Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Side 12
12 FMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997 Spurningin Hver veröa úrslit landsleiks íslands og Júgóslavíu í handknattleik í kvöld? Hjörtur Geirsson barþjónn: Júgóslavar hafa þetta með einu marki. Halldór Valgeirsson málari: Ég spái því að íslendingar vinni leik- inn með litlum mun. Valdemar Tómasson gatnamæl- ingamaður: Júgóslavar vinna leik- inn með 26 mörkum gegn 24. Harpa Ólafsdóttir, nemi í Kvennaskólanum: íslendingar sigra með þriggja marka mun. Sigríður Guömundsdóttir, nemi í Kvennaskólanum: íslendingar vinna leikinn með þremur mörk- um. Eygló Tómasdóttir, nemi í Kvennaskólanum: Ég spái fjögurra marka sigri íslendinga. Lesendur___________ A-flokkarnir á fallanda fæti Hvers vegna ættum við að sameinast um A-flokkana þegar við erum á réttri leið með núverandi stjórnvöldum? spyr bréf- ritari. Ólafur Sigurðsson skrifar: Ég er einn þeirra sem hafa lengi fylgt vinstri flokkunum að málum, kaus raunar Alþýðu- bandalagið framan af og síðar Alþýðuflokkinn. Of lengi var maður slíkt bam að halda, að þessir flokkar báðir, og for- svarsmenn þeirra, væru málsvarar þeirra sem minna mættu sin, þeirra sem ættu undir högg að sækja í launalegu tilliti og félagslegu. Augu manns hefðu auðvitað átt að opnast þegar stóra „krassið“ kom, opnun Evrópu með falli Berlín- armúrsins, og fólki sýnt inn í heim hörmunganna milliliðalaust, að þeir sem allt þetta höfðu varið voru heimskir gasprarar. Gasprararnir voru líka hér á landi. Þeir tilheyrðu A-flokkunum. Þeir eru enn við sama heygarðs- homið hér, að segja fólki, almenn- um kjósendum, að nú sé þörf að stíga næsta skrefíð - sameinast í einn vinstri flokk. Jafnaðarmanna- flokk. Þá verði til sterkt afl sem megi sín einhvers gegn Sjáifstæðis- flokknum, þessum mikla skelfi al- múgans! Þessu trúir enginn lengur. Það er liðin tíð að tala svona til fólks á íslandi. Og alls staðar á Vest- urlöndum. Ég var að hlusta á Bylgjuna milli ki. 17 og 18 sl. mánudag. Þar var rætt við formann Framsóknar- flokksins, Halldór Ásgrímsson. Það átti víst að taka hann á beinið eft- ir flokksfundinn um helgina. - Hvers vegna vildi hann stóriðju á Austurlandi? Gat hann varið stefnu ríkisstjómarinnar? Halldór sagði sem rétt er; það verður að skapa fólki þau skilyrði sem tiltæk em fyrir afkomumöguleika. Era t.d. einhverjir aðrir möguleikar fyrir hendi á undirlendi fjarðanna austanlands en að virkja náttúmöflin sem undirstöðu stór- iðju og þjónustu við hana? Þeir sem em á móti þessu hafa aldrei komið með neitt afgerandi svar. Það sama hefur átt sér stað í flestum þáttum þjóðlifsins hér. Forsvarsmenn A- flokkanna hafa aldrei komið með nein svör eða nýmæli í atvinnu- málum. Þeir hafa fylgt einarðlega eftir því atvinnumynstri sem hinir flokkamir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hafa mótað. Hvers vegna ættum við þá nú að sameinast um A-flokkana? A-flokkamir og tals- menn þeirra era á fallanda fæti, þeir bjóða ekkert nýtt. Hafa engar hugmyndir en gaspra um gósentíð með veiðileyfagjaldi og miðstýr- ingu. Hvort tveggja í ætt við trúboð og tálsýn. Því fyrr sem við íslend- ingar getum hrint hugmyndinni um sameinaða pólitíska félags- hyggju fyrir björg, þeim mun fljót- ar birtir yflr í íslensku þjóðlífi. Við erum á réttri leið með núverandi stjómvöldum en fömm áratugi aft- ur á bak með sameinaða A-flokka í eftirdragi. Fyrsti yfirbyggöi knatt- spyrnuvöllurinn? - hugmynd Sigurðar Einarssonar arkitekts Verður draumurinn um fyrsta knattspymuvöllinn á Islandi að veruleika í Hafnarfirði? - Við út- byggingu hafnarinnar er gífurleg þörf á grjóti til fyllingar. Drög að umhverfismati á frekara grjótnámi era jákvæð. Verði niðurstaðan sú að gerð verði geil inn í Hamranesið þar sem nú þegar er búið að særa landið, er kominn efniviður í yfirbyggðan knattspymuvöll. Hægt verður að ganga að þremur veggjum og til að loka sárinu þarf að byggja fjórða vegginn sem er lokunin að framan og svo þak yfir geilina. Slíkt hús yrði vafalaust mikil vít- amínssprauta fyrir knattspyrnuna í bænum sem og á landinu öllu. Knattspymumenn geta þá æft og spilað í hvaða veðri sem er og hægt verður að skipuleggja knattspymu- mót yfir vetrarmánuðina. Það sem ekki síður er mikilvægt í þessari hugmynd er að áhorfendur geta set- ið inni. Það eru áhorfendur sem að stórum