Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 4
Hér eru orðuhafarnir ásamt forsetanum á Bessastöðum í gær.
DV-mynd S
Tólf fengu fálkaorðuna
- þeirra á meöal Friörik Þór og Ómar Ragnarsson
Björk vill kaupa
skoska eyju
DV, Akranesi:
Breskt blaö greindi frá þvi fyrir
stuttu aö Björk Guömundsdóttir
heföi gjörsamlega fallið fyrir hinni
ægifógru eyju, Eilean Righ, sem
liggur fyrir utan strendur Skot-
lands. Hún er tO sölu og kostar litl-
ar 96 milljónir króna. Eyjan er í
eigu Waldegraves jarls, bróöur fyrr-
um ráöherra bresku ríkisstjómar-
innar, Williams Waldegraves. Björk
hefur sagt aö hún sé hrifm af fógra
landslagi Skotlands og fregnir
herma að hún hafi bragðið sér
þangaö á dögunum til aö skoða
eyjuna. -DVÓ
Forseti íslands, herta Ólafur
Ragnar Grimsson, sæmdi á nýárs-
dag 12 íslendinga heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu, ridd-
arakrossinum.
Þetta eru Anna Einarsdóttir
verslunarstjóri, fyrir kynningu á
íslenskum bókum erlendis, dr.
Anna Soffía Hauksdóttir prófessor,
fyrir vísindastörf á sviði raf-
magnsverkfræði, Friðrik Þór Frið-
riksson kvikmyndaleikstjóri, fyrir
kvikmyndagerð, dr. Halldór Bald-
ursson læknir, fyrir læknisstörf í
friðargæslusveitum í fyrrum Júgó-
slavíu, Halldór Þórðarson skip-
stjóri, fyrir sjósókn, Haraldur Sig-
urösson, fyrrv. bankafulltrúi, fyrir
störf að félags- og menningarmál-
um, Helga Kress prófessor, fyrir
fræðistörf á sviði íslenskra bók-
mennta, dr. Ingvar Birgir Frið-
leifsson, forstöðumaður jarðhita-
skóla Háskóla Sameinuöu þjóð-
anna, fyrir fræðslustörf í þágu
þróunarlanda, Jón Bogason rann-
sóknamaður, fyrir rannsóknir á
lífríki hafsins, Ómar Ragnarsson
fréttamaður, fyrir þáttagerð í sjón-
varpi um landið og náttúru þess,
Sigríður Guðmundsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, fyrir hjúkrunar-
og hjálparstörf í þróunarlöndun-
um, og Vigdis Grímsdóttir rithöf-
undur, fyrir ritstörf. -ST
Sterk aðvörunarorð í nýársávarpi forseta íslands:
Loftslagsbreyting-
ar ógna íslandi
- hvatti til þjóðarátaks gegn fikniefnum
Islendingar eiga að vera í farar-
broddi þeirra þjóða sem krefjast rót-
tækustu aðgeröa gegn loftslags-
breytingum af manna völdum. Þetta
sagði forseti Islands í ávarpi sinu til
þjóðarinnar í gær, nýársdag. Hann
hvatti jafhframt til þjóðarvakningar
gegn fikniefnum sem hann taldi
geta leitt til upplausnar samfélags-
gerðarinnar yrði ekki gripið til rót-
tækra gagnaðgerða.
„Nýlega voru birtar niðurstöður
rannsókna sem sýna hve ört eiturly-
fjaneysla unglinga hefur vaxið á síð-
ari árum. Um þriðjungur 17 ára
ungmenna í höfuðborginni hefur
prófað hass og helmingur þeirra
sem það gerðu 14 ára hafði þremur
árum síðar neytt amfetamíns,"
sagði forseti. Hann kvaö hættu á því
að sjálf samfélagsgerðin liðaðist í
sundur og hvatti til þjóðarátaks um
björgun þeirra þúsunda ungmenna
sem væru í hættu.
Forsetinn benti á að virtir fræði-
menn hefðu tekið ísland sem sér-
stakt dæmi um hrikalegar aíleið-
ingar loftslagsbreytinga af völdum
gróðurhúsaáhrifanna. „Lega ís-
lands og lykilhlutverk
Golfstraumsins á okkar slóðum
eru á þann veg að áhrif loftslags-
breytinganna myndu koma hvað
harðast niður á okkur íslendingum
og gera landið nánast óbyggilegt
fýrir bamaböm okkar og afkom-
endur þeirra," sagði forseti.
