Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1998, Blaðsíða 9
• * *
MIÐVlKUDAGUR 1. APRÍL 1998
iatur og kökur
Allir þurfa aðstoð
í eldhúsinu n
PROFI matvinnsluvélin
frá AEG er fyrir heimilið
og fagmanninn
Fullkomin rafeindastýrð hrærívél.
Hnoðar,hrærir,hakkar,rrfur,tætir ofl.
Tekur 1,5 Kg.
Tvær skálar og einn blender.
550 W
_BRÆÐURNIR
momssou
Lágmúlo 8 • Sími 533 2800
Kr
. 27,900.- stgr. J
Sigríður gefur okkur uppskrift að franskri ostaköku sem hún segir vera í
miklu uppáhaldi hjá sjö ára syni sínum.
Veðurteppt
í hríðarbyl
- en nóg að bíta og brenna
manna ?
77 ^ / ,
tiressoterta
„Við reynum yfirleitt alltaf að
fara út úr bærtum um páskana, ég,
maöurinn minn og sonur. Jólin
eru tími ættingja og vina en um
páskana undanfarin ár höfum við
haft það markmið að fá algjöra
hvíld. Það tekst hejst með því að
leigja sumarhús og dvelja þar yfir
páskahátiðina í hálfgerðri ein-
angrun. Við tökum með okkur nóg
af spilum og bókum og hlustum
mikið á útvarpið," sagði Sigríður
Arnardóttir, ritstjóri og fyrrum
dagskrárgerðarmaður.
„Fyrir 2-3 árum leigðum við
sumarhús í Vík í Mýrdal. Við
ókum þangað í góðu veðri með
fullan bíl af góðum mat og höfðum
hugsað okkur að stunda mikla úti-
vist. Þegar við vöknuðum daginn
eftir var hins vegar komið brjálað
veður sem stóð alla páskana. Það
var þvílíkur bylur að við sáum
ekkert út um gluggann og bílinn
fennti í kaf.
Þetta varð alveg dásamlegt
páskafrí því þarna vorum við inni
í litlum sumarbústað fullum af
mat og styttum okkur stundir við
að hlusta á útvarpið, lesa og fara í
leiki. Við vorum hvorki með sjón-
varp né síma og það myndaðist því
hálfgerð baðstofustemning. Þegar
fríið var búið stytti upp, við gróf-
um bílinn úr fönn og ókum í bæ-
inn alveg endumærð. Þetta fannst
syni mínum vera besta páskafrí-
ið.“
Aðspurð sagði Sigríður sínar
matarvenjur um páskana vera
mjög frjálslegar. Henni finnst þó
tilheyra að borða lambakjöt og
sagðist oft hafa heilgrillaö lamba-
læri í sumarhúsinu. „Svo gætum
við þess að hafa nóg af páskaeggj-
um og sælgæti en þetta er eini
tími ársins sem maður fær sér
sælgæti í morgunmat, þ.e. páska-
egg með mjólk.“
Frekar en að gefa uppskrift að
lambalæri vildi Sigríður gefa okk-
ur uppskrift að franskri ostaköku
sem hún tekur alltaf með sér í
sumarbústaðinn um páskana.
„Sonur minn, sem er sjö ára, er
sólginn í þessa ostaköku, enda er
hún alveg frábær."'
Frönsk ostakaka
Kremið:
1 pk. Royal sítrónuhlaup
1 bolli heitt vatn
250 g ijómaostur
1 bolli sykur
safi úr 1 sítrónu
1/2 dós marinn ananas
1 peh þeyttur ijómi
Blandið saman sítrónuhlaupi og
heitu vatni. Kælið. (Hlaupið er selt í
stórum pökkum með 5 skömmtum,
ekki nota það allt.) Þeytið rjómann.
Setjið rjómaost, sykur og
sítrónusafa í skál og þeytið vel sam-
an. Bætið ananas (síið safann vel
frá), kældu hlaupinu og þeytta ijóm-
anum saman við.
Botninn:
1/2 pk. Digestive-kex frá
McWities (u.þ.b. 12 kökur)
100 g smjör
1 msk. sykur
100 g malaðar möndlur
Myljið kexið í matvinnsluvél og
brúnið það á pönnu í smjörinu
ásamt sykrinum og möndlunum.
Látið kexmulninginn í kringlótt
form og setjið kremið ofan á. Látið
kökima stífna í ísskáp yfir nótt.
Gott að skreyta með ferskum ávöxt-
um, t.d. jarðarberjum, mandarínu-
bátum eða kíví.
SuáurlandsLi
568 8406
t 32
iK
i jerminguna
aðeins kr. 1.950.
Hinn eini sanni
Smári á Hressó
bakar Hressó tert-
urnar sjálfur. Þcer
eru alltaf til, alJtaf
ferskar og eingöngu
með ekta rjóma.