Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 32
íslensku suðurskautsfararnir:
Komnir á pólinn
íslensku suðurskautsfaramir
Ingþór Bjamason, Ólafur Öra
Haraldsson og Haraldui- Öm
Ólafsson komust á suðurpólinn
um níuleytið í gærkvöld. Færi var
þungt og erfitt á lokasprettinum.
Þeir lögðu af stað gangandi á skíð-
um á suðurpólinn og eiga að baki
1100 km beina loftleið gangandi
yfir Suðurskautslandið. Landleið-
in sjálf er síðan mun lengri.
Þetta mikla þrekvirki félaganna
hafa þeir imnið án utanaðkom-
andi aðstoðar, dregið með sér all-
an útbúnað á sleðum en hann vó
um 130 kg hjá hverjum og einum.
Búnaðurinn hefur lést nokkuð á
leiðinni og undir það síðasta var
hann um 90 kg.
Þeir dvelja ekki lengi á suður-
pólnum því flugvél sækir þá i dag
eða á morgun og flytur aftur til
tjaldbúðanna Patriot Hills þaðan
sem þeir lögðu upp í leiðangurinn.
Þeir hringdu til íslands i
fyrrinótt frá Amundsen-Scott
rannsóknarstöðinni sem er um V2
km frá sjálfum suðurpólnum sem
er í um 3000 m hæð yfir sjávar-
máli. Hitinn þar er nú -30° C. Fær-
ið á síðasta hluta leiðarinnar var
þungt, þama er engin úrkoma og
snjórinn er mjög þurr. Því hafa
þeir á köflum sleppt skíðunum og
farið fótgangandi áfram.
Eina tengingin sem þeir hafa
haft við umheiminn í ferðinni eru
boð sem þeir senda af Argus-stað-
setningartæki um gervitungl sem
hefur móttöku í Frakklandi. Það-
an hefur Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík fylgst með ferðum
þeirra. Boðin senda þeir á sér-
stöku táknmáli sem þeir bjuggu til
hér heima áður en þeir lögðu af
stað. Út frá þeim boðum hefur ver-
ið hægt að ráða í hvemig hlutun-
um er háttað hjá þeim. Þeir em
einnig með talstöð sem tengir þá
við tjaldbúðirnar í Patriot Hills og
hafa alltaf sent þangað boð á
tveggja daga fresti.
Ef allt fer að óskum eru ferða-
langamir væntanlegir til íslands í
kringum 10. janúar. -ST
Helgarblað DV:
"Jónas R.
í London
í helgarblaði DV á morgun er
opnuviðtal við Jónas R. Jónsson,
fyrrverandi dagskrárstjóra á Stöð 2.
Hann segir frá því hvernig uppsögn-
in kom við hann og lífinu í útlönd-
um frá því honum var sagt upp.
Hann býr við sérstakar fjölskyldu-
^aðstæður en segir það hafa styrkt
hjónabcmdið. Árið er gert upp í al-
vöruspegli. Þar eru valdir menn
ársins frá ýmsum skemmtilegum
sjónarhornum. Fréttaljósin fjalla
um frjálsa samkeppni í símamálum
í Evrópu og nýja stöðu i íslenska
bankakerfinu. Þá verða í blaðinu
svipmyndir frá áramótaskralli og
ýmislegt fleira. -sv/bjb
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1998
DV-mynd S
Steiner fundinn:
Af spítala í
steininn
Franklín Steiner, sem leitað hef-
%»ur verið síðan á Þorláksmessu,
fannst í Hafnarfirði rétt fyrir klukk-
an eitt i gær. Franklín átti að hefja
afplánun 20 mánaða fangelsisdóms
23. desember en mætti ekki í fangel-
sið. Hann hafði áður lýst því yfir að
hann væri ósáttur við að hefja af-
plánunina svo skömmu fyrir jólahá-
tíðina.
Tildrög þessa vom þau að kallað
var á sjúkrabíl að húsi í Hafnarfirði
og tilkynnt þar um veikan mann
sem þyrfti á læknisaðstoð að halda.
Veiki maðurinn reyndist vera
Franklín Steiner. Hann var fluttur
með sjúkrabílnum á Landspítalann.
Ekki er vitað hvað amaði að hon-
um.
m Franklín stóð hins vegar stutt við
á sjúkrahúsinu og útskrifaðist það-
an skömmu eftir að hann kom þang-
að. Þaðan var hann fluttur í Hegn-
ingarhúsið við Skólavörðustíg. -HI
Fyrsti Islendingur ársins, fæddist á fæðingardeild Landspítalans á nýársnótt
kl. 2.33. Hann vó 14 merkur og er fyrsta barn þeirra Hörpu Maríu Hreinsdótt-
ur og Álfs Þórs Þráinssonar. Mæðginin brostu breitt og voru undursæl þeg-
ar DV leit inn á fæðingarganginn í gærkvöld og færði þeim blómvönd.
DV-mynd Pjetur
Ættingjar og vinir suðurskautsfaranna fögnuðu árangrinum í gærkvöld heima hjá Sigrúnu Richter, konu Ólafs Arnar.
Veðrið á morgun:
Gfeðííegt
nýtt ár
— {Dökícum líðíð
-Þýskt eðalmerki
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Bílheimar ehf.í
44444444444444444
MA EKKI GREIÐA
GISTINGUNA MEÐ
KORTI?
Rigning
öðru hverju
Á morgun verður suðaustan-
og austanátt, gola eða kaldi.
Vætusamt á austanverðu land-
inu en dálítil rigning öðm
hverju vestanlands, einkum á
Vestfjörðum. Hitinn á landinu
verður á bilinu 1 til 6 stig, hlýj-
ast á austanverðu landinu.
Veðrið í dag er á bls. 36.
Aílfi [(i'iÆiMffnw l
j jj j \ sj-i sj -'J ) ~>j
ir kíÆ 0i2Q á lciuyurdgrj
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Karlmaður neitaði að fara út úr
hraðbanka í Búnaðarbankanum
við Hlemm í gærkvöld. Ekki var
nákvæmlega vitað hvað hann vildi.
Hann var ekki að taka út peninga
en mim hafa orðið kalt og vantað
Maður í
gegnum rúðu
Lögreglan á Höfn var kölluð að
heimahúsi um klukkan hálfátta í
gærmorgun. Þar fór ffarn gleðskap-
ur sem farið hafði úr böndunum og
höfðu slagsmál brotist út í íbúðinni.
Meðal annars fór maður i gegnum
rúðu á húsinu og þurfti að sauma í
hann nokkur spor. Að öðm leyti
meiddist enginn. -HI
húsaskjól og yl. Lögreglu þótti
hraðbankinn ekki nógu vistlegur
fyrir manninn og fann honum fleti
í fangaklefa. Maðurinn var ölvað-
ur. -sv
Bruni á
Eskifirði
Hlaða og fjós viö Steinholtsveg
á Eskifirði brannu til kaldra
kola á gamlárskvöld. Þessi hús
vora notuð fyrir búskap fyrir
mörgum áram en hafa ekki ver-
ið notuð um nokkurn tíma.
Ekki er vitað um eldsupptök en
grunur leikur á að um íkveikju
hafi verið að ræða. -HI