Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998
íþróttir
Deildabikarinn:
A-riðlU:
Keflavlk-Grindavlk . . . .... 4-1
Sjálfsmark, Guðmundur Steinarsson,
Þórarinn Kristjánsson, Gunnar
Sveinsson - Sigurbjöm Dagbjartsson.
Selfoss-FH .... 0-5
Brynjar Gestsson 2, Jón G Gunnars-
son 2, Hörður Magnússon.
FH 6420 14-4 14
Keflavik 6 4 11 17-6 13
Grindavik 6 114 9-12 4
Selfoss 6 10 5 5-23 3
B-riðUl:
Fylkir-Víðir .... 2-2
Gylfi Einarsson, Jóhannes Kolbeins-
son - Atli Vilhelmsson 2.
ÍBV-Valur .... 3-3
Sigurvin Ólafsson, Steingrímur Jó-
hannesson, Sindri Grétarsson - Jón
Þ. Stefánsson, Ólafur Stígsson, Amar
H. Jóhannsson.
ÍBV 5 4 10 2S4 13
Valur 5 4 10 21-6 13
Fylkir 5 2 12 14-11 7
Víðir 5 12 2 16-14 5
Sindri 4 0 13 2-11 1
Þróttur N. 4 0 0 4 3-35 0
C-riðill:
Fjölnir-Njarðvik .... 0-1
Freyr Sverrisson.
Leiftur-lR .... 2-3
- Amljótur Davíðs 2, Kristján Brooks.
ÍR 5 3 2 0 14-4 11
Leiftur 4 3 0 1 17-3 9
HK 5 3 0 2 10-11 9
Þór A. 4 2 11 7-3 7
Njarövík 5 10 4 2-17 3
Fjölnir 5 0 14 3-15 1
Þór og Leiftur leika á morgun.
Vinni Þór kemst liðið í 16-liða
úrslitin en ef ekki fer HK áfram.
D-riðUl:
KR-Stjarnan .... 0-1
Veigar Gunnarsson.
Leiknir-Afturelding . . . .... 1-0
Arnar Freyr Halldórsson.
KA-KS .... 2-2
Höskuldur Þórhallsson 2 - Jóhann
Möller 2.
Stjaman 5 4 0 1 9-3 12
KR 5 2 2 1 9-5 8
Leiknir R. 5 2 12 10-8 7
Afturelding 5 2 12 5-5 7
KA 5113 6-10 4
KS 5 113 6-14 4
E-riðill:
lA-Þróttur R .... 2-0
Steinar Adolfsson, Ragnar Hauksson.
Dalvík-Völsungur .... 3-2
örvar Eiriksson 2, Arnar Már
Arnþórsson - Ásgeir Baldurs, Baldur
Aðalsteinsson.
BreiðabUk-Reynir S .... .... 7-0
Kjartan Einarsson 3, Bjarki Péturs-
son 2, Sævar Pétursson, Atli Krist-
jánsson.
Breiðablik 5 4 0 1 25-7 12
ÍA 5 4 0 1 18-5 12
Þróttur R. 5 3 0 2 14-5 9
Völsungur 5 3 0 2 7-12 6
Dalvik 5 2 0 3 5-19 6
Reynir S. 5 0 0 5 0-21 0
F-riðUl:
Ægir-Haukar .... 0-1
Darri Johansen.
SkaUagrlmur-Tindastóll .... 6-4
Hjörtur Hjartarson 3, Valdimar K.
Sigurðson 2, Stefán Ólafsson - Jó-
hann Steinarsson 2, Ólafur Adolfsson,
sjálfsmark.
Víkingur-Fram .... 1-3
Haukur Úlfarsson - Anton B. Mark-
ússon 2, Þorbjöm A. Sveinsson.
