Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 12
12 FÖSTUDAGUR. 2 JANÚAR 1998 Spurningin Strengirðu áramótaheit? Anna Kristín Jóhannesdóttir kennari: Já, en hvað það verður þessi áramótin veit ég ekki. Soffía Birgisdóttir bókmennta- fræðingur: Já, en það er algjört einkamál. Guðrún Birna Finnsdóttir og Sif Snorradóttir: Já, ég ætla að sinna fjölskyldu minni vel og mikið. Selma Björk Grétarsdóttir og Lúðvík Þór, 6 ára: Já, ég ætla loks- ins að láta verða af því að hætta að reykja. Arna Ólafsdóttir, blómaskreyt- ingameistari í Noregi: Já, ég ætla að borða mikiö af hollum mat á nýja árinu. Helga Sigurðardóttir skrifstofu- maður: Já, ég ætla að gera átak í líkamsræktinni. Lesendur________________ Enn um flóð- lýsingu Ekki eru allir á einu máli um hvernig tekist hefur til meö lýsinguna á Hall- grímsklrkju. Hermann Þorsteinson skrifar: Ábendingu minni hér 8. þ.m. var svarað hér í DV 11. þ.m. og upplýst að áætlun hefði verið gerð um flóð- lýsingu allrar kirkjunnar sem gert væri ráð fyrir að tæki mörg ár vegna mikils kostnaðar. Sá lýsing- arbúnaður sem þegar hefði verið komið fyrir alveg upp við veggi tumsins að framan væri aðeins hluti 1. áfanga upplýsingar tumsins að framan. í svarinu segir m.a.: ...þá er eftir að koma fyrir lýsingu efst framan á turni, sem lýsir á móti kösturum á jöröu, og við það dregur úr misfellum á steypumótum..." Eins og við blasir nú hefur í ótíma verið kveikt á fyrstu byrjun 1. hluta lýsingarbúnaðar tumsins að framan. Þá afskræmist ásýnd kirkjunnar og ekki bara vegna mis- fellna á steypumótum heldur einnig vegna skuggans mikla og háa af útistandandi ramma úr steypu um- hverfis bogagluggana háu á fram- hlið tumsins. Ekki er nóg að viðbót- arbúnaður efst framan á tuminum dragi úr þessum misfellum. Ljósin mega ekki framkalla þær. Þau eiga að fegra og leiða í ljós einstakan byggingarstíl (arkitektúr) kirkjunn- ar í vetrarmyrkrinu. Staðsetning kastaranna á jörðu, þétt upp viö vegg framhliðar tumsins, vekur undmn miðað við staðsetningu ljós- kastara við aðrar kirkjur hér í Reykjavík og t.d. í Skálholti og við- ar. Varðandi upplýsingu svæðisins (torgsins) framan við kirkjuna hafa rafteikningarmenn leyst þaö mál um árabil meö kösturum á háum ljósastaurum milli kirkjunnar og Iðnskólans. Tilmælin em aö slökkt verði á þessari fyrstu byrjun flóðlýsingar kirkjunnar - sem þjónar ekki rétt- um tilgangi - en áhersla lögð á góð- an ljósabúnað inni í tumspírunni, þaðan sem ljósgeislar streyma með áhrifamiklum og táknrænum hætti út í vetrarmyrkrið ianga hér á norð- urslóöum. Yfir gnæfi svo hinn upp- lýsti, hvíti kross, sem minnir okkur á orð sr. Hallgríms: „Upp, upp mín sál...“ Þökk fyrir jákvæð viðbrögð viö þessum tilmælum eins af vinum kirkjunnar. Enginn gerir neitt Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif- ar: Ég skrifaöi stutta grein nýlega uni hina þöglu kúgun Ríkisútvarps- ins. Það var ekki að ástæðulausu. Það er óþolandi að skylduáskrift að fjölmiðli skuli vera til staðar þegar fast er liðið að aldamótum 2000. Svo sannleikurinn komi í ljós skal ég segja söguna eins og hún er. Ég er margbúinn að skrifa þing- mönnum, Ríkisútvarpinu og fleiri en enginn gerir neitt. Það er jú auk- inn peningaausturinn til stofhunar- innar. Menntamálaráðherra sagði, ekki alls fyrir löngu, að það kostaði rikið hátt í tvo milljarða króna að reka Ríkisútvarpiö. Samt fær það yfir tvo milljarða í nauðungaskatt sem tekinn er af almenningi með skylduáskriftum. Því miður er það svo aö þaö er útilokaö fyrir marga aö kaupa áskrift að öðrum stöðvum því þeir hafa ekki efni á því eftir að hafa innt skylduáskriftargjaldið af hendi. Ég veit um marga sem vildu nýta sér ýmislegt bitastætt sem er að fmna á hinum stöðvunum. En fólki eru allar bjargir bannaðar. Nei, fijálst útvarp og frelsi til að velja verður að lögfesta nú á stund- inni. Fjárkúgun hefur hingað til verið talin tukthússök en í mínum huga er þetta ekkert annað en fjár- kúgun. Þeir sem virða sannleikann verða veikir af því að hugsa til þess að þetta geti gerst á íslandi undir núverandi