Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Qupperneq 28
36
FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997
Fæstir hafa
• • X /
migio í
saltan sjó
„Núverandi kynslóð, spreng-
lærð úr háskólum, innlendum
sem erlendum, virðir þessi störf
lítils í dag, enda hafa fæstir í
þeim hópi nokkum tímann mig-
ið í saltan sjó.“
Guðmundur Kærnested, fyrr-
um skipstjóri, um þá sem vilja
fiytja Sjómannaskólann, í DV.
Ruglaðir
framsóknarmenn
„Aðild hans að R-listanum
annars vegar og andstaða við
vinstri sameiningu hins vegar
ruglar kjósendur Framsóknar-
flokksins. Það þarf í senn styrk
og leikni til að leika þannig
tveimur skjöldum."
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra, í Degi.
Ummæli
Löggilt gamalmenni
„Ég fór að skrifa bækur þegar
ég var að verða löggilt gcimal-
menni.“
Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrum
menntamálaráðherra, í Degi.
Vandamálin ekki
merkileg
„Þegar maður hefur sent frá
sér bók horfir maður til baka og
þá virðist sálarkvalirnar og
vandamálin ekki hafa verið ýkja
merkileg."
Einar Már Guðmundsson rit-
höfundur, í Degi
Oft er mikill hasar á verðbréfa-
mörkuðum.
Verðbréfa-
markaðir
Verðbréfafyrirtæki og verð-
bréfamarkaðir hafa verið mjög í
fréttum að undanfomu, aðallega
vegna mikilla sviptinga. Verð-
bréfamarkaðir em ekki nýir af
nálinni. Sá sem fýrst var settur á
laggimar var Verðbréfamarkað-
urinn í Amsterdam í Hollandi.
Var það árið 1602. Stærstu verð-
bréfaviðskipti sögunnar áttu sér
stað í Kauphöllinni í New York
þegar 48.788.800 hlutabréf í fyrir-
tækinu Navistar International
Corporation voru seld í einu lagi
á 10 dollara hvert bréf fyrir
487.888.000 dollara þann 10. apríl
1986. Hæsta verð sem sett hefur
verið á eitt hlutabréf em 101.000
svissneskir frankar fyrir bréf í
lyfjafyrirtækinu Hoffmann-La
Roche árið 1976.
Blessuð veröldin
Stærsta fjárfestingar-
fyrirtækið
Merrill, Lynch, Pierce, Fenner
& Smith Inc., sem stofnað var
1914 í New York, er stærsta verð-
bréfafyrirtæki Bandarikjanna.
Var það eitt sinn stærsta sam-
eignarfyrirtæki heims með 124
eigendur áður en skipulagi þess
var breytt 1959. Hjá fyrirtækinu
starfa um 42 þúsund starfsmenn
og það rekur 470 útibú.
Elísabet Sif Haraldsdóttir dansari:
Tók áhaettu sem
hefur skilaö sér
Ung íslensk stúlka, Elísabet Sif
Haraldsdóttir, hefur verið að vekja
athygli í Englandi í keppni í sam-
kvæmisdönsum og hefur hún ásamt
dansfélaga sínum, James Gordon,
verið framarlega í keppni í suður-
ameriskum dönsum og var um síð-
ustu helgi í öðru sæti á sterku móti
í Blackpool í flokki 21 árs og yngri
þar sem þátttakendur voru um
fímmtíu talsins. Hrafnhildur Sif,
sem er aðeins sextán ára, sagði í
stuttu spjalli að keppnin hefði verið
ákaflega spennandi og skemmtileg:
„Þetta er einn besti árangur okkar
hingað til en við erum búin að taka
þátt í keppni allt frá því ég kom til
Englands fyrir níu mánuðum og
hefur árangurinn verið ágætur."
Hranfhildur Sif, sem býr í Kent,
fór út til að dansa og stefnir á fulla
atvinnumennsku: „Ég er búin að
vinna aðeins með dansinum og von-
ast til að komast í skóla eftir ára-
mót. Annars fer tíminn að mestu í
æfingar. Ég æfi á hverjum degi,
bæði í skipulögðum tímum og
einkatimum. Svo æfum við James
einnig ein þegar við komum því
við.“
Dansfélagi Hrafnhildar er bresk-
ur og höfðu þau kynnst áður en
Hrafnhildur fór út: „Það var þjálfari
James sem kom
okkur saman.
Hann kom til ís-
lands í tvö skipti
og ég var í tímum
hjá honum. Ég
hafði að vísu
áður hitt James í
keppnum sem við
höfðum bæði tek-
ið þátt í hvort í
sínu lagi. James
er nítján ára svo
við eigum tvö ár
eftir í flokknum
undir 21 árs.“
Ýmislegt er
fram undan hjá
Hrafnhildi Sif og
dansfélaga henn-
ar: „í janúar er
opna breska mót-
ið sem er mjög
sterkt. Þar er að-
eins einn flokkur
og við stefhum að
því að komast í
undanúrslit, lengra náum við varla.
