Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Blaðsíða 2
16
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
%vikmyndir
KVIKMYIÍDA
GAGNHYI
Háskólabíó - Piparkökukallinn: ★★★
Lögfræðingur í slæmum málum
Það má ganga að því vísu
að ef nafn Johns Grishams
tengist á einhvern hátt sögu-
þræði í kvikmynd þá er lög-
fræðingur aðalpersónan og
Piparkökukaliinn (The Gin-
gerhread Man) er engin und-
antekning. Grisham er skrif-
aður fyrir sögunni en hand-
ritið skrifar A1 Hayes sem er
dulnefni leikstjóra myndar-
innar Roberts Altmans.
Hvers vegna hann notar dul-
nefni er ekki auðvelt að
koma auga á en sjálfsagt stendur það að einhverju leyti i sambandi við
það karp sem hann lenti í við framleiðendur myndarinnar sem vildu
einhverjar breytingar sem Altman samþykkti ekki og þar sem hann
hafði það svart á hvítu aö hann réði endanlegri gerð myndarinnar þá
hafði hann betur. Sem betur fer, því Altman hefur gert öðruvísi „Gris-
ham“-mynd sem er mun athyglisverðari úttekt á persónum og mála-
flækjum sem kunnuglegar eru heldur en áður hefur verið gert.
Robert Altman er persónulegur leikstjóri og þótt honum sé fenginn i
hendur „venjulegur" söguþráður, alla vega þegar miðað er við mörg
hans fyrri verka, þá leyna höfundareinkennin sér ekki og þar er fyrst og
fremst um að ræða mannlega hegðun í myndinni sem er langt i frá að
vera formúlukennd eins og sagan gæti að öðru leyti boðið upp á.
Kenneth Brannagh leikur lögfræðinginn Rick Magruder sem er á
fullri ferð á framabrautinni. Hann er fráskilinn, tveggja barna faðir, sem
lítið má vera að því að sinna börnum sinum. Örlagavaldur í lífi hans
verður ung þjónustustúlka, MaUory Doss, sem óvænt kemur inn í líf
hans. Faðir hennar ofsækir hana og eftir ástríðufuUa nótt í bóli Malory
telur Magruder það skyldu sína að hjálpa henni. Faðirinn er settur á
geðveikrahæli. Þegar hann nær að strjúka þaðan fara fyrir alvöru að
brotna undirstöðurnar í lífi Magruders og brátt veit hann varla í hvom
fótinn hann á að stiga.
PiparkökukaUinn er spennandi og hefur góða hrynjandi og ekki er
hægt annað en dást að leikarahópnum. Kenneth Brannagh sleppir allri
klassikinni og nær góðum tökum á Magruder og er meira að segja stund-
um óþolandi amerískur. Ef Brannagh er ólikur sjálfum sér þá er Daryl
Hannah næstum óþekkjanleg í hlutverki aðstoðarlögfræðings
Magruders og Robert Downey jr. og Robert DuvaU eru einnig að gera
ýmislegt sem ekki hefur sést tU þeirra áður. Saman mynda þessi fjögur
ásamt Embeth Davidtz, sem er „femme fatale“ myndarinnar, góðan leik-
hóp sem Altman stýrir i gegnum Uókna sögu þar sem spilað er djarft tU
að ná undir sig miiljónum.
Leikstjóri: Robert Altman. Handrit: Al Hayes eftir sögu Johns Grishams.
