Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1998, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1998, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 1. APRIL 1998 26 matur og kökur Heimatilbúið fermingarhlaðborð: - segir Bergþóra Ólafsdóttir sem hár gefur uppskriftir „Þetta borð er mjög einfalt og þægi- legt og ekki mjög dýrt. Það er hægt að undirbúa það með góðum fyrirvara sem kemur sér vel þegar veislan er heima. Á fermingardaginn gerði ég ekkert annað en að hita pottréttinn og bera á borð,“ sagði Bergþóra Ólafs- dóttir sem haldið hefur tvær ferming- arveislur í heimahúsi. í bæði skiptin bauð hún upp á þri- réttaðan kaldan forrétt og heitan pott- rétt í aðalrétt. Að eigin sögn fannst henni þörf á því að koma með eitt- hvað ferskt og létt á móti pottrétt- inum. Forrétturinn samanstóð af fisk- rétti með dressingu, tvenns konar síld með rúgbrauði og kjúklingapaté. Með pottréttinum var hún með hrísgrjón, hrásalat og heitt brauð. Hún var reyndar líka með ostabakka og bar fram marsipantertu og ístertu með kaffinu örlítið seinna um kvöldið. „Skipulagningin er aðalatriðið, þ.e. að gera innkaupin tímanlega, útbúa réttina í réttri röð og hafa t.d. helst ekki nema einn rétt sem þarf að fara í ofn. Hlaupréttinn og pottréttinn er hægt að útbúa daginn áður og geyma í kæli en paté má útbúa tveimur dög- um áður. Með paté má bera fram rist- að brauð ef fólk vill eða létt grænmeti, t.d. niðursaxaðar gúrkur." Hún gefur hér þrjár uppskriftir en eina þeirra, hrísgrjónasalat með sjáv- arréttum, þarf að búa til samdægurs. Bergþóra var með 40 manna veislu og lét duga einfalda uppskrift að kjúklingapatéinu (2 form) en tvöfald- aði hrísgrjónasalatið og þrefaldaði hlaupréttinn. Bergþóra, sem haldiö hefur tvær fermingarveislur í heimahúsi, gefur hér góö ráö og uppskriftir. DV-mynd E.ÓI. Hrísgrjónasalat með sjávarréttum (þarf að útbúa samdægurs) 2 dl hrísgrjón 400 g rækjur 400 g hörpuskel 3 tómatar 2 grænar paprikur safi úr 2 sítrónum Sjóðið grjónin og kælið. Snögg- sjóðið hörpuskelina og kælið. Saxið tómata og papriku smátt og blandið öllu saman í skál. Setjið sítrónusafa út í og kælið. Gott er að hafa létta sósu með (sjá uppskrift úr rækju- hlaupi) og nota þá steinselju. Rækjur og rauðspretta í hlaupi (má útbúa daginn áður) 10-12 lítil rauðsprettuflök u.þ.b. 400 g hreinsaðar rækjur 2 harðsoðin egg 1/2 knippi dill 1 bréf ljóst soðhlaup frá Toro (má bragðbæta með sítrónu eða hvítvíni) Hreinsið fiskinn, sjóðið og kælið. Raðið fallega í form (1 stk.) fiski, Halldór Sigurös- son, konditor og bak- ari, gefur uppskriftir og ráöleggingar varö- andi bakstur á kransa- kökudeigi. Hann heldur á sprautupoka með til- búnu kransakökudeigi í. DV-mynd Hilmar Pór Bragðgott og skemmtilegt á páskaborðið: Kransakökuegg með páskaunga Halldór Kr. Sigurðsson, bakari og konditor, gefur hér einfaldar uppskriftir að kransakökupáska- eggi og kransaköku. Páskaeggið er sérstaklega einfalt því deigið fæst tilbúið frá Odense i næstu verslun í sérstökum sprautupoka. Halldór er lærður bakari og fór síðán til Danmerkur að nema köku- list á einu frægasta konditori í Dan- mörku, Kransakökuhúsinu sem sér- hæfir sig í kransakökum. Hann út- skrifaðist þaðan í október sl. og starfar nú lijá Myllunni. Hann hefur m.a. haldið námskeið í konfektgerð og ýmsu því sem lýtur að kökugerð. Kransa- kökupáskaegg 2 pokar tilbúið kransa- kökudeig (frá Odense) 100 g dökkir súkkulaðidrop- ar (frá Odense) flórsykur og eggjahvitur í glassúr sykurbráð ef vill Teiknið 4 hringi á blað, tvo ávala fyrir eggið og tvo kringlótta fyrir standinn. Innanmál ávölu hringjanna er u.