Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Page 10
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
<&nlist
ísland
t
»
(
*
|
t
1 ( - ) Adore
Smashing Pumpkins
2(1) Nákvæmlega
Skítamórall
3(2) Mezzanine
Massive Attack
4 (- ) Wedding Singer
Úr kvikmynd
5(5) Best of
Nick Cave & The Bad Seeds
6(6) Big Willie Style
Will Smith
7(10) Left of the Middle
Natalie Imbruglia
8(3) íslenskir karlmenn
Stuðmenn & Karlakórinn Fóstbr.
9(4) Blue
Simply Red
10 ( 9 ) Bulworth
Úr kvikmynd
11(7) Version 2.0
Garbage
12(8 ) Pottþétt 11
Ýmsir flytjendur
13(11) 5
Lenny Kravitz
14 (- ) Savage Garden
Savage Garden
15(12) Moon Safari
Air
16(13) AllSaints
All Saints
17 (Al) Experience Hendrix
Jimi Hendrix
18 (Al) Lot's Talk About Love
Celine Dion
19 (Al) GlingGló
Björk & Tríó Guðmundar Ingólfs.
20 (19) Angels With Dirty Faces
Tricky
London
-lög-
t 1. (1 ) C'est La Vie
B*witched
t 2. ( 3 ) Horny
Mousse T Vs Hot ‘n' Juicy
( 3. ( 2 ) The Boy Is Mine
Brandy & Monica
f 4. (-)MyAII
Mariah Carey
$ 5. ( 4 ) Feel lt
The Temperer featuring Maya P...
t 6. ( 7 ) Dance The Night Away
The Mavericks
t 7. ( 8 ) Stranded
Lutricia McNeal
( 8. (11) Kung Fu Fighting
Bus Stop Fcaturing Carl Douglas
| 9. ( - ) On Top Of The World
England United
$ 10. ( 5 ) UnderThe Bridge/Lady Marmalade
All Saints
New York
-lög-
J 1. (1 ) The Boy Is Mine
Brandy & Monica
t 2. ( 2 ) Too Close
Next
V 3. ( 3 ) You're Still the One
Shania Twain
| 4. ( 4 ) My All
Mariah Carey
| 5. ( 5 ) I Get Lonely
Janet (Feat Blackstreet)
t 6. ( 6 ) Everybody (Backstreet's Back)
Backstreet Boys
I 7. ( 8 ) All My Life
K-Ci & Jojo
t 8. ( 9 ) Truely Madly Deeply
Savage Garden
( 9. ( 7 ) The Arms Of The One Who L. Y..
Xscape
t 10. (- ) Sex and Candy
Marcy Underground
Bretland
— plötur og diskar—
t 1. (2) Blue
Simply Red
t Z ( -) When We Were The New Boys
Rod Stewart
t 3. ( 3 ) Talk On Corners
The Corrs
$ 4. ( 1 ) Where We Belong
Boyzone
t 5. ( -) Adore
Smashing Pumpkins
| 6. ( 4 ) Life Thru a Lens
Robbie Williams
t 7. ( 7 ) Urban Hymns
The Verve
| 8. ( 6 ) All Saints
All Saints
t 9. ( -) Let It Ride
Shed Seven
| 10. ( 5 ) International Velvet
Catatonia
Bandaríkin
-plötur og diskar—
t 1. ( 2 ) City of Angels
Úr kvikmynd
»2.(4) Godzilla
Úr kvikmynd
| 3. (1 ) It's Dark and Hell Is Hot
DMX
t 4. ( 6 ) The Limited Series
Garth Brooks
t 5. (11) Backstreet Boys
Backstreet Boys
t 6. ( 7 ) Before These Crowded Streets
Dave Matthews Band
4 7. ( 3 ) Sparkle
Sparkle
t 8. ( 9 ) Songs From Ally McBeal
Vonda Shepard
t 9. (-) Come On Ovor
Shania Twain
>10. (-) Titanic
...Úr kvikmynd ____ ______ __
Sálin - Sólin
HverBer
manarinn?
