Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 19
Kiddi í Vínyl S c e b b i * o □ z >- S U) 3 * ■O Hljómsveitin Vínyll heldur áfram að dæla finum lögum á markaðinn annað sumarið í röð. Nú á hún lagið Vera á safnplötunni Kvistir og er þessa dagana að taka upp plötu sem á að koma út i haust. Kristinn Jún- íusson söngvari er mættur árla morguns á Gráa köttinn. Hann segist ekki vera almennilega vaknaður en ég spyr hvemig upptökurnar gangi: „Vel. Við tökum þetta upp í skömmtum og semjum eiginlega jafn- óðum. Við stefnum á tíu laga plötu, þar af þrjú sem hafa komið út áður á safnplötum. Við tökum upp í Grjót- námunni með Þorvaldi Bjarni. Við erum komnir meira út í prógrammeringar og gervla til að fá eitthvað nýtt í þetta. Maður er búinn að vera í þessu beisik alveg heillengi og rótin verður alltaf rokkið. Þau tvö lög sem við erum að vinna að núna eru t.d. allt öðravisi en það sem við höfum gert áður - nýtt skref, fullt af alls konar syntum. Það er frábært að vera í hljómsveit með hljóðgervlum. Þessi nýju lög krefiast þess að við verðum með eitthvað af tónlistinni á bandi á tónleikum, annars verða þau svo hrikalega tóm.“ Kristinn og bróðir hans, Gunn- laugur, eru búnir að rokka í ein sjö ár, byrjuðu fimmtán ára með Tjalz Gissur, unnu með Gunnari Bjama í Jetz að einni plötu - „það var bara bull því við vorum að pæla í allt öðr- um hlutum" - en Vínyll er búinn að vera starfandi á annað ár. Ég spyr Kidda út í fyrirmyndirnar: „Kóngurinn er náttúrlega fyrir- myndin, Elvis. Þegar ég var lítill var svo auðvelt að hlusta á hann, bara einn gæi með gítar. Hann kom mér út í músíkina, Elvis.“ Allt búið eftir Akureyri Vínyll hefur spilað þónokkuð úti á landi, t.d. með Stuðmönnum á Akra- nesi. „Þeir voru ótrúlega pró,“ segir Kiddi, „maður getur lært mikið af þeim.“ Vínyll var að spila með Quarashi á Egilsstöðum um síðustu helgi. „Það var kannski ekki brjálæðis- lega fullt en helvíti gaman. Þar var rokk, maður. ísland er rokkbæli. Þó það sé einhver minnihlutahópur sem hlustar á R&B þá er það alltaf rokkið sem gildir." Er einhver munur á hvernig krakkar út á landi taka ykkur? „Krakkar á landsbyggðinni eru miklu jákvæðari í að skemmta sér og hafa meira gaman af hlutunum heldur en hérna. Maður spilar alltaf á sömu stöðunum í bænum, Ingólfs- torgi og eitthvert dæmi. Það er skemmtilegt að spila á öðrum stöð- um.“ Vínyll stefnir auðvitað utan og Kiddi segir að bandið ætli að ein- beita sér að því þegar platan er full- gerð. „Það er eina vitið. Þegar maður er búinn að spila á Akureyri er maður búinn að gera allt sem hægt er að gera í íslensku tónlistarlifi. Og við erum búnir að spila þar þrisvar. Það verður ekkert öðruvísi. Maður vill fá eitthvað nýtt, stærri markað og bara gaman. Þó maður nái vin- sælum lögum hérna þá breytist í rauninni ekki neitt. Maður hélt að það breytti einhverju en það gerir það ekki. En það er gaman að ná markmiðinu, að ná vinsælum lög- um á eigin forsendum." Eruð þið ekki að spila með Móu systur þinni líka? „Jú, ég spila á bassa og Halli á hljómborð. Við höfum farið nokkrum sinnum utan með henni og verðum með henni á Popcom-há- tíöinni í Köln í ágúst. Það er ekkert erfitt að velja á milli. Músíkin