Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Page 6
Sony PC10, stafræn
myndbandstökuvél:
Fyrir um þaö bil tuttugu árum fóru að koma á
markað tæki sem gerðu vel efnuðu fólki kleift
að taka sjónvarpsmyndir tii einkabrúks. Þótti
mjög smart að eiga myndbandstökuvél og
merki um mikla efnahagslega velmegun. Al-
gengt var að i dönnuðum heimsóknum væri
dregin fram myndbandsspóla með Kanariferð
sumarsins og hún skoðuð af athygli. I þessa
árdaga heimamyndbandagerðarinnar voru
myndavélarnar á stærð við Labradorhund og
voru þær tengdar við ferðamyndbandstæki
sem vógu á annan tug kílóa. Vöðvabólga var
mjög algengur fylgikvilli myndbandstöku og að
endingu voru það frekar sjúkraþjálfarar sem
græddu á þessum tækjum fremur en græju-
salar.
Eftir því sem verðið á tækjunum lækkaði
varð eignarhaldiö almennara. Smám saman
fór glansinn af því að eiga myndbandstökuvél
og sjarminn viö það að horfa á heimamynd-
bönd minnkaði mjög, enda algengasta
myndefnið tærnar á tökumanninum og stétt á
hreyfingu.
Nú er svo komiö að myndbandstökur til
einkabrúks þykja hreint ekki jafn smart og
þær þóttu fýrir 20 árum. Mörgum þykir hrein-
lega ósmart að taka viðburði daglegs lífs upp
á band. En ekki lengur! Nú hafa flest helstu
fyrirtækin í græjugeiranum komið fram með
mjög litlar og handhægar upptökuvélar sem
taka myndir sem jafnast á viö gæöin sem við
sjáum í fréttatímum sjónvarpsstöövanna. Vél-
in sem hér er til umfjöllunar heyrir til þessa
flokks, hún er litil og nett en gefur samt frá-
bærar myndir.
Þaö vekur strax athygli að á vélinni er skjár
sem er um þaö bil 8 cm á breidd og í honum
sér fólk myndefnið sem það ætlar að taka
upp. Þetta hefur þann kost í för með sér að
myndatakan verður stöðugri, þvi ekki þarf að
bera vélina upp að andlitinu. Á skjánum er
hægt að horfa á þaö myndefni sem hefur ver-
ið tekið upp. Einnig er hægt að hlusta á hljóö-
ið, því í vélinni er örsmár hátalari (lágtalari?).
Þegar allt er talið er hér um að ræða
draumamyndbandstökuvél hvers heimilis, hún
gerir alla sem vettlingi geta valdið að ágætis
myndasmiðum og ætti að draga úr leiðindun-
um sem fylgja því að horfa á hreyfðar og illa
fókuseraðar myndir af tánum á skyldmennum
f útlöndum.
Stærstu kostir:
• Vélin er lítil og létt.
• Stór litaskjár sýnir vel myndefnið.
• Hægt er að stilla Ijósopiö með þumlinum
á meöan á töku stendur.
• Linsan er í hæsta gæðaflokki og hægt að
stilla fókusinn handvirkt.
• Hægt er að hlaða myndefninu á staf-
rænan hátt inn i tölvu og klippa efnið þar.
• Bæöi stór litaskjár á hliöinni og lítill inni í
vélinni.
• Vélin er smíðuð úr málmi að stórum hluta
og virðist a.m.k. vera nokkuð hnjaskþolin.
Ókostlr:
• Erfitt aö ná til allra stjórntækja í tökum.
• Fáir og slappir myndeffektar.
• Digitalzoom er eitthvaö sem gengur
ekki upp.
• Rafhlaða dugir aðeins í 40-50 mínútur
noti maður litaskjáinn á hlið vélarinnar.
Vélin fæst hjá Japis og kostar 179.000 kr.
Sumar á Sýrlandi
Stuðmenn riðjast
inn á dauflegan
islenskan músík-
markað með frá-
bæra skemmtiplötu.
Platan hefur orðið
klassik í tímanna rás
og er sá stuð-
brunnur sem Stuð-
menn hafa alltaf
getað sótt í.
Med allt á hreinu
**★★
Fyrsta „kombakkið"
tekst firnavel með
frábærri gaman-
mynd og sniðugri
tónlist sem Grýlurn-
ar eiga þátt i. Topp-
urinn á ferli Stuð-
manna, þeir slá í
gegn og þurfa ekki
að vera berir til þess
heldur bara fyndnir
og sniðugir."
.Frumkvöðlar
»fortíðarinnar
Tivolí
***i
„Konsept“-plata um
gamalt tívolífjör úr
Vatnsmýrinni. Nost-
algíunni fylgt eftir
með angurværum
ballöðum og sprell-
fjörugum lögum.
