Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Page 12
x 26 myndbönd FÖSTUDAGUR 12. júní 1998 T*>~\y k MYNDBANDA Don't Look Back: Falinn fjársjóður ★★★ Jesse Parish ólst upp í Texas, en skildi við æskuslóðir sínar og hélt á vit ævintýranna í Hollywood, þar sem hann missir tökin á tilverunni og sekk- ur til botns í eiturlyfjaneyslu. Eitt kvöldið sér hann hvar maður stekkur út úr bíl og annar á eftir honum, vopnaður byssu. Eftir situr taska full af pen- ingum í bílsætinu. Jesse hirðir töskuna og kemst undan. Hann heldur siðan heim í heiðardalinn, grefur peningana í jörð og endumýjar kynni sin við æskuvini sína. Með aðstoð þeirra nær hann smám saman að púsla lífi sínu saman aftur en eigendur peninganna eru ekki á því að afskrifa þá og ná að þefa hann uppi. Billy Bob Thornton á mikið í þessari mynd, leikur aðal- skúrkinn, skrifar handritið með Tom Epperson og er einn framleiðenda. Þetta er ágætlega skrifuð spennusaga, fer svosum hefðbundnar leiðir en nær engu að síður að skapa grípandi persónur og byggja upp nokkra spennu. Að- alstyrkur myndarinnar liggur þó í fjölda góðra leikara. Billy Bob Thornton ber af og virðist vera einhver fiölhæfasti leikari Bandaríkjanna í dag. Eric Stoltz leikur aðalhlutverkið og gerir það vel eins og við er að búast af hon- um. Margir þekktir og/eða athyglisverðir leikarar eru í smáhlutverkum, svo sem Dwight Yoakam, Amanda Plummer, M.C. Gainey og Peter Fonda. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri Geoff Murphy. Aðalhlutverk: Eric Stoltz. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Bandit Queen: Útlagi ★★★ Phoolan Devi er lifandi goðsögn í Indlandi í dag. í þjóðfélagi þar sem stéttaskipting er mikil og konur eru nánast flokkaðar með búpeningi, reis hún tO forystu í útlagagengi og gat sér frægðarorð fyrir að berjast gegn kúgun hinna ríku á hinum fátæku. Að lokum neyddist hún til að gefa sig fram og sat í fangelsi í ellefu ár. 1994 var hún látin laus og tveimur árum síðar var hún kos- in á þing. Meðan hún sat í fangelsinu lét hún skrásetja sögu sína og er þessi mynd byggð á þeirri frásögn henn- ar. Sem betur fer er ekki reynt að búa til goðsagna- kennda frelsishetju úr henni heldur er rakin meðferðin sem hún hlaut hjá karlmönnum og yfirstéttinni, sem skýrir vel hatur henn- ar á þeim, en aðgerðir hennar í bófaflokknum virðast stjórnast að miklu leyti af þessu hatri. Myndin er athyglisverð og grimm lýsing á stéttaskiptu og kvenfjandsamlegu samfélagi hindúa á Indlandi sem reyndar hefur löng- um verið talið eitt af siðmenntaðri löndum Asíu en það er allt önnur mynd sem hér er dregin upp. Því miður ræður aðalleikkonan ekki alveg nógu vel við dramatískari augnablikin og myndin virðist gerð af nokkrum vanefnum. Hún virkar því ekki nógu vel sem dramatísk saga en hefur þó að geyma at- hyglisverða samfélagslýsingu. Útgefandi Myndform. Leikstjóri Shekhar Kapur. Aðalhlutverk: Seema Biswas og Nirmal Pandey. Indversk, 1994. Lengd 110 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Playing God: ★★★ Doktor Duchovny Dr. Eugene Sands er snjall skurðlæknir sem missir læknisleyfið í kjölfar þess að sjúklingur deyr í skurðað- gerð hjá honum og í ljós kemur að hann var undir áhrifum örvandi lyfla. Hann sökkvir sér í eiturlyfja- neyslu, en einn daginn kemur gamli skurðlæknirinn upp í honum og hann bjargar lífl manns, sem varð fyr- ir skotárás á bar. Með þessu vekur hann athygli glæpaforingja, sem