TindastóU 5 4 0 1 10-8 12
Fram 5 3 11 18-6 10
Haukar 5 3 0 2 4-5 9
SkaUagr. 5 2 12 14-9 7
Víkingur R. 5 2 0 3 5-6 6
Ægir 5 0 0 5 3-20 0
16-liða úrslitin á miðvikudag:
FH-Fylkir
Stjaman-Haukar
TindastóU-KR
Keflavík-ÍA
Valur-Fram
IBV-HK/Leiftur
ÍR/Leiftur-Þróttur
Breiðablik-ÍR/Leiftur/Þór -GH
Haukar fögnuðu innilega í leiksiok eftir aö hafa lagt Stjörnuna aö velli í fjóröa úrslitaleik liöanna í Hafnarfiröi í gærkvöldi. Meö sigrinum tryggöu Haukar sér oddaleik
sem fram fer f Garðabæ á morgun. Petta er þriöja áriö í röö sem Haukar og Stjarnan þurfa að spila 5 leiki til aö fá úr því skoriö hvort félagið hampar
íslandsmeistaratitlinum en tvö undanfarin ár hafa Haukar unnið titilinn. DV-mynd Brynjar Gauti
- Haukar lögöu Stjörnuna í frábærum leik - Hreinn úrslitaleikur á morgun
Þetta er nánast að verða hefð í kvennahandbolt-
anum. Stjarnan og Haukar munu mætast i oddaleik
um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna
á laugardag í Garðabænum þriðja árið i röð. Þetta
varð ljóst eftir að Haukar sigruðu Stjömuna, 28-25,
í Strandgötunni í gærkvöld í leik sem var til mik-
ils sóma fyrir íslenskan kvennahandknattleik.
Frábær sóknarleikur beggja liöa í fyrri
hálfleik
Það varð ljóst strax í byijun að fleiri mörk yrðu
skoruð í þessum leik en fyrri leikjum. Sóknarleik-
ur beggja liða var til hreinnar fyrirmyndar á með-
an heldur minna fór fyrir vöm og markvörslu.
Þetta átti reyndar eftir að breytast þegar Alma
Hallgrímsdóttir kom í mark Hauka um miðjan
fyrri hálfleik. Þegar Stjaman náði þriggja marka
forystu í fyrri hálfleik og virtist vera að stinga af
tóku Alma og vöm Hauka sig til og stöðvuðu þrjár
af næstu fjóram sóknum þeirra og náðu aö jafna. í
hálfleik var staðan jöfn,16-16.
Enn var jafnt á öÚum tölum fyrstu tíu mínútum-
ar í síðari háifleik en í stöðunni 20-20 fór allt í bak-
lás hjá Stjömunni. Þær gerðu ekki mark í rúmar
níu mínútur og á þessum kafla kom Guðný Agla
Jónsdóttir tvisveir í mark Hauka til að taka
vítakast og varði þau bæði á glæsilegan hátt. í stöð-
unni 24-20 tók þjálfari Stjömunnar leikhlé og þá
var ákveðið að taka Judith Ezstergal úr umferð.
Við þetta riðlaðist sóknarleikur Hauka og Stjaman
nýtti sér það og gerði þrjú mörk í röð á tæpum
tveimur mínútum.
Alma góö í marki Hauka
Nær komust þær ekki og Haukar héldu haus og
náðu að tryggja sér sigurinn með góðum loka-
spretti. Þar vóg markvarsla Ölmu þungt þar sem
hún varði tvívegis úr opnum færum síðustu þrjár
mínútur leiksins.
Bæði liöin áttu skínandi leik í gærkvöldi og var
það einkum góður sóknarleikur sem gladdi augað í
leik liðanna. Vöm Hauka var hins vegar heldur
beittari en vöm Stjömunnar og það réði í raun úr-
slitum í leiknum. Erfitt er að tína til einstaka leik-
menn úr hvora liði. Alma varði mjög vel I marki
Hauka og ekki má gleyma þætti Guðnýjar Öglu í
vítunum. Harpa, Judith, Telma og Hulda áttu
einnig mjög góðan leik, sem og flestir aðrir í
Haukaliðinu.
Stjörnuvörnin ekki góð
Stjaman lék góðan sóknarleik og hefði sennilega
náð lengra með beittari vöm og þar af leiðandi
betri markvörslu. Herdís var sem fyrr best hjá
Stjömunni en skyttumar Ragnheiður, Nína og Inga
komust einnig vel frá sínu. Lijana Sadzon hefúr
hins vegar oft leikið betur i markinu en þar er við
vömina að sakast. m
Auöur Hermannsdóttir er hér í kröppum dansi vib Ingu Fríbu Tryggvadóttur,
leikmann Stjörnunnar, í leik liöanna í Strandgötunni í gær.
DV-mynd Brynjar Gauti
KR og Breiðablik unnu
KR sigraði ÍA, 4-0, í deildabikarkeppni kvenna í knattspymu í gær.
Olga Færseth, Hrefna Jóhannesdóttir, Helena Ólafsdóttir og Guölaug
Jónsdóttir skoruðu mörkin. í fyrrakvöld sigraði Breiðablik lið Vals, 2-1.
