Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Qupperneq 5
"\T FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 Ijýn helgina Á morgun verður opnuð í Slunka- ríki á ísafirði sýning á verkum Aðal- heiðar Valgeirsdóttur, Guðbjargar Ringsted, Hafdísar Ólafsdóttur og Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur. Sýningin ber yfirskriftina Vest- ur, það er fleirtala af orðinu Vesta, sem er rómversk gyðja heimilis og tjölskyldu og einnig ein af höfuðátt- unum fjórum. Á sýningunni eru ný verk, þrykk, málverk og teikningar. Imyndir, ísmyndir, ísfletir, haf, land, umbreytingar, ljós, litir, fjöll og fiskar. Listamennimir hafa allir lokið námi frá Myndlista- og handíða- skóla íslands og hafa haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Gallerí Geysir: Ólíkum miðlum blandað saman Fyrir stuttu var opnuð sýn- ing á verkum Miles Holden frá New York í Galleríi Geysi í Hinu húsinu. Holden hefur haldið fjölmargar einkasýn- ingar í Bandarikjunum og einnig tekið þátt í samsýning- um þar, bæði í Kalifomíu og New York. Á sýningunni era bæði fígúratívsk og óhlut- bundin verk eftir listamann- inn. Tækni hans er um margt sérstök en hann fléttar saman ólíkum miðlum með því að blanda saman olíumálverk- um, eigin ljósmyndum, vax- og pensilverkum. Miles Holden hefur lokið BA-prófi í listum og alþjóðleg- um samskiptum frá Stanford- háskóla í Bandaríkjunum. Hann hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar, eins og til dæmis Arthur Giese minning- arverðlaun fyrir málaralist (1997) og Becker styrk og Golden Grant styrk til að ferð- ast til Brasilíu til að vinna að verkefhi. Sýning Holdens i Gallerí Geysi stendur til 20. júní og er öllum opin. Eitt verka Miles Holden sem sýnt er f Gallerí Geysi. DV-mynd ÞÖK Ljósmyndakompan: Sveppaupplausn og lúsablóð Eitt verka Ziists sem unniö er á mjög sérstakan hátt. Á morgun verður opn- uð i Ljósmyndakompunni á Akureyri sýning á ljós- myndum eftir svissneska vísinda- og listamanninn Andreas Zúst. Hann býr og starfar í Zúrich þar sem hann nam náttúra- vísindi. Sá lærdómur hef- iu komið honum vel í list- sköpun hans. Áhugi á náttúrunni er enda sýni- legur í myndverkum hans, hvort heldur hann sækir myndefnið beint til hennar, ellegar hann litar ljósmyndirnar með efnum sem úr náttúrunni koma, sveppaupplausn, lúsablóði og trjákvoðu af ýmsu tagi. Útkoman ræðst oft af tilviljun því erfitt er að ímynda sér virkni þeirra efna sem hann ber á ljósmyndirnar. Zúst er víðfrægur myndlistar- maður og einna frægastur fyrir verk sitt Bekannte, Bekannte, ljós- myndaröð af þekktum vinum hans. Zúst hefur haldið fjölda einkasýn- inga og gefið út allmargar bækur. Listamaðurinn verður á staðnum og býður alla bæjarbúa velkomna á sýninguna í Ljósmyndakompunni sem starfrækt er í vinnustofu Aðal- heiðar að Kaupvangsstræti. Gallerí Handverks & hönnunar: Handmálaðar silkislæður Á morgun opnar Sigrún Lára Shanko fyrstu einkasýningu sína á handmáluðum silkislæðum í Gallerí Handverks & hönnunar. Sigrún lærði silkimálun er hún bjó í Englandi en síðan þá hefur hún þróað sinn eigin stil og notar nú ýmsa tækni við litun á silkinu en mest handmálun. Sigrún Lára notar aðeins besta fá- anlegt hráefni í verk sín og flytur hún sjálf inn silkið og litina. Hún not- ar aðeins liti sem þarf að gufufesta því þeir gefa bestan skarpleika í lit- um.Sýningunni lýkur laugardaginn 27. júni. Sigurrós Stefánsdóttir sýnir verk sín í Varmahlíö. Ash Keramik Gallery: Náttúran í dulúð Myndlistarkonan Sigurrós Stef- ánsdóttir opnar sýningu á olíumál- verkum og vatnslitamyndum í Ash keramik gallery í Lundi, Varma- hlíð, á morgun kl. 14. Verkin sem hún sýnir þar sýna náttúruna i dulúð. Sigurrós stundaði nám við mál- unardeild Myndlistaskólans á Akur- eyri frá 1994 til 1997. Þetta er fjórða einkasýning Sigurrósar en hún hef- ur einnig tekið þátt í samsýningum. Sýningin stendur til fostudagsins 3. júli og er opin alla daga frá 10 til 18. FERÐIR INNANLANDS Miðvikudaginn 24. júní nk. mun aukablað um ferðir innanlands fýlgja DV. 9ð Meðal annars verður fjallað um hestaferðir, náttúruperluna Mývatn, ítarleg umfjöllun verður um gönguskó og göngur, ferðaþjónustu, hvað er að gerast á Akureyri, Egilsstöðum, ísafirði og í Reykjavík. Þá verður einnig handhægt kort með ýmsum upplýsingum. Umsjón efnis: Margrét Einarsdóttir, í síma 550 5000. Umsjón auglýsinga: Guöni Geir Einarsson, í síma 550 5722 Auglýsendurf athugið! Síöasti skiladagur auglýsinga er föstudagurinn 19. júni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.