Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1998, Qupperneq 12
30
iyndbönd
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1998
MYNDBAIjlDA
Éfi
Fever Pitch:
Lífið snýst um...
★★"Í
Þessi mynd er byggð á metsölubók eftir Nick Homby og gerist veturinn
1988-89 í London. Enskukennarinn Paul er með forfóllnustu áhugamönnum
um fótbolta sem um getur. Hann er einn af hörðustu aðdáendum Arsenal og
þennan vetur er mikið að gerast í lffi hans. Annars vegar á Arsenal mögu-
leika á að vinna Englandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í átján ár og hins veg-
ar verður hann ástfanginn af nýja kennaranum, Sarah. Hún hefur hins veg-
ar ekki hið minnsta vit á fótbolta og þaðan af síður áhuga. Til að samband
þeirra gangi upp þarf Paul að átta sig á þvi að það er fleira mikilvægt i lffinu
en fótbolti og Sarah þarf að gera tiiraun tii að skiija sjúklegan áhuga Pauls á
boltanum. Söguþráðurinn er i marga staði mjög áhugaverður og skemmtileg-
ur en nokkuð vantar upp á að nægilega vel sé unnið úr honum. Tilraunir
þeirra til að nálgast hvort annað eru grátbroslegar en eftir því sem spennan
eykst færast þau fjær hvort öðra. Nálgun þeirra í lokin virkar fremur ódýr
og skemmir svolítið fyrir. Afbragðsgóður leikur þeirra Colins Firth og Ruth
Gemmell í aðalhlutverkunum gerir myndina að ágætri skemmtun og þá er í
henni mikið nostalgíugildi fyrir Arsenal-aðdáendur, en það era víst fáir slík-
ir sem ekki muna eftir lokaleiknum gegn Liverpool á þessu tímabili.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: David Evans. Aðalhlutverk: Colin Firth og Ruth
Gemmell. Bresk, 1997. Lengd: 97 mín. Öllum leyfð. -PJ
All Men Are Liars:
Strákur í stelpnahljómsveit
★★i
Mick vantar 120 dollara til að leysa píanó móður
sinnar úr veðskuld en faðir hans hafði veðsett það á
fylliríi. Gallinn er að hann kann ekkert annað en að
spila á gítar.
Kvennahijómsveit er í bænum og vantar gítarleik-
ara en vill ekki sjá neina karlkyns umsækjendur svo
hann dubbar sig upp sem kvenmaður og fær starfið.
Hann verður ástfanginn af söngkonunni sem hefur
átt litlu karlaláni að fagna og er að hugsa um að snúa
sér að konum. Hún sýnir nýju stelpunni í bandinu
mikinn áhuga sem setur Mick í fremur einkennilega
klípu. Ástralir eru sérfræðingar í þessum léttgeggjuðu jaðarkómedíum
og hafa gert margar slikar upp á síðkastið. Þessi mynd er ágætur full-
trúi þessarar kvikmyndastefnu. Þegar allt kemur til alls er þetta hefð-
bundin ástarsaga en hún fer bara óhefðbundnar leiðir að endamarkinu.
Myndin er oft skemmtileg og áhugaverð og leikaramir standa fyrir sínu.
Sérstaklega eru David Price og Jamie Petersen góðir í hlutverkum hinna
ólíku feðga.
Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Gerard Lee. Aöalhlutverk: Toni Pearen
og Jamie Petersen. Áströlsk, 1995. Lengd: 89 mín. Öllum leyfð. -PJ
★★★
Conspiracy Theory:
Samsæri í hverju horni
Hér segir frá Íeigubílstjóranum Jerry Fletcher
sem. er truflaður á geði og sér samsæri í hverju
homi. Hann trúir lögfræðingi í dómsmálaráðuneyt-
inu fyrir kenningum sínum en hún tekur eðlilega
ekki mikið mark á honum. Fljótlega kemur þó í ljós
að eitthvað er dularfullt við fortíð hans og þegar
CIA og FBI fara að eltast við hann reynir hún að
hjálpa honum að flnna fortíðardrauga sína. Þessi
mynd er bara prýðisgóð skemmtun og er það fyrst
og fremst góðum leik Mels Gibsons í aðalhlutverk-
inu að þakka, en honum tekst að gera skemmtilega
og áhugaverða persónu úr Jerry Fletcher. Þá er Julia Roberts óvana-
lega þolanleg og Trekkarinn Patrick Stewart smellpassar í hlutverk
skúrksins. Sagan tekur fyrir vel þekktar klisjur en gerir það á frumleg-
an hátt lengst af. Þrátt fyrir að týna sér í lokin er söguþráðurinn lengst
af áhugaverður. Richard Donner, Joel Silver og Mel Gibson hafa áður
átt samstarf með góðum árangri í Lethal Weapon-myndunum en Con-
spiracy Theory er ívið betri.