Meðlimina langar þó
að gera „metnaðar-
fyllri" tónlist og
bandið leysist upp
eftir plötuna.
linhver þarf að vera fyrstur. Tón-
listin, líkt og aðrar listgreinar, á sína
brautryðjendur. Abba, Bítlarnir og Stuð-
menn eru allt dæmi um frumkvöðla á
sínum sviðum, þó markaður hinna síð-
asttöldu hafi verið minni en hinna. Stuð-
menn hafa átt miklum vinsældum að
fagna og ferill þeirra er langur. En er
hann orðinn of langur? Fókus hefur velt
málinu fyrir sér með aðstoð nokkurra
valinkunnra manna.
Einkenni frumkvöðulsins er að gera
eitthvað nýtt og ferskt sem enginn annar
gerir eða hefur gert. Ferskleikinn varir
þó ekki að eilífu. Ferill listamannsins
liggur í fyrstu upp á við en svo kemur að
toppnum er náð og framhaldið er hnign-
irn. Kannski má skipta ferli frumkvöð-
ulsins í fjögur þrep sem gætu verið eitt-
hvað á þessa leið:
Grái fiðringurinn
**i
Stuðmenn ráða
sveitaballamarkaðin
um eftir velgengni
bíómyndarinnar og
senda frá sér sex
laga plötu. Það
jafnast ekkert á við
jass og Blindfullur
meika það feitt.
Sveitin eyðir þó
gróða ársins (
bókina Draumur
okkar beggja, rán-
dýrt prenttækniund-
ur sem selst illa.“
Þrep 1
„Tryllings-þrepið“
Æskulýðurinn trylltur með frumlegum
og nýstárlegum flutningi. Tónlistar-
maðurinn er í andstöðu við rikjandi
ástand en skapar svokallað „trend“
sem aðrir reyna síðar að líkja eftir.
Stuðmenn voru á þessu þrepi frá
1975-1982. Hljómsveitin var
skemmtileg andstæða við hippana
sem lifðu lifinu samkvæmt hugsjón-
um sínum um ást og frið. Stuðmenn
voru í fararbroddi þess hóps sem
gerði grín að alvarleika hugsjón-
anna. Þeir hömpuðu því sem þótti
hallærislegt og
ögruðu þannig
ríkjandi hug-
myndum. En þó
Stuðmenn væru
hallærislegir
voru þeir það á
skemmtilegan og
séríslenskan
máta. Þannig
vöktu þeir at-
hygli og fyrsta
breiðskífa þeirra,
Sumar á Sýr-
landi, kom út við
trylltar vinsældir
1975. Ári síðar
kom svo platan
Tívolí sem einnig
sló í gegn. Eftir
útgáfu plötunnar
hætti hljómsveit-
Jakob Frímann Magnússon stuðmaður.
Færumst nær hinum
upprunalega upphafspunkti
mmm
Kókostré
og hvrtir mávar
**
Með allt á hreinu
fylgt eftir með ann-
arri bíómynd, Hvít-
um mávum, sem
floppar. Tónlistin er
djassað bitl, tvist og
rokk og ekki sér-
staklega sann-
færandi.
í góðu geimi
★*
Nokkur ágæt ný lög
í bland við eldri lög
sem ekki höfðu
komist á plötur
Stuðmanna.
Á gæsaveiðum
Eftir Strax-ævintýrið,
sem dró Stuðmenn
m.a. til Kína í leit að
frægð fyrir utan
landsteinanna, er
snúið við og gerð
plata I hinum sér-
íslenska og nett-
púkó Stuðmanna-
stíl. Valgeir semur
Popplag í G-dúr
(eða snurfusar
Mariey-lagið „No
Woman No Cry“),
sem sprengir öll
vinsældarmet.
Annað gott og slgilt
á plötunni er t.d.
Energí og trú.
„Eg hef satt að segja undr-
ast að ekki skuli hafa komið
fram sterkari einstaklingar og
hljómsveltir en raun ber vitni.
Þrátt fyrir að allir elski Stuðmenn
eru margir á því máli að Stuðmanna-
fílingurinn sé ekki til staðar í nýjustu
lögum hljómsveitarinnar:
Stuðmenn:
-KPJ
Rataðiá
að gifta sig
Dagur Sigurðsson hand-
boltahetja gifti sig fýrir M
viku í Friðrikskapellu á rí rm
Hlíöarenda, sem væri 1 \
ekki í frásögur færandi Há
ef hann hefði ekki gert
það meö þvi að boóa I
ættmenni sín og vini i Hi
tvöfalt 25 ára afmæli í Valsheimilinu. Þegar á
staöinn var komió var síðan farið í ratleik og
fólki skipt i ýmsa hópa, vinir úr Versló í einum,
vinkonurnar I enn öðrum og síóan fjölskylda
og vinir úr handboltanum. Þegar hóparnir
höfðu komist i gegnum ratleikinn þá brá þeim
viö að sjá aö leikurinn endaöi í Friörikskapellu
á Hlíöarenda. Þegar inn í hana var komið beiö
þeirra séra Pálmi Matthíasson og Dagur Sig-
urösson ásamt heitmey sinni sem var meö
brúöarslör. Enginn hafði fengiö fregnir af fýrir-
ætlan þeirra um að gifta sig og kom athöfnin
öllum þægilega á óvart þegar séra Pálmi gaf
eiskendurna saman.
