Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Qupperneq 32
36
ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1998
onn
Ummæli
Pólitískur hrá-
skinnsleikur
„Mér skilst að þar sé ekki hús-
friður fyrir hlaupa-
seðlum frá sjálfskip-
uðum sérfræðingum í
Gullinbrúarfram-
kvæmdum. Þeir seðl-
ar eru innlegg í póli-
tískan hráskinns-
leik en ekki mál-
efnalega umræðu og
skila Grafarvogsbúum engu nema
kannski óbragði í munninn."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri, í Morgunblaðinu.
Það snjóaði
„Fyrir nokkru snjóaði í Reykja-
vík sem virtist koma borgarstjóra
í opna skjöldu."
Guðmundur Gunnarsson, form.
Rafiðnarsambandsins og íbúi í
Grafarvogi, í Morgunblaðinu.
Útrás á æflngum
„Ég skeyti skapi
minu á stökkunum
og stönginni og held;
ég megi segja að ég
sé ekki skaptnikil
fyrir utan völlinn.
Ég fæ virkilega út-
rás á æfingum og
er því eins og lamb þegar þeim
lýkur.“
Vala Flosadóttir, í DV.
Gamla tuggan
„Að lokum gamla tuggan um
loftið og ljósabúnaðinn á Kjarvals-
stöðum. Það valtar yfir allt sem
kemur þar inn, bæði myndlist og
gesti. Verkin verða líflaus og
þunglamaleg, gestirnir fá andar-
teppu og verða máttlausir af
þreytu."
Áslaug Thorlacius myndlist-
argagnrýnandi, í DV.
Fótboltafár og
annað fár
„Mér finnast þessar J
sýningar frá Japan
ofboðslega geggjað- f
ar. En miðað við fót-f
boltafárið og allt
það fár sem dynur
inn þá finnst mér þetta vera rök-
rétt framhald á vitleysunni."
Birna Þórðardóttir ritstjóri, um út-
sendingar frá ólympíuleikunum, í
DV.
Yfirkokkur á ferðalagi
„Yfirkokkur ríkissjónvarpsins
hefur lagst í heimshornaflakk og
hyggur að súpum í ýmsum heims-
hornum."
Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur,
í sjónvarpsrýni í Morgunblaðinu.
Leiðrétting
f DV í gær birtist röng mynd með
einum ummælum. í stað myndar af
Pétri Péturssyni, þuls tíl margra ára á:
RÚV, birtist mynd af Pétri Péturssyni,
fréttamanni á Stöð 2. Eru viðkomandi
beðnir velvirðingar á mistökunum. f
^ . I
d**-.
1 £& VRRRPFÖFTÍXo
ICTf? HWLVEI9I" \
RÚ9INU OEYJA ONN- \\ 7
VÖRPOM OR HLflTRl
jö&s
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftureldingar:
Fyrri hálfleik er lokið,
sá seinni er eftir
„Ég er mjög ánægður með það að
við unnum leikinn með sjö mörkum
sem er ágætt veganesti fyrir seinni
leikinn. Hins vegar var fyrri hálf-
leikurinn mjög slakur hjá okkur og
ég tel að við eigum talsvert inni og
getum spilað heilan leik
betur en við
gerðum, það
þarf bara að ná því
fram,“ segir Skúli
Gunnsteinsson,
þjálfari og leik-
maður Aftureld-
ingar í handbolta,
sem sigraði
sænska liðið Skevde í átta liða úr-
slitum í borgakeppni Evrópu, i Mos-
fellsbæ í fyrradag.
Skúli telur Skövde sterkt lið og að
það hafi alls ekki sýnt sitt besta í
leiknum í Mosfellsbæ: „Það var
Maður dagsins
greinilegt að þeirra dagskipun í
leiknum gegn okkur var að spila
agaðan sóknarleik og bíða eftir
að við gerðum mistök og það var
eiginlega það sem tókst hjá þeim í
fyrri hálfleik. Við spiluðum ágætis
vöm en þeir skoruðu mikið úr
hraðahlaupum vegna þess að við
spiluðum ónákvæma sókn. Ég
tel að okkur veiti ekkert af
þessum sjö mörkum þegar
við mætum Skovde á heima-
velli þeirra. Þeir hafa lent á
móti sterkum liðum og hafa
tapað á útivelli með fimm til
sex mörkum en vinna svo
heimaleikinn með níu mörk-
um. Það má orða það svo að
við séum yfir í hálfleik en sá
seinni er eftir."
Skúli tók við Aftureld-
ingu i haust og
hefur1 þjálfað
og leikið
með liðinu
í vetur og
er liðið nú
Skúli Gunnsteinsson.
efst í 1. deild. Hefur gengi liðsins
verið eins og hann vonaðist eftir?
„Það hefúr verið góður gangur á lið-
inu í vetur þegar á heildina er litið.
Við tókum smádýfu eftir áramót,
spiluðum illa, en tókum okkur sam-
an í andlitinu og nú er allt upp á
við. Svo er það spumingin um að
halda þetta út. Það eru fjórar um-
ferðir eftir og liðin í efstu sætum
jöfn að getu svo það má ekki mikið
bregða út af - önnur lið eru á hæl-
um okkar. Mótið er jafnara í ár en
hefur verið lengi og ég á ekki von á
öðru en að úrslitakeppnin verði
mjög spennandi, þar sem allir geta
unnið alla.“
Skúli hafði ekki hugsað sér að
spila í vetur: „Það atvikaðist þannig
að þegar erfiðlega gekk að fá Magn-
ús Má úr ÍR til okkar náðust ekki
samningar á milli félaganna og lenti
ég í þeirri aðstöðu að þurfa að spila.