telur sig hafa hag af því að hafa mann á borð við Dr. Sands í þjónustu sinni. X-Files- stjarnan David Duchovny virðist vera að reyna að smokra sér inn í kvikmyndabransann. Hann leikur að- alhlutverkið í þessari mynd, sem gerir varla mikið tO að opna honum dyrn- ar að bitastæðum hlutverkum i kvikmyndum. Hann sýnir ekki mikil tilþrif í leik sínum og er eiginlega nákvæmlega eins og Mulder í X-Files. Hins veg- ar er myndin alls ekki svo slæm. Söguþráðurinn er ekkert götóttari en geng- ur og gerist og fléttan er sæmilega áhugaverð. Þama eru nokkrar skemmti- legar persónur og Timothy Hutton er hér um bil hæfilega geggjaður í hlut- verki glæpaforingjans. Hann mætti fara að fá hlutverk í athyglisverðari myndum aftur, þótt þessi sé reyndar ágætis afþreying. Útgefandi Myndform. Leikstjóri Andy Wilson. Aðalhlutverk David Duchovny. Bandarísk, 1996. Lengd: 94 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ I Know What You Did Last Summer: Hefðbundinn unglingahrollur ★★ Fjórir smábæjarunglingar fara á fyllirí og keyra á mann. Þeir óttast að-framavonir þeirra verði að engu með manndrápsákæru og smábæjarhneyksli. Þeir ákveða því að losa sig við líkið og halda síðan hver f sína áttina en ári síðar fara þeir að verða fyrir ofsókn- um einhvers sem virðist vita um leyndarmál þeirra. íbúar bæjarins fara að týna tölunni en ungmennin telja sig ekki geta veitt lögreglunni þær upplýsingar sem þau hafa og verða því að leysa gátuna sjálf áður en þau lenda sjálf í klóm morðingjans. Kevin Williamson er með heitustu handritshöfundum í Hollywood í dag og hefur vakið athygli fyrir að nýta formúlur í táninga- hrollvekjum á snjaOan og skemmtUegan hátt í Scream myndunum. Þessi mynd er því mikil vonbrigði. Hann byggir handritið ekki á eigin hugmynd heldur á skáldsögu og útkoman er bara þessi venjulega klisjuhroUvekja, ágætlega skrifuð sem slik en nær ekki að komast upp úr meðalmennskunni. Aukinheldur er hér enginn Wes Craven tU að útfæra hugmyndirnar og í staðinn fyrir góða og áhugaverða leikara eru lítið merkUegir og hæfUeika- litlir sjónvarpsþáttaleikarar. Ætli hann hafi úthald í Scream 3? Útgefandi Skífan. Leikstjóri Jim Gillespie. Aðalhlutverk: Jennifer Love Hewitt, Sarah, Michelle Gellar, Ryan Philippe og Freddie Prinze jr. Banda- rísk, 1997. Lengd 101 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Myndbandalisti vikunnar SÆTI1 i j FYRRI VIKA 1 VIKUR ;á lista J TITILL j j j j ÚTGEF. ! TEG. j j 1 . J 1 1 3 J Game, The < j j Háskólabíó j Spenna |2§w J Ný ! 1 J ! 1 Know What You Did Last Summer j j Skífan j j Spenna J 3 ! 2 1 3 J In&Out Sam Myndbönd Gaman j 4 J i 4 ) j 2 J j j Alien: Resurection < j j Skffan j J Spenna j 5 ! 3 ! 4 L.A. Confidential Warner Myndir ! Spenna J 6 ! 1 8 J 2 i j j Perlur&Svín j j Sam Myndbönd j j Gaman l J 7 J 5 ! 4 That Old Feeling CIC Myndbönd J J Gaman 8 ! j 6 J 1 2 i L \. Playing God j j Myndform J Spenna j 9 1 j 7 < 8 1 Peacemaker, The J 1 J CIC Myndbönd j Spenna io ! j Ný l ! i ■RM ! Plump Fiction j. j Skífan ) j Gaman J ii ! 10 ! 9 Face/Off Sam Myndbönd j Spenna 12 j 11 6 i j j Event Horizon j j CIC Myndbönd j j Spenna 13 ! 15 ! 6 Life Less Ordinary Skífan ! Gaman HÍ | 9 1 ! 4 t j j Spice World: The Movie j j *j Skffan j j Gaman | 15 J 13 ! 3 < She's So Lovely < 1 1 Skffan J J Spenna 1 i. i J 16 9 1 ■ i J My Best Friend's Wedding j j j Skffan J ! Gaman J 17 ! 12 3 | Home Alone 3 Skffan j Gaman j 18 J j 18 ! 