þ.b. 10 sm á breiddina og 15 sm á hæðina og ut- anmál þeirra u.þ.b. 15 sm á breidd- ina og 20 á hæðina. Innanmál kringlóttu hringjanna er u.þ.b. 8 sm og utanmál þeirra 12 sm. Leggið smjörpappír yfir blaðiö með áteiknuðu hringjunum, sprautið massanum eftir þeim. Setjið á bökun- arplötu og bakið við u.þ.b. 200 gráður í u.þ.b. 8 mín. Látið hringina kólna og sprautið síðan á þá með glassúr til skreytingar (upplagt að búa til lítið kramarhús úr smjörpappír og nota sem sprautu). Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og notið til að festa hringina saman. Skreytið eggið síðan með páskaunga og t.d. Mackintosh- molum (má líka festa þá með sykurbráð). Kransakaka (20 manna) 800 g Bage marsipan (frá Odense) Laugavegi 36, Torginu Hverafold og Langarima, Rvík. PöntunarsÉni 551-3524 \ rækjum, eggjum og dilli. Útbúið hlaupið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum og hellið varlega í form- ið. Kælið. Dýfið forminu snöggvast í heitt vatn og hvolfið innihaldinu síðan á fat. Skreytið með salatblöð- um, dilli og sítrónubátum. Gott að bera fram með léttri sósu úr u.þ.b. 50 g af majonesi, 2 dl af sýrðum rjóma, safa úr 1 sitrónu og fint söx- uðum kryddjurtum (steinselju eða dilli). Kjúklingapaté (má útbúa 2 dögum áður) 1 kjúklingur 2 msk. smjör 2 msk. hveiti 4 dl mjólk 1 tsk. salt 1/2 tsk. pipar 1 tsk. Eðal kjúklingakrydd frá Pottagöldrum 4 egg fersk steinselja Sjóðið kjúklinginn. Takið allt kjötið af honum á meðan það er heitt og setjið í mixara. Gerið jafn- ing úr smjöri, hveiti og mjólk og setjið kryddið og steinseljuna út í. Kælið jafninginn örlítið og hrærið eggin svo út í með handþeytara. Blandið kjötinu saman við og setj- ið allt í tvö form. Setjið álpappír yfir formið og bakið í ofnskúfiú með vatni í u.þ.b. 40-50 min. við 190 gráða hita. Takið álpappírinn af síðustu 15 mín. Stingið prjóni í formið til þess að athuga hvort þetta er bakað. Bakið það lengur ef roði er í safanum. Hvolfiö þessu á fat og skreytið með salatblöðum og sultuðum litlum gúrkum. Svona er rúllan gerð þríhyrnd. DV-myndir Hilmar 400 g sykur 1-2 eggjahvítur (eftir stærð eggj- anna) flórsykur og eggjahvitur í glassúr Hrærið marsipani og sykri vel sam- an og bætið eggjahvítu síðan út í. (Massinn á að vera dálítið stífur.) Skiptið massanum síðan niður í sex stykki (200 g hvert) og rúllið hverju þeirra út í 50 sm lengju (notið hend- urnar). Pressið síðan ofan á lengjuna með hendinni svo að rúllan verði u.þ.b. þríhyrnd á borðinu (sjá mynd) en við það lengist hún um 3-4 sm (verður 53-54 sm). Fyrsti hringurinn á að vera u.þ.b. 8 sm á lengd og hinir alltaf 11/2 sm lengri en sá síðasti (fyrst 8 sm, svo 91/2, svo 11 o.s.frv.) þar til 16 hringj- um er náð. Lengjurnar eru síðan formaðar í hring og þeim raðað á bök- unarplötu. Notið aðra bökunarplötu til þess að þrýsta örlítið niður á alla hringina svo auðveldara sé að raða þeim saman. Bakið við u.þ.b. 200 gráð- ur í u.þ.b. 8 mín. Kælið hringina (ekki verra að frysta þá ef þið hafið tima en þá tekur það 1 til 11/2 klst. að þíða þá aftur) og sprautið á þá með glassúr til skreytingar. Notið einnig glassúr til að festa hringina saman. Skreytið með Mackintoshi og festið það með heitum sykri (sykurbráð).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.