Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Qupperneq 26
34
FÖSTUDAGUR. 2. JANÚAR 1998
Afmæli
Kristján Bersi Ólafsson
Krislján Bersi Ólafsson skóla-
meistari, Tjamarbraut 11, Hafnar-
firði, er sextugur i dag.
Starfsferill
Kristján Bersi fæddist i Reykja-
vík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1957 og fil. kand.-prófi frá Stokk-
hólmarháskóla 1962.
Kristján Bersi var blaðamaður
við Tímann 1962-64, blaðamaður og
ritstjóri við Alþýðublaðið 1965-70,
kennari við Flensborgarskólann
1970-72, skólastjóri Flensborgarskól-
ans 1972-75 og hefur verið skóla-
meistari Flensborgarskóla frá 1975.
Kristján Bersi var formaður
Blaðamannafélags Islands 1967-68,
sat í stjóm Félags háskólamennt-
aðra kennara og síðar í stjórn Hins
íslenska kennarafélags um skeið og
var formaður Félags áfangaskóla í
nokkur ár. Hann er höfundur rits-
ins Flensborgarskólinn í 100 ár, útg.
1982, og hefur skrifað greinar og rit-
gerðir í blöð og timarit.
Fjölskylda
Kristján Bersi kvæntist 15.8. 1964
Sigriði Bjamadóttur, f. 3.7. 1945.
Hún er dóttir Bjarna Kristófersson-
ar, bónda í Fremri-Hvestu í Amar-
firði, og Ragnhildar Finnbogadóttur
húsfreyju.
Böm Kristjáns Bersa
og Sigríðar em Freydís
Kristjánsdóttir, f. 16.2.
1965, myndlistarmaður í
Hafharfirði, en dóttir
hennar er Hafdís Jó-
hanna Einisdóttir, f.
14.11. 1989; Ólafur Þ.
Kristjánsson, f. 19.1.1966,
jámbindingamaður í
Reykjavik, en kona hans
er Kristín Ingólfsdóttir
viðskiptafræðingur og er
dóttir þeirra Snædís, f. 10.10. 1991;
Jóhanna Kristjánsdóttir, f. 19.1.
1966, d. 14.1. 1973; Bjami Kristófer
Kristjánsson, f. 3.12.1971, líffræðing-
ur í Reykjavík.
Systkini Kristjáns Bersa era Ást-
hildur Ólafsdóttir, f. 3.2.1933, skóla-
ritari í Hafnarfirði, gift Herði Zop-
haníassyni, fyrrv. skólastjóra, og
móðir Ólafs Þ. Harðarsonar stjórn-
málafræðings og Tryggva Harðar-
sonar, bæjarfúlltrúa í Hafharfirði;
Ingileif Steinunn Ólafsdóttir, f.
11.12.1939, hjúkrunarfræðingur, var
áður gift Einari Viðari hrl. en er nú
gift Gunnari Finnbogasyni, starfs-
manni í fjármálaráðuneytinu, móö-
ir lögfræðinganna Gunnars Viðar
og Margrétar Viðar.
Foreldrar Kristjáns Bersa voru
Ólafur Þ. Kristjánsson, f. 26.8. 1903,
d. 3.8. 1981, skólastjóri og
ættfræðingur í Hafnar-
firði, og Ragnhildur
Gísladóttir, f. 4.12. 1904, d.
23.9. 1996, húsmóðir.
Ætt
Meðal systkina Ólafs
má nefha Halldór, fyrrv.
blaðamann og rithöfund,
Guðmund Inga, skáld á
Kirkjubóli, og Jóhönnu,
móður Kolfinnu Guð-
mundsdóttur, hjúkmnarfræðings á
Patreksfirði. Ólafur var sonur Krist-
jáns, b. á Kirkjubóli í Önundarfirði,
bróður Guðrúnar, ömmu Kristínar
Ólafsdóttur söngkonu og Gests arki-
tekts og Valdimars flugumferðar-
stjóra, föður Þómnnar, sagnfræð-
ings og rithöfundar. Kristján var
sonur Guðmundar, b. á Vöðlum,
Pálssonar, bróður Solveigar, ömmu
Gils Guðmundssonar rithöfundar
og langömmu Lárusar H. Bjama-
sonar aðstoðarskólameistara. Móðir
Kristjáns var Ingileif Ólafsdóttir
Kolbeinssonar Hildibrandssonar,
bróður Skúla, langafa Þorvalds
Kristjánssonar í Svalvogum, afa
Ingvars Viktorssonar, bæjarstjóra í
Hafnarfirði.