9 i Shooting Fish ! j j Sfjömubíó I j Gaman j 19 ! 17 i ; 9 Chasing Amy Skffan Gaman 20 i i Ai j i 9 i i j Nothing to Lose Sam Myndbönd J < Gaman J Leikurinn eða The Game heldur efsta sæti myndbandalist- ans en unglingatryllirinn I Know What You Did Last Summer kemur ný inn á listann og beint í annaö sætið. Að ööru leyti eru ekki breytingar á efstu sætunum þessa vikuna. I tíunda sæti listans er að finna kunnuglegt nafn, Plump Fiction, og þegar undirtitill myndarinnar er skoöaður kemur skýringin en þar stendur: Frá mönnunum sem sáu Pulp Fiction, Reser- voir Dogs og Braveheart. Greinilega að eitthvað er veriö að gera grín að Quentin Tarantino og fleirum stórköllum í Hollywood enda er myndin auglýst sem ein vitleysa frá upp- hafi til enda. Á myndinni eru aðalpersónurnar í I Know What You Did Last Summer, persónur sem taka áhættu sem á eft- ir aö hafa alvarlegar afleiðingar. -HK The Game Michael Douglas og Sean Penn. Nicholas Van Ort- on á 48 ára afmæli. Frá bróður sínum sem hann hefur ekki séð lengi fær hann gjafabréf frá CRS-fyr- irtækinu sem sérhæf- ir sig í að krydda til- veru manna með óvæntum uppákom- um. Van Orton þigg- ur gjafabréfið en hon- um finnst hugmynd- in það fáránleg að hann leiðir ekki hug- ann að henni fyrst um sinn. Smám sam- an er forvitni hans þó vakin og þaö endar með því að hann fer í höfuðstöðvar fyrir- tækisins til að inn- heimta gjöfma. I Know What You Did... Jennifer Love Hewitt og Sarah Michelle Gellar. Helen, Barry, Julie og Ray eru búin að ljúka prófum og stefna hvert í sína áttina næsta vetur. Öll hafa þau metnað til að gera stóra hluti í lífinu og stefna langt. Á þjóðhátíðar- daginn keyra þau út á afskekkta strönd og skemmta sér þar við drykkju og hryllings- sögur en á leiðinni heim verða þau fyrir þvi að keyra á mann sem liggur hreyfmg- arlaus eftir. Þau ákveða því að losa sig við líkið með því að fleygja því i sjóinn. In & Out Kevin Kline og Joan Cusack. Lífið í smábænum Greenleaf í Indiana gengur sinn vana- gang fyrir utan dá- litla spennu sem er í loftinu vegna ósk- arsverðlaunafhend- ingarinnar en einn af sonum bæjarins er tilnefndur sem besti leikari. Þegar sá hlýt- ur verðlaunin þakkar hann öllum sem hafa stutt hann, meðal annars gömlum kennara sínum, Howard Beckett, sem hann segir að sé hommi. Howard verður felmtri sleg- inn, enda hefur hann aldrei verið við karl- mann kenndur. Alien: Resurrection Sigourney Wea- ver og Winona Ryder Alien: Ressurrect- ion er fjórða kvik- myndin í einhverri vinsælustu fram- haldsseríu kvik- myndanna. Flestir héldu að búið væri að ganga frá seriunni í mynd númer þrjú þegar Ripley var lát- in drepast en allt er hægt í framtíðinni og nú hefur hún verið klónuð af hópi vís- indamanna og her- manna sem eru að fást við gamlan draum. Þeir vilja koma sér upp her af óvættum og Ripley er þáttur í þeirri vinnu. L.A. Confidential Kevin Spacey og Russell Crowe. Hrottalegt morð er framið inni á litlum veitingastað og í ljós kemur að einn hinna myrtu er lögreglu- maður. Hvað hann var að gera þarna er félaga hans i lögregl- unni, Bud White, hul- in ráðgáta enda bend- ir allt til þess að hann hafi verið flækt- ur í eitthvert glæp- samlegt athæfi. Bud ákveður því að hefja rannsókn á málinu upp á eigin spýtm og kemst fljótlega að því að þar með er hann búinn að stinga sér út í lífshættulegt hyl- dýpi svika og morða þar sem enginn er óhultur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.