Hann kvað vísindamenn ekki
útiloka að þrátt fyrir hlýnun ann-
ars staðar myndu breytingar á
í ávarpi sínu í gær, nýársdag, færði Ólafur Ragnar Grímsson þjóðinni þakkir fyrir kveðjur, hlýjar óskir og fyrirbænir
vegna veikinda frú Guðrúnar Katrínar. Myndin var tekin á Bessastöðum í gær þegar forsetahjónin tóku á móti Davíð
Oddssyni forsætisráðherra. DV-mynd S
straumakerfi heimshafanna leiða
til þess að jökulhella legðist yfir ís-
land og „fiskistofnamir, sem hald-
ið hafa lífi i þjóðinni um aldir,
hverfa úr hafinu umhverfis".
,Við íslendingar," sagði forseti,
„ætfum því að vera í fararbroddi
þeirra sem á alþjóðavettvangi
krefjast þess að tafarlaust verði
gripið til róttækustu gagnaðgerða
til að forða heiminum frá slíkri
loftslagsbreytingu. “
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1998
Fréttir
sandkorn
Þorsteinn æfur
Skipulagsslysin
Reykjavíkurlistinn nýtur lít-
illa vinsælda hjá íbúasamtök-
um Skólavörðuholts sem hafa
eldað við hann
grátt silfur út
af ýmsum stór-
byggingum í
jaðri holtsins.
Formaður
þeirra er
Lára Halla
Maack og
meðal
skæruliða
samtak-
anna er Magnús
Skarphéðinsson músavinur.
Fyrir jólin útbjuggu samtökin
jólakort með myndum af öllum
helstu skipulagsmistökum sem
vörðuðu samtökin og sendu
borgarfulltrúum listans með
þakklæti fyrir liðin ár með
frómri ósk um að þau yrðu
ekki endurkjörin...
Verðlaunaspá
f jólabókaflóðinu slógust þeir
Davíð Oddsson og Einar Már
Guðmundsson um titil met-
söluhöfundar
þó báðir
þyrftu raunar
að lúta í gras
fyrir köku-
bók Hag-
kaups. Bók
Einars, Fót-
spor á
himnum,
seldist í
næstum
þúsund eintökum sem er sjald-
gæft í tilviki fagurbókmennta.
Nú eru margir famir að spá í
hver hljóti íslensku bók-
menntaverðlaunin að þessu
sinni og flestir spá því að það
verði Einar...
Stuðningsmenn Þorsteins
Pálssonar eru ekki glaðir yfir
því að hann sé meðal kandídata
í fyrirhuguðum
tskiptum á
áöherraliði
ijálfstæðis-
lokksins. Þeir
segja að Þor-
steinn hafi
getað hugsað
sér til hreyf-
ings, en vilj-
að ráða
tímasetn-
ingum sjálfur.
Hann sé því æfur yfir yfirlýs-
ingu Davíðs Oddssonar. Hún
hafi leitt til þess að hann sé
nauöbeygður til að sitja sem
fastast, því ella liti máliö út
eins og Þorsteinn væri hreinn
leiksoppur í höndum Davíðs.
Forsætisráðherra er hins vegar
ekki liklegur til að beygja sig
og framvindan verður því fróð-
leg...
Nýr rithöfundur
Ólíklegustu menn máta sig
nú við rithöfundarfótin. Einn
þeirra er enginn annar en sjálf-
ur þjóðhags-
stofustjóri,
Þórður Frið-
jónsson. En
ágæt smásaga
eftir hann
birtist nýlega
i ritinu Dala-
mót sem er
gefið út af
Dalamönn-
um. Þórður
á ekki langt að
sækja listamannseðliö því faðir
hans, Friðjón Þórðarson, fyrr-
verandi sýslumaður og dóms-
málaráðherra, var í MA-kvar-
tettinum og þótti með liðtæk-
ustu hagyrðingum meðan hann
sat á þingi. Bróðir Þórðar er
svo Helgi Friðjónsson sem er
þekktur myndlistarmaður...