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Richard Donner. Aðalhlutverk: Mel
Gibson og Julia Roberts. Bandarísk, 1997. Lengd: 130 mín. Bönnuð inn-
an 16 ára. -PJ
Romy and Michele s High School Reunion
Heimskar Ijóskur ★** _
Romy og Michele hafa alltaf verið hálf-utangátta í
veröldinni. í menntaskóla voru þær ekki nógu gáfað-
ar/fallegar/skemmtilegar eða hvað sem annars
þurfti til að tilheyra einhverjum hópnum - klapp-
stýrugenginu, listagenginu, eða jafnvel nördageng-
inu. Þær una þó glaðar við sitt en þegar þeim er boð-
ið í tíu ára útskriftarafmæli finnst þeim sem þær
hafl ekki náð alltof miklum árangri í lffinu. Hvorug
þeirra á kærasta, Michele er atvinnulaus og Romy
vinnur í afgreiöslu bílastæðahúss. Þær ákveða þvi
að spinna upp velgengnissögu og slá í gegn í út-
skriftarafmælinu. Heimsku ljóskumar Romy og Michele eru stereótýp-
ur í húð og hár. Myndin tekur að sér að gera klisjumar fyndnar og
áhorfendur ættu flestir að geta hlegið að þeim og einnig með þeim.
Léttgeggjuðum húmomum í myndinni svipar nokkuð til hinnar stór-
góðu Clueless, þótt myndin nái reyndar ekki alveg þeim hæðum - til
þess er hún ekki alveg nogu snjöll. Þær stöllur standa sig vel í aðalhlut-
verkunum. Mira Sorvino sló einmitt í gegn fyrir að leika heimska ljósku
i Mighty Aphrodite en Lisa Kudrow stelur þó senunni og gæti varla ver-
ið tómlegri.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: David Mirkin. Aðalhlutverk: Mira Sor-
vino og Lisa Kudrow. Bandarisk, 1997. Lengd: 92 mín. Öllum leyfð. -PJ
Myndbandalisti vikunnar
CKTI FYRRI j VIKUR
SÆTI! VIKfl fl LISTA)
i J
Ný
Ný
I
24. febr. - 2. mars
TITILL j IÍTGEF.
t
J Warner-myndir
Conspiracy Theory
Bean
Speed 2
Breakdown
Addicted To Love
Romy An d Michele's High.,
Double Team
Murder At 1600
The Chamber
Háskólabíó
Skrfan
Sam-myndbönd
Warner-myndir Gaman
. J
Sam-myndbönd Gaman
Skrfan
Spenna
Warner-myndir Spenna
ClC-myndbönd Spenna
10 7 ‘J / ' 5 I Grosse Point Blank Sam-myndbönd ,, 8 .. / Gaman
11 u 3 Night Falls On Manhattan Sam-myndbönd Spenna
, 12 8 j 6 Men In Black Skífan J Gaman
13 10 3 ! Marvin's Room Skífan Drama
14 mmt 12 8 j Devil's Own Skífan Spenna
15 13 3 J Mchaley's Navy ClC-myndbönd Gaman
is ~ Ný i ! Fever Pitch Háskólabíó Gaman
17 Ný 1 1 Truth or Consequences Skífan Spenna
18 J 14 9 i Absolute Power Skífan Spenna
19 15 4 TwinTown Háskólabíó Gaman
20
Ný
Swingers
Skífan
Gaman
Mr. Bean fékk ekki lengi að sitja í efsta sæti myndbandalist-
ans. Sakamálamyndin Conspiracy Theory með þeim Mel Gib-
son og Juliu Roberts kemur stormandi inn í 1. sæti og verður
sjálfsagt erfitt að ýta henni þaðan í bráð. í sjötta sæti listans
er einnig ný mynd Romy and Michele’s High School Reunion,
sem fjallar um tvær Ijóskur sem komast að því að þær hafa frá
engu merkilegu að segja úr lífi þeirra þegar gamlir skólafélag-
ar hittast og skálda því í nokkrar eyður. í sextánda sæti er at-
hyglisverð bresk mynd, Fever Pitch, sem ætti að gleðja alla
fótboltaáhugamenn, sérstaklega aödáendur Arsenal, þvi
myndin fjallar um kennara einn sem er léttgeggjaöur í fót-
boltaáráttu sinni. í næsta sæti fyrir neðan er svo sakamála-
mynd meö Kiefer Sutherland, Mykelti Williamson og fleirj
þekktum leikurum. Sutherland leikstýrir.