Móðir Ólafs skólastjóra var
Bessa, systir Guðmundar í Botni,
föður Hermanns símstjóra. Systir
Bessu var Friðrika, amma Einars
Odds Kristjánssonar alþm. Bessa
var dótir Halldórs, b. á Hóli á
Hvilftsströnd, Halldórssonar pr. Ei-
ríkssonar Vigfússonar. Móðir Bessu
var Guðrún Jónsdóttir.
Ragnhildur var dóttir Gísla, b. í
Króki í Selárdal, Ámasonar, b. í
Öskubrekku, Ámasonar, hrepp-
stjóra í Neðri-Bæ í Selárdal, bróður
Sigurðar, pr. á Stað. Ámi var sonur
Gísla, pr. í Selárdal, Einarssonar
Skálholtsrektors Jónssonar, bróður
ísleifs landsyflrréttardómara. Einar
var langafi Guðnýjar, ömmu Hall-
dórs Laxness. Móðir Áma hrepp-
stjóra var Ragnheiður eldri, systir
Brynjólfs i Flatey, langafa Áslaugar,
móður Geirs Hallgrímssonar forsæt-
isráðherra. Systir Ragnheiðar var
Guðrún, amma Eggerts, alþm. í
Laugardælum. Ragnheiður var dótt-
ir Boga, ættföður Staðarfellsættar-
innar, Benediktssonar.
Móðir Ragnhildar var Ragnhild-
ur, systir Ástríðar, ömmu Daviðs
Gunnarssonar ráöuneytisstjóra.
Ragnhildur var dóttir Jens, b. í
Feigsdal, Þorvaldssonar og Sigríðar
Jónasdóttur ljósmóður.
Kristján Bersi tekur á móti
gestum í Fjörukránni í Hafnarfirði í
dag, fostudaginn 2.1., milli kl. 17 og
19.
Kristján Bersi
Ólafsson.
Álfheiður Ákadóttir
Álfheiður Ákadóttir húsmóðir,
til heimilis að Hátúni á Djúpavogi,
varð sjötug á gamlársdag.
Starfsferill
Álfheiður fæddist á Brekku á
Djúpavogi og ólst þar upp. Hún
stundaði nám viö bamaskólann á
Djúpavogi.
Alfheiður vann á saumastofu
Guörúnar Heiðberg í Austurstræti í
Reykjavik 1944-45, við kápusaum
hjá Andrési Andréssyni klæðskera
við Laugaveginn og starfaði síðan á
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum
1947.
Samhliða heimilisstörfum stund-
aði Álfheiður almenn fiskvinnslu-
störf á Djúpavogi og kenndi handa-
vinnu við bamaskólann á Djúpa-
vogi.
Álfheiður hefur stundað sauma-
skap fyrir vini og vandamenn, auk
þess sem hún hefur saumað mikið
af minjagripum. Hún var einn af
stofnendum Kvennasmiðjunar ehf.
sem sérhæfir sig í handunnum
minjagripum og rekur Löngubúð á
Djúpavogi. Þá hefur hún sungið
með kirkjukór Djúpavogskirkju frá
fimmtán ára aldri.
Fjölskylda
Álfheiður giftist 13.10. 1950 Ragn-
ari Kristjánssyni, f. í Hamarsseli í
Hamarsfirði 28.10. 1923, d. 8.5. 1984,
rafveitustjóra á Djúpavogi. Foreldr-
ar Ragnars vom Kristján Jónsson, f.
27.9. 1901, d. 27.3. 1984, verkamaður
á Djúpavogi, og Antonía Ámadótt-
ir, f. 19.9. 1900, d. 17.5.1988, húsmóð-
ir. Kristján var sonur Jóns Þorvarð-
arsonar frá Krossi á Beruijarðar-
strönd og Jakobínu Ólafsdóttir frá
Vík í Fáskrúðsfirði. Foreldrar Ant-
oniu vora Sigríður Bjömsdóttir frá
Hnaukum í Álftafirði og Ámi Ant-
oníusson frá Kambaseli í Álftafirði.
Systir Sigríðar var Halldóra,
langamma Egils Jónssonar alþm.
Móðir Áma var Björg Ámadóttir
Hjörleifssonar sterka, annars Hafn-
arbræðra.
Börn Álfheiðar og Ragnars era
Rut, f. 13.10. 1949, starfsmaður
Byggðastofnunar í Reykjavík, var
gift Dagbjarti Má Jónssyni skip-
stjóra sem lést 1990 og er dóttir
þeirra Ragnheiður Drifa f. 24.6.1972,
í sambúð og á tvær dætur, en sam-
býlismaður Rutar er Marteinn Jó-
hannsson yfirkennari; Eðvald f. 5.
12.1951, vélstjóri á Húnaröst SF-550,
kvæntur Hóhfífríði Haukdal versl-
unarstjóra og em böm þeirra Sig-
urður Áki, f. 19.5. 1973, í sambúð og
á eitt bam, Guðrún Anna, f. 19.9.
