Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Page 36
að.yinna FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sölarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998 Svaðilför sjö mánaða barns Ekki gekk þrautalaust að koma veiku, sjö mánaða gömlu barni úr Ólafsvík til Reykjavíkur í gærkvöld _^aog nótt. Kallað var eftir þyrlu Land- helgisgæslunnar um klukkan 9 i gærkvöld en um hálfellefu var ljóst að vegna veðurs yrði hún að snúa til baka við Dritvík. Sjúkrabíll fór með barnið af stað úr Ólafsvík um leið og ljóst var að þyrlan kæmist ekki en hann festist í skafli á Fróðárheiði. Blint var á heiðinni en færð að mestu góð. Flutningabíll kom sjúkra- bílnum til aðstoðar og dró hann upp úr skaflinum. Sjúkrabíllinn var kominn yfir heiðina um miðnætti og höfðu verið gerðar ráðstafanir til þess að hann gæti farið Hvalfjarðar- göng til þess að barnið kæmist sem fyrst undir læknis hendur. „Grunur var um að það væri með alvarlega sýkingu en útlitið er betra ^►en en á horfðist í gærkvöld,“ sagði Ólafur Gísli Jónsson, læknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, í morgun. „Ástand þess er þokkalegt en við munum hugsanlega halda því hér í rannsóknum í einhverja daga.“ -sv Hraðbankaþjófn- aður upplýstur Eldur kom upp í Gámaþjónustunni við Straumsvík snemma í morgun. Þegar slökkvilið kom á staðinn um klukkan sex logaði eldur upp úr þaki og skömmu síðar var húsið alelda. Mikið sorp var í húsinu og eldsmatur því mikill. Allt var brunnið sem brunnið gat og sáu menn ekki ástæðu til að reyna að slökkva. Álverið var aldrei í hættu þótt sorpstöðin standi við endann á því. Staðurinn verður vaktaður á meðan eldar loga. DV-mynd S i morgun Lögreglan hefur upplýst að fullu ijófnað á hraðbanka sem stolið var húsakynnum Kennaraháskólans. Fjórir menn voru viðriðnir málið. Þeir hafa allir setið í gæsluvarðhaldi að undanfomu vegna rannsóknar málsins en eru nú allir lausir. Málið er á lokastigi hjá lögreglu og verður síðan sent ríkissaksóknara. -RR * Töldu kviknað í bensíni Eldur kom upp í gamla söluskál- anum Nesti við Ártúnsbrekku í gær. Verið var að rífa skúrinn og er talið að kviknað hafi i út frá logsuðutæki. Að sögn manna hjá slökkviliðinu i Reykjavík var gríðarlega mikill reykur frá skúmum og töldu vegfar- endur að eldur væri í bensínstöðinni sem er þar við hliðina. Slökkviliðið sendi allt tiltækt lið á staðinn en þá þegar höfðu verktakamir, sem unnu við niðurrifið, byrjað að sprauta vatni á eldinn. Þeir höfðu komið vatnsbíl fyrir við hlið skúrsins ef á þyrfti að halda. Slökkviliðinu gekk , _Jjví fljótt og vel að slökkva og bensín- stöðin var aldrei í hættu. -sv Sjómannaverkfall aö nýju 15. mars semjist ekki: Enginn vilji til lagasetningar - stjórnarþingmenn skammaðir heima í héruðum Nokkuð hefur miðað i viðræðum sjómanna og útvegsmanna eftir að verkfalli var frestað til 15. mars. Deilan mun þó velta á niðurstöðu kvótanefndarinnar sem fundar stíft í því skyni að finna þann Salómons- dóm sem verði til þess að friður ná- ist milli sjómanna og útgerðar- manna eftir áralöng átök og illindi. Kvótanefndinni ber að skila niður- stöðu þann 10. mars en nú er talið að hún skili fyrr og jafnvel í næstu viku. Sjómenn frestuðu verkfalli í skugga þess að ríkisstjómin hugðist grípa til lagasetningar. Nú er sam- kvæmt heimildum DV lítill sem enginn vilji hjá stjóm- arþingmönnum til að leysa verkfall, komi til þess að nýju, með lagasetningu. Ástæða þessarar breyttu af- stöðu þingmanna er annars vegar sú að svo virðist sem almenningsálitið sé sjó- mönnum hliðhollt. Þar má nefna skoðanakönnun DV sem sýndi að um 70 prósent úrtaksins var andvígur lagasetn- ingu til lausnar verkfalli. Hins veg- ar hafa þingmenn á landsbyggðinni í mörgum tilvikum orðið fyrir að- kasti fyrir að hafa ætlað að samþykkja nauðungarlög á sjómenn enn eina ferðina. Ekki lög Einn þingmanna sem DV ræddi við sagði að ekki kæmi til greina að gripa til lagasetningar: „Þeir geta verið í verkfalli fram á haust mín vegna. Ég mun ekki standa að því að af- nema verkfall með lögum. Deiluaðil- ar verða einfaldlega að klára þetta mál.“ Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags íslands, segist bjartsýnn á að samningsaðilar nái saman áður en til þess komi að verkfall skelli á að nýju. „Ég met það svo að við munum ná saman. Það veltur þó allt á þeirri niðurstöðu sem kvótanefndin skil- ar. Ef þeir reyna að ganga yfir okk- ur þá er ljóst að verkfalli verður ekki aflýst. Náist niðurstaða hvað varðar kvótabrask og verðlagsmál þá trúi ég ekki öðru en við leysum það sem eftir stendur og þar með talda okkar frægu sérkröfu," segir Helgi. -rt Helgi Laxdal. Mokveiði á loðnumiðum í nótt DV, Akureyri: Mokveiði var á loðnumiðunum suðaustur af Hvalnesi þegar liða tók á nóttina. Fram að því var loðnan fremur dreifð en í morgunsárið fengu skipin gríðarleg köst og voru flest á leið í land skömmu síðar með fullfermi. Finnbogi Böðvarsson, stýrimaður á Víkurbergi GK, sagði að skipin stoppuðu nú stutt á miðunum og það væri stanslaus umferð í land og úr landi, eins og það ætti að vera. Skipin eru farin að sigla með aflann vestur fyrir land og á hafnir á Norð- urlandi, enda verið löndunarbið á Austfjarðahöfnum að undanfornu. Loðnufrysting fyrir Japansmark- að hófst á Austfjörðum i gær. Sumt af loðnunni sem þá harst hentaði einstaklega vel til frystingar fyrir þann markað og var hún jafnvel orðin alveg átulaus. Langmestu hefur verið landað á þremur höfnum á Austurlandi; Seyðisfirði, Eskifirði og Fáskrúðs- firði, alls um 40 þúsund tonnum, en um 70 þúsund tonn höfðu í gær- morgun veiðst á vertíðinni eftir ára- mót. Heildarafli á vertíðinni frá því sl. sumar var þá orðinn 592 þúsund tonn og rétt tæp 400 þúsund tonn eftir af útgefnum loðnukvóta. -gk Veðrið á morgun: Kólnandi veður Á morgun er búist við suð- lægri átt og rigningu með 1 til 5 stiga hita sunnan- og austan- lands en norðlægri átt, snjókomu og 0 til 5 stiga frosti norðanlands. Kólna mun enn frekar þegar líð- ur á daginn. Veðrið í dag er á bls. 37. MEFSKILEGA MERKIVELIN brother PT-220 ný véi (slenskir stafir Taska fylgir 8 leturgerðir, 6 stærðir 6, 9, 12, 18 mm borðar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.