Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Page 20
Bíóborgin
Armageddon ** Bruce Willis stendur fyrir
sínu sem mesti töffarinn í Hollywood í mynd
þar sem frammistaða tæknimanna er þaö
eina sem hrós á skilið. Leikstjórinn Michael
Bay gerir það sem fyrir hann er lagt og því er
Armageddon meira fyrir auga en eyru. -HK
Mad Clty *** Sterk kvikmynd um það
hvernig fjölmiðlar búa til stórfrétt. Þótt deila
megi um hvort gíslatakan í myndinni geti staö-
ið yfir í þrjá sólarhringa kemur það ekki að
sök. Costa-Gavras hefur styrka stjórn á því
sem hann er að fjalla um og hefur ekki gert
betri kvikmynd I mörg ár. Dustin Hoffman og
John Travolta eru öryggið uppmálað í aðalhlut-
verkunum. -HK
Mouse Hunt *** Músaveiðimynd sem seg-
ir frá vitgrönnu bræðrunum Smuntz sem erfa
snæraverksmiðju og niðurnítt hús (með mús)
eftir fööur sinn. Sjálf músin er aöalhetja mynd-
arinnar þar sem hún klífur og stekkur og sveifl-
ar sér af mikilli fimi og hugrekki um húsið,
sigrast bæöi á banvænum ketti og meindýra-
eyði og hvomsar í sig kllói af osti án þess aö
svo mikið sem gildna um miðbikið. -úd
Bíóhöllin/Saga-bíó
Slx Days, Slx Nlghts **i Fremur hug-
myndasnauö en þó skemmtilega rómantísk
gamanmynd sem gerist I fallegu umhverfi á
eyjum I Kyrrahafinu. Myndinni er haldiö uppi af
góðum leik aðalleikaranna Harrisons Fords og
Anne Heche sem ná einstaklega vel saman.
Aðrir leikarar standa sig ágætlega en hverfa í
skuggann af gneistandi samleik Fords og
Heche. -HK
Lltla hafmeyjan ***
Laugarásbíó
Deep Rlslng ** Skrímslamynd sem greini-
lega er gerö í kjölfar vinsælda Anaconda. Ótrú-
lega saga um lítil sjávarkvikindi sem stækka
eftir því sem þau lifa dýpra. Gerist myndin þar
sem sjórinn er dýpstur. Sagan er ruglingsleg
en tæknibrellur gieðja þá sem kunna að meta
slíkt. Sem hryllingsmynd er hún of klisjukennd
til að skapa almennilegan hroll. -HK
Lost In Space ** Framtlðarkvikmynd sem
byggð er á gamalli sjónvarpsseríu sem ekki
þótti merkileg. Myndin er stór I sniöum og
stundum mikilfengleg en sem betur fer tekur
hún sig ekki alvarlega. Hægt er að mæla meö
henni við alla fjölskylduna sem er meira en
hægt er við aðrar framtlöarmyndir sem sýndar
eru I kvikmyndahúsum höfuðborgarinnar. -HK
Hvað gerir
Tom Cruise?