Kvikmyndtaka: Changwei Gu. Tónlist: Mark Isham. Aðalhlutverk: Kenn-
eth Brannagh, Embeth Davistz, Robert Downey jr., Daryl Hannah, Tom
Berenger og Robert Duvall. Hilmar Karlsson
Kringlubíó - Með allt á hælunum:
Nauðvörn snúið í sókn **
Mannfræðingur sem hefur uppgötvað týndan ættflokk, Shelmikedmu,
á Nýju Gíneu, þar sem karlmenn sjá um uppeldi barna og umskurður á
drengjum hefur tíðkast í aldanna rás, svo eitthvað sé nefnt, hlýtur að
vera á grænni grein og það er James Krippendorf, eftir að hafa slegiö í
gegn í fyrirlestri um uppgötvun sína og sýnt stuttu síðar kvikmynd sem
hann tók af ættflokknum. Krippendorf verður uppáhald háskólamanna
og fjölmiðlamanna, enda ekki um neina smáuppgötvun að ræða. Það er
bara einn galli á gjöf Njaröar, það er engin Shelmikednu ættflokkur til,
heldur er nafn ættflokksins fengið úr skammstöfun á nöfnum þriggja
barna Krippendorfs, sem heita Shelly, Mickey og Edmund. Forsaga
málsins er sú að Krippendorf og eiginkona hans höfðu fengið háan pen-
ingastyrk til að finna týndan ættflokk. Þegar svo eiginkonan deyr faliast
eiginmanninum hendur og allir peningarnir hafa farið í barnauppeldi.
Þegar kemur að skuldadögum þá skáldar Krippendorf upp þessa líka
finu sögu sem gerir hann frægan á einni nóttu.
Með allt á hælunum (Krippendorf s Tribe) er skemmtileg og létt kvik-
mynd sem gerir engar kröfur. Þ£ir ber fyrst að nefna að handritið er
ágætlega skrifað um persónur sem eru margar hverjar skondnar, þótt
flestar hafi þær sést ótal sinnum áður. Góöir leikarar með Richard
Dreyfuss í farabroddi vinna vel úr textanum og myndin nær að halda
góðum dampi alla leið. Dreyfuss, sem yfirleitt á ekki góðar stundir í
gamanhlutverkum, leikur við hvem sinn fingur og er virkilega afslapp-
aður í hlutverkinu. Eins og oft með miðlungs gamanmyndir er helsti
gallinn hversu fyrirsjáanleg öll atburðarásin er.
Leikstjóri: Todd Holland. Handrit: Charlie Peters. Kvikmyndataka: Dean
Cunday. Tónlist: Bruce Broughton. Aðalleikarar: Richard Dreyfuss, Jenna
Elfman, Lily Tomlin, Elaine Stritch og David Ogden Stiers.Hilmar Karlsson
Þósund ekrur í Háskólabíói:
Vinkonur, keppi-
nautar - systur
Kvikmyndin Þúsund ekrur (A
Thousand Acres), er byggð á frægri
samnefndri skáldsögu, sem meðal
annars hefur hlotið Pulitzer-verð-
launin og var valin besta bókin af
samtökum gagnrýnanda árið 1991.
Höfundur skáldsögunnar er Jane
Smiley og sækir hún efniviðinn í
bókina í King Lear, eftir William
Shakespeare. Þeir sem þekkja King
Lear vita að leikritið er mikið fjöl-
skyldudrama og það er Þúsund ekr-
ur einnig. Segir í myndinni frá föð-
ur sem skiptir eignum sínum á
milli þriggja systra með alvar-
legum afleiðingum. Fjölskyld-
an er Cook fjölskyldan og
eignin er eitt þúsund ekrur
af verðmætu landi. Þegar
fjölskyldufaðirinn hefur
skipt eigninni á milli
systranna Ginny, Rose
og Caroline hefst tog-
streitan sem á eftir að
sundra fjölskyldunni.
Löngu gleymd leyndar-
mál eru rifiuð upp og á-
stríður, sem hafa verið
faldar undir sléttu og felldu
yfirborðinu, koma fram.
Það er mikill fiöldi úr-
valsleikara sem fer með hlut-
verk í Þúsund ekrum. í hlutverk-
um systranna eru Jessica Lange,
Michelle Pfeiffer og Jennifer
Jason Leigh. Jason Robbards
leikur föður þeirra og í öðrum
hlutverkum eru Colin Firth,
Keith Carradiner, Kevin Anderson
og Pat Hingle.