í tilefni þess að bæði Sálin hans Jóns míns og S.S.Sól eru komnar á fullt skrið
fyrir sumarið er ekki úr vegi að bera lítillega saman þessar lífseigu hljómsveit-
ir og spyrja: Hver er munurinn? Guðmundur Jónsson var í forsvari fyrir Sálina,
en Helgi Björnsson fyrir Sólina.
Sálin hans Jóns míns
Stofnuð 1987
Hvernig er sveitin skipuð í sumar? Stefán Hilmarsson, söngur, Guðmundur
Jónsson, gítar, Atli Örvarsson, hljómborð, Friðrik Sturluson, bassi, Jens Hans-
son, saxófónn, Jóhann Hjörleifsson, trommur.
Áætlun ársins: Spila sem mest. Það er orðið langt síðan við höfum spilað
svona mikið í einu, finnst það við hæfi á tiu ára afmælinu. Förum svo 1 stúdíó
í sumar og tökum upp lög fyrir plötu sem kemur í haust.
Næstu böll: Akureyri í kvöld, Selfoss annað kvöld.
Hvar um verslunarmannahelgina? Verðum á Halló, Akureyri.
Eftirminnilegasta ballið? Það eru mörg eftirminnileg böll. Mér er eftirminni-
legast þegar við vorum að byrja og tókum upp tónleika í Bíókjallaranum fyrir
plötu. Svo eru mörg böll auðvitað eftirminnileg fyrir vissa hluti sem borgar sig
ekki að fara neitt nánar út í.
Þrjú koverlög: Núorðið spilum við bara okkar eigið efni. Stundum byrjar
einhver á einhverju koverlagi bara til þess að ergja hina eða vekja þá. Þeg-
ar við vorum að byrja tókum við eingöngu gamla soul-tónlist, James Brown
og þess háttar klassík.
Hvernig drepur Sálin tímann í rútum? Á ýmsan hátt. Það er spjallað og
horft á video ef við erum i svo góðri rútu. Eftir böll er svo oft drukkinn bjór
og partíast.
Hvað finnst þér um Sólina? Sólin er mjög fínt band. Ég var að heyra nýja
lagið með henni og það er mjög gott.
Hvaða bók er á náttborðinu? Ég er mikill tímaritasjúklingur, þá aðallega
tónlistar- og kvikmyndablöð, t.d. Vox, Q og Rolling Stone - allt góð blöð.
Hver er besta plata sem þú hefur heyrt á árinu? Ég er mjög hrifmn af „OK
Computer" með Radiohead. Þar er ekki feilnóta. Svo er ég að renna nýju
Garbage-plötunni í gegn núna, er nýbúinn að fá mér hana.
Hver er besta plata í heimi? „Slade in Flame“ er langbesta platan. Ég var al-
gjör Slade-aðdáandi þegar ég var 13 ára og í einangruninni á Skagaströnd.
Uppáhaldslag með þér sjálfum? Ætli það séu ekki bara einhver ný lög sem ég
er að vinna að í það og það skiptið. Þegar ég er nýbúinn að taka upp lag get ég
ekki hlustaö á það. Það er alltaf eitthvert ergelsi i gangi og mér fmnst alltaf eins
og ég hefði getað gert betur. Þetta líður svo auðvitað hjá.
Síðustu tónleikar sem þú fórst á og hvernig fannst þér? Ég fór á staö sem heit-
ir Orange að sjá japanskt Queen tribute-band, ég man ekki hvað bandið hét. Það
var bara nokkuð gaman. Þeir reyndu að ná Brian May og Freddie og það var
spaugilegt að sjá Japana vera að herma eftir þessum gaurum.
Hvaða liði heldurðu með á HM? Englandi auðvitað. Maður er orðinn gegnsósa
af stemningunni þarna úti.
S.S.SÓI
Stofnuð 1988
Hvemig er sveitin skipuð í sumar: Helgi Bjömsson, söngur, Eyjólfur
Jóhannsson, gítar, Jakob Magnússon, bassi, Hafþór Guðmundsson,
trommur, Hrafn Thoroddsen, hljómborð.