-HK
Conspiracy
Theory
Mel Gibson og
Julia Roberts.
Jerry Fletcher,
leigubílstjóri í New
York, er með samsæri
á heilanum. 1 hans
augum er allt fyrir-
fram skipulagt og
hvert sem hann lítur
sér hann ekkert nema
djöfullegar ráðagerðir.
Alice Sutton er sak-
sóknari sem Jerry leit-
ar til með samsæris-
kenningar sinar. Hún
hefur ekki mikla trú á
þvi sem hann segir en
hefur samt sínar grun-
semdir um að ekki sé
allt vitleysa. Þegar
kemur i ljós að ein af
kenningum Jerrys
reynist sönn fær hún
áhuga á máli hans og
saman leggja þau upp i
ferðalag til að leita að
sannleikanum.
ufthiiij' hluiOLt: jfibu.*, þfjijjj,
Rowan Atkinson
og Burt Reynolds.
Hinn auðugi
Newton ákveöur að
gefa Grierson- lista-
safninu í Kalifomiu 50
milljónir dollara til að
festa kaup á einu fræg-
asta málverki bandarí-
skrar listasögu, Móður
flautarans, og flytja
það aftur „heim“. Þeir
bjóða stjóm Þjóðlista-
safhsins i Englandi að
senda sinn besta mann
með verkinu án þess
að vita að Þjóð-
listasfanið hefur um
nokkurt skeið reynt
allt sem hægt er til að
losna við einn starfs-
mann sinn, Bean. Þeir
sjá sér leik á borði og
senda herra Bean meö
verkið og að sjálfsögðu
setur hann allt á ann-
an endann i Kalifom-
íu.
J?Lf
Speed 2
Sandra Bullock
og Jason Patrick.
Annie Porter og
kærasti hennar hafa
ákveðið að gera sér
dagamun og njóta lífs-
ins um borð i einu
glæsilegasta skemmti-
ferðaskipi heims sem
siglir um Karíbahafið.
Skemmtiferðin breyt-
ist I andhverfu sína
þegar snælduvitlaus
tölvusnillingur tekur
öll völd um borö og
hyggst tortíma skip-
inu. Áður en varir er
Annie Porter komin í
svipaða stöðu og í rú-
tunni forðum. Það er
nefnilega undir henni
og kærasta hennar
komið hvort ferðin fær
þann ógnarendi sem
brjálæðingurinn stefn-
ir að.
Breakdown
Kurt Russell og
Kathleen Quinlan.
Hjónin Jeff og Amy
Taylor era á ferð um
eyðimörk til nýrra
heimkynna þegar bíll-
inn þeirra bilar. Flutn-
ingabíll birtist þeim
stuttu siðar og eftir
smáhik ákveða þau að
taka boði bílstjórans
um að Amy fari með
honum til söluskála í
nágrenninu og útvegi
viðgerðarmann á með-
an Jeff biöur hjá bíln-
um. Það líður ekki
langur tími frá þvi
flutningabíllinn er
kominn úr augsýn þar
til Jeff uppgötvar hvað
er að bílnum. Hann
ekur að söluskálanum
til að ná í Amy en hún
er ekki þar og enginn
þar þykist hafa orðið
hennar og bílstjórans
var ...
Addicted to
Love
Meg Ryan og Matt-
hew Broderick.
Sam er stjömufræð-
ingur og Maggie er list-
fræðingur. Þau glíma
við sama vandamáliö,
era bæði i ástarsorg.
Þannig vill til að fyrrum
unnusta Sams og kær-
asti Maggie búa saman í
New York. Þau rekast
því hvort á annað þar
sem bæði eru að fylgjast
með ferðum elskend-
anna. Smám saman
kynnast þau og innan
skamms er Maggie búin
að sannfæra Sam um að
eina leiðin fyrir hann til
að vinna unnustu sína
aftur sé að hann hjálpi
henni að eyðileggja allt
fyrir fyrrum kærasta
hennar. Sam lætur
sannfferast og áður en
varir hrinda þau í fram-
kvæmd djöfullegum að-
gerðum.