Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Page 21
!■' i i i i i i i i i i b í ó bíódómur Meg Ryan: Fræg fýrir að gera sér upp fullnægingu Meg Ryan leikur í City of Angels hjartaskurðlækni sem verður fyrir því óláni að missa sjúkling í aðgerð, að því er virðist að ástæðulausu, og hefur það mikil áhrif á líf hennar. Hennar björgun felst í því að engill var á staðnum og ákveður hann að hjálpa henni þótt hann hafi verið í öðrum erindagjörðum. Meg Ryan á að baki einstaklega glæsilegan feril. Að mörgu leyti getur hún þakkað frægðina því að henni tókst að gera sér upp fullnægingu á eftirminnilegan máta í kaffihúsi í einni af sínum fyrstu kvikmyndum, When Harry Met Sally. í þeirri mynd sýndi hún umtalsverða hæfileika sem gamanleikkona og voru hennar helstu hlutverk á næstu árum í gam- anmyndum. Undanfarið hefur Meg Ryan æ meira verið að færa sig yfir í alvarleg hlutverk og má til að mynda nefna leik hennar í When a Man Loves a Woman, þar sem hún lék alkóhólista. Meg Ryan er gift leikaranum Dennis Quaid og hefur það hjóna- band ekki alltaf verið dans á rósum. Quaid var án þess að hún vissi háð- ur eiturlyfjum þegar þau kynntust. I nokkur ár gerði hún sér ekki grein fyrir vandanum en þegar kom að því að taka þurfti á málunum stóð hún sem klettur við hlið eiginmanns síns. Meg Ryan fæddist 19. nóvember 1961 í smábænum Fairfield í Conn- ecticut. Á námsárunum stóð hugur hennar til blaðamennsku og innritað- ist hún í háskólann í New York i þá grein. Eftir nokkrar annir sneri hún við blaðinu og innritaði sig i leiklist- ardeOd. Að námi loknu var Meg Ryan ein af þeim heppnu og þurfti ekki að bíða lengi eftir að fá hlut- verk. Hennar fyrsta stóra hlutverk var í sápuóperunni As the World Turns, en þessi sápa hefur gengið í nokkra áratugi í bandaríska sjón- varpinu. Ryan var í tvö ár í sápunni og því næst tóku við hlutverk í sjón- varpi og í tveimur kvikmyndum. Stóra stökkið kom þegar henni bauðst lítið hlutverk í Top Gun þar sem hún lék á móti Tom Cruise. I framhaldi var henni boðið annað að- alhlutverkið í Innerspace þar sem hún kynntist Dennis Quaid og giftu þau sig stuttu eftir frumsýninguna. Næsta kvikmynd sem Meg Ryan leikur í er You Have a Mail. Þar leik- ur hún á móti Tom Hanks. Þá hefur hún einnig lokið við að leika i Hur- lyburly á móti Sean Penn, Chazz Palminteri og Kevin Spacey. -HK Háskólabíó Blúsbræöur 2000 ★★ Framhald framhalds- ins vegna er víst óhætt að segja um þessa misheppnuðu tilraun til að endurlífga Blús- bræður án John Belushi. Ef ekki væri fýrir stór- góða tónlist og enn betri flutning blúsmanna þar sem stjörnur eru í hverjum bás þá væri lít- ið varið í myndina sem fyrir utan tónlistina er ein endemis della frá upphafi til enda. -HK Rökkur ★★★ Gamaldags krimmi með mátu- lega flókinni fléttu sem gengur ágætlega upp. Rökkur er kvikmynd leikaranna. Mestur er. fengurinn að Paul Newman sem heldur enn reisn þrátt fýrir aldurinn. Gene Hackman og Susan Sarandon standa einnig fýrir sínu. -HK Grease ★★■*, Oft hafði ég á tilfinningunni að það eina sem bjargaði þessu 20 ára afmæli Grease væri að hún hefði með árunum tekið á sig „kamp“-ímynd Rocky Horror Picture Show. Þannig gengur hún upp fýrir mér. Að þessu sögöu má síðan bæta við að lögin _ standa enn fýrir sínu og dansatriðin eru' skemmtileg. -GE Kringlubíó Swltchback ★★ Sakamálamynd um rað- morðingja sem gerist að mestu að vetri til í Utah í Bandarikjunum. Dennis Quaid og Danny Glover, sem eru hvor á sínum endanum f flétt- unni, gera sitt besta en myndin er of hæg og fyrirsjáanleg til að hún sé eins spennandi og tilefnið gefur til kynna. -HK Regnboginn Mlmic ★★■*. Ég verð að játa að ég beið með mikilli eftirvæntingu eftir nýju myndinni frá Guillermo Del Torro eftir að hafa heillast ákaf- lega af hinni afskaplega frumlegu og áhuga- verðu vampýrumynd Cronos. Kannski er slfk eftirvænting ósanngjörn. Þrátt fyrir frábærlega flottar myndrænar útfærslur og skemmtilegar sviðsmyndir þá fellur Mimic f þá gildru að vera ) of mikil eftirherma. -ÚD The Object of My Afectlon ★★* Nicholas Hytner ætlar sér mikið með þessari mynd enda hefur hann leikstýrt metnaðarfullum kvikmyndum á borð við The Madness of King George og The Crucuble. Honum tekst að sneiða fram hjá ýmsum gildrum en handritið kemur f veg fýrir að honum takist ætlunarverk sitt. -ÚD Scream 2 ★★★ Þó Scream 2 nái ekki þeirri snilld sem 1 átti þá held ég að ég geti ekki annað en kallað þetta þriggja stjörnu hroll- vekjuskemmtun. Eftir magnaða byrjun fór Scr- eam 2 of hægt af stað en síðan tók hún kipp og brunaði af stað og hélt uppi þessari líka * finu spennu