Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Qupperneq 14
14 Jón Gunnar Guðmundsson hætti á sjónum fyrir þrem- ur árum og rekur nú tösku- viðgerð í Reykjavík. Þetta eru nokkuð snör umskipti í lífi mannsins og er víst að mörgum þætti nóg um að snúa svo ræki- lega við blaðinu. Jón Gunnar byrjaði að stunda sjóinn á unglingsaldri. Hann telur að ævintýramennskan hafi dregið hann þangað eins og flesta aðra sem fóru á sjó á þessum tíma. Hann hækkaði síðan smám sam- an upp stigann og varð stýrimað- ur 1974. Hann hætti fyrir þremur árum eftir tæplega þrjátíu ára sjó- mennsku. Hann er nú 48 ára. „Ég var orðinn mjög slæmur í bakinu eftir allan þennan tíma. Svo var ég líka orðinn leiður á þessu. Ég var aldrei heima og sá sjaldan börnin mín og fjölskylduna," seg- ir Jón Gunnar. Það var hins vegar tilviljun að hann fór út í töskuviðgerðir. „Ég hafði verið stýrimaður í rúm 20 ár þegar ég ákvaö að hætta og Jón Gunnar Guðmundsson sneri sér að töskuviðgerðum eftir að hann hætti á sjónum. reyna að fá mér vinnu í landi. Þegar maður er kominn yfir fer- tugt fær maður aftur á móti ekki vinnu í landi. Ég mældi þvi götur atvinnulaus í tvö ár og sótti um allt sem hægt var að sækja um með litlum árangri," segir Jón Gunnar. Hann segist hafa orðið áþreifanlega var við það þarna að skipstjórnarmenntun sé einskis metin í landi. Eftir þessi tvö ár var hann hins vegar svo heppinn að fá vinnu við töskuviðgerðina hjá SÍBS sem þá átti fyrirtækið. Siðan vildi svo til að SÍBS vildi selja það tveimur mánuðum eftir að Jón Gunnar hóf þar störf svo hann lét slag standa og keypti fyrirtækið og hefur rekið það síðan. „Ég kunni ekkert fyrir mér í töskuviðgerð- um. Ég bara rétt vissi til hvers átti að nota þær,“ segir Jón Gunn- ar og hlær við. Hann segir að þessi vinna sé um margt lík sjómennskunni. „Maður þarf að vera útsjónarsam- ur og þrauka. Þetta er bara að duga eða drepast," segir Jón Gunnar. Hann segir að lífið á sjó og í landi sé eins og dagur og nótt. „Maður sér stundum eftir því að hafa ekki hætt fyrr þegar maður var yngri og hressari," segir Jón Gunnar. Hann telur að sjómennskan sé ekki eins skemmtileg nú og hún var. „Áður hafði maður frjálsari hendur með aflann og hvar mað- ur sótti hann. Nú segir skrifstofu- báknið í landi manni bókstaflega hvað maður má veiða á dag og hvar maður á að vera. Þetta er ekki eins spennandi og það var.“ Hann segir að stundum komi sú tilfinning yflr hann að hann sakni sjávarins. „Það er hins vegar allt annað að vera í landi. Þegar mað- ur er úti á sjó er maður í allt öðr- um heimi. Ég myndi hins vegar ekki vilja fara út á sjó aftur,“ seg- ir Jón að lokum. -HI DV-mynd Hilmar Þór Sigurjón Hannesson, starfsmaður við höfnina, var á sjónum í tæp 40 ár: Þetta er það sem ég þekki best Sigurjón Hannesson starf- aði við sjómennsku í tæp 40 ár, eða frá 1949-1987. Lengst af starfaði hann sem skip- herra hjá Landhelgisgæslunni. Hann starfar nú við Reykjavíkur- höfn. Hann er 62 ára. Eini möguleikinn Það var einfalt að svara því hvað hefði dregið hann á sjóinn. „Það var eini möguleikinn til atvinnu þar sem ég er alinn upp. Það var ekki um neitt annað að velja. Það fóru flestir á sjó- inn á mínum aldri,“ segir Sigurjón. Þegar hann hafði starfað þetta lengi á sjónum bauðst honum vinna hjá Siglingamálastofnun þar sem hann sá um áhafnamál, sat sjópróf fyrir hönd stofnunarinnar og gerði umsagnir um sjóslys til Ríkissaksóknara. „Þetta voru að sjálfsögðu töluverö viðbrigði að vera allt í einu kominn í skrifstofú- vinnu. Hins vegar hjálpaði það til að á Siglingamálastofhun er verið að fjalla um skip. Þannig var ég að nokkru leyti áfram i þvi umhverfl sem maður hafði alltaf verið," segir Sigurjón. Hann nefhir einnig að tengslin við sjómenn og skip hafi haldið áfram. „Maður er búinn að vera að hrærast í sjónum lengi og þetta er það eina sem maður telur sig þekkja nokkuð vel,“ segir Sigurjón. Sigurjón starfaði hjá Siglingamála- stofhun í átta ár en þá söðlaði hann aftur um og hóf störf hjá Reykjavíkur- höfii og hefur verið þar síðan. Þar starfar hann á dráttarbátimum. „Það má því segja að ég sé komin með aðra löppina til sjós aftur. Maður er bara kominn nær því sem maður var lengst í,“ segir hann. Hann bætir því við að við höfhina sé hann í enn þá nánari tengslum við skip og sjómenn og hann kunni mjög vel við það. Sigurjón segir hins vegar að þegar menn séu komnir yfir miðj- an aldur megi menn teljast heppnir að fá starf við sitt hæfi. „At- vinnumöguleikar okk- ar í landi eru afar litlir. Það er ekki margra kosta völ þegar menn eru komnir á þennan ald- ur,“ segir Siguijón. Hann segist hins vegar vita til þess að skipstjómarmenn hafi tekið að sér verkstjóm og þótt góðir í því. -HI Sigurjón Hannesson, starfsmaður Reykjavíkurhafnar og fyrrverandi skipherra hjá Land- helgisgæslunni. DV-mynd Pjetur J i/A)_r‘3JJJ ■ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1998 Sjómen Menn geta ekki unnið enda- laust á sjó. Að endingu kemur að því að menn verða að hætta á sjónum ogfara að vinna í landi. Pað er hins vegar æði misjafnt hvað skipstjórar og stýrimenn taka sérfyrir hendur þegar þeir hætta að sækja sjó- inn. Tilveran talaði við nokkra sem hafa snúið aftur í land eftir langt starf á sjónum. aftur í land Jón Gunnar Guðmundsson stundaði sjóinn í fjörutíu ár: Var orðinn leiður á þessu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.