokumóöa 17 Mallorca Montreal þokumóöa 8 París alskýjaö 6 New York rigning 4 Orlando Nuuk alskýjaó 21 Róm heiöskírt 6 Vín rigning 5 Washington rigning 3 Winnipeg heiðskírt -10 Hálka í Þrengslum Færð á vegum Hálka er á Hellisheiði, í Þrengslum, í Ámes- og Rangárvallasýslu og á Vesturlandi. Þæfingur er í Bröttubrekku. Hálka og hálkublettir em á fjallveg- um á Norður- og Norðausturlandi. Krap og snjór er á Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði og á suð- austurströndinni. Að öðra leyti er greiðfært um landið. María og Óðinn eignast dóttur Litla telpan sem hvílist í fanginu á móður sinni fæddist á fæðingardeild Landspítalans 30. október Barn dagsins síðastliðinn. Hún var við fæðingu 13 merkur að þyngd og mældist 49 sentímetra löng. Foreldr- ar hennar era María Guð- mundsdóttir og Óöinn Þórisson og er hún þeirra fyrsta bam. Kim Bodnia leikur sölumanninn Frank. Sölumaðurinn Háskólabió sýnir um þessar mundir dönsku kvikmyndina Pusher. Aðalpersónan, Frank, er eiturlyfjasölumaður í góðu gengi þar til hann gerir viðskipti sem hann stendur ekki undir og er tekinn af flknó. Hann losar sig við efnið áður - hendir því í stöðuvatn - og sleppur vegna skorts á sönnunargögnum. Þá fyrst hefjast vandræðin því Frank skuldar seljandanum fúlgu (sem er ósniðugt þegar svona maður á í hlut). Síðan fylgjum við Frank á ferð hans um undirheima Kaupmanna- hafnar í leit að fjármögnurum. Kvikmyndir Pusher er dönsk nálgun á eit- urlyf og ófbeldi og er skilgetið af-, f kvæmi síns tíma, tíma sem ein- kennist af Tarantino og Train- spotting. Meðal Dana gerði Pus- her heilmikla lukku og umtal og þótti vel heppnuð. Eins og í myndum af þessu tagi spilar músíkin stóra rullu. Hér er það einn helsti framúrstefnupoppari Dana, Peter Peter, sem sér um tónlistina. Nýjar myndir: Háskólabíó: The Peacemaker Laugarásbíó: Head above Water Kringlubíó: Air Force One Saga-bíó: Conspiracy Theory Bíóhöllin: Pabbadagur Bíóborgin: Þrettándakvöld Regnboginn: Með fullri reisn Stjörnubíó: Touch Krossgátan Lárétt: 1 boli, 8 þráður, 9 hlust, 10 kjökur, 11 gangur, 12 risa, 14 belti, 15 nirfill, 17 mani, 18 þræll, 19 óhreina. Lóðrétt: 1 digurt, 2 kvendýr, 3 afl, 4 óframfæmir, 5 þörfu, 6 fugl, 7 þætt- ina, 13 ilma, 14 reykja, 16 geisla- baug, 17 þröng. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 afseíja, 7 kjör, 8 ess, 10 rakið, 11 KA, 12 ask, 14 ljúf, 16 njól- ar, 18 óra, 20 sal, 21 snatt, 22 ok. Lóðrétt: 1 Akranes, 2 fjas, 3 sök, 4 eriil, 5 geðjast, 6 asa, 9 skúra, 13, kóra, 15 fólk, 17 Jón, 19 at. Gengið Almennt gengi LÍ nr. kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollaenni Dollar 71,090 71,450 71,190 Pund 120,360 120,970 119,320 Kan. dollar 50,440 50,750 50,390 Dönsk kr. 10,7780 10,8360 10,8160 Norsk kr 10,0340 10,0890 10,1040 Sænsk kr. 9,4300 9,4820 9,4910 Fi. mark 13,6200 13,7010 13,7340 Fra. franki 12,2460 12,3160 12,2900 Belg. franki 1,9887 2,0007 1,9972 Sviss. franki 50,5500 50,8300 50,4700 Holl. gyllini 36,3900 36,6000 36,5400 Þýskt mark 41,0300 41,2400 41,1800 ít. líra 0,041920 0,042180 0,041920 Aust. sch. 5,8310 5,8670 5,8520 Port. escudo 0,4023 0,4048 0,4041 Spá. peseti 0,4864 0,4894 0,4875 Jap. yen 0,564800 0,568200 0,592600 írskt pund 107,110 107,780 107,050 SDR 96,750000 97,330000 98,460000 ECU 81,2000 81,6900 81,1200 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 ---------------------------------------c

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.