Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Síða 4
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998 DV
22 $ihi helgina
Málverk á Netinu og Kaffi Krák:
Eitt þeirra málverka sem hanga uppi á veraldarvefnum.
Merja Aletta Ranttila á þetta verk á sýn-
ingunni og nefnist þaö Tsjernobyl.
Kona
og
kvíga
Elsa D. Gísladóttir opnar í dag
sýninguna Sólsetra á milli í gall-
eríi 20 m2, Vesturgötu lOa, kjallara.
í tilefni þess að þetta er hennar
fyrsta einkasýning ætlar hún að
rölta með hluta sýningarinnar,
kvígu úr krossviði og blikki, um
Reykjavík á sjálfan opnunardag-
inn. Mun hún ganga á milli helstu
safna og gallería borgarinnar,
hefja ferðina að Kjarvalsstöðum
kl. 10 og enda kl. 18 í 20 m2 og opna
þar með sýningu sína formlega.
Eningin og liósið
Nýstárleg myndlistarsýning verður
opnuð um helgina. Hún verður á tveimur
stöðum, á KafFi Krók á Sauðárkróki og
Intemetinu. Það er myndlistarkonan
Helga Sigurðardóttir sem ætlar að sýna
myndir sínar á þennan hátt, fyrir íbúa
Króksins annars vegar og íbúa heimsins
hins vegar.
Helga er listakona af guðs náð, hún
málar verundarmyndir sem unnar era í
gegnum hugleiðslu og bænir. Verkin eru
full af mýkt og tilvísunum í ljósið, án upp-
hafs og enda. Helga er að mestu sjálf-
menntuð í list sinni en hefur samt haldið
fjölda sýninga um land allt. Hún vinnur
flest sín verk með þurrpastel á flauels-
pappír og með akrýl á striga.
Sýningin á Internetinu er haldin í
Listasmiðjunni sem er starfandi gallerí á
Intemetinu í umsjón Apple-umboðsins og
Norræna húsið:
Norrænt Ijos
og myrkur
í Norræna hús-
inu verður opnuð
farandsýning á
verkum lista-
manna frá norð-
urhéruðum Sví-
þjóðar og Finn-
lands um helgina.
Kallast hún Nor-
rænt ljós og
myrkur og var
fyrst sýnd í
Kiruna í N-Sví-
þjóð I júlí á síð-
asta ári. Síðan lá
leiðin til Parísar
þar sem hún var
sýnd í finnsku
stofnuninni í des-
ember sl. Einnig
var hún sýnd sem
eitt af fyrstu atrið-
um menningarárs
Stokkhólmsborg-
ar í síðasta mánuði.
Á sýningunni eru verk sjö lista-
manna. Þeir eru allir fæddir á norður-
slóðum, fjórar konur og þrír karlar.
Fjögur eru Samar, hin með sterk
tengsl við samískt
og fmnskt þjóðlíf.
Listamennimir eru
Rosa Liksom, Merja
Aletta Ranttila, Lars
Pirak, Maj-Doris
Rimpi, Erling Jo-
hansson, Bengt
Lindstrom og Lena
Stenberg. Verkin
sem þau sýna eru
fjölbreytt; málverk,
verk unnin í skinn
með tinþræði og
innsetningar. Hver
listamaður hefur
eigið myndmál,
áleitið, glettið og
áhrifamikið.
Sýningin verður
opnuð á laugardag-
inn kl. 14 og munu
nokkrir af lista-
mönnumnn verða
viðstaddir þá athöfn. Auk þess mun ein
ffemsta jojksöngkona Sama, Inga
Juuso frá Kautokeino í Noregi,
skemmta gestum við opnunina.
Birgittu Jónsdóttur fjöllistakonu og
vefsmiðs. Þetta er 11. sýning Listasmiðj-
unnar og má geta þess að eldri sýningar
eru ekki teknar niður heldur fá að hanga
áfram á stafrænum veggjum gallerísins.
Vefslóð Listasmiðjunnar er http:
//www.apple.is/gallery
Á Kaffi Krók verður sýningin opnuð í
kvöld klukkan 20 og era allir velkomnir.
Þema sýningarinnar tengist því sem
margir þrá að flnna í lífmu, einingu á
einn eða annan máta. Sýningin verður
opin i mánuð og í tengslum við hana held-
ur Helga námskeiðið „Litir ljóssins" á
laugardag og sunnudag þar sem hugleitt
er um áhrifamátt lita og sköpunarmáttur
þátttakenda virkjaður í málun og leik.
Elsa D. Gísladóttir og kvígan.
Tolli sýnir í Blómavali:
Allsnægtaborð litanna
Myndlistarmaðurinn Tolli opnar
á sunnudag sýningu á vatnslita-
myndum í Blómavali í Sigtúni.
Þetta er annað árið í röð sem hann
heldur slíka sýningu en galleríið í
Blómavali er sérsmíðað fyrir sýn-
ingu hans. Sýningarstaðurinn hæfir
myndefninu einkar vel, enda voru
allar myndirnar málaðar þar af
blómum og páfagaukum sem era á
staðnum.
„Þegar ég kem í Blómaval til að
mála sest ég í rauninni að
allsnægtaborði litanna," sagði Tolli
þegar DV innti hann eftir þvi
hvernig á því stæði að hann málaði
öðm hvoru myndir eins og þessar.
Þær em í raun nokkuð frábmgðnar
því sem hann gerir dags daglega.
„Þarna koma á hverjum degi blóm
frá öllum heimsálfum 1 öllum mögu-
legum litum. Auk þess em þarna
páfagaukar og þeir draga alls ekki
úr litagleðinni. Þetta er því geysi-
lega ögrandi verkefni og ég hef lært
mikið á því. í rauninni má í þessu
sambandi líkja málaralistinni við
Ferrari. Venjulega vinnur maður
ekki með eins sterka liti þannig að
maður keyrir Femarinn sinn á inn-
anbæjarhraða. Síðan kemur maður
hingað í litadýröina og þar get ég
sett litabensínið í botn og þeyst um
á 260 km hraöa.
Listamaöurinn Tolli, umvafinn allsnægtaboröi litanna í Blómavali.
Eins er spennandi að skipta yfir í
þetta form, vatnslitina. Þama hef ég
þijú element, vatn, lit og pappír. Að
nota þetta þrennt er eins og að
sleppa fuglum úr búri. Maður málar
ekki heldur leggur litina í vatnið
sem síðan rennur þangað sem það
vill fara. Um þetta fær maður litlu
ráðið og því verður maður að virða
það sem gerist á pappímum."
En er Tolli kominn í fastan farveg
núna, mun verða ein sýning á ári í
Blómavali hér eftir? „Ég er nú orö-
inn alveg saddur núna. Hins vegar
gæti þetta verið svipað því þegar
maður var á netabát í gamla daga.
Þá sagði maður alltaf að lokinni
vertíð að nú færi maður aldrei aftur
á net. Samt sneri maður aftur að
ári. En eitt er ömggt í þessu: Um
leið og ég fæ á tilfinninguna að ég sé
að gera það sama og ég gerði árið á
undan þá er þetta tilgangslaust og
ég hætti.“
En hvað er þá frábragðið í ár?
„Mér finnst ég þora meira núna. 1
myndunum er meiri kraftur og
meira öryggi, auk þess sem ég hætti
mér í hluti sem ég lagði ekki i fyrir
ári. Þar með er ekki endilega sagt
að myndimar séu betri í ár en þær
era öragglega öðruvísi,“ segir Tolli
að lokum.