Margrét Ólafsdóttir skoraöi bæöi mörk Blika en Ásgerður Ingibergsdóttir
skoraöi fyrir Val. -GH
Fann mig vel
„Ég fann mig vel í leiknum.
Heimavöllurinn á stóran þátt í
því, sem og áhorfendur. Þeir
peppa mann upp. Sigurviljinn
hefur lika mikið að segja. Það
kom ekki annað til greina en að
fara með þetta í oddaleik enda-
höfum við góða reynslu af því.
Við tökum þetta á laugardaginn,
ég lofa því,“ sagði Alma Hall-
grímsdóttir, hetja Hauka i leikn-
um.
Ætlum alla leið
„Þetta var spennuleikur eins
og hann gerist betur en það er
náttúrlega ekki gaman að tapa
svona leik. Við voram hins veg-
ar að spila hræðilega vöm og
þar með náði markmaðurinn sér
ekki á strik. Við geram hins veg-
ar betur í næsta leik. Við ætlum
okkur alla leið i ár, það er engin
spuming. Fyrst það þarf að
koma til fimmta leiks þá verður
sigurinn þar og þá bara enn sæt-
ari á heimavelli," sagði Herdís
Sigurbergsdóttir, fyrirliði Stjöm-
unnar.
-HI
„Kemur
bara
í ljós“
- segir Sigfús Sigurðsson
sem æfði með Lemgo
Sigfús Sigurðsson, línumaðurinn
sterki úr Val, fór til Þýskalands í byrj-
un vikunnar og æfði með Lemgo fram
að norrænu meistarakeppninni sem
hófst í Gautaborg í gær.
Ég æfði meö liðinu í tvo daga og út-
koman úr því verður bara að koma í
ljós. Mér var ekki boðinn samningur en
tíminn verður að leiöa það í ljós hvort
af þvi verður,“ sagði Sigfus við blaða-
mann DV eftir leikinn gegn Red-
bergslid í gærkvöld. Sigfús sagðist hafa
verið þreyttur i leiknum en hann var 14
tíma á ferðalagi frá Þýskalandi til
Gautaborgar. -EH/JKS
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998
35
íþróttir
Norræna meistarakeppnin i handknattleik:
Valur stóö í Svíunum
- KA og Valur töpuðu fyrir Runar og Redbergslid
Haukar (16) 28
Stjaman (16)25
1-0, 3-2, 3-4, 5-5, 7-7, 8-11, 10-13,
13-13, 15-15, (16-16), 18-18, 20-20,
24-20, 24-23, 26-25, 28-25.
Mörk Hauka: Harpa Melsteð 6/1,
Hulda Bjarnadóttir 6, Judith
Ezstergal 5/1, Thelma Árnadóttir 5,
Auður Hermannsdóttir 4, Björg
Gilsdóttir 1, Hanna G. Stefánsdóttir 1.
Varin skot: Alma Hailgrímsdóttir
17, Guðný Agla Jónsdóttir 3/2.
Mörk Stjömunnar: Herdis
Sigurbergsdóttir 7, Ragnheiður
Stehpensen 5/1, Nína K. Bjömsdóttir
4, Inga Friða Tryggvadóttir 3, Inga S.
Björgvinsdóttir 2, Anna B. Blöndal 2,
Hrund Grétarsdóttir 1, Lijana Sadzon
1.
Varin skot: Lijana Sadzon 12/1.
Brottvísanir: Haukar 2 mín.,
Stjaman 4 mín.
Áhorfendur: Rúmlega 600 í
troðfullu húsi.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og
Stefán Arnaldsson. Frábærir.
Maður leiksins: Alma
Hallgrímsdóttir, Haukum.
Handbolti:
Bjarki með
14 mörk
Bjarki Sigurðsson var í mikl-
um ham með Drammen þegar
liðið vann sigur á Herkules,
40-34, í síðari leik liðanna um
sæti í borgarkeppni Evrópu á
næsta tímabili.
Bjarki gerði sér lítið fyrir og
skoraði 14 mörk í leiknum og
var maðurinn á bakvið sigur
sinna manna. Drammen leikur
því í borgarkeppninni að ári en
liðið vann Herkules samanlagt,
75-65. -GH
Valur og KA töpuðu bæði fyrstu
leikjum sínum í norrænu meistara-
keppninni í handknattleik sem hófst
í Gautaborg í gær.
