Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998
5
Fréttir
Norðfirðingur á leið til Englands:
I lífvarðaskóla drottningar
DV, Neskaupstað:
„Félagi minn fann upplýsingar
um skólann á Netinu. Ég ákvað að
sækja um og eftir miklar bréfa-
skriftir og ítarlegustu upplýsingar
sem hægt er að hugsa sér, svo sem
skóstærð, hæð, þyngd, sáifræðipróf
og margt, margt fleira, var sam-
þykkt að taka mig í skólann," sagði
Norðfirðingurinn Grétar Sigurðar-
son í samtali við DV.
Hann hefur fengið inngöngu í líf-
varðaskólann PBA - Professional
Bodyguard Association - á
Englandi. Skólinn er rekinn meðal
annars af leyniþjónustunni M15,
hresku konungsfjölskyldunni og
einnig á flugfélagið SAS í skólanum.
„Það var spurt hvort ég væri með
hreina sakaskrá og ég svaraði þvi
játandi. Svo fékk ég bréf og þar var
mér bent á að sýna ýtrustu hrein-
skilni og temja mér heiðarleika því
að á sakavottorði mínu væru tvö
umferðarlagabrot og voru þau til-
greind.
Innan við 10% nemenda ná að út-
skrifast og er þremur af hverjum
Qórum lofað vinnu eftir skólann.
Samkvæmt heimildum er ég fyrsti
íslendingurinn sem fer í svona nám.
Lágmarkslaun fyrsta árið eru tíu
þúsund krónur á dag eða tvö þús-
und á tímann. Ég er búinn að æfa
mikið líkamlega og ætla mér að ná
Grétar Sigurðarson.
DV-mynd Hjörvar
DV, Akureyri:
Eyjaijarðarsveit:
Möguleiki á flokks-
pólitísku framboði
bundnu pólitísku línur. Þetta voru
E-listi sem var að hluta til skipaður
sveitarstjórnarmönnum úr gömlu
hreppunum og fékk hann 5 menn
kjöma af 7 í sveitastjóm, N-listi
fékk einn mann kjörinn og sömu-
leiðis U-listi.
Að undanförnu hefur heyrst að
Framsóknarflokkurinn hyggist
bjóða fram sérlista við kosningarn-
ar í vor og hafa þessar raddir orðið
háværari að undanfömu. Helgi Ör-
lygsson segir að aðalfúndur Fram-
sóknarfélagsins verði haldinn á
næstunni og þá muni línur skýrast
varðandi þetta mál. -gk
„Menn hafa aðeins rætt þetta
óformlega en það hefur ekkert verið
ákveðið um framboð eða ekki fram-
boð,“ segir Helgi Örlygsson, formað-
ur Framsóknarfélags Eyjafjarð-
arsveitar, um hugsanlegan mögu-
leika flokksins á framboði við sveit-
arstjórnarkosningamar þar í vor.
Við kosningarnar 1994, sem voru
fyrstu kosningamar eftir samein-
ingu fjölda hreppa í innanverðum
Eyjaflrði, komu fram þrír listar í
Eyjafjarðarsveit og má segja að allir
hafi þeir gengið þvert á hinar hefð-
D-listinn á Akranesi
DV, Akranesi:
Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á
Akranesi hefur samþykkt lista
flokksins fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Þrír núverandi bæj-
arfulltrúar flokksins eru í þremur
efstu sætunum.
Tíu efstu sætin skipa: 1. Gunnar
Sigurðsson, framkvæmdastjóri og
formaður bæjarráðs. 2. Pétur Otte-
sen verslunarmaður. 3. Elínbjörg
Magnúsdóttir fiskvinnslumaður. 4.
Jón Ævar Pálmason háskólanemi.
5. Jón Gunnlaugsson svæðisstjóri. 6.
Hrönn Jónsdóttir kennari. 7. Eirík-
ur Jónsson stýrimaður. 8. Guðrún
Hróðmarsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur. 9. Steinar Adolfsson laganemi og
10. Svanur Guðmundsson rekstrar-
ráðgjafl.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá
menn kjöma í síðustu bæjarstjómar-
kosningum og myndar meirihluta
með Alþýðubandalagi sem fékk þrjá
fulltrúa kjörna. Alþýðubandalagið
mun við komandi bæjarstjórnarkosn-
ingar bjóða fram sameiginlegan lista,
Akraneslistann, með Alþýðuflokki,
Kvennalista og óháðum. -DVÓ
próflnu. Námið er fjölbreytilegt. Til
dæmis vopnaburður og bardaga-
íþróttir og mikil áhersla er lögð á
andlegu hliðina. Námið er sérstætt
að því leyti að það eru engin sérstök
tímamörk. Mikill agi og ég á að
mæta á milli 5.00 og 5.15 á innritun-
ardaginn. Ef ég mæti of snemma
eða of seint fæ ég ekki inngöngu.
Þetta er dýr skóli og ég hefði ekk-
ert á móti því að þeir Samherja-
bræður, frændur mínir eða aðrir
slíkir myndu styrkja mig. Hver veit
nema þeir þurfi að nota mig ein-
hvern daginn. Þegar ég hef lokið
námi fæ ég alþjóðlegt atvinnuleyfi
og vopnaburðarleyfi. Ég á að mæta
19. ágúst. HS
Bílar á hagstæðum lánum
Bjóðum þessa bíla með föstum 5% vöxtum, óverðtryggö til 36 mán.
MMC Pajero, árg. ‘84.
Þú greiðir kr. 13.900
á mánuði.
Volvo 240 ‘86. Þú
greiðir kr. 10.900
á mánuði.
MMC Colt, árg. ‘90. Þú
greiðir kr. 15.900
á mánuði.
Toyota Crown, árg.
‘85 Þú greiðir kr.
13.900 á mánuði.
Mercedes Benz, árg.
‘84. Þú greiðir kr.
8.900 á mánuði.
Skoda Forman, árg.
‘92. Þú greiðir kr.
6.900 á mánuði.
Subaru Legacy, árg.
‘91. Þú greiðir kr.
24.900 á mánuði.
MMC Colt, árg. ‘87. Þú
greiðir kr. 5.900
á mánuði.
Peugeot 205, árg. ‘95.
Þú greiðir kr. 21.900
á mánuði.
Skoda Felicia Combi,
árg. ‘96. Þú greiðir kr.
19.900 á mánuði.
Chrysler LeBaron, árg.
‘89. Þú greiðir kr.
13.900 á mánuði.
Dodge Aries, árg. ‘88.
Þú greiðir kr. 8.500
á mánuði
Jeep Cherokee, árg.
‘89. Þú greiðir kr.
29.900 á mánuði.
Peugeot 405 auto, árg.
‘88. Þú greiðir kr.
17.900 á mánuði.
MMC Colt, árg. ‘91. Þú
greiðir kr. 14.900
á mánuði.
Izusu Trooper, árg.
‘89. Þú greiðir kr.
27.900 á mánuði.
Ix
1 9 4 6 - 1 9 9 6
SIMI: 554 2600
Engin útborgun.
Þú finnur ekki hagstæðari lán.
Mazda 323 F, árg. ‘90. SkiDoo Safari Rally, árg. !
Þú greiðir kr. 16.900 ‘93. Yfirbyggð kerra fylgir í
á mánuði. Þú greiðir kr. 14.900 á
mánuð.i/—-X
Aðeins 5% vextir.
1 9 4 6 - 1 9 9 6
SÍMI: 554 2600