„Eg get fallist á að einhvem tím-
ann á þessum langa ferli hafi verið
hvikað frá upphaflega „concept-
inu“, Þá hefur kannski sumum þótt
ástæða til að gagnrýna hljómsveit-
ina,“ segir Jakob Frímann Magn-
ússon sem hefur verið einn aðal-
burðarás Stuðmanna frá stofnun
hljómsveitarinnar. „Að undanfornu
hefur hljómsveitin hins vegar verið
að færast nær hinum upprunalega
útgangpunkti hins glaðbeitta sjálfs-
háðs. Þaö sem hefur fyrst og fremst
gert þessa hljómsveit að hljómsveit
allra landsmanna er sú staðreynd
að sumir greina háðið, aðrir bara
græskulaust gamanið o.s.frv.
Þannig hefur hljómsveitin náð að
höfða til margra ólíkra hópa samfé-
lagsins á mismunandi þroskastig-
um, ef svo mætti að orði komast.
Það mætti vonandi færa rök fyrir
því að okkar eigin kimnigáfa hafi
þróast og þroskast með tímanum og
aö íronían sé ekki eins hrá og aug-
ljós og í upphafi. Um leið þarf e.t.v.
að rýna betur milli línanna til að
meðtaka spaugið. Að öðrum kosti
fer það hugsanlega fyrir ofan garð
og neðan, a.m.k. hjá þeim sem eru
gæddir takmörkuðum húmor. En
það skiptir okkur einfaldlega ekki
nokkru máli þó að slíkar raddir
heyrist í bland við annað. Það sem
skiptir okkur máli eru viðbrögð
áhorfenda og sú staðreynd að við
okkur blasa undantekningarlaust
troðfull hús af hæstánægðu fólki og
það á öllum aldri.
En er fólkiö ekki mœtt til aó hlusta á
gömlu lögin?
„Auðvitað eru lögin úr Með allt á
hreinu alltaf vinsælust en fólk kem-
ur jú fyrst og fremst til að hlusta á
lög sem hafa slegið í gegn og sem
betur fer er slík lög að fmna á
hverri einustu plötu sem hljóm-
sveitin hefur gefið út. Hins vegar
má benda á það að allt frá því að
Sumar á Sýrlandi kom út hafa
ávallt verið einhverjir íhaldssamir
gegnrýnendur sem líkar betur við
eldra efnið, m.ö.o. það sem var gef-
ið út meðan þeir sjálfir voru upp á
sitt besta og enn ekki staðnaðir.
Þannig er Tívolí, Með allt á hreinu
eða einhver önnur plata „þeirra"
plata á meðan nýja efnið höfðar síð-
ur til þeirra, svipað og með þá sem
ekki hafa heyrt neitt bitastætt eftir
að Presley dó, eða Ellington gamla
þegar um gamla jassgeggjara er að
ræða.““
Þegar talinu víkur svo að pening-
um segir Jakob: „Það fer í taugarn-
ar á sumum að Stuðmenn virðast
þéna mikla peninga en það gleymist
jafnan að líta tii þess að sveitin hef-
ur gefið út um 125 lög í formi vín-
ylplatna, geisladiska, kvikmynda,
myndbanda, sjónvarpsþátta, út-
varpsþátta og jafnvel bóka, en fyrst
og fremst hefur þess verið gætt að
halda framboði á hljómsveitinni
ávallt takmörkuðu, a.m.k. mun
minna en eftirspum er á hverjum
tíma.“
Er kominn tími til aö nýir tónlistar-
menn taki viö?
„Ég hef satt að segja undrast að
ekki skuli hafa komið fram sterkari
einstaklingar og hljómsveitir en
raun ber vitni. Páfagaukshátturinn
er enn of einkennandi í íslensku tón-
listarlífi. Við þá sem eru að gefa út á
íslenskum hljómplötum óbreyttar út-
gáfur af gömlum Bacharach-lögum
eða útþynntar stælingar á amerískri
rapptónlist hef ég tilhneigingu til að
segja: Látiö ykkur detta eitthvað í
hug sem þið getið eignað ykkur sjálf-
ir, það verður drýgra veganesti þeg-
ar til lengri tíma er litið.“
En hvaða hljómsveit finnst þér
best af þessum allra yngstu?
„Ég hef gaman af Vinyl. Söngvar-
inn í þeirri hljómsveit er prýðilegur
performer og margar skemmtilegar
hugmyndir virðast vera í gerjun á
þeim bæ“.
6
f Ó k U S 24. júlí 1998