Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Page 28
.
Fjcrijaldur
i. vinningur
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
ijyrír kLSt):Sí
ujjurda’j
Helgarblað DV:
Dansará
Vegas
I helgarblaði DV á morgun er birt
ítarlegt viðtal við Lenu, íslenska
nektardansmær sem hefur í tæpt ár
dansað á skemmtistaðnum Vegas.
Hún ræðir opinskátt um starfið, viö-
brögð fjölskyldu og vina og fram-
komu íslendinga í garð hennar. Seg-
ir tíma til kominn að umræða um
fnektardans verði á jákvæðu nót-
unum.
Rætt er við Esra S. Pétursson,
geðlækni og sálkönnuð, sem i nýrri
bók Ingólfs Margeirsson talar hisp-
urslaust um lif sitt. Kafli er birtur
úr berskuminningabók Guðbergs
Bergssonar, talað við norsk-íslensk-
an stjómmálamann í Noregi, sam-
einingarmál á Austfjörðum em
krufm til mergjar í fréttaljósi sem
og nýtt hneykslismál innan Kenn-
edy- fjölskyldunnar. -bjb/sv
Björk og Kate
Bush saman
á plötu?
DV, Akranesi:
Svo getur farið að stórstjaman
Björk Guðmundsdóttir og stórsöng-
konan Kate Bush gefl út plötu sam-
an en Kate er sú söngkona sem
Björk hefur að nokkm leyti tekið
sér til fyrirmyndar og er mikill að-
dáandi hennar.
Kate Bush og Björk hafa verið
miklar vinkonur síðan þær hittust
fyrst árið 1989 og verið í stöðugu
sambandi. Þær hafa rætt um að gefa
út plötu saman. Kate Bush hefur ný-
lokið upptökum á nýju lagi með
Goldie en Goldie er fyrram sambýl-
ismaður Bjarkar. -DVÓ
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 E5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FOSTUDAGUR 14. NOVEMBER 1997
VERÐÖR BLONDAL
ÞÁ KÁPAN ÚR
KLÆÐINU?
Forstöðukona elliheimilis á ísafirði hætti eftir fund með bæjarstjóra:
Borin sokum
u m fjar dratt
- pólitískar ofsóknir, segir forstöðukonan í samtali við DV
Forstöðumaður Elliheimilisins
Hlífar á ísafirði hefúr nýlega hætt
störfum í kjölfar þess að „óút-
skýrður mismunur" kom fram á
fjárreiðum verslunar elliheimilis-
ins. Hér er um nokkur hundruð
þúsund krónur að ræða, sam-
kvæmt upplýsingum DV. „Meðferð
fjármuna" er sögð ástæða þess að
forstöðumaöurinn er hættur.
„Hún hefur sagt upp starfinu. Ég
get bara sagt að við erum að fara
yfir ýmis mál þessu viðvíkjandi,"
sagði Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri í samtali við DV í morgun.
Forstöðumaður elliheimilisins
er sá sem er prókúruhafi elliheim-
ilisins. Við skoðun á fiárreiðum
þess kom fram mismunur sem
bæjaryfirvöld kröfðu forstöðu-
manninn skýringar á. Konan
ákvað síðan að hætta í kjölfar
þess að hún átti fund með bæjar-
stjóra ísafiarðar. Þar gat hún,
samkvæmt upplýsingum DV, ekki
gefið viðhlítandi skýringar á mis-
munmum.
Konan vísaði því algerlega á
bug í samtali við DV i morgun að
um neins konar misferli væri að
ræða heldur ætti málið sér póli-
tískar rætur, um væri einfaldlega
að ræða pólitískar ofsóknir gegn
sér. Mál hennar væri í raun svip-
aðs eðlis og mál skólastjórans á
Flateyri nýlega.
Mikil ólga er í ísafiarðarbæ
vegna þessa máls og telja stuðn-
ingsmenn forstöðumannsins, eins
og hún sjálf, að málið eigi sér póli-
tískar rætur og sé að rekja til þess
að sveitarstjómarkosningar nálg-
ast nú óðum. Umræddur fyrram
forstöðumaður elliheimilisins
Hlifar hefur starfað í Alþýðu-
flokknum og er m.a. formaður
fræðsluráðs Ísafjarðarbæjar.
Konan sagði við DV að hún
hefði síðan í júnímánuði verið að
hugsa ráð sitt en ákveðið fyrir
nokkra að hætta störfum um
stundarsakir að minnsta kosti í
því skyni að fá nafli sitt hreinsað.
Hún kveðst hafa fengið sér lög-
mann í málið og tíðinda sé að
vænta á næstunni.
„Þetta er ekki pólitískt mál,“
sagði Kristján Júlíusson, bæjar-
stjóri ísafiarðar, aðspurður um
þetta atriði í morgun. -Ótt/SÁ
Krefjumst
leiðréttingar
segir varaforseti ASÍ
Halldór Blöndal samgönguráðherra aðstoðar Svein Björnsson, fulltrúa Landssambands aldraðra, eftir fund þeirra
um gjaldskrárbreytingar Pósts og síma. DV-mynd Pjetur
„Það er til þess ætlast að Póstur
og sími hf. bregðist við mótmælum
okkar og leiðrétti gjaldskrá sína,
eða sýni okkur fram á forsendur
hækkunarinnar með því að upplýsa
okkur um raunkostnað símtala,"
sagði Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
varaforseti Alþýðusambands ís-
lands og formaður Landssambands
íslenskra verslunarmanna, eftir
fúnd ASÍ með samgönguráðherra í
gær. „Ég er alveg tilbúin að fallast á
rök séu þau lögð fram og sýni áð
hækkun sé réttlætanleg."
Ingibjörg sagði að ráðherra og
stjóm P&S yrðu að svara mótmælum
þeirrar breiðfylkingar sem stóð að
ályktun gegn hækkun símkostnaðar.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra hélt fundi í gær með BSRB,
ASf, Neytendasamtökunum, Ör-
yrkjabandalaginu, Landssambandi
aldraðra, Netverjum og Félagi síma-
manna um gjaldskrárhækkanir
Pósts og síma hf. Þessi samtök
mótmæltu hækkunum P&S fyrr í
þessari viku. -Sól.
Veðrið á morgun:
Rigning
viða um
land
Á morgun verður suðaustan-
og sunnankaldi eða slyddukaldi
og allviða hvasst vestan til.
Rigning víða um land en þó
slydda norðvestan til. Hlýnandi
veður.
Veörið í dag er á bls. 37.