1974, í sambúð og á eitt bam, Ævar
Orri, f. 24.7.1977, og Ragnar Rafh, f.
2.1. 1986; Drífa f. 30.1. 1953, fram-
kvæmdastjóri verslunarinnar Við
Voginn á Djúpavogi, gift Frey Stein-
grímssyni sjómanni og
em börn þeirra Rán, f.
28.5. 1975, í sambúð,
Dröfn f. 19.6 1977, og Alfa,
f. 21.1.1982; Ólafur, f. 23.9.
1955, sveitarstjóri á
Djúpavogi, kvæntur
Freyju Friðbjarnardóttur
skólastjóra og eru böm
þeirra Regína, f. 7.2. 1980,
Ragna, f. 24.12. 1984, og
Halla, f. 24.12. 1984; Krist-
ján, f. 30.11.1961, bifreiða-
smiður á Djúpavogi,
kvæntur Hrönn Ásbjöms-
dóttur verslunarmanni en sonur
Kristjáms og Jóhönnu Ambjöms-
dóttur er Ambjöm, f. 4.2. 1980.
Systkini Álfheiðar: Rögnvaldur, f.
2.2. 1914, d. 5.11. 1946; Jóhanna
Helga, f. 9.3. 1915, d. 4.11. 1986; maki
1 Bjami Benediktsson, d. 1944, m. 2
Jón Benjamínsson, d. 1965, og m. 3
Einar Einarsson, d. 1977; Jón Vil-
helm, f. 4.3. 1917, maki Halla Jóns-
dóttir; Kristjana Þórey, f. 3.2. 1919,
d. 1992, maki Eiríkur Guðnason, d.
1995; Ottó, f. 12.6. 1921, maki Matt-
hildur Jónsdóttir; Þorbjörg, f. 13.11.
1922, maki Finnur Kristjánsson, d.
1983; Vilborg f. 5.3. 1925, maki Sig-
mundur Eiríksson; Pálína, f. 24.5.
1930, maki Gestur Jóhannsson, d.
1974; Sigurrós Ingileif, f. 21.8. 1932,
maki Einar Haraldur Gíslason; Sig-
mar Bjami, f. 20.11. 1933, maki ísa-
bella Þórðardóttur; Erlingur, f. 9.12.
1935, d. 24.10.1971; Fjóla f.
17.1. 1940, maki Elís Pét-
ur Sigurðsson; Hlífar, f.
27.9. 1941, í sambúð með
Jolantu Szezepenek.
Foreldrar Álfheiðar
vora Áki Kristjánsson, f.
2.6. 1890, d. 2.9. 1982,
verslunarmaður á
Djúpvogi, og Áslaug
Jónsdóttir, f. 22.5. 1897, d.
3.6. 1966, húsmóðir.
Ætt
Áki var sonur Kristjáns
Kristjánssonar Arasonar frá
Kambaseli i Álftafirði. Móðir Krist-
jáns var Una Kristjánsdóttir Guð-
brandssonar frá Geithellum í Álfta-
firði. Móðir Unu var Guðrún Halls-
dóttir. Móðir Áka var Þórey Jóns-
dóttir Antoníussonar Sigurðssonar
(Antoníusarætt). Móðir Þóreyjar
var Guðrún Markúsdóttir frá Flugu-
stöðum. Bróðir Guðrúnar var Jón,
langafi Bjama, útgerðarm. í Bolung-
arvík, afa Einars Benediktssonar,
forstjóra Olís, og Ómars fram-
kvæmdastjóra íslandsflugs. M.a.
systkina Jóns, föður Þóreyjar, var
Katrín, kona Hans Jónatans frá
Gíneu í Vestur-Indíum.
Móðir Alfheiðar var Áslaug Jóns-
dóttir Antoníussonar frá Bæ í Lóni.
Kona Jóns var Vilborg Jónsdóttir.
Álfhildur Ákadóttir.
Halldóra Jóna Guðmundsdóttir
Halldóra Jóna Guð-
mundsdóttir húsmóðir,
Kjarrmóa 15, Njarðvík,
varð sextug á gamlársdag.
Starfsferill
Halldóra fæddist í Kefla-
vík og ólst þar upp. Hún
stundaði nám við hús-
mæðraskóla.
HaUdóra stundaði ýmis
almenn störf er tengjast
sjávarútvegi og hefúr
stundað verslunarstörf þó
húsmóðurstarfið hafi verið hennar
aðalstarf lengst af.
Halldóra er félagi í Soroptimista-
klúbbi Suðumesja og
hefúr starfað í klúbbn-
um undanfarin ár.