Nú þegar glansliðið í Hollywood
getur ekki velt sér lengur upp úr
því hvað Leonardo DiCaprio gerir á
næstunni þá beinir það augum sín-
um að Tom Cruise sem ekkert hefur
látið hafa eftir sér hver framtíð-
arplön hans eru. Síðasta kvikmynd-
in sem hann lék í og hefur verið
sýnd var Jerry Maguire. Síðastliðið
eitt og hálft ár hefur hann að mestu
leyti verið að leika í kvikmynd
Stanleys Kubricks, Eyes Wide Shut,
og var hann kaUaður oftar en einu
sinni aftur á tökustaö. Þótti stór-
stjaman sýna meistaranum mikla
þolinmæði, meiri þolinmæði en
flestir aðrir. Samkvæmt tölum yfir
aðsókn á síðustu myndir Toms Cru-
ise er hann sú stórstjama sem er ör-
uggasta fjárfestingin svo það er eng-
in furða að fólk velti fyrir sér hvað
hann ætli að gera næst. Tvö virt
blöð í kvikmyndabransanum,
Hollywood Reporter og Daily Vari-
ety, hafa það fyrir satt að Tom Cra-
ise hafi sýnt mikinn á huga á
dramatískri rómantík, Steinbeck's
Point of View, sem Warner Bros er
að fara að gera. Fjallar handritið
um mann með krabbamein sem fer
nokkurs konar pílagrímsför til stað-
ar sem var í eigu afa hans. Þar finn-
ur hinn sjúki maður nýjan tilgang
með lífinu. Warner hafði ráðið
handritshöfundinn Brandon Camp
til að leikstýra myndinni en það
gæti breyst snögglega ef Tom Cruise
tæki að sér hlutverkið. Af öðrum
líklegum verkefnum má nefna
Mission Impossible II og nafnlausa
kvikmynd sem Steven Spielberg er
með í undirbúningi.
Kim Basinger kom mörgum á óvart með
frammistöðu sinni í L.A. Confidental og
fékk óskarsverölaunin.
Fýrirsætur sem
komu á óvart
Fyrir frægar fyrirsætur liggur
leiðin oftast greið yfir í kvikmynda-
heiminn þegar þær kjósa slík starfs-
skipti. En þar með er ekki sagt að
þær kunni að leika þótt þær séu eins
og fæddar til að vera fyrir framan
myndavélina. Nýjasta dæmið um al-
gjörlega misheppnuð starfsskipti hjá
súperfyrirsætu er Cindy Crawford,
Hún fékk bitastætt hlutverk í saka-
málamyndinni Fair Game, sem
henni tókst að klúðra eftirminnilega,
Nokkrar fyrirsætur hafa náð tölu-
verðri frægð í kvikmyndum og telj-
ast í dag kvikmyndastjömur. Oftar
en ekki hefor það verið glæsileikinn
sem hefúr fleytt þeim áffarn fremur
en leikhæfileikamir. Það hefur þó
komið fyrir að fyrirsætur sem gerst
hafa leikkonur hafi komið á óvart
með góðum leik og hér er birtur listi
yfir tólf bestu hlutverk kvikmynda-
stjama sem allar komu úr tísku-
bransanum.
Besta frammlstaðan
1. Isabella Rossellini
Blue Velvet 1986
LEIKSTJÓRII DAVID LYNCH
2. Lauren Bacall
?????? 1946
LHIKSTJÓRi: ?????
3. Cybil Sheperd
The Last Picture Show 1971,
leikstjóri: Peter Bogdanovich
4. Kim Basinger
L.A. Confidental 1997,
LEIKSTJÓRi: CURTIS HANSON
5. Audrey Hepburn
Funny Face 1957,
leikstjóri: Stanley Donen
6. Andie MacDowell
Sex, Lies and Videotapes 1989,
leikstjóri: Steven Soderberg
7. Rene Russo
In the Line of Fire 1993,
leikstjóri: Wolfgang Petersen
8. Elle Macpherson
The Edge 1997
leikstjóri: Lee Tamahori
9. Candice Bergen
Carnal Knowledge 1971,
leikstjóri: Mike Nichols
10. Cameron Diaz
My Best Friend's Wedding 1997,
leikstjóri: P.J. Hogan
11. AIÍ MacGraw
Goodbye Columbus 1969,
leikstjóri: Larry Peerce
12. Lauren Hutton
American Gigolo 1980,
leikstjóri: Paul Schrader
rokk, popp, pönk, blús, djass, fönk, íslenskt,
erlent, létt, þungt og allt þar á milli.
Fös. 24. júlí og lau. 25. jiilí
BUTTF.RCUP fínir rokk-
popparar, góö grúppa
ct
Gaukur á stöng - Huggulega brjálaður
Gaukur á Stung, Trygg\agötii 22, 101 Reykjavík, Sími 511 1556. Fax 562 2*40. Netfang www.islaiulia.is/gaukurinn