hennar Móu er náttúrlega bara hennar dæmi og Bjarka. Við erum bara í læfbandinu. Það er gaman og góð reynsla. Ég flla músíkina henn- ar en í Vínyl erum við að gera mús- íkina sjálfir og það er auðvitað aðal- málið. Það er einum of „easy way“ að vera bara farþegi í hljómsveit. En við kynnumst auðvitað fólki á þessu og það getur nýst þegar Vín- yll fer að gera eitthvað." Dæst yfir sveitaballa- bransanum „Við höfum gefið út ýmsar yfir- lýsingar um sveitaballaböndin en maður skilur alveg af hverju þau standa í þessu, gæjarnir eru auðvit- að bara að reyna að lifa á þessu, en maður hefur samt alveg rétt á að gagnrýna tónlistina." Hafiði fengið einhver viðbrögð við því? „Já, við vöktum gríðarlega reiði i ballbransanum með þessu Undir- tóna-viðtali þegar við vorum að byrja. FM tók þetta t.d. eitthvað til sín og harðneitaði að spila okkur. Þetta var dálítið hart, en samt, við meintum það, en það er samt algjör óþarfi að vera að tönglast eitthvað á þessu.“ Getiði það nokkuð. Voruði ekki að spila sjálfir meö Stuðmönnum? „Ja, Stuðmenn eru öðruvísi en aðrar sveitaballahljómsveitir því maður ólst upp við þá. Þeir eru kannski að spila sömu lögin og '82, en samt. Mér finnst engin þróun í þessari sumarsmellamúsík. Þetta var töff '87, en núna? Æ, ég held ekki.“ Þú semur textana hjá ykkur, mér fmnst þeir dálítið skrýtnir: „Skrýtnir? Já. Það á ekki alveg við mig að segja hlutina beint út. Mér fmnst betra að vera með tvö- faldar merkingar. Inspired by Sat- an, nei nei, ég segi bara svona. Þetta hljómar eins og ég sé geðsjúk- lingur. Mér fmnst textagerðin hjá sveitaballaböndunum skrýtin. Stebbi Hibnars hefur greinilega komið með byltingu í textagerð í sambandi við þessa músík. Það eru allir „inspired by Stebbi". Og hver er eiginlega ábyrgur fyrir þessu sándi á þessum böndum? Það hefur einhver farið úr sambandi einhvers staðar á leiðinni. Æi, ég veit það ekki,“ segir Kiddi og dæsir, „ef fólk sér ekki fram á annað en að slá í gegn á þessum sveitaballamarkaði verður ekki til nein almennileg músík.“ Keffel bangsi uppi í tré Hvaða, hvaða. Sveitaball, sumar og sól, víf og ævintýr? Ég pumpa Kidda um sögu af sveitaballi og hann segir mér átakasögu af bangsa: „Við Steini í Quarashi fundum hvítan bangsa á flugvellinum á Eg- ilsstöðum sem við kölluðum Keffel. Það var bara nafn sem kom. Þessi bangsi upplifði margt, var hent í poll og reynt að kveikja í honum. Kvöldið endaði með því að við köst- uðum honum hátt upp í tré þar sem hann sat fastur. Enginn þoröi upp i tréð, þetta var hátt tré, skilurðu, en þá kom einhver gaur hlaupandi í skikkju og segir: ég skal bjarg'essu! Hann vippar sér upp í tréð, er langt kominn upp, situr á grein og segir Don't try this at home. Þá brotnar greinin, hann fyrst á magann á eina grein - hu - á bakið og svo lendir hann á hálsinum og lá þar í hálf- tíma. Sá eini sem hló var Steini i Quarashi. Hann hló ógeðslega hátt en allir aðrir voru stjarfir. Við vor- um að pælí hvort gæinn væri dauð- ur eða ekki, en þá loksins þusti löggan á staðinn og reisti hann við. Hann náði sér alveg en þetta var há- punktur ferðarinnar!" - glh 24. júlí 1998 f Ó k U S 19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.