Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997 njenmng
Sorgin djúp
og blá og ástin
Kona að nálgast fertugt fær ban-
vænan sjúkdóm. Þegar hún sér hvert
stefhir yfírgefur
hún elskhuga sinn
og flýr af landi brott
til að heyja dauða-
stríðið í einrúmi.
Bókin er hugrenn-
ingar hennar þenn-
an lokaspöl, fyrstu
persónu Msögn þar
sem farið er fram og
aftur í tima og les-
andi raðar smátt og
smátt saman brot-
um úr stormasömu
lifi hennar.
Ástin er hér leið-
arstef en tengist
mjög hugleiðingum
um kynhlutverk og
sagan miðlar ör-
væntingunni sem
því er samfara að
valda því ekki, að
uppfylla ekki kröfúr
samfélagsins í því
efni. Þessi kona hef-
ur hvorki staðið sig sem meyja né
móðir. Vegna sjúkdómsins er hún nú
úr leik sem kynferðisvera. í lífi henn-
ar eru tveir andstæðir pólar, móðir
hennar, sem var fordæmd fyrir losta-
fullt lífemi, og amman, sem hún ólst
upp hjá og var strangtrúuð og siða-
vönd og vopnuð þunglamalegum þjóð-
sagnaarfinum.
Konan heitir Diljá,
skírð í höfuðið á per-
sónu í Vefaranum
mikla frá Kasmír eft-
ir Halldór Laxness.
Sagan öðlast sér-
staka merkingarvídd
með vísunum til
þeirrar bókar.
Því er ekki að
neita að innri ein-
ræðan verður nokk-
uð þrúgandi þegar
líður á söguna. Þegar
Diljá skriftar undir
lokin fyrir grísk-or-
þódox-presti og fær
syndaaflausn er ekki
laust við að lesanda
flnnist hann vera í
svipuðum sporum og
klerkur og hann fer
að þrá aðrar raddir.
Engu að síður er
bókin listavel skrif-
uö. Höfundur hefúr
gott vald á hinum brotakennda frá-
sagnarmáta, stíliinn er fjölskrúðugur,
bæði kraftmikill, ástríðuþrunginn og
ljóðrænn og lætur engan ósnortinn.
Friðrika Benónýs:
IMema ástin. Skáldsaga
Fróði 1997
Bókmenntir
Ámi Óskarsson
Nýtt efni
frá framsæknu deildinni
Hilmar Jensson gitarleikari, Ósk-
ar Guðjónsson tenór- og sópransax-
ófónisti, Eyþór Gunnarsson píanisti
og Matthias Hemstock trommuleik-
ari voru á Jómfrúnni á föstudags-
kvöldið og fluttu frumsamin lög eft-
ir þá Hilmar og Ósk-
ar. Hilmar og Matthí-
as hafa iðulega boðið
áheyrendum upp á ný-
stárlega hluti, og þeir
leika með Óskari á
nýrri plötu hans
ásamt Skúla Sverris-
syni bassaleikara. Eyþór hefur
meira gert af því að leika hefð-
bundnari stíltegundir djassins, þótt
hann hafi komið við á flestum stöð-
um í djasslandi. Reyndar var tón-
listin sem þeir fluttu formfastari en
hefði mátt búast við, til dæmis var
púlsinn iðulega til staðar. Oft var
spunnið yfir endurteknar línur, og
sumir kaflar minntu á það sem
frumherjinn Ornette Coleman lét
frá sér fara á sjöunda áratugnum.
Þeir hófu leikinn á lagi eftir
Hilmar sem hann nefnir „Kerfil“,
langt í flutningi og spannaði stóran
hluta tilfinningalitrófsins. Eitt stutt
lag eftir Óskar fylgdi með fram að
hléi, „Insambú“, glettið lag í 7/8, og
Óskar sagði nafnið samsett úr orð-
unum Indónesía, samba og Búlgar-
ia, sem gefúr hugmynd
um uppsprettur þessa
litla lags. Eftir stutt hlé
fluttu þeir svo fjögur
lög til viðbótar, þrjú
eftir Hilmar og eitt frá
Óskari.
Ef miðað er við plötu
Hilmars, Dofinn, þá var tónlist hans
nú ekki eins ágeng og meira var af
hljómum og hryn en á plötunni.
Hinn frjálsi spuni var þó í fyrirrúmi
og fannst mér eftirtektarvert hvað
flutningur allur var vel slípaður,
t.d. voru kaflaskil öll vel og
áreynslulaust framkvæmd. Ég hef
enn ekki haft tækifæri til að hlusta
á Far, nýkomna plötu Óskars, en á
von á því að tónlist hans þar sé
áþekk þeirri ágætu tónlist sem gest-
ir Jómfrúrinnar fengu að hlýða á
þetta kvöld.
Djass
Ársæll Másson
11
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn
eðaltré, í hœsta gœðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
10 ára ábyrgð i* Eldtraust
i* 10 stærðir, 90 - 370 cm i* Þarfekki að vökva
t* Stálfótur fylgir i* íslenskar leiðbeiningar
i* Ekkert barr að ryksuga i* Traustur söluaðili
i* Truflar ekki stofublómin t* Skynsamleg fjárfesting
WtttlÍf•] :'i MIi é.’tf BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
GRUnDIG
ST70700
Sjónvarpsmiðstððin
Umbobsmenn um land allt:
VESIURLAND: Hljómsýn, Atianesi. Kaupfélag Borgfirflinga, Borgarnesi. Blómsturvellir. Heliissandi. Guðni Hallgrimsson. Grundarfirfli.VESTFIBBIR: Bafbúð Jónasar Þórs. Patreksfirði. Póllinn. Isafirði. NORBUHLAND: Kf Steingrimsfjarðar, Hólmavík.
KF V-Húnvetnínga. Hvammstanga. Kf Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabóð. Sauðárkróki. KEA, Oalvik. Bókval, Akureyri. Ljósgjafinn. Akureyri. flryggi. Húsavik. Kf Þingeyinga, Húsavík. Urð, Baufarhöfn. AUSTUHLAND: KF Héraðsbúa. Egilsstöðum.
Verslunin Vik, Neskaupsstað. Kauptún. Vopnafirði. If Vopnfirðinga. Vopnafirði. Kf Héraðsbúa. Seyðisfirði. lumbræflur. Seyðisfirði.Kf Faskrúðsfjarðar. fáskrúðsfirði. KASK. Djúpavogi. KASK, Höfn Hornalirði. SUBURLAND: Hafmagnsverkstæði KR,
Hvnlsvelli. Moslell. Hellu Heimsrækni, Selfossi. KÁ, Selfossi. Bás, Pprlákshpfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. HEYKJANES: Ralborg, Grindavik. Haflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar, Garði. Hafmætli, Halnarfirði.
GÆÐI
• 28" Black Line D myndlampi • Sjálfvirk stöðvaleitun
• 2x15 watta Nicam Stereo magnari • Tvö Scart-tengi
• Textavarp með íslenskum stöfum • RCA tengi framan á tækinu
• Valmyndakerfi • Fjarstýring
fsláttur
Gouda 26% í
kftóapakkningum á tilboði
í næstu verslun
kostaði áður 740 kr.
kostar núna 592 kr.
r
\m sparar 1
■ á kíló
ú úíWvDbllLPwjÚ