Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Page 13
og garðar
Sívinsælir sólpallar
Áður en sólpallar úr viði eru settir
upp þarf að undirbúa jarðveginn og
huga að undirstöðum. Það þarf að
grafa holur og steypa ofan i þær eða
reka jámfleyga niður í jörðina. Undir-
stöðurnar þurfa nefnilega að vera
tryggar svo pallurinn leiki ekki á
reiðiskjálfl þegar gengið verður á hon-
um næstu árin og áratugina.
Því næst eru settir trébitar sem
halda eiga uppi hinum eiginlegu gólf-
bitum en ofan á þá er sjálf klæðning-
in sett. Æskilegast er að nota ryðfríar
skrúfur þar sem galvaníseraðar eiga
það til að ryðga.
Áður en húseigendur fá viðinn
heim á hlað er hann gagnvarinn á
þann hátt að hann er settur inn í ofn
undir þrýstingi þannig að gagnvörnin
fer alveg inn að kjarnanum. Vörnin á
að duga í mörg ár en hins vegar er
nauðsynlegt að bera pallaolíu á viðinn
á hverju ári. Sólarljósið vill éta fúa-
vörnina og gera hana gráa og svo má
ekki gleyma rigningarvatninu sem
liggur oft dögum saman á pallinum.
Vegna gagnvarnarinnar fá húseig-
endur viðinn grænleitan. Þeir geta
svo leikið sér að litakortinu en flestir
kjósa þó brúnleitan við. Húseigendur
geta líka haft mynstur í pöllunum en
flestir leggja viðinn í beinar linur og
þá nýtist hann best, eða i 45 gráður.
Húseigendur geta líka leitað ráða
landslagsarkitekta í samband við útlit
sólpallarins. DV hafði samband við
BYKO og Húsasmiðjuna. Björn Jó-
hannsson aðstoðar viðskiptavini
BYKO en Stanislav Bohic er við-
skiptavinum Húsasmiðjunnar innan
handar.
Það verður æ algengara að fólk
kjósi að hafa stóran sólpall. Sumir
kjósa einfaldlega að sleppa við að slá
gras og kjósa þess vegna jafnvel bæði
sólpall úr viði og hellur. Það þarf þó
að gæta þess að sólpallurinn sé ekki of
stór svo ekki verði of mikið verk að
bera á hann.
Hellur
Þegar leggja á hellur í garðinn er
nauðsynlegt að skipta um jarðveg og
setja frostfrían jarðveg í staðinn, svo
sem grús, og á hann að vera 50 til 100
sm þykkur. Ofan á hann er sett 2-6 sm
sandlag. Þegar búið er að slétta það
eru hellurnar lagðar. Hellulögn er i
sjálfu sér ekki erfið en menn þurfa að
gefa sér tíma. Hún er ekki ósvipuð
flísalögn innanhúss. I mörgum tilfell-
um leggja húsráðendumir hellurnar
en aðrir fá fagmenn sér til aðstoðar.
Viðskiptavinir BM Vallár geta séð
úrval fyrirtækisins i Fornalundi sem
er sérhannaður garður fyrirtækisins.
Þuríður Stefánsdóttir landslagsarki-
tekt er viðskiptavinum fyrirtækisins
innan handar.
Ein nýjungin hjá BM Vaflá er ant-
íksteinflísar en hjá fyrirtækinu feng-
ust þær upplýsingar að margir litu til
fortíðar auk þess sem þeir vildu að
nýir garðar litu út fyrir að vera grón-
ir. Margir vilja líka ná þeim áhrifum
sem flnna má í steinlögnum gamalla
borga í Evrópu. Heiti steinanna hjá
Solpallur frá BYKO.
Sólpallur frá Húsasmiðjunni,
Hellulagður sólpallur frá BM Vallá.
Hellulagður sólpallur frá Stétt.
BM Vallá segir sína sögu; óðalsteinn,
herragarðssteinn, fornsteinn, kastala-
steinn og svo má lengi telja.
Litaúrvalið hefur aukist mikið und-
anfarin ár og eru allar hellur gegnum-
litaðar. Hjá Stétt, þar sem starfsmenn
fyrirtækisins benda viðskiptavinum á
landslagsarkitekta, fengust þær upp-
lýsingar að margir blönduðu saman
gráum hellum og hellum í öðrum lit-
um. Hjá Stétt fæst mikið úrval af hell-
um á lager auk þess sem hægt er að
sérpanta. Hjá fyrirtækinu fæst meðal
annars götusteinn, jötunsteinn, I-
steinn og grassteinn auk hefðbund-
inna, ferkantaðra hellna í ýmsum
stærðum.
Ekki er hægt að koma í veg fyrir að
illgresi sái sér á milli hellna en hins
vegar er hægt að eitra, nota há-
þrýstisprautur eða taka það upp með
höndunum og minnka þannig vöxt
þess. Sumir vilja hafa garðinn náttúr-
legan og kippa sér ekki upp við þótt
illgresi og mosi skjóti upp kollinum á
milli hellna.
S.J.
úr valinni furu
Henta sérstaklega vel þar sem styrkur og
gott útlit er æskilegt. Hægt er að leggja
þau saman til vetrargeymslu.
Margar gerðir.
BERGIÐJAN
Víðihlíð við Vatnagarða
Símar 553 7131 og 560 2590
£
>
C3
/ fararbroddi í 70 ár
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM GARÐ-
OG GRÓÐURRÆKT
ÉlÍÉÉÉ
f
GROÐURVORUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 3211
STIHL
Kraftmikil, létt
og gangviss
rafmagns- og bensín-
SLÁTTUORF
í miklu úrvali.
Þýsk gæ&avara me&
umhverfisþáttinn
og öryggið í öndvegi.
Góð varahluta- og
viðgerðaþjónusta.
KRAFTMIKIL, LÉTT
OG GANGVISS VERKFÆRI.
í fararbroddi í 70 ár
HEKKKUPPUR ,
SLÁTTUORF, KEÐJUSAGIR, STEINSAGIR,
LAUFSUGUR, STAURABORAR.
og viðgerbaþjónusta.
Þýsk gæbavara
meb umhverfisþáttinn
og öryggib í öndvegi.
Gób varahluta-
GROÐURVORUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 3211
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM GARÐ-
OG GRÓBURRÆKT
STIHL
I fararbroddi í 70 ár
KRAFTMIKIL, LETT
OG GANGVISS VERKFÆRI.
KEÐJUSAGIR,
og vibgerba-
þjónusta.
STIHL
"xwc,ae-
HEKKKLIPPUR, LAUFSUGUR,
STAURABORAR, SLÁTTUORF,
STEINSAGIR.
Þýsk gæbavara
meb umhverfis-
þáttinn og öryggib
í öndvegi.
Gób varahluta-
sérfr^: WGRÓÐURVÖRUR
UM GARÐ- VLf VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
OG GRÓÐURRÆKT / Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 321 1