Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998
7
Árni og heiðurssætin
Af þeim þremur borgarfulltrú-
um Sjálfstæöisflokkins, sem
hætta þátttöku í borgarstjórnar-
málum, Guðrúnu Zoéga, Jó-
hanni Gunnari
Birgissyni og
Hilmari Guð-
laugssyni, var
aðeins þeim síð-
astnefnda boðið
svokallað heið-
urssæti á list-
anum nú.
Heiðurssæti
eru sætin fyr-
ir neðan 20. sætið. Hinum
tveimur var einfaldlega ekki
boðið upp á slikan heiður. Þó svo
þau tvö andæfi þeirri skoðun að
ástæða þessa séu stirð samskipti
þeirra við oddvita flokksins,
Árna Sigfússon, staðhæfa inn-
anbúðarmenn í borgarstjómar-
flokki sjálfstæðismanna að sú sé
ástæðan. Þau hafi einfaldlega
ekki haft áhuga á frekara sam-
starfi við Áma. Árni hafi á móti
beitt áhrifum sínum og tryggt aö
þeim yrði ekki boðinn neinn
heiöurssess. Annars mun Jó-
hann Gunnar ekki vera hættur í
pólitík heldur mun hann stefna á
þing við fyrsta tækifæri. Þetta
heitir að feta í fótspor feðranna...
Ötul prestshjón
Séra Gunnar Björnsson,
sóknarprestur í Holti í Önund-
arfirði, þykir ásamt konu sinni
hafa unnið gott starf í sinni
heimabyggð.
Gunnar og eigin-
kona hans,
Ágústa Ágústs-
dóttir söng-
kona, hafa blás-
ið lífi í menn-
ingarlíf Önfirð-
inga. Gunnar
hélt á sinum
tíma til náms í
Bandaríkjunum en sneri heim
þegar snjóflóðið mannskæða féll
á Flateyri. Hjónin njóta virðing-
ar þeirra sveitunga sinna sem
kunna að meta þann mannauð
sem sprettur af öflugu menning-
arstarfi...
n
Passíusálmarnir
Ríkisútvarpið heldur upp-
teknum sið að fá merkisfólk til
að lesa Passíusálma Hallgríms
Péturssonar á fóstunni. Næsti
lesari verður
Svanhildur
Óskarsdóttir
sem jafnframt
því að vixma að
doktorsritgerð
er sendikenn-
ari í íslensku í
Lundúnum.
Upptökur á
Passíusálm-
unum fóru fram meðan
Svanhildur var heima í jólafríi.
Þess má geta að faðir hennar,
Óskar heitmn Halldórsson, ís-
lenskufræðingur og sérfræðing-
ur í Hrafnkelssögu, las Passíu-
sálmana í útvarpi fyrir löngu.
Svanhildur mun vera yngsti les-
ari útvarpsins á sálmunum til
þessa...
Afmæli Davíðs
Eins og fram kom í Sandkomi
í gær hélt Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra af landi
brott rétt áður en afmæli aldar-
innar brast á. Það
munu fleiri hafa
flújð land áður
en Perlan var
lögð undir af-
mæli forsætis-
ráðherra. Ingi-
björg Sólrún
Gísladóttir
borgarstjóri er
sögð hafa þolað illa
þann bjarma sem umlék Davíð
Oddsson og hélt til Stokkhólms
áður en herlegheitin hófust...
Umsjón Reynir Traustason
Fréttir
Hemmi Gunn byrjaður í likamsrækt:
Get ekki beðið
eftir næsta tíma
Amerískur
útiuistarfatnaður
Hinn landsþekkti skemmtikraftur
og fjölmiðlamaður Hermann
Gunnarsson segir að það sé
geysilega erfitt að byrja að
stunda líkamsrækt. Hins veg-
ar borgi það sig margfalt að
koma sér af stað því þegar mað-
ur hefur komist í gegnum fyrstu
tímana verður líkamsræktin
mikil skemmtun.
„Ég hef í raun gengið i gegnum
þetta tvisvar. Ég byrjaði að synda
fyrir nokkrum árum og þá þurfti
ég að pína mig áfram fyrsta háifa
mánuðinn. En að því loknu fór ég í
laugina á hverjum degi í tvö ár og
hafði gaman af. Síðan byrjaði ég
núna fyrir rúmum mánuði aftur að
hreyfa mig í líkamsræktarstöð hér í
bæ. Þar var alveg sama sagan, mér
fannst þetta óskaplega leiðinlegt í
fyrstu. En eftir nokkra tíma og góð-
an stuðning félaga minna komst ég
í gegnum óþægindin og eftir það
veit ég varla nokkuð skemmtilegra.
Ég hreinlega get ekki beðið eftir því
að mæta aftur á morgun."
Það er alveg ljóst að margir eiga í
vandræðum með að koma sér af
stað í líkamsrækt eins og fram kem-
ur í reynslusögu Hemma. Þeir sem
hafa e.t.v. verið mikið í íþróttum á
yngri árum, jafnvel verið afreks-
menn, gætu átt erfitt með fyrstu
skrefin. En það borgar sig að takast
á við fyrstu tímana. „Þetta er allt
annað núna og það er morgunljóst
að ef menn ætla eitthvað að taka til
í sálarlífinu og láta sér líða betur þá
er það vonlaust mál með stóra
kókosbollubumbu. Líkaminn verð-
ur að fylgja með,“ segir þessi hressi
útvarpsmaður. -KJA
Heilsumolar
Líkaminn vinnur best þegar
hjartslættinum er haldið á til-
teknu hraðabili. Áhrifaríkastar
eru æfingamar þegar hjartsláttur-
inn er stöðugur á bilinú 65-80% af
hámarkshjartslætti.
Þótt þú brennir að sjálfsögðu
fitu á meðan á æfingum stendur er
samt megintilgangurinn með þeim
að hvetja til meiri framleiðslu á
þeim ensímum sem auka fitu-
brennsluna. Þú vilt líkama sem
brennir fitu á auðveldan hátt.
Eftir því sem fleiri vöðvar eru
virkjaðir í æfingamar því minni
tíma þarftu í æfinguna til þess að
hún skili þeim árangri sem leitað
er eftir; framleiðslu á fitu-
brennsluensímum og þar með auk-
inni fitubrennslu.
Úr bókinni Betri línur
(Jtsala
Utsala
^Kioatatnaour
Oömuðlpur
Flísfatnaður
o.fl.
Cortina Sport
Skólauörðustíg 20 - Sími 5521555
Hemmi Gunn ásamt samstarfsmönnum sfnum á Bylgjunni sem taka nú þátt
í heilsuræktarátakinu „Leið til betra lífs“ ásamt DV og fieiri fyrirtækjum.
DV-mynd BG
ímaritfyrir alla