Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 ^jqj 33J3Jjj Flugmen framb'ðarinnar Starf flugmannsins hefur í áratugi verið hjúpað dýrðarljóma í augum__ fjöldamargra hnokka. Undanfarin misseri hefur mikill uppgangur átt sér stað í fluggeiranum og æfleiri láta drauminn rætast. Tilveran sá því ástæðu_ til að guða á gluggann í húsi Kvennaskólans þar sem einkaflugmannsnámskeið ferfram um þessar mundir. Baktería sem hverfur aldrei - segir Kári Guðbjörnsson flugkennari um flugið Kári Guðbjörnsson er flug- umferðarstjóri, flugmaður og prófdómari hjá flug- málastjóm. Hann kennir einnig á einkaflugmannsnámskeiði flugskól- ans Flugtaks sem blaðamaður heim- sótti í liðinni viku. Kári staðfestir að nú sé mikill uppgangur í flugmálum á íslandi sem leiði til þess að þeim sem freista þess að læra að fljúga fjölgi svo um munar. „Já, það hefur verið áberandi uppsveifla síðustu þrjú árin. Við höldum tvö námskeið á ári. Undan- farin fjögur námskeið hafa sótt allt upp í sextíu manns en fyrir átta árum voru stundum ekki nema fjórtán nemendur í einu,“ segir Kári. „Ástæðan fyrir þessum meðbyr er líklega breyttir tímar og góðæri. Það leiðir til þess að fleiri geta ferð- ast og því þarf fleiri flugvélar og menn til að fljúga þeim. Einnig er hröð endurnýjun á flugmönnum núna sökum þess hve margir láta af störfum vegna aldurs. Það eru ekki nema átta ár síðan einungis tveir til þrír flugmenn voru ráðnir á ári í vinnu hér innanlands. Nú er öldin önnur og mun fleiri eiga kost á starfi.“ Flugnám í tísku Kári segir að langflestir þeirra sem hefja flugnám hafi i hyggju að Kári er heltekinn af flugdellunni. Auk þess aö kenna á einkaflugmannsnám- skeiöi er hann prófdómari hjá flugmálastjórn, flugumferöarstjóri og flugmaður. Hann flýgur líka svifdreka þegar hann er í þannig skapi. DV-mynd Pjetur gerast atvinnuflugmenn. Þó séu þeir enn til sem ætla að láta drauminn um einkaflugmanninn rætast og vilja bara hafa flug- mennskuna sem áhugamál, / ekki atvinnu. Kári neitar því ekki að flugnám sé í tísku núna. „Flugið hefur fengið mikla aug- lýsingu að undanförnu vegna auk- innar samkeppni hér á landi. Um- fjöllunin sem kemur í kjölfarið verður eflaust til þess að fleiri sjá framtíðarmöguleika í flugnámi. Það er „töff‘ að læra að fljúga," segir hann. Fljótt að borga sig Mörgum þykir kostnaðarsamt að læra að fljúga og eflaust eru einhverjir sem veigra sér við svo dýru námi. Kári tekur undir þetta en bendir á að hafi menn hug á at- vinnumennsku sé námið fljótt að borga sig. „Þetta er stutt nám og fái menn vinnu fljótlega eftir að því lýkur rétta þeir úr kútnum á skömmum tíma.“ Til að komast á einkaflug- mannsnámskeið verður fólk að vera orðið 17 ára og þeir sem ætla að halda áfram í atvinnuflug- mannsnám þreyta inntökupróf í Flugskóla íslands. „Flugið er skemmtilegt áhuga- mál og fái maður „flugbakteríuna" þá losnar hann ekki svo glatt við hana aftur. Eins og ein- \ hver sagði: Hver er munur- inn á sannri ást og flug- \ bakteríu? Svarið er að flugbakterían hverfur aldrei." -ilk Leikföngin stækka Olíkt mörgum öðrum flugnemnum tók Friðrik Friðriksson þá ákvörðun að skella sér í flugnám án þess að hafa nokkum tima ætlað sér það. Friðrik er líka eldri en flestir á námskeiðinu og stefhir ekki á atvinnuflugnám. Hann er að þessu fyrir sjálfan sig og engan annan, langaði bara aflt í einu að læra að fljúga. „Þetta var skyndiákvörðun. Ég fór í sumar- leyfi fyrir fram og eyði því nú í þetta tiu vikna flugnámskeið. Bróðir minn er í atvinnuflug- mannsnámi núna og allt í einu kveikti hann hjá mér áhuga, blessaður," segir Friðrik. Ferðast um á jeppa Friðrik ber ekki á móti því að hann sé „dellukarl". Að eigin sögn á hann það til að gripa í sig eitthvað ákveðið viðfangsefni og fást við það um tíma. Svo muni einnig vera með þennan skyndilega flugáhuga hans. „Ég er mikifl jeppaáhugamaður og hef mjög gaman af því að ferðast. Ég keyri upp á hálend- ið og nú er mig farið að langa að geta flogið þangað líka og horft á fegurð þess úr háloft- unum. Það hlýtur að gefa mér aðra mynd af þeim stöðum sem ég hef heimsótt á jeppanum. Líklega tengist þessi flugáhugi stráknum í mér sem virðist seint ætla að hverfa. Það eina sem gerist er að leikfongin stækka. Nú langar mig til dæmis að kaupa hlut i flugvél svo ég geti flogið óháður leiguskilmálum." Ekki flókið að fljúga Friðrik vinnur hjá tilkynningaskyldu ís- lenskra skipa. Hann segir vinnufélagana ekki hafa orðið mjög hissa þegar hann sagði þeim frá þessu nýja áhugamáli. „Æ, þeir bara hristu hausinn og brostu. Ætli þeir hafi ekki bara hugsað að þetta væri enn ein vitleysan í mér,“ segir Friðrik. Friðrik vill ekki meina að það sé flókið að fljúga. Enn sem komið er hefur hann þó ekki f 1 o g i ð marga tíma. Hann segir að með hækkandi sól stefni hann á að komast oft- ar í loftið. „Þegar ég settist f y r s t u n d i r stýrið í flugvélinni varð mér ljóst að ég hafði m i k 1 a ð þetta fyr- ir mér. M é fannst reyndar ■ að þetta væri % ósköp svipað \ þvi að \ keyra bíl. Þetta eru einfaldar 11 flugvélar og marg- ir nýir } bilar eru m u n t æ k n i - væddari en þær. / i Þetta er e k k e r t mál,“ segir Friðrik. -ilk Friörik stefnir ekki á atvinnuflugmanns- nám. Hann er dellu- karl og vill bara geta fiogið sjálfur. DV-mynd Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.