Það hefur svo gerst að Magnús er
kominn til okkar og ég get farið að
gefa mér meiri tíma á bekknum,
enda tel ég mig hafa meiri yfirsýn
yfir leikinn þaðan þótt alltaf sé gam-
an að vera með í baráttunni."
Skúli er framkvæmdastjóri hjá
Gallup á íslandi og rekur fyrirtækið
ásamt félaga sínum, Kristjáni
Ágústssyni. Eiginkona Skúla er
Nína Björg Hlöðversdóttir ljós-
myndari og eiga þau tvo stráka,
Gunnstein Aron, sem verður fimm
ára í sumar, og Darra Loga sem er
að verða þriggja ára.
-HK
Þótt krókódílar geti veriö
stórir eru egg þeirra ekki
þau stærstu.
Stærstu eggin
Strúturinn verpir
stærstu eggjunum. Meðal-
stórt egg er 15-20 cm að
lengd, 10-15 cm í þvermál
og vegur 1,65-1,78 kg. Það
jafngildir þunga tveggja
tylfta hænueggja. Oft er
sagt að egg sé fullt hús mat-
ar og ef borða á strútsegg
Blessuð veröld
tekur það 40 mínútur
að sjóða það. Skum-
ið, sem er 1,5 mm að
þykkt, þolir þunga
130 kg manns. Árið
1988 verpti tveggja
ára gamall blending-
ur strúta af norður-
og suðurundirtegund
eggi sem vó hvorki meira
né minna en 2,3 kíló. Gerð-
ist það á samyrkjubúi í ísr-
ael. Á íslandi er það álftin
sem verpir stærstum eggj-
um. Eru þau um 107-118
mm að lengd og 68-74 mm í
þvermál.
Minnstu eggin
Sá fugl sem verpir
smæstu eggjunum er járn-
urtarkólibríi sem lifir á
Jamaíku. Tvö egg þessa
fugls mældust innan við 10
millímetra löng og vógu
innan við 0,4 grömm.
Myndgátan
Tugabrot
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Leikhópurinn sem tekur þátt í
syningunni.
Maður
í mis-
litum
sokkum
Nýtt, íslenskt leikrit, Maður í
mislitum sokkum, eftir Arn-
mund Backman, lögfræðing og
rithöfúnd, er sýnt í Risinu um
þessar mundir. Þaö er leikhóp-
urinn Snúður og Snælda, leikfé-
lag eldri borgara, sem sýnir leik-
ritið og er næsta sýning í dag kl.
16.
Maður I mislitum sokkum lýs-
ir ævintýri sem Steindóra, ekkja
á áttræðisaldri, lendir í fóstudag
nokkum þegar hún er að koma
út úr verslun. Atburðarásin er
spennandi og óvænt og fléttast
inn í hana ýmislegt sem snertir
aðstæöur og hugsunarhátt
þeirra sem nú eru á eftirlauna-
aldri.
Leikhús
Leikarar í sýningunni eru
Aðalheiður Sigurjónsdóttir,
Auður Guðmundsdóttir, Sigríð-
ur Haraldsdóttir, Sigrún Péturs-
dóttir, Sigurborg Hjaltadóttir,
Sigurður Ólafsson, Theódór
Halldórsson og Þorsteinn Ólafs-
son. Leikstjóri er Sigrún Val-
bergsdóttir.
Bridge
í þessu spili hafði enginn áhuga á
þvi að nota græna passmiðann fyrr
en komið var upp á fimmta sagn-
stig. Þá höfðu sagnir þegar þróast of
hátt, en það voru spilararnir í AV
sem stóðu uppi sem sigurvegarar.
Spilið kom fyrir í sjöttu rnnferð tví-
menningskeppni Bridgehátíðar og í
sætum AV voru Hjördís Eyþórsdótt-
ir og Michael Levine. Vestur var
gjafari og enginn á hættu:
* Á105
» Á954
♦ 6
* ÁD972
4 KG9643
D
♦ K1094
4 G3
N
V A
S
* 72
* K1062
4- ÁDG852
* 4
Vestur
1 4
3-f
dobl
f D8
G873
f 73
4 K10865
Norður Austur Suður
2 4 2 f- 3 4
3«f 54 5f»
p/h
Fyrsta passið kemur í níundu
sögn og ekki oft sem slík staða kem-
ur upp við bridgeborðið. Suður
hefði átt að gefa
eftir í sögnum á
fimmta sagnstig-
inu, enda er
ólíklegt að vöm-
inni takist að
gefa AV fimm
tígla samning-
inn. Fimm
hjörtu var and-
vana fæddur
samningur og
hefði meira að
segja ekki verið góður í hagstæðri
tromplegu. í þessari tromplegu
tókst sagnhafa ekki að fá nema 8
slagi og fór þ.a.l. 500 niður. Það gaf
AV 132 stig af 134 mögulegum.
Isak Öm Sigurðsson
Hjördis
Eyþórsdóttir.