Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
27
Sviðsljós
Kryddpían Mel B
hlýddi rödd hjartans
Kryddpían Mel
B, sem gifti sig á
sunnudaginn, segir
í blaðaviðtali nú í
vikunni að það
hafi verið ást við
fyrstu sýn þegar
hún hitti eigin-
manninn, dansar-
ann Jimmy Gulzar,
fyrir rúmu hálfu
ári. Jimmy dans-
aði í sýningu
Kryddpíanna og
um leið og Mel B
sá hann voru örlög
hennar ráðin.
„Þetta var svolítið öðruvísi hjá
honum, hann var jú í vinnu hjá
mér. Við vorum bæði í sambandi
með öðrum en hinar Kryddstelpurn-
ar sögðu mér að hlýða rödd hjart-
ans.“
Brúökaupið segir Mel B hafa ver-
ið dásamlegt. Hún hafi grátið og
verið yflr sig hamingjusöm. Eftir
vígsluna var salsapartí og flugelda-
sýning.
Mel B, sem er komin fjóra mán-
uði á leið, á ekki
von á að móðurhlut-
verkið hafi áhrif á
störf hennar.
„Á næsta ári ætl-
um við að semja lög
fyrir þriðju breið-
skífu Kryddpianna
og ég ætla að semja
lög fyrir sólóplöt-
una mína þannig að
ég tek það svolítið
rólegra," segir fyrr-
verandi tengdadótt-
ir íslands.
Hún er enn ekki
búin að ákveða
hvort hún ætli að vernda bamiö
sem hún gengur með fyrir
sviðsljósinu. Víst sé þó að bamið
verði elskað og að því verði sýnt
traust. Melanie segir það augljóst að
barnið muni breyta einhverju í lífi
hennar en hún ætli að halda áfram
að fara út að skemmta sér eftir að
hún er orðin móðir.
Mel B kveðst ekki hafa orðið vör
við breytingar á röddinni vegna
þungunarinnar en tekur það fram
m u - . -s. §
/ %\CrA
1
v<
tt
\ 'TNj j
-47*
W' ft
*JlBk * * av
Hollywoodparið Jennifer Aniston
og Brad Pitt eru sögð ætla að ganga
í það heilaga á næsta ári, ef marka
má frétt breska slúðurblaðsins The
Sun. Jennifer sást fyrst með Brad
Pitt á góðgerðartónleikum í
Washington fyrr á þessu ári.
Þeir sem kunnugir eru
málavöxtum segja að Pitt hafi orðiö
heillaður af henni er hann sá hana
á sjónvarpsskjánum. Hann á að hafa
boðið henni út að borða og í
kjölfarið hafi fylgt mörg leynileg
stefnumót.
Samkvæmt frásögnum vina eru
skötuhjúin í skýjunum, þau hlakki
til að eignast heimili saman og
stofna fjölskyldu. Bæði eru sögð
vilja eignast bam en telja rétt að
ganga í hjónaband fyrst.
að kynlíf sé æðislegt þegar maður
eigi von á barni.
Þessa dagana er Kryddpían nýgifta
að gefa út fyrstu sólóplötuna sína, I
Want You back, þannig að í nógu er
að snúast. Höfundur og framleiðandi
plötunnar er Missy Elliott.
Mel B er stolt yfir plötunni en
leggur áherslu á að á næsta ári
verði það eigið efni sem hún gefur
út.
Hún verður í samstarfi við Prince
og Mary J Blige og hlakkar mikið
til.
Var með
DiCaprio
allan sólar-
hringinn í
heilan mánuð
Tékkneska fyrirsætan Eva
Herzigova hefur viðurkennt að
hjónaband hennar og trommu-
leikarans Ticos Torres hafi farið
út um þúfur vegna framhjáhalds
hennar með hetjunni úr Titanic-
kvikmyndinni, Leonardo
DiCaprio. Eva og Leonardo vora
saman dag og nótt í París í heil-
an mánuð, að því er hún sjálf á
að hafa greint frá.
Uppistand á Astró
Fókus, Mono og Vísir.is kynna TALkvöldá
Astró, leitað erað fyndnasta manni
ikvöld
Hönnuðir í New York halda nú sýningu á tískunni fyrir næsta vor. Þessi
fallegi kjóll, sem nær rétt niöur fyrir hné, er frá Nicole Miller-tískuhúsinu.
Símamynd Reuter
Pitt og Aniston
í það heilaga
MBBHi