Áætlun ársins: Við áváðum að taka „the stadiums“ - Ýdali, Miðgarð og
Njálsbúð - og tökum kannski annan svona hring í ágúst. Við ætlum að
nota sumarið í að vinna tvöfalda safnplötu sem á að koma út 1 haust.
Annar diskurinn verður svona „Best of‘, en hinn með óútgefnum, óklár-
uðum og 2-3 nýjum lögum.
Næstu böll: Miðgarður 13.6., Njálsbúð 20.6.
Hvar um verslunarmannahelgina? Ég held menn ætli bara að taka sér
frí þá helgi i fyrsta skipti í tíu ár.
Eftirminnilegasta ballið: Þau eru mörg. Þetta rennur allt saman, ég sé
engan mun á þessu. Á siðasta balli í Ýdölum var helvíti gaman.
Þrjú koverlög: Bitter Sweet Symphony, Satisfaction, Electric
Barbarella.
Hvernig drepur Sólin tímann í rútum? Videoið er notað, spil-
aður póker og menn rifja upp klámvisur. Á leiðinni heim er
kassagitarinn dreginn upp.
Hvað finnst þér um Sálina: Ég hef lítið séð til hennar á böll-
um en finnst skemmtilegt hvað hún fylgir okkur eftir. Ég varð
þó fyrir vonbrigðum með nýjasta efnið með henni, sé engan
mun á því og því sem hún var að gera fyrir fimm til sjö árum.
Hún er ekkert að „öppdeita" sig.
Hvaða bók er á náttborðinu? Ég var að lesa „Mystery Train“
eftir Grail Marcus. Frábærar ritgerðir um það hvernig rokkið
endurspeglar amerisku þjóðarsálina.
Hver er besta plata sem þú hefur heyrt á árinu? Platan með Akasha
finnst mér ferlega skemmtileg og svo datt ég oní Lee Hazlewood og Nancy
Sinatra.
Hver er besta plata í heimi? „Exile on Main Street".
Uppáhaldslag með þér sjáifum? „Svo hittumst við aftur“.
Síðustu tónleikar sem þú fórst á og hvernig fannst þér? Síðasta kvöld-
ið á Poppi í Reykjavík. Mér fannst flott hvemig gus gus setti sig upp sjón-
rænt og naut mín bara vel. Móa var góð líka.
Hvaða liði heldurðu með á HM? ítölum og Argentínumönnum.
Töframenn eða krumpudýr?
Hvað finnst
poppurunum um
Rolling Stones?
Rolling Stones koma! æptu fjöl-
miðlar á mánudaginn. Þar sem við
eigum í vændum stærstu tónleika
íslandssögunnar er ekki úr vegi að
spyrja nokkra íslenska poppara,
unga sem eldri, hvað þeim flnnst
um þá gömlu. Þrjár vísindalegar
spurningar voru færðar fram; 1.
Hvað ertu tilbúinn að borga inn á
Rolling Stones á íslandi? 2. Hvert
er uppáhalds Rolling Stones-lagið
þitt og uppáhaldsplatan? og 3.
Lýstu Rolling Stones
ingu.
Heiðar, Botnleðju
1. „Ég myndi sætta
mig við að borga 5000-
kall, jafnvel þótt ég
þurfi að fá styrk til
þess.“
2. „Brown Sugar / Ex-
ile on Main Street.“
3. „Rolling Stones er flottasta band í
heimi - þetta eru töframenn.“
Jón Þór, Sigur Rós
1. „5000 fyrir að sjá
bandið - 5000 fyrir að
sjá sjóið."
2. „She’s a Rainbow /
Satanic Majesties
Request."
3. „Þeir eru löngu dauðir og hingað
koma bara fjarstýrð vélmenni."
Birgir Örn, Maus
1. „í mesta lagi 3500
kr.“
2. 2000 Light Years
from Home / Let it
Bleed.