Strax eftir að skáldsagan A Thou-
sand Acres kom út árið 1991 var
kvikmyndarétturinn keyptur af
kvikmyndafyrirtæki sem Michelle
Pfeiffer er
einn eig-
enda
í
* *
■Ss
að og undirbúningur hafinn. Pfeif-
fer fékk svo Lange í lið með sér og
það var ekki fyrr en síðar að þær
ákváðu hvora af eldri systrunum
þær ætluðu að leika. Það tók lengri
tíma að velja yngri systurina og
varð Jennifer Jason Leigh loks fyr-
ir valinu. Var það leikstjórinn
Jocelyn Moorhouse sem valdi hana,
fannst hún passa vel í hlutverkið,
hafa hæfileika til að takast á við
það og loks vel geta verið syst-
ir Pfeiffer og Lange.
Joycelyn Moorhouse er
áströlsk og gerði hún sína
fyrstu bandarísku kvik-
mynd, How to Make an
American Quilt fyrir
tveimur árum. Árið
áður hafði hún fram-
leitt einhverja vinsæl-
ustu kvikmynd sem
komið hefur frá Ástral-
íu, Murial’s Wedding.
Moorhouse hafði starf-
að við sjónvarp og kvik-
myndir um hríð í Ástral-
íu áður en hún leikstýrði
hinni rómuðu Proof, sem
vakti athygli á henni
utan heimalands
hennar.
-HK
Jessica Lange og Michelle Pfeiffer leika tvær eldri systurnar, Ginny og
Rose, sem eru vinkonur og keppinaufar.
Vorvindar:
Frekari ábending og Vomur
Háskólabíó og Regnbogmn halda
áfram að sýna listrænar kvik-
myndir á kvikmyndahátíðinni sem
hefur yflrskriftina Vorvindar og
nú komið að síðustu tveimur
myndunum af þeim átta sem sýnd-
ar eru á hátíðinni. Allar myndirn-
ar hafa hlotið mikla athygli og ótal
viðurkenningar á kvikmyndahá-
tíðum víðs vegar um heim. í þeim
er lögð áhersla á hinn mannlega
þátt og farnar óhefðbundnar leiöir
til að segja sögur. Eru myndirnar
ferskur andblær fyrir þá sem vilja
taka sér smáhvíld frá hinum
dæmigerðu afþreyingarmyndum.
Þær tvær myndir sem frumsýndar
voru síðastliðinn miövikudag
verða sýndar fram á þriðjudag.
Eru það Frekari ábending (A
Further Gesture) og Vomur (Ogre).
Stutt er í næstu kvikmyndahátíð
þvi í lok næstu viku hefst pólsk
kvikmyndahátíð í Bæjarbíói í
Hafnarfirði.
Frekari ábending
Frekari ábending er hugarfóstur
írska leikarans Stephens Rea sem
er þekktur fyrir hlutverk sín í
myndum leikstjórans Neils Jor-
dans, m.a. Engli, Ljótum leik og
Viðtali við vampýruna. Myndin
fiallar um írskan strokufanga,
Dowd, leikinn af Rea, sem flýr fóst-
urland sitt og heldur til Bandarikj-
anna. Þar reynir hann að hefia
nýtt líf og fær starf við að þvo upp
í lélegu veitingahúsi í New York-
borg. Brátt kynnist hann pari frá
Guatemala sem er leikið af þeim
Alfred Monlina og Rosana Pastor
en þau reynast vera stödd í borg-
inni til þess að myrða fóðurlands-
svikara nokkurn. Dowd, sem teng-
ist að einhverju leyti IRA, sér að
fólkið er algjörir viðvaningar á
sviði hermdarverka og ákveður að
hjálpa þeim við gamanið. Frekari
ábending er enn eitt gott dæmið
um þá uppsveiflu sem er í enskri
kvikmyndagerð um þessar mund-
ir.
Vomur
Nýjasta kvikmynd leikstjórans
Volkers Schlöndorff (Tin tromm-
an) er byggð á hinni umdeildu bók
Álfakonunginum eftir Frakkann
Michel Toumier sem kom út á 8.
áratugnum. Myndin, sem er byggð
upp eins og Grimms-ævintýri,
fiallar um þann heilaþvott og þá
hernaðaruppbyggingu sem var
stunduö hjá Hitlers-æskunni í
Prússlandi á tímum seinni heims-
styrjaldarinnar. John Malkovich
leikur franskan mann sem í barn-