Átta marka ósigur Valsmanna,
19-27, gegn sænska liðinu Red-
bergslid á norræna meistaramótinu
í handknattleik gaf engan veginn
rétta mynd af gangi leiksins. Vals-
menn léku á köflum skínandi vel,
agaðan sóknarleik, góðan vamar-
leik og Guðmundur Hrafnkelsson
varði 17 skot. Þessi mótspyrna kom
Svíunum i opna skjöldu en Red-
bergslid er eitt sterkasta lið Norður-
landa.
Valsmenn voru aldrei langt und-
an og aðeins vantaði herslumuninn
á að liðið næði framkvæðinu í
leiknum. Reynsla Svíanna vóg ef-
laust þungt en norskir dómarar
leiksins bára fullmikla virðingu fyr-
ir þeim. Það er vægt til orða tekið
að segja að dómaramir hafi verið
slökustu menn leiksins.
Mörk Vals: Valgarð Thoroddsen 5/1,
Jón Kristjánsson 4/2, Júlíus Gunnarsson
3, Sigfús Sigurðsson 2, Ingi Rafn Jónsson
2, Daníel Ragnarsson 1, Theodór Valsson
1, Davið Ólafsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson
17/1.
Stefan Lövgren var markahæstur
hjá Redbergslid og skoraði 11 mörk.
Vorum ekki að leika okkar
besta leik
„Ég er óánægður með að tapa
þessum leik. Við áttum alla mögu-
leika í stöðunni, 16-16, þegar Guð-
mundur hafði lokað markinu.
Vendipunkturinn er þegar Davíð
skýtur yfír úr hraðaupphlaupi og
dæmd er lína á Sigfús. Við voram
ekki að leika okkar besta leik,“
sagði Jón Kristjánsson, þjálfari
Vals.
Leist ekki á blikuna
„Þessi leikur var alveg eins og ég
bjóst við. Mér var ekki farið að lít-
ast á blikuna þegar Guðmundur í
marki Vals hrökk í gang. Línuspil
Vals er sterkt, vömin góð og Jón
stjórnar liðinu vel,“ sagði Stefan
Lövgren hjá Redbergslid.
KA-menn náðu sér aldrei á strik
gegn sterku liði Runar og máttu
þola 5 marka tap, 34-29, en á tíma-
bili í síðari hálfleik höfðu Norð-
mennimir 10 marka forskot.
Leikmenn KA gerðu sig seka um
mörg mistök í sókninni og það
færðu leikmenn Runar sér í nyt
Jón Kristjánsson og iærisveinar
hans í liöi Vals stóöu lengi vel í
Redbergslid í gærkvöldi.
með því að skora ódýr mörk úr
hraðaupphlaupum og auk þess var
markvörður Runar, Jan Stanki-
ewich, KA-mönnum erfiður. KA
vömin var mjög slök og leikmenn
Runar léku hana oft mjög grátt
Sverrir Björnsson lék best í liði
KA, homamennirnir Björgvin
Björgvinsson og Jóhann G. Jó-
hannsson gerðu góða hluti og Leó
Öm átti ágæta spretti. Alla baráttu
vantaði í liðið, menn höfðu ekki trú
á þvi sem þeir vora að gera og út-
lendingarnir Yala og Goldin voru
mjög slakir.
Óánægður með mína menn
„Ég var mjög óánægður með
mína menn og á góðum degi hefðum
við átt að vinna þetta lið. Það vant-
aði alla einbeitingu, menn vora að
gera mörg mistök í sókninni og
vömin var engin,“ sagði Atli Hilm-
arsson, þjálfari KA, við DV eftir
leikinn.
Virkuðu áhugalausir
„Ég bjóst við að mæta betra liði
en leikmenn KA virkuðu áhugalaus-
ir og baráttulitlir og því var sigur
okkar aldrei í hættu," sagði Leif
Gautestad, þjálfari Runar.
Mörk KA: Sverrir Bjömsson 7, Leó
Öm 6, Björgvin Björgvinsson 5, Jóhann
G. Jóhannsson 5, Halldór Sigfússon 3,
Vladimir Goldin 2, Karhn Yala 1.
Sigtryggur Albertsson vaði 10 skot.
KA mætir Drott í dag sem tapaði
fyrir GOG, 29-24 og Valur leikur
gegn Viking sem tapaði fyrir
Viram, 34-28.