rikisstjóm. Því segi ég: Léttið þessu greiðsluoki af þjóðinni og leyfið henni að velja sjáifri. Úti er ævintýri lágu fargjaldanna Hinrik skrifar: Nú er hann búinn, draumurinn um lágu flugfargjöldin. Flugfélögin hafa boðað að nú skuli fargjöldin hækkuð og samvinna muni veröa tekin upp á milli þeirra. Þau ætla sem sé bæði að bjóða viðskiptavin- um sínum upp í vildarpunktapolk- ann, sem Flugleiðir hafa stigiö ein- ar fram til þessa. En nú semur ís- landsflug sig inn í vildarklúbb Flug- leiða og fer brátt að útbýta punktum til þeirra sem viija fljúga með félag- inu. !LÍ©[1®Í1[d)^\ þjónusta allan sólarhringii 5000 kl. 14 og 16 íslandsflug tekur upp vildarpunkta og hækkar far- gjöldln. Allt er þetta gott og blessað, því punktamir eiga að opna eigendum sínum ýmsa möguleika. Og svo er sagt að þeir séu eins konar jarðarber ofan á tjómabolluna og kosti ekki neitt. En þar stendur hnífurinn í kúnni. Þessir punktar kosta auðvit- að sitt og sá kostnaður fer beint út í verölagið. Við skul- um taka sem dæmi þau fyrirtæki sem veita korthöfum Visa svo og svo mikinn afslátt. Hvar eiga þau fyrir- tæki að taka þá fjármuni? Þeir koma ekki fljúg- andi af himnum ofan eins og flugvél- ar Flugleiða og ís- landsflugs. Þeir eru teknir úr veltunni. Við uppgjör þarf svo að rétta dæmið af og það er gert - með hækkun á vöruveröi. Þetta sama gildir um punktana. Þeir kosta sitt. Og nú þarf að hækka flugfargjöldin til þess að hægt sé að bjóða farþegum upp á þessa sjálf- sögðu punktaþjónustu, sem nýtist fólki afar misjafnlega. Mætti ég biðja um lægri fargjöld án ferða- punkta. I>V Verðbréfa- salarnir ijúga Jóhannes skrifar: Ættu yfirvöld ekki að taka á auglýsingaherferð verðbréfa- sölufyrirtækjanna sem nú aug- lýsa allt hvað af tekur að fólk skuli kaupa hlutabréf og ávaxta fé sitt um allt að 40% á ári? Sannleikurinn er nefhlega allt annar. Ávöxtunarmöguleikamir em alls ekki svona glæsilegir því að á síðasta ári hækkaði gengi hlutabréfa í einum stærsta verðbréfasjóðnum minna en sem svaraði verðbólgunni þannig að fé fjárfestanna hefði verið betur geymt á bankabók. Auglýsingar verðbréfasalanna nú fyrir ára- mótin era því ómerkilegt skrum sem á sér enga stoð og þeir ættu að mínu mati að sæta ábyrgð fyrir lygar. Bíræfnir þjófar Ingi hringdi: Aðfaranótt 20. des. var stolið undan bílnum mínum dekkjum og álfelgum þar sem hann stóð við Skógarás í Reykjavík. Bíllinn er af gerðinni Mitsubishi Lancer 1996. Það ótrúlega er að bíllinn stóð á upplýstu stæði og var sjá- anlegur úr eldhúsglugganum hjá okkur. Það virðist hins vegar ekki hindra þjófa í verkum af þessu tagi. En fólk ætti að at- huga að það er falskt öryggi þótt það sjái til bílsins síns. Þjófar virðast þora aö athafha sig þrátt fyrir það. Engar tryggingar bæta tjón af þessu tagi svo sá sem fyrir því veröur situr eftir með sárt enn- ið, nema hið ótrúlega gerist að hann fái hina stolnu hluti afhu-. Að kveikja í pening- unum Hafdis hringdi: Ég vil lýsa andúð minni á þessu ráðslagi að kveikja í pen- ingunum í formi alls konar flug- elda á áramótum. Satt að segja hélt ég aö fólk hefði nóg annaö við þá að gera. Svo er þetta af- leitt fordæmi fyrir bömin okkai- og afstöðu þeirra til verömæ- tanna. Þau era nýhoppuð út úr mikilli jólagleði með dýrum gjöf- um og góðum mat. Það er allt í góðu lagi, að fólk haldi hátíðleg jól. En svo koma áramótin og þar ftnnst mér gegna öðra máli. Það er hreinn óþarfi að fjölskyldur brenni flugelda fyrir þúsundir og jafnvel tugi þúsunda. Til hvers? Halda menn að nýja árið verði eitthvað betra fyrir vikið? Nei, það veröur heldur verra ef tekið er tillit til heimilisbók- haldsins þar sem stór liöur er: flugeldar. Frægðarför Ástþórs Arinbjörn hringdi: Þetta er mikil frægðarfór sem Ástþór Magnússon hefur nú far- ið í nafni Friðar 2000. Hann er sannkallaður boðberi friðar og réttlætis og óhræddur við að láta rödd sína heyrast. Vafalaust hef- ur þessi för verið einhverjum óþægileg, en hún var farin í kastljósi fjölmiölanna, sem er mikill styrkur fýrir friðarboð- endur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.