3. „Rokk og ról t hálfa
öld.“
aMegas
1. „Ekki eina krónu
því ég á hana ekki til.
Ef ég ætti eina krónu
gæti ég hugsað mér
að spandera uppundir
10 þúsundkalli á þá.“
2. „Ég get ekki fókuserað á eitt lag
af því þeir voru ekkert one-hit-
wonder og því síður á eina plötu,
þeir voru allt of yflrgripsmiklir til
þess. Ef mér dettur í hug Sticky
Fingers, kemur Beggar’s Banquet
upp i hugann, þá Let it Bleed og
þannig koll af kolli, svo ég get ekki
svarað þessu.“
3. „Brian Jones.Ron Wood.“
Guðmundur Jóns-
son, Sálinni
1. „Ansi mikið því ég
ætla að reyna að sjá
þá i ár. Allt upp í tíu
þúsund kall.“
2. „Trembling Dice /
Some Girls.“
3. „Þeir eru frumkvöðlar og hafa
komist upp með að þróast sífellt í
rokki og róli án þess að missa virð-
inguna."
PáU Óskar
1. „Ekki krónu. Ég er
of glamúrös til að
borga mig inn. Þessi
gömlu prump geta
boðið mér!“
2. „Mér liði betur ef
þú spyrðir mig um uppáhalds Dusty
Springfield-plötuna mína. Do I look
like a rock’n’roller to you?“
3. „Hljómsveitin og meðlimir henn-
ar eru lifandi goðsagnir, en NÚNA
held ég að það sé svipaður fílingur
að fara á þá og vaxmyndasafn Mad-
ame Tussaud’s."
Helgi Bjömsson
1. „Það er ekki hægt að
verðleggja þetta, ég
borga bara það sem er
sett upp.“
2. „No Expectations /
Exile On Main Street.“
3. „The greatest rock’n’roll band in
the world.“
Heiða, Unun
1. „Ekkert. Ég er búin
að sjá þá.“
2. „Fool to Cry / Out of
Our Heads."
3. „Mick Jagger var
æðislegur töffari þegar
hann var ungur, en mér flnnst þeir
hefðu átt að hætta áður en þeir urðu
svona gamlir, því það er svo leiðinlegt
að sjá þá svitna og þurfa að skipta um
glansgalla eftir hvert einasta lag.“
Birgir Örn, Curver
1. „2000-kall.“
2. „Paint it Black /
Engin sérstök stór
plata."
3. „Krumpuð rokk og
ról dýr.“
Elisa, BeUatrix
1. „Ég fæ mömmu og
pabba til að splæsa á
mig.“
2. „Sympathy for the
Devil / The Singles
Collection."
3. „Ótrúlega krumpaðir en flottir -
ég veit ekki hvernig þeir fara að
því.“
Geirmundur Valtýs-
son
1. „Það væri gaman
að sjá þá, ég myndi
borga 5000-kall.“
2. „It’s All over now /
The Rolling Stones."
3. „Ég var alltaf miklu meiri Bítla-
maður.“
Magga Stína
1. „Annaðhvort fer
maður bara eða fer
ekki, verðið skiptir
ekki máli.“
2. „Eina platan þar
sem ég og Rolling Sto-
nes hafa náð saman er af-
mæliskökuplatan - Let it Bleed - en
ég man ekki hvað lögin heita."
3. „Pabbi.“
Rúnar Júlíusson
1. „Það sem þeir setja
upp.“
2. „Það er úr allt of
mörgu að velja. Plötu-
hópurinn Beggar’s
Banquet, Let it Bleed,
Sticky Fingers og Aftermath er t.d.
frábær og eins nýjasta platan. Þeir
gætu spilaö í 5 tíma og það væru ekk-
ert nema smellir. Þeir hafa ailtaf ver-
ið trúir upprunanum og ekki elt tísku-
strauma - engir trommuheilar þar.“
3. „Rolling Stones hafa alltaf verið í
uppáhaldi hjá mér, ég hef eytt meiri
tíma í að hlusta á þá en á nokkurt
annað band.“