hluta þurfa að standa undir kostnaðinum. - Um byggingu og rekstur slíks húss má hugsa sér að stofna hlutafélag. Tollfrelsi innan ES-ríkjanna - eftir hverju bíðum við? Afnám tolla myndi lækka vöruverðið eins og i ES-löndunum. Hólmsteinn skrifar: Ég sá fréttamynd í sjónvarpi hér nýlega þar sem sagt var frá því að Svíar stvmduðu það að panta sér tó- bak, aðallega sígarettur, frá hinum ES-löndunum og ná því þannig mun ódýrara þar sem tollfrelsi sé innan Evrópusambandsríkjanna. Ef svo er aö algjört tollfrelsi ríki innan ES- ríkjanna þá spyr ég hreinlega: Eftir hverju bíðum við íslendingar eigin- lega? Viljum við kannski ekki fá bílana frá Evrópu tolifrjálsa, heimilistæk- in, fatnaöinn á böm og fullorðna, matvörur o.s.frv.? Ætlum við ís- lendingar að una glaðir með „töfra- brögð“ ríkisins er breyta tollum í vömgjöld eða hvað sem það heitir til þess að komast hjá því að fylgja reglum Evrópska efnahagssvæðis- ins? Og í fullri alvöru: Ætlum við að láta endalaust valta yfir okkur? Við sem borgum hæstu skatta sem um getur þegar allt er saman talið? Hvers vegna má ekki taka upp óbeina skatta hér, þ.e. borga þá með neyslunni? Og afnema tekjuskattinn í leiðinni, þann óvinsæla skatt sem ekki skilar sér til ríkisins hvort eð er. Þurfum við ekki að taka okkur tak sem þjóð og fara að huga að líf- vænlegri kjömm og lífsmáta? Þótt ekki væri nema til þess að bömin okkar flýi ekki land strax og þau ljúka prófum sem em einhvers virði þótt þau séu það ekki hér? Boðskapurinn er rafmagns- hækkun Hildur skrifar: Þá hefur Landsvirkjun birt okkur „boðskapinn". Hún virðist vera að búa í haginn fyrir vænt- anlega erlenda iðjuhölda álvera og stóriöju með lágt rafmagns- verð en íslenskur almenningur fær að greiða það niður. Líkt og landsmenn hafa möglunarlaust gert til þessa. Sem sé: á meðan er- lent álver greiðir innan við 1 krónu fyrir sitt rafmagn þá greiða landsmenn um 8 kr. til heimanota sinna. Er einhver glóra í þessu? Og þótt við séum álitin heimsk af ráðamönnum, líkt og þeir bræður Gísli, Eiríkur og Helgi, þá er augljóst að okkur er ætlað að greiðá þá 200 millj- arða sem sagt er að Landsvirkjun þurfi að taka að láni vegna virkj- ana á næstunni. Og það er ekki beðið boðanna; það er byrjaö að rukka okkur strax! Þingmenn Reykjavíkur brugðust Kristinn Sigurðsson skrifar: Það afrek umhverfisráðherra að leggja störf fjölda manna hjá Landmælingum íslands í rúst hlýtur að vekja upp spumingar. Hvar vom þingmenn Reykjavík- ur? Ekki heyrðist orð frá þeim og vissulega hefði starfsfólk Land- mælinga þegið einhvem stuðn- ing frá þingmönnum Reykjavík- ur. En því miður; hann var ekki sýnilegur á neinn hátt. Skyldi það vera rétt að það kosti 150 milljónir að flytja Landmælingar upp á Akranes? Hvar er forsætis- ráöherra nú? Týndur eins og aðr- ir þingmenn Reykjavíkur? Samband lækn- is við sjúklinga Jón Sigurðsson hringdi: Læknar í Bandarikjunum, sem fara að halda við kvensjúkling sinn, eru tafarlaust sviptir lækn- isleyfi. Ef geðlæknir tekur upp á þessu er hann tafarlaust dæmdur í tugthús um leiö og upp kemst. Hér skrifar læknir einn bók um athæfi sitt af þessu tagi og hælist um! Þetta er fáheyrt og ætti læknirinn frekar að minnkast sín vegna gjörða sinna en að út- hrópa þær. - Þetta er ísland í dag. Allt öðmvísi en önnur sið- menntuð þjóðriki. Dansmærin tvísaga Svala hringdi: Ósköp var að heyra í nekt- ardansmeyjunni íslensku sem var í viðtali í fréttum sl. mánudags- kvöld. Hún sagði allt „feik“ sem hún hefði sagt í DV sl. laugardag. Hvað meinar aumingja stúlkan? Er hún að lýsa sig ómarktæka? Gengur hún fyrir peningum og leggur allt í sölumar, líkama og sál? Maður vorkennir svona per- sónum sem ætla að ganga veg svika og pretta strax á unga aldri. Hvað dettur svona manneskju í hug þegar hún þroskast? Ef hún þá þroskast? íþróttahreyfing- in ekki bind- indishreyfing? Kristrún skrifar: Ég sá yfirlýsingu frá forseta ÍSÍ í DV sl. þriðjudag. Hann segir m.a. að íþróttir og áfengi fari ekki sam- an. Húrra fyrir því! Hann segir líka að íþróttahreyfmgin geti tæp- ast verið í hlutverki siðapostula, banna fullorðnu fólki að neyta áfengis. „Við erum ekki bindindis- hreyfmg,“ segir hann hka. Það er sífellt eins og allir séu að ,jafna sig“ eftir eitthvert hófið. Slapp- leikinn lekur niöur kiimamar og niöur í tær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.