Flestir keppendurnir eru eldri og
reyndari þannig að við verðum að
bíða í fáein ár áður en við eigum
möguleika í þessu móti.“
Hrafnhildiu' Sif byrjaði að æfa
dans átta ára
gömul: „Ég hyrj-
aði hjá Jóni og
Köru og fékk
strax mikinn
áhuga og hefur
hann haldist. Ég
tók áhættu, sem
ég tel að hafi
borgað sig. Ég
var mjög á báð-
um áttum hvort
ég ætti að fara út
frá fjölskyldu,
vinum og kunn-
ingjum og hætta
hefðbundnu
skólanámi. Ég er
þó ákveðin í að
halda áfram
námi hér í
Englandi, það er
bara ekki alveg
frágengið á
hvern hátt það
verður."
Hrafnhildur er
þó ekki laus við heimþrána: „Ég er
alveg að deyja, mig langar svo heim.
Ég fæ að koma heim í viku um jól-
in, hefði viljað fá lengri tíma en
þjálfarinn vill ekki sleppa mér leng-
ur.“ -HK
Hrafnhildur Sif Haraldsdóttir.
Maður dagsins
Myndgátan
Soðkrókur
Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi.
ísland-
Júgóslavía í
handboltanum
Stórleikur verður í handboltan-
um í kvöld í Laugardalshöll þegar
ísland tekur á móti Júgóslövum í
Evrópukeppni landsliða. Nú er
hvert stig dýrmætt í riðlinum sem
íslendingar leika í og ef íslending-
um tekst að sigra í kvöld eru
íþróttir
miklar líkur á að liðið komist
áfram. Júgóslavar verða samt
ekki auðveld bráð enda talið
sterkasta liðið í riðlinum og því
má búast viö hörkuleik sem getur
endað á hvom veginn sem er.
Bókmennta-
kvöld
í kvöld verður bókmenntakvöld
á Súfistanum. Verður lesið úr fjór-
um nýútkomnum bókum. Einar
Már Guðmundsson les úr skáld-
sögu sinni, Fótspor á himnum.
Ragna Sigurðardóttir les úr skáld-
sögunni Skot, Sigurður A Magn-
ússon les úr sjálfsævisögu sinni,
Með hálfum huga og Guðbergur
Bergsson les úr bókinni Faðir og
móðir og dulmagn bemskunnar,
sem hann kýs að kalla skáldævi-
sögu. Upplesturinn hefst kl. 20.30.
Upplestur
Ritlistarhópur Kópavogs
Upplestm- verður að venju i
Kaffistofu Gerðarsafhs í dag kl. 17.
Nú ætla nokkrir félagar úr ritlist-
arhópnum, þau Eyvindur P. Ei-
ríksson, Geirlaugur Magnússon,
Gylfi Gröndal og Hjörtur Pálsson,
að lesa eigin þýðingar á ljóðum úr
ýmsum áttum.
Bridge
Það er mikilvægt fyrir sagnhafa
að hugsa skýrt í þessu spili til þess
að landa heim 6 hjörtum í þessu
spili. Vestur byrjar á því að vekja á
veikum tveimur í spaða og stuttu
síðar em NS komnir i 6 hjörtu. Út-
spil vesturs er tígulkóngur. Vestur
gjafari og NS á hættu:
f ÁG103
«» K5
-f 972
* K763
* K4
* 64
•f G6543
* DG85
* 7
4f ÁDG10972
-f Á8
* Á92
Vestur Norður Austur suður
2 * * pass pass 4»
pass 4 * pass 6
p/h
Sagnhafi drepur fyrsta slaginn á
ásinn og sér strax að hann á 11
beina tökuslagi. Vestur opnaði á
veikum tveimur spöðum og því
virðist blasa við að vinningurinn
liggi í því að búa til tólfta slaginn á
spaðann. Vestur er líklega með
bæði háspilin og þá er hægt að spila
spaða að blindum. Vestur neyðist til
að stinga á milli, en þá er drepið á
ás, spaðagosa spilað úr blindum og
tígli hent heima. En bíðum við. Út-
spil vesturs var tígulkóngur. Ef
vestur á KD í spaða fer hann varla
að spila út tigulkóng frá kóngnum
öðrum. Ef hann á hins vegar KD í
tígli getur hann varla átt KD í spaða
því þá hefði hann sennilega opnað á
einum spaða en ekki veikum tveim-
ur. Þess vegna er skynsamlegt að
gera ráð fyrir því að austur eigi
annað hvort Kx eða Dx í spaða. Með
það fyrir augum spilar sagnhafi
strax spaða á ás í öðram slag,
trompar spaða heima, tekur ás og
kóng í trompi og þegar báðir fylgja
lit eru 12 slagir í húsi. í þeirri stöðu
er spaðagosa spilað og tígli hent
heima. Spilið er tekið úr nýút-
kominni bók Bretanna David Byrd
og Tony Forrester, Secrets of Expert
Card Play. ísak Öm Sigurðsson
f D98652
4» 83
f KD10
* 104