-EH/Svíþjóð /GH/JKS
Sigmar Gunnarsson, UMSB, sigraði
í karlaflokki sjötta árið í röð í víða-
vangshlaupi tR sem fram fór í gær.
Toby Tanser varð annar og Daníel
Smári Guðmundsson, ÍR, þriöji.
Bræðurnir Sveinn og Bjöm Margeirs-
synir komu reyndar fyrstir í mark en
vom dæmdir úr leik fyrir að stytta
sér leið.
Martha Ernstdóttir, ÍR, varð hlut-
skörpust í kvennaflokki, en aðeins 5
mánuðir eru liðnir frá því að hún átti
barn. Bryndís, systir hennar, varð
önnur og Laufey Stefánsdóttir þriðja.
íflokki karla 40-49 ára sigraði Öm- -f%
ólfur Odsson, i 50-59 ára Stefán Hall-
grímsson og í flokki 60 ára og eldri
Eysteinn Þorvaldsson.
í flokki kvenna 40-49 ára sigraði
Helga Bjömsdóttir, í 50-59 ára Fríða
Bjarnadóttir og í flokki 60 ára og
eldri Þorbjörg Bjamadóttir.
Ottmar Hitzfeld verður næsti þjálf-
ari þýsku meistaranna í Bayem
Múnchen. Hann hefur skrifað undir
tveggja ára samning og tekur hann
við af ítalanum Giovanni Trappatoni.
Kiel frá Þýskalandi tryggði sér i
fyrrakvöld sigur i EHF-kepnninni í
handknattleik með þvi að bera sigur-
orð af Flensburg, 26-21, í síðari úr-
slitaleik liðanna en Flensburg vann
fyrri leikinn, 26-24.
**
Leikmenn Haka léku með sorgar-
bönd í leiknum gegn Stjömunni í
Hafnarfirði í gærkvöld i úrslita-
keppni kvenna i handknattleik. Það
var til að minnast Þorsteins Þor-
steinssonar, starfsmanns íþróttahúss-
ins við Strandgötu til margra ára en
hann lést aðfaranótt miðvikudags.
Lokahóf Körfuknattleikssambands
íslands fer fram á Hótel íslandi í
kvöld og verður án efa mikið um
dýrðir. Húsiö verður opnað kl. 19.
Verð fyrir matargesti er kr. 3600 en
1000 fyrir þá sem mæta eftir mat.
-GH G
Úrsltakeppnin í NBA í nótt:
Utah varð fyrir áfalli
Clyde Drexler, sem leggur
skóna á hilluna eftir þetta tímabil,
var maðurinn á bak við frekar
óvæntan sigur Houston Rockets á
Utah Jazz í fyrsta leik liðanna í
úrslitakeppni NBA í nótt.
Drexler skoraði 22 stig en Hou-
ston sigraði 90-103. Sigur Houston
var aldrei í hættu og liðið hafði 21
stigs forystu fyrir siðasta leik-
hluta, 79-58. Karl Malone skoraði
25 stig fyrir Utah.
Phoenix lék á heimavelli gegn
SA Spurs, 96-102. Tim Duncan átti
stórleik fyrir Spurs og skoraði 32
stig. David Robinson kom næstur
honum með 26 stig og 15 fráköst.
Kevin Johnson skoraði 18 stig fyr-
ir Phoenix og Jason Kidd 17.
Indiana Pacers vann Cleveland
með miklum yfírburðum, 106-77.
Chris Mullin skoraði 20 stig fyrir
Indiana og Reggie Miller 19. Indi-
ana hafði yfir í leikhléi 62-41 og
var hittni lærisveina Larry Birds
i fyrri hálfleik 69%. Shawn Kemp
skoraði 25 stig fyrir Cleveland og
tók 13 fráköst.
Charlotte Hornets vann góðan
sigur á Atlanta, 97-87, og náði for-
ystunni í einvígi liðanna í 16-liða
úrslitunum. Glen Rice átti stór-
leik fýrir Charlotte og skoraði 34
stig. Steve Smith skoraði 35 stig
fyrir Atlanta og Mookie Blaylock
skoraði 19 stig. -SK
David Robinson í kröppum dansi gegn Phoenix í nótt. Robinson skoraöi
26 stig í leiknum og tók 15 fráköst. Símamynd Reuter
Lestu bladið og taktuþátt ileiknum!
átt
von á góðum Degi
Meðal
að alvinninga
er vöruúttekt
í tískuvöru-
versluninni
Oasis.