án þess að slaka á drepfýndnum hroll-vfsununum og skildi við áhorfandann ánægjulega hrylltan. -ÚD Tltanic ★★★* Stórbrotin og ákaflega gef- andi kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Cameron að koma heilli f höfn dýrustu kvikmynd sem gerð hefur verið. Fullkomnunar- árátta Camerons skilar sér f eðlilegri sviðsetn- ingu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Le- onardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir- minnileg f hlutverkum elskendanna. -HK Stjörnubíó Skotmarklð ★★★ Ber öll einkenni hinnar fag- urfræöilega ýktu sviðsetningar og sjónarspils sem einkennir Hong-Kong myndir en hér er spilaö fyrst og fremst upp á húmorinn. Skemmtileg hasarmynd sem einnig er róman- tfsk og kómísk. Mark Wahlberg tekst enn og aftur vel upp. -ÚD r Sam-bíóin: City ofAngels ★★t City ofAngels verður frumsýnd í Sam-bíóunum í dag: Endurgerð þýsk verðlaunamynd City of Angels, sem Sam-bíóin frumsýna í dag, á langan að- draganda. Árið 1988 sá framleið- andinn Dawn Steel kvikmynd Wim Wenders, Wings of Desire, sem þá hafði unnið æðstu verð- launin á kvikmyndahátíðinni í Cannes, og keypti rétt til þess að endurgera hana. Eiginmaður Dawn Steel, Charles Roven, sem einnig er kvikmyndaframleiðandi, segir eiginkonu sína hafa verið hug- fangna af myndinni, en jafnframt verið ákveðna í að gera sína útgáfu öðruvísi og það hafi tafið fyrir framkvæmdinni. Stöðug leit að góðri hugmynd tók loks enda þegar Dana Stevens, sem var einn nokk- urra handritshöfunda sem fengnir voru til að gera drög að handriti, kom með þá hugmynd að gera ást- arsögu þar sem aðalpersónumar hittust strax í byrjun. Þegar mynd- in var fullgerð stóð þannig á að Wim Wenders var í Hollywood og var honum boðið að sjá myndina. Hann segist hafa verið kvíðinn í fyrstu en sá kvíði hvarf fljótt þar sem myndimar em mjög ólíkar að uppbyggingu. Að lokinni sýningu sagði hann: „Þessi mynd er næst- um jafngóð og þýska myndin sem Nicholas Cage er í hlutverki engils sem bæði verndar og færir fólki dauðann. ég er búinn að gleyma í augnablik- inu hvað heitir." Leikstjóri City of Angels er Brad Silbertling á aðeins eina kvik- mynd að baki, Casper, sem hann gerði í fyrra. Silbertling kemur í kvikmyndirnar úr sjónvarpinu þar sem hann leikstýrði í nokkur ár þekktum sjónvarpssyrpum á borð við L.A. Laws, NYPD Blue og Brooklyn Bridge. I aðalhlutverkum em Nicholas Cage, Meg Ryan og Dennis Franz, sem margir þekkja úr sjónvarpsseríunni NYPD Blue. “ * meira a.| www.visir.is Englar dauðans eða verndarenglar Lelkstjórl: Brad Silberling. Aðalhlutverk: Nicholas Cage, Meg Ryan, Dennis Franz, André Braughner. Það myndi aldrei hvarfla að mér að mótmæla því að Nicholas Cage sé engill. Hann er allt of skemmtilega margvíslegur til þess að vera fyllilega mennskur. Og enn einu sinni reynist hann betri en myndin sem hann birtist í. íslenskir kvikmyndaáhorfend- ur hafa þegar fengið auka- skammt af englum Wims Wend- ers í Bömum náttúrunnar en þar var þemað notað á öllu áhuga- verðari hátt en hér í þessari „endurgerð" Brads Silberlings á Himmel úber Berlin. Cage er eng- illinn Seth sem verður ástfang- inn af hjartaskurðlækninum (sbr. ást=hjarta) Maggie (Meg Ryan) og stofnar til sambands við hana, sambands sem eðlis þátt- takenda vegna verður að vera platónskt. Það er ekki fyrr en Seth hittir hinn fallna engil, Messinger (Dennis Franz), að hann uppgötvar möguleikann á holdlegri tilveru - og fellur um- svifalaust. Það sem helst háir þessari Borg engla er hvað hún er ójöfn og misjöfn. Það er eins og kvikmyndagerðarmennirnir hafi aldrei getað gert upp við sig hvers konar mynd skiöli gera, listræna mynd um engla eða hefðbundna rómantíska kómedíu eða drama eins og Hollywood framleiðir hugsunarlaust í hrönnum. Hugmyndin um allt- mnvefjandi engla, sem eru bæði englar dauðans og verndarenglar - án þess þó að geta nokkurn tíma tekið virkan þátt í neinu - er bæði indæl og póetísk. Mynd Wenders leið nokkuð fyrir tilgerð og því miður hefur sá vankantur skilað sér áfram í endurgerðinni og blandast einstaklega illa því klisjukennda bandaríska ástar- drama sem óneitanlega setur sinn svip á City of Angels. En þrátt fyrir þessa galla, tilgerð og klisjur á City of Angels virkilega fallegar og áhrifamiklar senur inni á milli þar sem leikstjóra og myndatökumanni tekst vel upp við að skapa þá stemningu sem upprunalega hugmyndin um (ó)sýnilega engla býður upp á. ÚlfhUdur Dagsdóttir „Þrátt fyrir galla, tilgerð og klisjur á City ofAngels virkilega fallegar og áhrifamiklar senur. “ t 24. júlí 1998 f Ó k U S 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.