Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Side 9
+ pii? ? HBl. SaKSRiuraðSBK Blomapottarnir bíða þess að skarta sumarblomum. Fuglahúsiö setur skemmtilegan svip á blettinn. Það er eitt af því fáa sem Sveinbjörn hef- ur ekki sjálfur smíðað. Við Bakkastíg í vesturbænum hafa hjónin Inga Kolbrún Mogensen og Sveinbjörn Gunnarsson komið sér upp fallegu, gömlu timburhúsi og garði sem verður að teljast bæði ein- stakur og afar fallegur. Blaðamaður DV hitti þau Svein- bjöm og Ingu Kolbrúnu þar sem þau voru að vinna í garðinum í síðustu viku. „Garðurinn hefur tekið miklum breytingum síðustu tvö árin en það verður samt alltaf nóg að gera næstu árin,“ segir Sveinbjöm en hann á heiðurinn af öllu tréverki og stein- hleðslum í garðinum. Húsið, sem kallast Bakkabúð frá fornu fari, var flutt árið 1991 á Bakka- stíginn. „Þetta hús komst í fréttirnar árið 1991 þegar það brann. Það var þá staðsett við Lindargötu 45 og við vor- um nýbúin að kaupa það þegar hópur ungmenna kveikti í því. Húsið fór illa í brunanum og efri tvær hæðirnar brunnu til ösku og önnur hæðin var talsvert mikið skemmd. Það átti að rífa þetta hús til þess að rýma fyrir Eimskipafélaginu og við leituðum um skeið að hentugri lóð. Þegar við fund- um þessa litlu lóð við Bakkastíginn þá vissum við strax að þetta var rétti staðurinn fyrir húsið," segir Svein- björn. Steinhleðslur og blóm í pottum Garðurinn í kringum' Bakkabúð er frekar lítill en af mikilli útsjónar- semi hefur þeim Ingu Kolbrúnu og Sveinbimi tekist að nýta plássið vel. „Þetta er í raun fyrsti garðurinn okkar og við höfðum engan sérstak- an áhuga á garðyrkju fyrr en við fluttum hingaö. Það er hins vegar búið að vera dásamlegt að standa í þessu og það er ómetanlegt að geta setið úti á kvöldin þegar vel viðrar,“ segir Inga Kolbrún. Blómapoftar í stað blómabeöa. Inga Kolbrún ákvaö að hafa ekki bióma- beð vegna kattanna þriggja sem búa á heimilinu. Froskurinn setur skemmtiiegan svip á umhverfiö. Steinhleðslur era áberandi i garði þeima hjóna og segir Sveinbjörn grjótið í raun vera kjallarann í hús- inu á Lindargötu. „Við létum flytja allt grjótið hingað og það stóð héma fyrir utan í haug í heilt ár áður en ég sótti í mig veðrið og hóf verkið. Það var hins vegar svo gaman að hlaöa veggina að ég sleppti vart úr kvöldi í marga mánuði,“ segir Sveinbjöm en að hleðslu lokinni vantaði aðeins einn stein upp á að grjótið dygði í veggi og tröppur garðsins. Inga Kolbrún hefur að mestu séð um blómaræktina í garðinum. Hún segist fljótlega hafa séð að blómabeð yrðu til vandræða þar sem kettimir þrír á heimilinu kynnu ekki að um- gangast slíkt. „Ég tók það ráð að setja skrautblóm í potta og raða með fram húsinu. Mér finnst það ekkert síöra en blómabeðin. Matjurtagarð- urinn er líka á mínum snærum og ég er þegar farin að hlakka til upp- skerannar í haust,“ segir Inga Kol- brún. -aþ Noröurendi garösins er afar skemmtilega útfærður af þeim hjónum. Arinn- inn í horninu er hlaðinn úr skorsteininum sem var á húsinu þegar þau festu kaup á þvi. Matjurtagaröurinn er enn hulinn plastþaki. Inga Kolbrún Mogensen og Sveinbjörn Gunnarsson í garðhliðinu. Svein- björn smíðaði grindverkið sjálfur. DV-myndir Pjetur Steintröppurnar og hlaðni veggurinn eru stolt íbúanna í Bakkabúð. Grjótiö var upprunalega í kjallara hússins þegar það stóð við Lindargötu. Hægra megin sést bjarnarklóin, sem er í miklu uppáhaldi hjá ingu Kolbrúnu og Sveinbirni, en hún veröur rúmir þrír metrar yfir sumarið. VÍDD £ [ FUSAVERSLUN Nýbýlavegi 30 Sími 554 6800 _____________/ SANYLPAKRENNUR IJ • RYÐGA EKKI. * • PASSA í GÖMLU RENNUJÁRNIN. • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR. • AUÐVELDAR i UPI>SETNINGU. • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR. Fást í flestum byggingavöruverslunum landsins. XFABORG1 KNARRARVOGI 4 568 6755 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 Aús og garðar Innlit í Bakkabúð við Bakkastíg: Grillað í skorsteininum +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.