Fjölskyida
Halldóra giftist 13.4.
1963 Ingólfi Bárðarsyni,
f. 9.10. 1937, rafverk-
taka. Hann er sonur
Bárðar Olgeirssonar og
Eyrúnar Helgadóttur í
Njarðvík.
Böm Ingólfs og Hall-
dóra era Elín Jóhanna,
f. 14.1. 1956, húsmóðir í Orlando í
Bandaríkjunum, gift Joe A.
Livingston og eru böm þeirra
Birgitta, Davíð og Edward; Amar, f.
22.12. 1961, rafiðnfræðingur í Njarð-
vík, kvæntur Önnu B. Ámadóttur
og era synir þeirra Árni Júlíus,
Halldór og Róbert Ingi; Ragnhildur
Helga, f. 22.2.1965, húsmóðir í Kefla-
vík, gift Ólafi Birgissyni og era syn-
ir þeirra Ingólfúr og Birgir; Brynja,
f. 1.4. 1969, bankastarfsmaður í
Njarðvík, gift Jóhanni B. Magnús-
syni og era böm þeirra Sindri og
Ebba Ósk; Guðmundur Þórir, f. 2.4.
1974, rafvirki í Keflavík, en unnusta
hans er Karlotta Sigurbjömsdóttir
og er dóttir þeirra Halldóra Jóna.
Systkini Halldóra era Elín Jó-
hanna, f. 29.5. 1934, d. 1.4. 1948; Lúð-
vík, f. 24.6. 1936; Inga Kristín, f. 26.1.
1939; Þórhallur Amar, f. 28.11. 1941;
Bima, f. 29.8. 1943; Gréta, f. 29.8.
1943; Ólöf Edda, f. 9.7. 1946.
Foreldrar Halldóru: Guðmundur
Jónsson, fyrrv. bréfberi í Litlabæ í
Keflavik, og Ólöf Eggertsdóttir hús-
móðir.
Ætt
Foreldrar Guðmundar vora Jón
Pálsson, sjómaður í Keflavík, og Jó-
hanna Jónsdóttir húsmóðir.
Foreldrar Ólafar vora Eggert
Ólafsson frá Hávarðsstööum í Leir-
ársveit og Halldóra Jónsdóttir.
HaUdóra og Ingólfur héldu upp á
sextugsafmæli sín í október sl.
Halldóra Jóna
Guömundsdóttir.
iz»v
Til hamingju
með afmælið
2. janúar
80 ára
Dagbjartur Dagbjartsson,
Klausturhólum 3,
Skaftárhreppi.
75 ára
Bjami Stefánsson,
Suðurgötu 33, Keflavík.
Þórir Amgrímsson,
Litlu-Gröf, Staðarhreppi.
70 ára
Brynjólfur Bergsteinsson,
Hafrafelli I, Fellahreppi.
Sesselja Kristinsdóttir,
Glaðheimum 22, Reykjavík.
60 ára
Dagga Lis Kjæmested,
Vallargötu 16, Keflavik.
Jón Ármann Jónsson,
Árstíg 13, Seyðisfirði.
50 ára
Guðrún Gunnlaugsdóttir,
Bleiksárhlíð 53, Eskifirði.
Helgi Magnússon,
Selbrekku 18, Kópavogi.
Hildur Dagsdóttir,
Sigtúni 31, Reykjavík.
Sigurbjörg Bjamadóttir,
Bjamargili, Fljótahreppi.
Svanfríður Kjartansdóttir,
Hringbraut 84, Keflavík.
40 ára
Anna Wasilczuk,
Þiljuvöllum 28, Neskaupstað.
Guömundur Halldór
Atlason,
Holtageröi 65, Kópavogi.
Gullveig Ósk Kristinsdóttir,
Barmahlíð 12, Reykjavík.
Hafdis Njálsdóttir,
Aðalgötu 1, Dalvík.
Halldór Svanur Olgeirsson,
Bjamastöðum,
Öxarijarðarhreppi.
Jósteinn G. Guðmundsson,
Skólabraut 14, Hólmavík.
Knútur Kristinsson,
Berjarima 19, Reykjavík.
Leifur Aðalgeir
Benediktsson,
Fannafold 182, Reykjavík.
Lilja Ingvarsson,
Klapparbergi 15, Reykjavík.
Margorzata Genowefa
Stacho,
Höfðagötu 1, Stykkishólmi.
Metta Kristin
Friðriksdóttir,
Álfheimum 33, Reykjavík.
Rut Petersen,
Vanabyggð 10A, Akureyri.
Þorsteinn Sigurbjömsson,
Smárahlíð 10E, Akureyri.
staögreiöslu-
og greiðslukorfa-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar